Morgunblaðið - 14.01.1995, Qupperneq 22

Morgunblaðið - 14.01.1995, Qupperneq 22
22 IkAU,GARDAGlURil4J JANLJAR 1995 AÐSEIMDAR GREINAR koRyÚNBLÁDlÐ LOKSINS hefur verið lagt fram frum- varp til breytinga á mannréttindaákvæð- um stjórnarskrárinn- ar, í samræmi við ályktun Alþingis frá 17. júní sl., sem rekja má til þrýstings inn- anlands og utan um alllangt skeið. Stjómarskrár geyma að megin- stefnu helstu ákvæði um stjórn landsins og réttindi íbúa. Þeim er ætlaður langur aldur og líklegt að mann- réttindaákvæðum verði ekki breytt aftur næstu 50 árin að minnsta kosti. Því er sérlega mikilvægt að vandað sé til verksins. Þingmenn þurfa að ræða þetta mál til hlítar, svo og allur almenningur, þar sem stefna verður að því að sem mest sátt verði um endanléga útkomu. Málsmeðferð Alþingis á haust- dögum ber ekki vott um sérlega vönduð vinnubrögð. Almenningi gafst fyrst kostur á að sjá hið nýja frumvarp milli jóla og nýárs. Fram að því virtist mik- il leynd hvíla yfir starfinu og vissu fáir hvaða ákvæði yrðu þar og hver ekki. Gefst nú mönnum og félögum kostur á að koma að at- hugasemdum við frumvarpið fram til 20. janúar nk. Síðan er ætlunin að Alþingi afgreiði málið fýrir þingslit - í lok febrúar. Þessi tími er allt of stuttur til þess að málið fái faglega og vit- ræna umfjöllun. Aðferðin er reyndar dæmigerð fyrir íslend- inga, skorpumenn sem við erum, en minnir hér mest á bifvélavirkj- ann í alþekktum spaugþáttum sem ávallt varð að orði: „Bara að massa þetta.“ Stjórnarskrána er ekki rétt að „massa bara“. Hér þarf virkilega vönduð og fagleg vinnubrögð, ekki fljótaskrift, snöggsoðningu og hraðafgreiðslu. Og það liggur heldur ekki lífíð á að afgreiða þetta mál nú þegar. íslendingar hafa beðið svo lengi eftir þessari endur- skoðun, að við getum alveg beðið eitt kjörtímabil enn, svo fremi sem það verði vel nýtt, en ekki enn og aftur rokið upp til handa og fóta á síðustu stundu. Jafnvel þótt frum- varpið sem nú liggur fyrir væri óumdeilan- leg og vel unnið væri óviðunandi að Alþingi gæfí sér og öðrum ekki langan tíma til að ræða málið og af- greiða. Líkur á að svo verði virðast því miður hverfandi. Efnahagsleg, fé- lagsleg og menningar- leg réttindi fá lítið rými í frumvarpinu. í greinargerðinni sjálfri keyrir þó um þverbak. Þar er því haldið fram á bls. 7 að umdeilt sé í raun hvort þau réttindi beri að telja til grund- vallarmannréttinda eða hvort þau séu eins konar viðbótarréttindi. Þessi viðhorf fela í sér gjörbreyt- ingu á stefnu íslands eins og hún hefur birst á alþjóðavettvangi frá stofnun lýðveldisins. ísland hefur Mannréttindafrumvarp- ið, sem nú liggur fyrir Alþinffi, er að mati Mar- grétar Viðar, argasta afturhald. staðið að og samþykkt fjölda yfír- lýsinga sem staðfesta að öll mann- réttindi, efnahagsleg, borgaraleg, félagsleg, stjórnmálaleg og menn- ingarleg mynda eina órofa heild. Þessi grundvallarafstaða kemur fram í Mannréttindayfírlýsingu Sameinuðu þjóðanna, flestum mannréttindasáttmálum og nú síð- ast