Morgunblaðið - 07.12.1994, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 07.12.1994, Blaðsíða 32
32 MIÐVIKUDAGUR 7. DESEMBER 1994 MORGUNBLAÐIÐ AÐSENDAR GREINAR ÞJÓNUSTA við fatlaða og að- standendur þeirra má segja að hafi verið byggð upp frá grunni á síðustu 15 árum. Þar má nefna stuðnings- fjölskyldur, skammtímavist, stuðn- ing á leikskóla, liðveislu, ummönn- unarbætur, sambýli o.fl. Þetta gerð- ist með tilkomu jafnréttislaga, sem sett voru til að skapa fötluðum eðli- leg lífsskilyrði í þjóðfélaginu við hlið ófatlaðra: lögum um aðstoð við þroskahefta árið 1979, lögurn um málefni fatlaðra 1984 og loks lögum um málefni fatlaðra frá 1992. Við foreldrar alvarlega fatlaðra ung- menna, þeirra sem eru nú að ná fullorðinsaldri, erum því mörg svo gæfusöm að hafa fengið tækifæri til að hafa börn okkar heima og geta alið önn fyrir þeim rétt þeim eins og okkar ófötluðu bömum. Ekkert hefur þó komið af sjálfu sér upp í hendurnar á okkur foreld- um, því þrátt fyrir lagasetningu um réttindi þá er kerfið eða opinberar stofnanir þess lengi að taka við sér, sérstaklega ef einstaklingurinn er mikið fatlaður. í þeim tilvikum eru fordómar oftast meiri og kostnaður hins opinbera sömuleiðis. Þess vegna er þrautseigja og baráttuvilji eitt af því fyrsta sem foreldrar mikið fatl- aðra barna verða að tileinka sér. Það er því ekkert nýtt fyrir flest okkar að þurfa nú að knýja á um að þessi fötluðu börn okkar fái að flytja að heiman þegar þau fullorðnast og kraftur okkar foreldranna er á þrot- um. Það telst eðlilegt á íslandi að ungt fólk flytji úr foreldrahúsum um eða eftir tvítugt. Það á líka að vera valkostur fatlaðra og foreldra þeirra, ef við viljum berjast fyrir jafnrétti og jafnri aðstöðu allra þjóðfélags- þegna til að njóta lágmarks lífsgæða í velferðarríkinu. Árið 1976, eða sama ár ' og sonur minn fæddist, tók fyrsta sambýli á Islandi til starfa og var það Styrktarfélag vangef- inna sem braut þar blað í sögunni. Sam- býli eru heimili fá- menns hóps fatlaðra, oftast fimm talsins, sem eru í venjulegum íbúðahverfum og líkj- ast sem mest venjuleg- um heimilum. Stærsti gallinn við sambýlin er að mínu mati sá, að þar eiga að búa saman, í svipuðu húsnæði og kjarnaijölskyldan, óskyldir og oft ólíkir einstaklingar sem eiga það eitt sameiginlegt að vera fatlaðir. Þeir hafa víðast einka- rými á stærð við lítið barnaher- bergi, og möguleiki til einkalífs eða að geta verið út af fyrir sig, er því mjög bágborinn. Nýir og betri val- kostir í búsetu hafa þó séð dagsins ljós síðustu árin, þar sem fötluðum hefur verið, með stuðningi eins og heimilishjálp og liðveislu, gert kleift að flytjast í leiguíbúðir sem yfirleitt eru í eigu sveitarfélaga, félagasam- taka eða sjálfseignarstofnana. En eins og fyrri daginn þá er þessi val- kostur yfirleitt aðeins þeirra getu- meiri úr röðum fatlaðra. Við foreldr- ar mikið fatlaðra barna þurfum nú að gera kröfur til þess að okkar börn erfi ekki bara gömlu sambýlin, með þeirra vanköntum. Við viljum að þeim verði boðið upp á sérbýli með sólarhringsþjónustu, eins konar „íbúðasambýli", þar sem vankantar gömlu sambýlanna eru sniðnir af. Einkarými verði aukið, en kostir sambýlanna, sólarhringsþjónustan, sé til staðar. Þannig „íbúðasambýli" eru reyndar farin að rísa, svo sem Steinahlíð í Hafnarfirði og sambýlið í Auðarstræti í Reykja- vík, sem breytt var í þessa veru. En allt gengur þetta hægt og alltof hægt að okkar mati sem höfum beðið lengi eftir búsetu- úrræðuin fyrir bömin okkar. Á árinu 1993 voru tekin í notkun