Morgunblaðið - 02.12.1994, Síða 44

Morgunblaðið - 02.12.1994, Síða 44
44 FÖSTUDAGUR 2. DESEMBER 1994 MORGUNBLAÐIÐ 25. ÓLYMPÍULEIKARNIR í EÐLISFRÆÐI Fróðleg ferðalög á framandi stað ÞÓTT verkefni Ólympíuleikanna í eðlisfræði séu erfið og keppendur hafi aldrei áður þurft að leysa svo erfiðar þrautir er langt í frá að leikarnir séu eintómt púl. Þeir standa í átta daga og af þeim tíma fer einn og hálfur dagur í keppn- ina sjálfa. Keppendum gefst því nægur tími til þess að kynnast nemendum frá öðrum löndum og fara í styttri og lengri ferðir um nágrennið. Fyrsti dagurinn í Beijing fór að mestu í að jafna sig eftir flugferð- ina og venjast .tímamuninum. Snemma morguninn eftir voru leikamir settir í Beijingháskóla. í byijun júlí er regntíminn í Kína og fór liðið ekki varhluta af því. Það kom sér því vel að kínverski leiðsögumaðurinn þeirra, hún Zhao Na, hafði fengið lánaðar regnhlífar fyrir liðið til að skýla í mestu dembunum. Þegar stytti upp var sólin þó brennheit og hit- inn allt upp í 36 gráður. Þriðja daginn var síðan fræðilega keppn- in, fimm klukkustunda glíma við verkefni sem háskólanemendur í eðlisfræði ættu fullt í fangi með að leysa jafnvel þótt þeir hefðu rýmri tíma og öll hjálpargögn. Búdda í andstöðu við fergurðarímyndina Að keppninni lokinni hafði loks- ins stytt upp og var það eins gott því ferðinni var heitið að hofi hinna heiðbláu skýja þar sem feitur og sællegur Búdda, alger andstæða við fegurðarímynd Vestur- landabúa, sat í öndvegi en í Beij- ing eru mörg Búddahof og greini- Næstu ólympíu- leikar haldnir í ------------^---- Canberra í Astr- alíu næsta sumar. legt að búddismi á sér sterkar rætur í Kína. Reyndar misstu tveir íslensku keppendanna næstum því af ferðinni því þeir þurftu á síð- ustu stundu að hlaupa eftir myndavél upp í herbergi sitt á níundu hæð á hótelinu þar sem vonlaust var að bíða eftir lyftun- um. Þegar þeir komu aftur niður í anddyrið og uppgötvuðu að hóp- urinn var farinn ákváðu þeir að taka bara leigubíl að hofinu og voru komnir á staðinn á undan rútunum. Þannig voru strákamir strax eins og heima hjá sér í þess- ari 10 milljón manna borg sem Beijing er og sýnir það glöggt að þrátt fyrir að undirbúningur okkar keppenda í eðlisfræðinni sé e.t.v. lakari en margra annarra þjóða eru þeir áræðnari og geta bjargað sér betur en margir hinna keppendanna sem varla þorðu að fara út af hót- elinu af ótta við að villast. Um kvöldið hittu keppendur síðan farar- stjóranna og ræddu um niðurstöð- umar úr fræðilegu verkefnunum frá því um morguninn. I ljós kom að árangurinn hafði ekki verið upp á marga fiska og því var ekkert annað að gera en að bíta á jaxlinn og ákveða að gera betur í verklega hlutanum. Næsta morgun var ferðinni heitið að Torgi hins him- neska friðar þar sem engin merki sjást lengur um uppreisn stúdent- anna sem var barin niður árið 1989. Það er þó augljóst ef kín- verskir túlkar og fararstjórar em inntir eftir þeim atburðum að þeir vilja helst ekkert um þá ræða. Kínveijar virðast átta sig á for- dæmingu heimsins á þeim ofbeld- isverkum sem þama vora framin og fara því undan í flæmingi þeg- ar þessa atburði ber á góma. Við suðurhlið torgsins er hlið hins him- neska friðar þar sem er stór mynd af Maó formanni og löng röð af fólki var alltaf við grafhýsi hans. Þessi fýrram leiðtogi Kína virðist enn eiga sinn sess í huga íbúanna og var alls staðar hægt að kaupa merki með mynd af Maó og Rauða kverið bæði á ensku og kínversku. Keisarahallírnar Ekki er hægt að heimsækja 1 Beijing