í Vínaryfírlýsingunni sem sam- þykkt var á heimsþingi Sameinuðu þjóðanna um mannréttindi í júní 1993. Það er misskilningur að halda að þessi stefna sé í ósam- ræmi við mannréttindaviðhorf á Vesturlöndum. Það má til dæmis minna á fræga ræðu Roosevelts Bandaríkjaforseta þar sem hann lagði áherslu á frelsi frá ótta og frelsi frá skorti. Þau efnahagslegu og félagslegu réttindi sem eru í núgildandi stjórnarskrá voru framúrstefnuleg á þeim tíma sem þau voru sett. Frumvarpið sem nú liggur fyrir er aftur á móti argasta afturhald. Ekki er í frumvarpinu að finna almennt mannhelgisákvæði. Mannréttindi eru reyndar hvergi nefnd á nafn. Enginn heildarstíll er yfír sundurlausum ákvæðunum. Enga framtíðarsýn má lesa úr þeim. Þvert á móti er að lang- mestu leyti verið að smíða utan um núverandi réttarástand og það njörvað niður. Hugsum okkur til samanburðar hvernig farið hefði ef Mannréttindayfírlýsing Samein- uðu þjóðanna hefði verið samin með hliðsjón af ástandinu eins og það var í heiminum árið 1948. Ekki er minnst á ýmis atriði sem gagnrýnd hafa verið í íslensku réttarfari á borð við það að játn- ingar sem fengnar eru fram með harðræði eru ekki sjálfkrafa ógild- ar. Rétti útlendinga skal skipað með lögum en engin efnisleg vemd felst í því. Þar sem ekki er einu sinni almennt mannhelgisákvæði að fínna í fyrirhuguðum mannrétt- indakafla, væri það sennilega ekki stjórnarskrárbrot þótt útlendingi væri vísað til lands þar sem hann sætti ofsóknum. Sérstakt stjórnar- skrárákvæði er hér sérlega brýnt í ljósi þess að gildandi löggjöf veit- ir flóttamönnum litla sem enga vernd. Rétturinn til vinnu, sem marg- staðfestur er í þjóðréttarskuld- bindingum landsins, er orðinn að rétti „varðandi" vinnu. Það er skrýtið orðalag og lýsi ég eftir skýringu á því. Hin langa greinargerð sem fylg- ir frumvarpinu vekur fleiri spurn- ingar en hún svarar. Frumvarpið er allt með þeim hætti að útilokað er að nokkur sátt náist um efnið og nauðsynlegar breytingar á nokkram vikum. Þess vegna tel ég, því miður, nauðsynlegt að byija upp á nýtt og frá granni á þessu mikilvæga máli. Alþingi ætti að loknum umræðum að vísa málinu aftur til stjórnarskrár- nefndar og fela henni að koma með nýtt frumvarp ekki síðar en um mitt næsta kjörtímabil að und- angengnu víðtæku samráði við almenning. Fremur skulum við bíða í fjögur ár enn og uppskera fyrirmyndar mannréttindaskrá en að sitja uppi með það sem nú liggur fyrir Al- þingi næstu áratugi, þjóðinni til vesældar og vansæmdar. Höfundur er lögfræðingur. í MORGUNBLAÐ- INU 11. þ.m. gera heil- brigðisráðuneytið og landlæknir athuga- semd við grein mína í blaðinu 10. janúar sl. um notkun geðlyfja. Ráðuneytið og land- læknir benda á þrennt: 1) sexföldun á notkun hinna nýju geðdeyfðar- lyfja frá fýrsta árs- fjórðungi 1993 til þriðja ársijórðungs 1994; 2) hin nýju geð- deyfðarlyf séu hrein aukning við fyrri notk- un; 3) notkun geð- deyfðarlyfja er nú verulega meiri hér á landi en annars staðar á Norðurlöndunum. í