fimm sambýli á landinu, þar af eitt í Reykjavík og á árinu 1994 var aðeins hafinn rekstur Ijögurra nýrra heimila, en þar af aðeins eitt í Reykjavík, sem er vistheimili fyrir börn (upplýsingar úr ráðuneyti). Nú er svo komið að hér í höfuð- borginni eru um 200 manns á biðlist- um um búsetu hjá Svæðisskrifstofu málefna fatlaðra og þar af eru á neyðarbiðlista um 30 manns. Til að mæta þörfum þeirra sem á neyðarb- iðlistanum eru, þarf að minnsta kosti að byggja sex ný heimili fyrir fatl- aða. Ekki er að sjá í síðustu árs- skýrslu Svæðisskrifstofu málefna fatlaðra í Reykjavík, fyrir árið 1993, að þetta ástand valdi starfsmönnum þar á bæ miklum áhyggjum. Svæð- isáætlun fyrir árin 1994 til 1996 er í raun ósköp metnaðarlaus miðað við ástand mála og ekki verður séð að Iangt muni þokast á næstu tveim- ur árum. Reyndar gagnrýnir Svæðis- ráð Reykjavíkur áætlunina vegna þessa og telur óvíst að hægt verði að leysa vanda allra þeirra sem á neyðarbiðlista hafa verið lengi. Framkvæmdastjóri Svæðisskrif- stofunnar slær taktinn fyrir sitt fólk í viðtali við Fréttablað Styrktarfé- lags vangefinna, sem út kom í síð- asta mánuði. Þar segir hann m.a.: „Stundum er minna fé til aflögu en að mínu mati er eins vel gert við þennan málaflokk og hægt er.“(!) Ég er hrædd um að foreldrar fatl- aðra sem bíða eftir framtíðarúrlausn í húsnæðismálum sínum, mörg hver á neyðarbiðlista, séu ekki sama sinn- is. Þessi skoðun framkvæmdastjór- ans skýrir kannski að einhveiju leyti af hveiju Reykjavík hefur orðið út- Jl.roskahjálp Um 200 manns eru á biðlistum fatlaðra eftir búsetu, segir Ágústa Bragadóttir, þar af 30 á neyðarbiðlista. undan í fjárveitingum undanfarinna ára í búsetumálum fatlaðra, þótt valdið sé að sönnu hjá félagsmála- ráðherra og Alþingi. í umsögn um áðurnefnda svæðisá- ætlun, sem Svæðisráð málefna fatl- aðra í Reykjavík sendi til Félags- málaráðuneytisins í mars á þessu ári, kemur m.a. fram að í Reykja- vík, þar sem búa um 40% lands- manna, er hlutfall fatlaðra mun hærra en í öðrum sveitarfélögum. Rúmlega 51% þeirra sem fá greiddan örorkulífeyri frá Tryggingastofnun eru búsettir í Reykjavík. Hins vegar hafa fjárveitingar til málefna fatl- aðra í Reykjavík á vegum Félags- málaráðuneytisins undanfarið ein- ungis verið um 30% af heildarfram- laginu. Þetta er mikið umhugsunar- efni og sú spurning vaknar hvort Svæðisskrifstofa málefna fatlaðra í Reykjavík telji það vera sitt hlutverk að draga úr kröfum og metnaði þeg- ar harðnar í ári, fremur en að standa með skjólstæðingum sínum, gera áætlanir og setja sér markmið í anda laganna um málefni fatlaðra. Undirrituð fór á fund ráðherra félagsmála í sumar, sem þá var ann- ar af þeim þremur sem setið hafa á yfirstandandi kjörtímabili, .með skriflegt erindi þar sem vakin var athygli á því neyðarástandi sem rík- ir í búsetumálum mikið fatlaðra í Reykjavík og spurði ég m.a. hvort vænta mætti aukinna framlaga. á fjárlögum 1995 til að tryggja rekst- ur nýrra heimila fatlaðra í Reykja- vík. Ráðherra hefur enn ekki svarað erindinu formlega, en hins vegar er ljóst samkvæmt frumvarpi til fjár- laga 1995, að ekki er gert ráð fyrir neinum nýjum rekstri í öllum mála- flokki fatlaðra. Þetta þýðir meðal annars að ekkert nýtt heimili fyrir fatlaða verður tekið í notkun á næsta ári, ef þetta frumvarp nær fram að ganga. Stjórnmálamenn segja iðulega að ekki sé til íjármagn í ríkiskassanum þegar talið berst að kröfum um auk- ið jafnrétti þegnanna, kröfum um lágmarkslífsgæði handa þeim sem ekki geta séð sér farborða