Morgunblaðið - 14.01.1995, Síða 52
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN I, 103 REYKJAVÍK, SÍMl 691100, SÍMBRÉF 691181,
PÓSTHÖLF 3040, NETFANG MBL@CENTRUM.IS / AKUREYRl: HAFNARSTRÆTI 85
LAUGARDAGUR 14. JANÚAR 1995
VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK
Aðalskoðun hf. hóf starfsemi í gær
Slys og
árekstrar í
éljaveðri
í ÉLJAVEÐRINU sem gekk yfir
sunnan- og vestanvert landið í
gær urðu þrjú umferðarslys í
Reykjavík og auk þess 17
árekstrar, þar sem einungis
varð eignatjón.
Að sögn lögreglu var ekki
talið að neinn hefði slasast lífs-
hættulega í umferðarslysunum.
Mest slasaðist kona sem hlaut
meiðsli í andliti þegar jeppi, sem
hún var farþegi í, lenti í árekstri
í blindhríð á Suðurlandsvegi við
Bláfjallaafleggjarann.
Þar var fólksbíl ekið fram úr
öðrum bíl og framan á jeppann
sem kom úr gagnstæðri átt. Auk
konunnar var ökumaður fólks-
bílsins fluttur á slysadeild en var
ekki talinn hættulega slasaður,
að sögn lögreglu. Báðir bílarnir
eru taldir ónýtir.
Talsverð röskun varð á innan-
landsflugi vegna veðursins.
Keppinautnum
er sent bók-
haldið daglega
Morgunblaðið/Kristinn
AÐALSKOÐUN hf. hóf formlega
starfsemi í gær. Þá kom í ljós að
fyrirtækið verður daglega að senda
niðurstöður allra skoðana til Bif-
reiðaskoðunar íslands hf. en þar er
í raun um bókhald fyrirtækisins að
ræða, að sögn Gunnars Svavarsson-
ar, stjórnarformanns Aðalskoðunar.
Þá þurfti fyrirtækið að vísa frá
viðskiptavini vegna þess að það gat
ekki sótt númeraplötur fyrir hann
til Bifreiðaskoðunar, sem hefur
Borgarstjóri leggur fram tillögur í borgarráði
Sala eigria og sparn-
aður skili 560 millj.
INGIBJÖRG Sólrún Gísladóttir
borgarstjóri leggur til að kannað
verði hvaða fasteignir í eigu borgar-
sjóðs gæti verið hagkvæmt að selja.
Meðal fasteigna sem koma til greina
er Vonarstræti 4, Tryggvagata 15,
íbúðir við Aðalstræti 9 og eignar-
hlutur borgarinnar í Heilsuverndar-
stöðinni. Skuli stefnt að því að salan
skili um 300 milljónum í ár. Jafn-
framt verði leitað leiða til að lækka
rekstur borgarsjóðs um 260 millj.
í tillögu borgarstjóra sem lögð
hefur verið fram í borgarráði, er
lagt til að borgarráð samþykki að
setja á fót nefnd skipaða þremur
borgarfulltrúum sem hafi það hlut-
verk að draga úriítgjöldum borgar-
innar og ná fram varanlegri hagræð-
ingu og sparnaði í rekstri.
Þá segir: „Annars vegar verði
nefndinni falið i samvinnu við borg-
Leitað leiða til að
lækka rekstrar-
kostnað
arhagfræðing að leita leiða til þess
að lækka rekstrarútgjöld borgar-
sjóðs um 260 milljónir á þessu ári
eða sem svarar til um það bil 2,7%
niðurskurðar á áætluðum nettó-
rekstrargjöldum borgarsjóðs. Hins
vegar geri nefndin úttekt á því í
samvinnu við borgarlögmann hvaða
fasteignir í eigu borgarsjóðs geti
reynst hagkvæmt að selja og er að
því stefnt að sala eigna skili borgar-
sjóði um 300 mkr. á þessu ári.“
„Borgin á gífurlega mikið af fast-
eignum sem hún leigir út,“ sagði
Ingibjörg. Meðal annars leigir borgin
ríkinu húsnæði umhverfisráðuneyt-
isins við Vonarstræti 4, þar sem
Félagsmálastofnun var áður til húsa.