nema koma við í for- boðnu borginni þar sem keisar- amir ríktu áður og enginn mátti stíga fæti. Þar gefur að líta keisarahallirnar ARNAR á múrnum. sem hafa verið eins konar ein- kennismerki Kína í hugum margra. Þegar litið er út um gluggann á Huan Yuan hótelinu þar sem keppendumir bjuggu þar sem getur að líta þök háhýsa sem gætu í sjálfu sér verið í hvaða landi sem er efast maður ósjálf- rátt um að þetta sé nú raunvera- lega Kína en í forboðnu borginni velkist enginn í vafa og þeir sem sáu stórmyndina „Síðasta keis- arann“ kannast við leiktjöldin en hluti hennar var einmitt tekinn hérna. Að sjálfsögðu var líka farin skoðunarferð í Sumarhöllina þar sem fom kínversk byggingarlist ræður líka ríkjum. Merki Ólympíukeppninnar vísar til tvenns sem Kínveijar era mjög stoltir af. Annars vegar er það gríski stafurinn t (tá) sem er skír- skotun til þess að árið 1992 tókst Kínveijum að mæla mjög ná- kvæmlega massa t miðeindarinn- ar. Þannig er merkið tákn um sigra Kínveija á sviði nútíma eðlisfræði. Hins vegar táknar það einnig múrinn mikla. Múrinn sem er um 6.000 km langur er eitt frægasta mannvirki í heimi. Auðvitað var farið með keppenduma á Ólympíu- leikunum að múmum. Nálægt Beijing er Badaling sem er einn fjölsóttasti hluti múrsins mikla. Þangað fóru keppendumir daginn eftir verklegu keppnina enda full- yrti einn kínverski fararstjórinn að enginn gæti orðið sönn hetja nema að hafa klifið Kínamúrinn. Um kvöldið var svo öllum kepp- endum og fararstjórum boðið að sjá fjölleikasýningu í Er Qi leik- húsinu en kínverskir fjöllistamenn era frægir um allan heim fyrir fimi sína og listræna fágun. Allt tekur enda og áður en varði var komið að lokaathöfn Ólympíu- leikanna. Við hátíðlega athöfn í Alþjóðlegu ráðstefnuhöllinni í Beijing var tuttugustu og fímmtu Ólympíuleikunum í eðlisfræði slit- ið. Þeir sem sköraðu framúr fengu verðlaun og allir fundu fyrir því að þessi tími hafði liðið alltof fljótt o g kveðjustundin nálgaðist. Haldnar vora hátíðlegar ræður og bauð fulltrúi áströlsku undirbún- ingsnefndarinnar alla velkomna til leikanna í Canberra næsta sumar. Einhveijir nemendanna sem vora í Beijing koma örugglega þangað en flestra þeirra bíður nú frekara nám og störf í heimalandi þeirra. íslenzku keppendurnir á ólympíuleikunum í eðlisfræði: Arnar Már Hrafnkelsson, Burkni Pálsson, Gunnlaugur Þór Briem og Stefán Bjarni Sigurðsson, allir úr MR, og Jóhann Sigurðsson úr MH. KEPPENDURNIR sem sendir eru á Ólympíuleikana eru valdir með hliðsjón af árangri þeirra í Landskeppni í eðlisfræði. Undir- búningur hennar hefst í nóvem- ber ár hvert. Keppnin er haldin fyrir tilstuðlan Eðlisfræðifélags íslands og Félags raungreina- kennara og sjá þau Ingibjörg Haraldsdóttir, áfangastjóri í Menntaskólanum í Kópavogi, og Viðar Ágústsson, framkvæmda- sljóri VARA, um framkvæmd hennar. Forkeppni er haldin í flestum framhaldsskólum lands- ins í febrúar og er efstu 10-15 nemendum úr forkeppninni boðið til úrslitakeppni í Háskóla Islands venjulega um miðjan mars. Morg- unblaðið greiðir allan kostnað við Landskeppnina, þ.e. prentun, dreifingu og verðlaun, en kennar- ar við eðlisfræðiskor Háskólans sjá um að semja verkefnin og Fjölmargir hafa styrkt þátttöku íslendinga fara yfir þau. Öll sú vinna er unnin í sjálfboðavinnu. Fimm efstu nemendunum úr forkeppninni sem jafnframt upp- fylla aldursskilyrði ólympíuleik- anna er boðið að fara til keppn- innar erlendis og hefst þjálfun þeirra í lok maí að loknum próf- um í skólunum. Menntamálaráðuneytið