grein minni benti ég á, að aukn- ing á notkun geðdeyfðarlyfja ætti sér eðlilega, læknisfræðilega skýr- ingu. Til viðbótar því sem í grein minni sagði, er rétt að skýra frá því, að í mars 1993 var hlutfall hinna nýju geðdeyfðarlyíja af öllum sem þær vora lægstar við þann ársfjórðung sem þær voru hæstar. Eins og glöggt sést á meðfylgjandi stöplariti tvöfaldaðist sala hinna nýju lyfja milli áranna 1993 og 1994 og nærri þrefaldaðist miðað við 1992. Hins vegar minnkaði sala annarra geðdeyfðarlyfja nokkuð frá 1992 til 1994. Hin nýju lyf era þannig ekki hrein aukning, eins og segir í athugasemd ráðuneytisins. í þriðja lagi er það ekki nýtt, að notkun geðdeyfðarlyíja sé meiri hér á landi en annars staðar á Norðurlöndunum. Svo hefur verið um langt árabil. Algengi þeirra geðraskana, sem lyfin eru notuð við, er um 6-7% hjá fullorðnum. Auk þunglyndissjúk- dóma og ákveðinna kvíðasjúkdóma eru sum geðdeyfðarlyf nú notuð við langvinnum verkjum, s.s. spennu- höfuðverk og verkjum frá stoðkerfi. Miðað við skilgreinda dagskammta er algengi notkunar geðdeyfðarlyfja á árinu 1994 um 2,5% hér á landi. í hinum Norður- Aukin notkun geðdeyfð- arlyfja á sér eðlilega, læknisfræðilega skýr- ingu, að mati Tómasar Helgasonar, sem segir aukninguna ekki hreina viðbót, heldur minnki notkun annarra lyfja ámóti. Onýtt mannrétt- indafrumvarp Margrét Viðar 25 15 t- 1992 SALA geðdeyfðarlyfja 1992-1993 eftir tegund í skilgreindum dagskömmtun (SDS) fyrir 1.000 íbúa. 1994 I Önnur i Þríhringlaga (eldri lyf) I Tvihringlaga (ný lyf) Enn um geð- deyfðarlyf Athugasemd við athugasemd heil- brigðisráðuneytis og landlæknis Tómas Helgason Sögð orð verða ekki aftur tekin LENGI má manninn reyna hugsaði ég með mér þegar ég sat og hlustaði á sjónvarps- fréttir Stöðvar 2 hinn 9. janúar síðastliðinn. Þannig er nú með okkur Alþýðuflokks- menn að við eram að verða komin með ansi þykkan skráp á okkur vegna umfjöllunar fjöl- miðla um flokkinn okk- ar síðastliðið ár. Ég hef oft velt því fyrir mér hvort fjöl- miðlar hafí einhvern ávinning af því að taka þennan flokk minn og rýra hann trausti fólks með palladómum og að mínu mati ófyrirleitinni umfjöll- un. Hlutleysi fréttamanna Ég vitnaði í fréttatíma Stöðvar 2 en þá var Heimir Már Pétursson fréttamaður að spyrja Jóhann Bergþórsson bæjarfulltrúa í Hafnar- fírði um gang mála í Hafnarfirði vegna þess umróts sem þar er. Fréttamaðurinn sá ástæðu til að tala um „spilltasta arm í spillt- asta flokki landsins" svo notuð séu hans eig- in orð. Með skírskotun til málefna bæjar- stjórnar Hafnarfjarðar áttu landsmenn náttúrulega að skilja hvað fréttamaðurinn átti við. Er þetta hlutverk fréttamanna? Telja þeir það sína skyldu að útbúa spurningar sem eru beinlínis skoð- anamyndandi? Er ekki hlutleysi fréttamanna regla nr. 1 í blaða- mennskustarfí í stað þess að setjast í dómarasæti? Hvers vegna leyfa menn sér svona fréttaflutning eða Petrína Baldursdóttir er Stöð 2 mjög í mun að binda enda á pólítískt líf Alþýðuflokksins? Maður