Morgunblaðið - 07.12.1994, Page 12

Morgunblaðið - 07.12.1994, Page 12
12 MIÐVIKUDAGUR 7. DESEMBER 1994 AKUREYRI MORGUNBLAÐIÐ Breytt og- bætt sorp- meðferð „GETUR breytt og bætt sorp- meðferð verið atvinnuskap- andi og er hægt að spara með breyttum neysluvenjum," er heiti erindis sem Valur Þór Hilmarsson umhverfisfræð- ingur mun flytja á opnu húsi Miðstöðvar fólks í atvinnuleit í Safnaðarheimili Akureyrar- kirkju í dag, miðvikudag en miðstöðin er opin frá kl. 15 til 18. Kaffi og brauð verður á borðum að vanda þátttakend- um að kostnaðarlausu og dag- blöð liggja frammi. Lög- mannavaktin starfar á sama stað á miðvikudögum frá kl. 16.30 til 18.30. Ari Þorsteinsson Yfirmaður sjávarútvegs- sviðs KEA ARI Þorsteinsson frystihús- stjóri KEA í Hrísey hefur ver- ið ráðinn í starf forstöðu- manns sjávarútvegssviðs KEA frá og með næstu ára- mótum. Ari er fæddur árið 1958, hann útskrifaðist sem M. Sc. sjávarútvegsfræðingur frá Háskólanum í Álaborg í Dan- mörku árið 1987. Að námi loknu starfaði hann hjá Fisk- iðjuveri KASK og hjá Borgey hf. á Hornafirði þar til hann var ráðinn til Kaupfélags Ey- firðinga fyrir um það bil tveimur árum. Ari er kvæntur Maríu Gísladóttur og eiga þau tvö börn. Sex bátar róa Grímsey. FJÓRIR bátar leggja upp afla hjá Fiskverkun KEA í Gríms- ey en veiði hefur verið heldur treg að undanförnu og reynd- ar lítið gefið á sjó. Bátarnir sem eru í viðskipt- um við KEA eru Magnús, Hafdís, Siggi og Björn og róa þeir með allar tegundir veiðarfæra, snurvoð, línu, net og handfæri, en svo virðist sem sama sé hvaða veiðar- færi er notað, það er tregt. Einn bátur, Sæbjörg, leggur upp afla í landi. I frétt í blaðinu fyrir helgi kom fram að krókaleyfisbát- arnir eru nú stopp fram í febr- úar næstkomandi og að að- eins einn bátur, Þorleifur, rói frá eynni um þessar mundir. Það var ekki alls kostar rétt, Þorleifur EA er eini báturinn sem leggur afla sinn upp hjá Fiskkaupum. Verulegar upphæðir hafa tapast vegna ábyrgðarveitinga 128 milljóna tap á 3 árum Bærinn nú í ábyrgðum fyrir 408 milljónum AKUREYRARBÆR hefur tapað 128 milljónum króna á síðustu þremur árum vegna ábyrgðarveit- inga „og mætti segja að því fé hefði betur verið varið til upp- byggingar en greiðslu ábyrgða fyrir gjaldþrota fyrirtæki," segir í skýrslu Valtýs Hreiðarssonar viðskiptafræðings og lektors við sjávarútvegs- og rekstrardeild Háskólans á Akureyri, „Þátttaka Akureyrarbæjar í atvinnu- rekstri". Fram kemur í skýrsiunni að bæjarsjóður hafí veitt umfangs- miklar ábyrgðir vegna lántöku fyrirtækja í áranna rás en veruleg- ar upphæðir hafi tapast á síðustu árum. Árið 1991 töpuðust 52,3 milljónir vegna gjaldþrota tveggja fyrirtækja, ístess og Álafoss. Næsta ár þar á eftir töpuðust 10 milljónir þegar skóverksmiðjan Strikið varð gjaldþrota og á síð- asta ári nam tapið 65,5 milljónum króna vegna gjaldþrots Niður- suðuverksmiðju K. Jónssonar og Hótels Norðurlands og þá töpuðu dómsmáli til handa Plasteinangr- un. Samtals hefur bærinn því tap- að 128 milljónum vegna ábyrgðar- veitinga á þremur árum. Um síðustu áramót var Akur- eyrarbær í ábyrgðum upp á 408 milljónir króna hjá þremur fyrir- tækjum, Krossanesi 305 milljónir, Súlunni 99 milljónir og Slippstöð- inni 4 milljónir króna. Frá árinu 1990 hefur bærinn afskrifað 84 milljónir króna vegna vangoldinna bæjargjalda fyrirtækja. Hættuspil Höfundur skýrslunnar tekur fram að hvorki ábyrgðir né af- skriftir teljist framlög til atvinnu- mála né þátttaka í atvinnurekstri. „Engu að síður tengdust ábyrgð- irnar, þegar til þeirra var stofnað, atvinnurekstri og hafa væntanlega verið síðasta úrræði fyrirtækjanna til þess að veita tryggingar fyrir lánum. Það er því greinilegt hættuspil að veita ábyrgðir þar sem veð og bakgrunnur fyrirtækj- anna er sýnilega ekki það traustur í augum lánastofnana að þær taki tryggingar þeirra gildar,“ segir Valtýr í skýrslunni um þátttöku bæjarins í atvinnurekstri. Morgunblaðið/Rúnar Þór Jólatréð skreytt BÆJARSTARFSMENN voru í gær að undirbúa grenitré fyrir hlutverk þess sem jólatré næstu vikur. Val á fulltrúum bæjarins í stjórnir félaga Pólitísk hlutföll verið sett ofar fagþekkingn „ÞAÐ hlýtur því að vera augljós krafa að valdir fulltrúar séu fyllilega hæfir til að takast á við þá ábyrgð sem fylgir því að nýta skattfé