sjálfir. En auðvitað er þetta spurning um forgangsröðun. Spurning um hvern- ig samfélag við viljum við byggja? Við höfum byggt brýr og vegi, orku- ver og veitur, perlur og ráðhús. Hvernig væri að þingmenn Reykja- víkur litu sér nær, tækju höndum saman og hjálpuðu nýjasta félags- málaráðherranum við að leysa brýn- asta vanda þess fólks sem er svo „hógvært" að það hvarlar ekki einu sinni að því að biðja um nokkurn skapaðan hlut. Höfundur er móðir 18 ára pilts, sem er á umtöluðum neyðarlista. Neyðarbiðlisti fatlaðra Ágústa Bragadóttir. Alþj óðaflugmála- stofnunin 50 ára GUÐMUNDUR Matthíasson (t.h.), fulltrúi íslands í fastaráði Al- þjóðaflugmálastofnunarinnar, ásamt Dr. Assad Kotatie, forseta fastaráðs stofnunarinnar. f DAG, 7. desember 1994, heldur Alþjóðaflugmálastofnunin (Inter- r.ational Civil Aviation Organizati- on, ICAO) upp á hálfrar aldar af- mæli sitt. Grunnurinn að stofnsetningu ICAO var lagður með undirritun samnings um alþjóðlegt flug, sem kenndur er við Chicago, þ.e. „Chicago Convention", sem er jafn- framt stofnskrá stofnunarinnar. Forseti Bandaríkjanna, Franklin D. Roosevelt, hafði boðað til ráð- stefnu í Chicago og að henni lokinni undirrituðu fulltrúar 52 ríkja Chicago-samninginn hinn 7. desem- ber 1944, þar með talinn fulltrúi íslands, Thor Thors sendiherra. Þessi samningur var því einn fyrsti alþjóðlegi samningur, sern hið unga lýðveldi átti aðild að. í íslensku sendinefndinni voru, auk Thors, Guðmundur Hlíðdal, póst- og síma- málastjóri, Sigurður Thoroddsen, alþingismaður, og Agnar Kofoed- Hansen, lögreglustjóri og ráðunaut- ur ríkisins í flugmálum og síðar flugmálastjóri. Alþjóðaflugmálastofnunin var því stofnuð ári áður en Sameinuðu þjóð- imar vom stofnsettar. Hins vegar er ICAO í dag ein af stofnunum Sameinuðu þjóðanna og hefur að aðalhlutverki að semja alþjóðlega staðla og reglur um skipulag og öryggi í alþjóðlegum flugsamgöng- um. Flugheimurinn og ICAO fagna nú þeim mikla árangri sem náðst hefur á undanfömum 50 árum í þróun alþjóðlegs flugs, sem stofn- unin hefur átt stærstan þátt í að skipuleggja. Miðpunktur hátíðar- haldanna er ráðstefna um alþjóðleg- ar flugsamgöngur með þemanu „skipan alþjóðlegra flugsamgangna í nútíð og framtíð", sem hófst í Montreal hinn 23-. nóvember og lauk í gær með hátíðardagskrá í boði kanadískra stjórnvalda. Þessara merku tímamóta er ekki aðeins minnst í höfuðstöðvum ICAO í Montreal í Kanada. Þeirra er einn- ig minnst í hinum sjö svæðisstöðvum stofnunarinnar, sem dreifðar eru um heiminn. Aðildarríkin hafa einnig verið hvött til að minnast tímamót- anna og það hafa þau gert með ýmsu móti. Á íslandi var þeirra minnst í októbermánuði sl. með fjöl- Fyrir 50 árum voru flugfarþegar 9 milljónir. Guðmundur Matt- híasson segir þá nú um milljarð. mennri alþjóðlegri ráðstefnu um flugsamgöngur og framtíðarþróun í flugleiðsögu sem lauk með vígslu hinnar nýju byggingar flugstjóm- armiðstöðvarinnar á Reykjavíkur- flugvelli að viðstöddum samgöngu- ráðherra, Halldóri Blöndal, og dr. Assad Kotaite, forseta fastaráðs ICAO. Ennfremur gaf Póst- og símamálastofnunin út sérstakí frí- merki í síðastliðnum mánuði vegna afmælisins. Gífurlegur vöxtur hefur verið í flugi þessi 50 ár sem liðin em frá samþykkt Chicago-samningsins. Til að átta sig betur á þessu má geta þess að 1945 flugu 9 milljón farþeg- ar í heiminum, en í dag fljúga um 1.000 milljón farþegar á ári og er búist við að þessi tala verði um 2.000 milljónir um aldamótin. Árið 1944 var Douglas DC-3 algeng flugvél í farþegaflugi. Hún tók 28 farþega í sæti, flaug með 320 km hraða á klukkustund og gat flogið 3.400 km án viðkomu. Stærstu farþegaþotur nú á tímum hafa rúm fyrir allt að 500 farþega, fljúga með u.