spyr sig hvaða annarlegu ástæður liggja þama að baki. Það eru mýmörg dæmi undanfar- in ár sem hægt væri að nefna þar sem eðlilegs hlutleysis gagnvart málefnum Alþýðuflokksins er ekki gætt að mínu mati. Er það hlutverk frétta- manna, spyr Petrína Baldursdóttir, að standa fyrir skoðanan- myndandi spumingum. Þama taka menn að sér það vald að setjast í dómarasæti og vera skoðanamyndandi í gegnum frétta- miðil. Já, sögð orð verða ekki aftur tekin! Fólkið í flokknum í Alþýðuflokknum er sem betur fer fullt af fólki. Fólki sem hefur þá lífsskoðun að jöfnuður, réttlæti og velferð fólks gefí lífínu gildi. Þessu fólki þykir vænt um flokkinn sinn. Þetta er heiðvirt fólk sem býr um allt land. Hvers vegna er frétta- maðurinn Heimir Már Pétursson að telja þetta fólk siðspillt eða flokkinn þess? Spilltasti flokkur landsins sagði fréttamaðurinn. Með þessari full- yrðingu sinni er hann að segja að allur flokkurinn sé spilltur. Það er að vísu dálítill blæbrigðamunur, því í Hafnarfirði er einn spilltasti arm- urinn úr flokknum að hans mati. Ég tel að flokkurinn ætti að at- huga hvað meiðyrðalöggjöfin segir um svona ummæli eins og voru við- höfð á Stöð 2. Það má lengi brýna deigt járn svo það bíti. Nú er kom- inn tími til að mótmæla slíkum ófaglegum og óvönduðum vinnu- brögðum eins og birtust alþjóð á skjánum að kvöldi 9. janúar. Ég sætti mig ekki við það lengur að sitja þegjandi undir þeirri brengl- uðu fréttamennsku sem þama birt- ist okkur. Það er deginum ljósara að störf okkar alþýðuflokksmanna eru gagnrýnisverð eins og gengur og gerist í stjórnmálum. Málefnaleg gagnrýni á alltaf rétt á sér. En þessa umfjöllun tel ég þann flokk sem hefur verið einn mesti umbótaflokkur og gerandi í íslensk- um stjómmálum undanfarin ár og áratugi ekki eiga skilið. Höfundur er þingmaður Alþýðuflokksins í Rcykjaneskjördæmi. landaríkjunum hefur orðið aukning í notkun geðdeyfðarlyfja, sérstak- lega í Svíþjóð, en þar var algengi notkunarinnar um 1,7% á fyrstu átta mánuðum ársins 1994. Hér á landi er læknisþjónusta góð, læknar fljótir að tileinka sér nýjungar og greiður aðgangur að þjónustunni, bæði hjá heimilislækn- um og sérfræðingum. Því er eðlilegt að hin nýju lyf, sem verka vel og þolast betur en eldri lyf, séu tekin tiltölulega fyrr í notkun hér en ann- ars staðar. Þrátt fyrir þetta hefur ekki nema hluti þeirra, sem þjást af þunglyndissjúkdómum, fengið viðeigandi geðlyfjameðferð á síðast- liðnu ári. Meðan ekki er hægt að koma í veg fyrir algengustu geðtruflanir eins og þunglyndissjúkdóma og áfengissýki, er góð og tímabær meðferð þeirra ein af fáum raun- hæfum leiðum til að koma í veg fyrir ótímabæra skerðingu eða bana vegna sjálfsvíga. Sú meðferð sem þessir sjúklingar fá er því til marks um þekkingu lækna og gæði heil- brigðisþjónustunnar. í þessum efn- um, eins og mörgum öðrum, eru íslenskir læknar og heilbrigðisþjón- usta fremri en í grannlöndunutn. Höfundur er prófcssor, dr. med.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.