greiðir ferðakostnað keppenda og farar- stjóra á ólympíuleikana en kín- versku gestgjafamir sáu um uppi- hald og ferðir innan Kina. Þótt allur undirbúningur ferðarinnar, sem og fararstjóm, sé unninn í sjálfboðavinnu er þó ýmis annar kostnaður sem fylgir þátttöku í svona keppni. Það er því nauðsyn- legt að leita styrkja hjá fyrirtækj- um svo hægt sé að senda lið á leikana. Að þessu sinni styrktu fyrirtækin Skandia, Seðlabankinn og íslandsbanki liðið og Heimilis- tæki gáfu tæki sem notuð voru í lokakeppni Landskeppninnar og reiknivélar sem uppfylla skilyrði leikanna fyrir alla keppendurna fimm. „Ég vil fyrir hönd Lands- keppni í eðlisfræði færa þeim aðil- um sem hafa styrkt keppnisliðið bestu þakkir fyrir stuðninginn," sagði Viðar Ágústsson, fram- kvæmdastjóri Landskeppninnar í eðlisfræði, í viðtali við blaðið. 26. ólympíuleikarnir í eðlisfræði í Ástralíu 1995 ,,ÞAÐ verður ýmislegt öðruvísi í Ástralíu en hér í Kína,“ sagði Rodney Jory, fararstjóri ástralska liðsins og framkvæmdastjóri keppninnar, sem verður á næsta ári í Canberra, höfuðborg Ástralíu. Til dæmis hitastigið. Á meðan hit- inn í Beijing fór oft yfir 35 gráður og mikill raki var í loftinu mega keppendur búast við hitatölum á borð við 8-10 gráðum að degi til og jafnvel næturfrosti. í byijun júlí er nefnilega vetur í Ástralíu en Canberra er á 34. gráðu suð- lægrar breiddar. Þar snjóar þó mjög sjaldan að sögn Rodneys og hefur ekki sést þar snjór síðan 1988. Undirbúningur fyrir ólympíu- leikana í eðlisfræði í Canberra sumarið 1995 gengur mjög vel að sögn Michael Peachey ritara und- irbúningsnefndar leikanna. Að þessu sinni verða þeir frá 5.-13. júlí og segir Michael að búist sé við um 50 þátttökuþjóðum en fjöldi þeirra hefur farið vaxandi með hverjum ólympíu-leikum. Michael lofar því að þátttakendur muni örugglega fá að kynnast einkennis- dýri Astralíu kengúranni en keng- úrur sjáist reyndar stundum á beit á þurrum sumrum nálægt keppnis- staðnum. Einnig verða farnar skoðunarferðir um nágrennið. Skólahald er í fullum gangi í Ástr- alíu á þessum tíma en keppnin er haldin á meðan 10 daga skólaleyfí er í háskólanum þannig að hægt er að nýta aðstöðuna þar. Munu bæði keppendur og fararstjórar búa á stúdentagörðum háskólans í Canberra, en hún er sjötta stærsta borg Ástralíu með 300 þúsund íbúa. Borgin er í um 600 metra hæð yfír sjávarmáli og er um tveggja klukkustunda akstur þaðan að strönd Kyrrahafsins. Michael segir aðaláhersluna hafa verið lagða á að gera verkefni keppninnar sem best úr garði og leggja ástralskir eðlisfræðingar metnað sinn í að sýna að þeir séu fyllilega sam- Michaei keppnisfænr við Peachey hvaða þjoð sem er við samningu slíkra verkefna. Núna ári fyrir keppnina eru verkefnin þegar til- búin en þau era unnin af eðlisfræð- ingum við fimm mismunandi há- skóla í Ástralíu. Fyrstu leikarnir á suðurhveli jarðar Leikarnir í Ástralíu verða fyrstu ólympíuleikarnir í eðlisfræði á suð- urhveli jarðar og þurfa flestir þátt- takendur að leggja á sig langt ferðalag til að komast þangað. Það er enn ekki vitað hve margir kepp- endur verða sendir frá íslandi en þeir verða valdir að lokinni úrslita- keppni Landskeppninnar í eðlis- fræði sem fer væntanlega fram í mars á næsta ári að lokinni undan- keppni í flestum framhaldsskólum landsins. íslensku keppendurnir munu þó að örugglega kunna ágætlega við sig í vetrarveðrinu í Canberra þar sem hitastigið verður sennilega svipað og á svölu sumri hér á landi.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.