Morgunblaðið - 07.12.1994, Qupperneq 17
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 7. DESEMBER 1994 17
FRÉTTIR: EVRÓPA
v
Reuter
Vigdís í Berlín
slík tengsi myndu rofna þó svo
VIGDÍS Finnbogadóttir, forseti
Islands, hefur undanfarna daga
verið stödd I Beriin í tengstum
við ræðu er hún flutti á ársfundi
Berliner Pressekonferenz á
mánudags. Þýska fréttastofan
DPA segir í frásðgn af ræðu Vig-
dísar að hún hafi sagst vera sann-
færð um að norrænni samvinnn
yrði viðhaldið þó svo að Finnar
og Sviar yrðu aðilar að E vrópu-
sambandinu um áramótin. Sagði
forsetan samvinnu Norðurland-
anna undanfarna hálfa ðld vera
einstakt dæmi um sambúð þjóða.
Hún gæti ekki ímyndað sér að
að þijár þjóðir yrðu aðOarað ESB
og tvær stæðu fyrir utan. Vigdis
sagði ríkisstjóm íslands hafa
mótað þá stefnu að íslendingar
yrðu ekki aðilar að ESB, ekki síst
þar sem sjávarútvegsstefna sam-
bandsins samrýmdist ekki hags-
munum íslendinga. F.innig átti
Vigdís fundi með m.a. Roman
Herzog, forseta Þýskaiands, í
Schlosss Beilevue, og Christine
Bergmann, aðstoðarborgarstjóra
Berlinar, sem hún sést hér með
fyrir framan Brandenborgarhiið-
ið.
Jacques Delors í viðtah
Sambandsríki
er nauðsyn
Brussel. Reuter.
JACQUES Delors, sem lætur af starfi
forseta framkvæmdastjómar Evrópu-
sambandsins um áramótin, lýsti fram-
tíðarsýn sinni i viðtali sem birtist í
franska viðskiptablaðmu Les Echos í
gær. Segir hann einungis aukinn sam-
runa geta tryggt stöðu Evrópuríkjanna
í heiminum í framtíðinni.
Delors segir í viðtalinu að hann telji
sambandsríkjahugmyndina vera þá
Ieið sem þýði minnsta miðstýringu og
bestu trygginguna fyrir lýðræðislega
stjóm. „Annað hvort verður eitt ...
evrópskt svæði án sterkra pólitískra
tengsla ríkja innbyrðis og við munum
ekki getað viðhaldið stöðu okkar í
heiminum. Eða þá að til verða annars
konar samtök, samband evrópskra
ríkja, þar sem aðgangur er takmarkað-
ur, sem munu geta haldið uppi merki
Evrópu í heiminum," sagði Delors.
Talið er nær víst að Delors muni
bjóða sig fram í frönsku forsetakosn-
ingunum á fyrri hluta næsta árs og
takast þar á við Edouard Balladur
forsætisráðherra og hugsanlega einnig
Jacques Chirac, fyrrum forsætisráð-
herra. Stefnir í að Evrópumálin verði
eitt helsta deilumál kosninganna.
Delors gagnrýndi Balladur fyrrum
ummæli sem hann lét falla í blaðavið-
tali í síðustu viku en þar sagðist for-
sætisráðherrann vera þeirrar skoðunar
að stækkað Evrópusamband gæti aldr-
ei orðið að sambandsríki. Mælti Ballad-
ur með lausbeislaðra og sveigjanlegra
fyrirkomulagi.
Delors sagði að þvert á móti myndi
30 ríkja ESB aldrei geta orðið að neinu
alvöru afli nema að sum ríldn gengju
skrefinu lengra í átt að sambandsríki.
Það samband ætti að vera opið öllum
þeim ríkjum, sem væru reiðubúin að
axla skyldur þess.
Hann sagðist ekki vera algjöriega
sammála hugmjmdum Helmuts Kohls
Þýskalandskanslara, sem í september
lagði til myndun „harðs evrópsks
kjama“ er samanstæði af Þýskalandi,
Frakklandi og Beneluxríkjunum en
Delors sagðist þó telja að hann og
Þjóðveijar ættu sér sömu hugsjön.