þ.b. 900 km hraða yfir 11.000 km vegalengd. Alþjóðaflugmálastofnunin sjálf hefur einnig þanist út þessi 50 ár, sem liðin eru frá stofnun hennar. Árið 1947 vom aðildarríkin 26 en í dag eru þau 183 talsins. Starfslið ICAO var 27 manns 1945, en er nú 760 og þá eru ekki taldir með sérfræðingar sem ráðnir em til skamms tíma við tækniaðstoð. Á liðnum árum hefur stofnunin samið 18 tæknilega viðauka við stofnskrána er fjalla um alla þætti flugsins. Staðlar og tilmæli í þessum viðaukum em virt um heim allan og mynda þann tæknilega grunn, sem nauðsynlegur er fyrir öruggt og hagkvæmt flug. Gullafmælishátíð ICAO ber upp á tíma þegar stórkostleg tæknibylt- ing er að verða á sviði flugleiðsögu- og flugumferðarstjórnar. í stuttu máli er hér átt við háþróaða tækni í notkun gervihnatta, gagnaflutn- ings og flugstjómarkerfa, sem er ætlað að mæta þeirri aukningu flugs, sem búist er við næstu ára- tugina. Þessi tækni mun með tíman- um úrelda flest þau kerfi, sem notuð era í dag. Þess má geta, að nýja flugstjómarmiðstöðin í Reykjavík er hönnuð með það fyrir augum að nýta hina nýju tækni eins fljótt og kostur er. Flugrekendur er búa þurfa flugvélar sínar nýjum búnaði vænta þess að aukin hagkvæmni skili tilkostnaðinum margföldum til baka í lækkuðum rekstrarkostnaði. Það er hlutverk ICAO að leiða aðildarríkin í viðleitni þeirra til að aðlagast breyttum aðstæðum á þessu sviði sem öðrum innan al- þjóðaflugsins. Segja má að Lýðveldið ísland og ICAO séu jafnaldrar sem hafi haft mikið saman að sælda. Er þá eink- um átt við samstarfssamning um þjónustu við alþjóðlegt flug á Norð- ur-Atlantshafi. í lok síðari heims- styijaldarinnar er fjallað var um til- högun flugumferðarþjónustu á þessu svæði, féll það í hlut íslands að taka við því hlutverki er herlið bandamanna hafði gegnt varðandi flugumferðarþjónustu á Norður-Atl- antshafi. Gerður var sérstakur samningur um endurgreiðslu kostn- aðar milli íslands og nokkurra ríkja er stunduðu flug á Atlantshafi. Hlutverk ICAO var að hafa milli- göngu um gerð samningsins og umsjón með framkvæmd hans, en hann hefur verið í gildi lítið breyttur frá 1948. Gjaldeyristekjur okkar af samningi þessum hafa verið umtals- verðar á þessum 48 árum er liðin eru frá gerð hans, auk hins óbeina hagnaðar af tækniþekkingu sem borist hefur inn í landið, en það er kapítuli í flugsögunni sem vert væri að skoða nánar. Alls eru nú 23 ríki aðilar að þessum samningi og er litið á hann sem eina af hugsanleg- um fyrirmyndum að rekstri nýrra flugleiðsögukerfa. Við vorum það lánsamir íslend- ingar að koma snemma auga á þá möguleika sem mundu myndast í flugi bæði innanlands og milli landa að heimsstyijöldinni lokinni og vor- um því með þeim fyrstu til að nýta þau tækifæri er buðust. Auðvitað hefur lega landsins haft sín áhrif, enda má með sanni segja að flugið hafi rofíð þá aldalöngu einangrun er forfeður okkar urðu að búa við og hafi fært okkur inn í efnahags- lega og menningalega hringiðu umheimsins. Því ber okkur að minn- ast starfs brautryðjenda og frum- heija á sviði flugsins með þakklæti og virðingu. Vonandi mun ísland enn um langa framtíð halda áfram að leggja sitt af mörkum á sviði alþjóðaflugs í anda samningsins, sem samþykkt- ur var í Chicago 7. desember 1944. Höfundur crfulltrúi íslands í fastaráði ICAO.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.