Morgunblaðið - 31.12.1994, Qupperneq 43
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 31. DESEMBER 1994 43
BRÉF TIL BLAÐSIIMS
Leiktæki sett upp
með lögreglutilskipun
Frá Þorleifi Haukssyni:
ÍBÚAR við Otrateig. og Laugalæk
ráku upp stór augu í fyrradag þegar
þeir vöknuðu og sáu að starfsmenn
borgarinnar voru að baksa við það í
næðingnum að koma fyrir nýjum
leiktækjum á leikvellinum milli gatn-
anna. Fyrst reis myndarlegt rólu-
stæði, að vísu rólulaust, síðan timb-
urhús, bekkur og borð. Þegar farið
var að grennslast hveiju þetta sætti
kom í ljós að leiktækin höfðu verið
send samkvæmt beinni skipun frá
lögreglunni.
Forsaga þessa máls er sú að um
15 ára skeið hefur á hveiju gamlárs-
kvöldi verið kveiktur lítill varðeldur
á þessum leikvelli og íbúar hverfisins
á öllum aldri hafa safnast kringum
eldinn stutta stund eftir kvöldmatinn
og sungið og skotið upp stöku flug-
eldum. Þetta fólk sem aldrei um-
gengst annars hefur átt þarna
skemmtilega samverustund. En eftir
að leikvöllurinn var endurnýjaður að
nokkru fyrir tveimur árum fóru 2-3
íbúar í hverfinu að amast við þessum
sið á þeim forsendum að leiktækjun-
um væri hætta búin, þó að þau séu
allijarri eldstæðinu. Tvö síðastliðin
ár hefur þetta fólk kallað á lögreglu
til að láta hana slökkva eldinn.
Börnin í hverfinu hafa saknað
þessa siðar og fyrir skömmu fóru
nokkur þeirra upp á sitt einsdæmi í
öll hús kringum völlinn og söfnuðu
undirskriftum og reyndist yfirgnæf-
andi meirihluti íbúanna fylgjandi því
að þau fengju að hlaða sinn litla
köst. Þess skal getið að öll þessi ár
hafa foreldrarnir gætt vel að því að
halda eldinum í lágmarki og hreinsað
vandlega upp öll verksummerki á
nýársdagsmorgun.
En þegar kvisaðist um undir-
skriftasöfnunina stóð ekki á við-
brögðum. Einhven veginn virðast
þessir fáu andófsmenn varðeldarins
eiga greiðari leið en gengur og ger-
ist að eyrum borgarstarfsmanna og
lögreglu, því að nú var brugðið skjótt
við og fyrrnefnd leiktæki sett.upp
tveimur dögum fyrir gamlárskvöld á
auða svæðinu á leikvellinum.
Verður nú fróðlegt að fylgjast með
hvort íbúarnir fá að halda þessum
leiktækjum áfram eða hvort sá grun-
ur manna reynist réttur að þau verði
flutt burt aftur undir eins og ára-
mótagleðin er afstaðin.
ÞORLEIFUR HAUKSSON,
Laugalæk 18, Reykjavík.
Ræflafóstra - hvað er
nú það? Jólaboðskapur?
Frá Sif Friðleifsdóttur:
KVEÐSKAPURINN Jól í Breiðholti
var valinn með tilliti til skemmtana-
gildis og boðskapar jólanna af for-
ráðamönnum síðasta heftis blaðsins
Uppeldis. Þvílík þversögn.
Höfundur kveð-
skaparsins Árni
Thoroddsen lætur
þess getið í orð-
skýringum að orð-
ið ræflafóstra sé
að sjálfsögðu ný-
yrði yfir félags-
ráðgjafa. Hér
kemur smásýnis-
hom af Jólum í Breiðholti.
En ræflafóstrur ráðgjöf sína veita,
þær rukka síðan Ríkisvald og Borg.
Samt varla mun það börnum þessum
breyta
við berserksgang þau skemmta sér
og org.
Hvað er að? Geta ábyrgðarmenn
blaðsins Uppeldis ekki skilið að féiags-
ráðgjafar eni stórkostleg hjálp fyrir
þá sem eru í nauðum staddir? Þeir
hafa árum saman menntað sig af
mikilli elju til hjálpar öðrum. Þeir geta
gjörbreytt lífi fólks með rágjöf sinni.
Ég bý á Bergstaðastrætinu og þau
fullorðnu börn sem ganga hér um
strætin gætu allt eins átt við lýsing-
una í kveðskapnum Jól í Breiðholti.