Að hans mati stæðu Frakkar
frammi fyrir sögulegum ákvörðunum
á borð við þær að taka upp samevr-
ópskan gjaldmiðil í stað frankans og
að franski herinn yrði hluti af Evrópu-
her.
Varað við verðbólgu
• FRAMKV ÆMD AST JÓRN
Evrópusambandsins varar við
þvi að verðbólga geti komizt á
skrið í sambandinu að nýju, ef
aðildarríki þess gæta ekki að-
halds í ríkisfjármálum. í árlegri
skýrsiu sinni um efnahagsmál í
aðildarríkjunum segir fram-
kvæmdastjórnin að „nokkur at-
riði“ bendi til þess að hætta sé á
aukinni verðbólgu á næstu tveim-
ur árum og varar sérstaklega við
þensluáhrifum vegna batnandi
efnahags.
• E VRÓPUÞINGIÐ og ráðherr-
aráð ESB deila nú um fjármögn-
un mennta- og æskulýðsverkefn-
anna „Sókrates" og „Æska í Evr-
ópu“. Þingið vill 10,8 milljarða
króna í síðarnefnda verkefnið og
92 milijarða í Sókratesarverk-
efnið. Ráðherraráðið býður hins
vegar „aðeins“ 8,7 milljarða og
63 milljarða. Mennta- og æsku-
lýðsmál eru einn þeirra máia-
flokka, þar sem EÞ fer með lðg-
gjafarvald ásamt ráðherraráðinu
og ráðherrar og þingmenn verða
þvi að senya sin á milli. x
• YFIRMENN austurríska
seðlabankans undirrituðu í gær
samning um aðild Austurríkis að
Evrópska myntsamstarfinu
(EMS), sem tekur gildi um leið
og ríkið gengur í ESB 1. janúar.
Austurríkismenn hyggjast fljót-
lega taka þátt í gengissamstarf i
Evrópu (ERM). Austurríski skild-
ingurinn hefur verið tengdur
gengi þýzka marksins og þvi er
talið að ákvörðunin muni ekki
hafa mikil áhrif á gengis- eða
peningamálastefnu Austurrikis.
Svíþjóð og Finnland, sem einnig
ganga í ESB um áramót, ætla
að ganga í EMS, en standa utan
við ERM að sinni og láta gjaid-
miðla sína „fljóta".
Heynsla - þekking -Jbrysta
Veljum Drífu Sigfúsdóttur,
Jorseta bœjarstjómar Keflavíkur — Njatðvíkur —Hafna, í 1. sceti í
prófkjöri Framsóknarflokksins í Reykjaneskjördcemi 10. desember nk.
Metum þekkingu hennar og reymslu í stjórnmálum.
Stuðningsmenn.
Prófkjörsshrijstofur:
Kejlavík: Hafnargötu 45 (fyrir afan gíerrragnavershin), símar 14025 og 14135.
Kópavogur: Hamraborg 10 (gengid inn bakatil), símar 644744 og 644734.
MÐ KOSTAR MIKLU MINNA
EN PÚ HELDUR AÐ KAUPA SÉR VANDAÐ,
FALLEGT OG SLITSTERKT SÓFASETT.
Valby sófasettið fæst bæði í 3-1-1 og 3-2-1
eða sem hornsófi 6 sæta eða 5 sæta.
Slitsterkt leður á slitflötum og margir
leðurlitir. Komdu strax í dag.
6 sæta horn kr. 158.640,
5 sæta horn kr. 152.320,-
Hvergi meira úrval til af sófasettum og hornsófum
en í stærstu húsgagnaverslun landsins.
Húsgagnahollin
BÍLDSHÖFÐA 20 - 112 REYKJAVÍK - SÍMI 91-871199
Staðgreiðsluafsláttur
eða góð greiðslukjör
Blab allra landsmanna!
I • • f | • ■
-kjarm malsms!