samborgara sinna skynsamlega. Það koma því upp spurningar um það eftir hvaða far- vegi ákvarðanir eru teknar um val fjárgæslumanna kjósenda," segir í skýrslu Valtýs Hreiðarssonar lektors við sjávarútvegs- og rekstrardeild Háskólans á Akureyri sem fjallar um þátttöku Akureyrarbæjar í atvinnurekstri. Þar segir einnig að þar sem um sameiginlega fjármuni margra sé að ræða eins og hjá sveitarfélögum sé það á valdi bæjarstjórnar eða þeirra sem hún tilnefnir að velja fulltrúa til að ráðstafa þeim og/eða viðhalda á sem skynsamastan hátt. Við val á fulltrúum bæjarins í stjórnir félaga virðist sem áhersla á pólitískt hlutfall stjórnarmanna hafi oft verið sett skör hærra en fagþekking. Fram kemur í skýrsl- unni að á síðustu fjórum árum hef- ur bærinn lagt fram 610 milljónir króna til kaupa á hlutabréfum. Umtalsverðar upphæðir hafa tapast vegna hlutabréfakaupanna. Goggunarröðin Valtýr segir í skýrslunni að ljóst sé að pólitískar vildarúthlutanir ráði að hluta vali fulltrúa í hinar ýmsu nefndir og stofnanir bæjarins og einnig í fýrirtækjum sem bærinn á eignaraðild að. „Einstaka sinnum getur því komið upp sú staða að goggunarröð er ekki í samræmi við skynsamlegustu lausn mála. Það merkir að við val fulltrúa er ekki fundin besta lausn heldur er farið eftir öðrum sjónarmiðum," segir í skýrslunni. Varðandi þátttöku í fyr- irtækjarekstri sé því brýn nauðsyn á að setja skýrar línur um hvernig standa skuli að vali stjórnarmanna af hálfu bæjarins og hvaða þekkingu og kosti þeir skuli hafa til að bera. Standa ekki skil á gerðum sínum Valtýr segir í skýrslunni að jafn- framt því að setja eigi skýrar línur um val stjórnarmanna eigi að vera fyllilega ljóst að standist þeir ekki væntingar, taki augljóslega rangar „ÞAÐ er sýnilegt að stjórnendum bæjarins hafa þótt lánveitingar þessar komnar úr böndum og til- gangur smárra fjárveitinga til margra aðila væri lítill og betur kominn í bankakerfinu. Það vekur athygli að meira en helmingur lán- takenda hafa verið úrskurðaðir gjaldþrota," segir í skýrslu Valtýs Hreiðarssonar lektors við Sjávarút- ákvarðanir vegna þekkingarleysis eða ógagnrýninnar fylgihlýðni, beri þeim að standa skil á gerðum sín- um. Ekki hafi tíðkast að fulltrúar bæjarins hafi staðið skil á gerðum sínum, hafi þeim mistekist eða ekki tekið á stjórnunarábyrgð sinni. Einnig varpar Valtýr fram þeirri spurningu í skýrslu sinni hvort framkvæmdastjórar axli of mikla ábyrgð og stjórnarmenn fylgi gagn- rýnislaust eftir hugmyndum þeirra. Hann segist ekki fullyrða um slíkt en ætla megi að eftir því sem þekk- ingu og gagnrýni sé meira ábóta- vant og tíma skorti hjá fulltrúum þeim mun sterkara verði valdsvið framkvæmdastjóra. vegs- og Rekstrardeild Háskólans á Akureyri, „Þátttaka Akureyrar- bæjar í atvinnurekstri11. Þetta kemur fram í kafla um Framkvæmdasjóð, en útlánaþætti sjóðsins var að mestu lokið fyrir fjórum árum. Frá upphafi árið 1956 til 1980 var eingöngu lánað til bæjarfyrirtækja, Krossaness og Útgerðarfélags Akureyringa. Valtýr leggur til að mörkuð verði ákveðin stefna, sem fylgt verði eft- ir án tillits til hveijir séu í meiri- eða minnihluta hveiju sinni, um hvernig staðið verði að ákvarðana- töku um sölu hlutabréfa í eigu bæjarins og einnig þurfi að hugsa út leikreglur um hvenær leggja eigi fram hlutafé og hversu mikið sem og einnig hvenær skynsamlegast sé að hætta þátttöku í rekstri fyrir- tækja. „Myndi óbundið ráðgefandi fagráð hugsanlega geta leyst ein- hver af þeim vandamálum sem hér hafa verið talin upp? Eða þróunar- sjóður sem liti ákveðnum leikreglum varðandi kaup, sölu og skipan ráða- manna?“ Stafræn símstöð I Mývatnssveit Mývatnssveit. VERIÐ er að vinna við að setja upp nýja starfæna símstöð í Reykjahlíð. Síðastliðið sumar og haust var lagður ljósleiðari úr Reykjadal upp að Mývatni milli Álftagerðis og Skútustaða. Þaðan var komið á örbylgjusambandi við stöðina í Reykjahlíð til bráðabirgða. Næsta sumar verður ljósleiðarinn lagður eftir botni Syðri-flóa Mývatns og tekin í land á Neslandatanga, síðan áfram norður eftir honum að Ytri- flóa og eftir botni hans og í land i í Reykjahlíð. Áformað er að taka þessa nýju símstöð í notkun fyrir jól. Útlán Framkvæmdasjóðs Helmingnr lántak enda gjaldþrota

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.