Ég hef því miður þurft að kalla á
hjálp lögreglu, til þess að þurfa ekki
að horfa upp á alvarlegar líkams-
meiðingar. Oft hef ég þakkað skapar-
anum að morgni, ef ég hef verið svo
heppin að geta sofíð alla nóttina fyr-
ir hávaða hér, þó býr hér ekki nánd-
ar nærri eins margt fólk og í Breið-
holtinu. Hvað með aðra staði borgar-
innar, t.d. Vesturbæinn þar sem ný-
verið var rænt miklum peningum úr
söluturni? Hvað með fíkniefnin sem
fundust á stúdentagörðunum? Svona
væri hægt að telja upp alla borgar-
hlutana. Leyfist mönnum eins og
Árna Thoroddsen í skjóli blaðsins
Uppeldis að benda bara á Breið-
holtsbúa? Margir mínir ágætustu
samferðamenn búa t.d. þar. Til hvers
halda forráðamenn blaðsins Uppeldis
að félagsráðgjafar séu yfirleitt
menntaðir? Bara þetta orð ræfla-
fóstrur bendir til þess að forráða-
menn blaðsins geri sér ekki grein
fyrir að menntun t.d. félagsráðgjafa,
getur opnað margar dyr að lausnum
á neyð fólks sem er svo heppið að
geta notið ráðgjafar þeirra. Ég missti
trúna á að þekking og uppfræðsla
væri máttur í augum forráðamanna
blaðsins Uppeldis og því var því sagt
upp á mínu heimili. Var frelsarinn
t.d. ekki á einhvem hátt nokkurs
konar félagsráðgjafi? Kominn til að
bjarga fólki úr nauðum, björgunar-
maður? í það minnsta talaðist einum
mjög mikils metnum presti svo til á
aðventusamkomu einni núna, svo ég
heyrði. Ég óska öllum gleðilegra jóla.
SIF FRIÐLEIFSDÓTTIR,
Bergstaðastræti 7,
101 Reykjavík.
HLÍN AGNARSDÓTTIR JENNÝ GUDMUNDSD.
Leildist (25 ára og eldri) Kripalu jóga
KATRÍN KÁRADÓTTIR
Jassdans (7-9 tíra)
GLEÐILEGT AR!
Ný námskeið heíjast 9. janúar
ÁRNIPÉTUR GUÐJÓNS
Leiksmiðja
ÁSTA ARNARDÓTTIR
Leiklist (4-6 ára)
BRYNDÍS HALLDÓRSD.
Argentínskur tangó
AGNES KRISTJÓNSD.
Músíkleikfimi
CARLOS SANCHES
Salsa
GUÐNÍ' HELGADÓTTIR
Tai chi
GUNNAR GUNNSTEINS. HAFDÍS ÁRNADÓTTIR
Leiklist barna og ungl. Músíkleikfimi
HANYIIADAYA
Argentínskur tangó
HARPA ARNARDÓTTIR
Leiklist (13-16 ára)
HARPA HELGADÓTTIR
Bakleikfimi
ANNA E. BORG
Leiksmiðja
ARNA VALSDÓTTIR
Mynd- og leiklist (7-9 ára)
ELFA LILJA GÍSLAD.
Tónmennt (4-6 ára)
ELÍSABET GUÐMUNDSD.
Músíkleikfimi
Heilræði
FORELDRAR - sýnið aðgæslu! Slys á börnum af völdum
flug- eða skotelda verða oftast þegar fullorðnir eru fjarri.
Hlífðargleraugu eru sjálfsögð vörn á gamlárskvöld. Stöndum
eldklár um áramót - sem endranær.
Gleðilega hátíð og slysalaust komandi ár.
ORVILLE PENNANT ÓLÖFINGÓLFSDÓTTIR ÞÓREY SIGÞÓRSD.
Afró og kalypso Dansspuni leiklist (10-12 og 13-15 ára)
- kennarar Kramhússins.
KRnm
HÚSI0
MC: Svala Bo.
MC: Daníel
DI: Margeir
Dl: Maggi Legó
DI: Robbi Rap
DI: Agzilla
DI: GrétarG.
Slagverk
Tóti og Ýmir
Trommur og efFektar
Bix
Live P.A.
Spacemanspliff
i forsölu
l ásl í vcrsluninni
Stóri bróðfiv
Laugavcgi 8.
18
ára
aldur!«takinark.
Skilríki skilyrði.
ÍCASABLANCA
SKÚLAGÖTU 30