Borgin á hálfa fasteignina við
Tryggvagötu 15 og fjölmargar íbúð-
ir við Aðalstræti 9 ofan við Miðbæj-
armarkaðinn, sem ekki hafa verið
seldar.
Farið yfir yfirvinnu og risnu
Ingibjörg sagði að fara þyrfti yfir
rekstur borgarinnar, lið fyrir lið. „Ég
held að sérstök ástæða sé til að
skoða hvort leggja megi einhverja
starfsemi af sem áður var þörf fyrir
en ætti ef til vill að víkja fyrir ann-
arri og þarfari í dag,“ sagði hún.
„Ég held líka að ástæða sé til að
skoða almennt yfirvinnu hjá borg-
inni. Hér eru margir mannmánuðir
í yfírvinnu. Þá þarf að skoða auglýs-
inga- og kynningarmál og risnu.“
einkaleyfi á geymslu á númeraplöt-
um.
„Það virðist þó vera á döfinni að
við getum hugsanlega boðið þessa
þjónustu í þeirra umboði en án þess
þó að þiggja þóknun fyrir. Við verð-
um því að bera allan kostnað af
skráningum. í raun og veru kæmum
við til með að innheimta þóknun
fyrir samkeppnisaðilann, Bifreiða-
skoðun Islands,“ segir Gunnar.
Einnig hefur Bifreiðaskoðun ís-
lands einkaleyfí á ökutækjaskrán-
ingu og að innheimta þjónustugjöld
vegna hennar. Aðalskoðun verður
einnig að bera kostnað af sinni
umsýslu til að tapa ekki hugsan-
legri viðskiptavild.
Einkaleyfi á skoðunarmiðum
Aðalskoðun hf. þarf að senda
niðurstöður allra skoðana til Bif-
reiðaskoðunar íslands hf. vegna
einkaleyfis þess á ökutækjaskránni.
„í rauninni fá þeir því daglegt bók-
hald okkar sent og geta því fýlgst
með framvindu okkar fyrirtækis.
Þó er okkur tjáð að við fáum hugs-
anlega slíkar markaðsupplýsingar
frá þeim,“ segir Gunnar.
Hann segir að Bifreiðaskoðun
íslands hafi einnig einkaleyfi á
skoðunarmiðunum. „Þeir hafa selt
okkur skoðunarmiða á 73 kr. stykk-
ið. Ég hef fengið tilboð frá silki-
prentstofu um framleiðslu á þessum
miðum á undir 15 kr. stykkið. En
okkur er gert skylt að kaupa mið-
ana á þessu verði.
Ráðuneytið lagði það til að mið-
arnir yrðu seldir á framleiðsluverði
prentsmiðju og við höfum ekki trú
á því að Bifreiðaskoðun hafí samn-
ing sem segir að miðinn kosti 73
kr. Ég hef bréf frá Bifreiðaskoðun
undir höndum þar sem þeir taka
það upp hjá sér að leggja 10%
umsýslugjald á miðana," sagði
Gunnar.
Viðræðum
um sérmál
hraðað
VIÐRÆÐUM samtaka atvinnurek-
enda með forystu einstakra lands-
sambanda ASÍ um sérmál verður
hraðað eftir helgi. Akveðið er að
vinnuveitendur og verslunarmenn
hittist á mánudag, fundur verði með
Samiðn á þriðjudag og Rafíðnaðar-
sambandinu á miðvikudag.
Þórarinn V. Þórarinsson, fram-
kvæmdastjóri VSÍ, segir að eftir
samtöl við forystumenn landssam-
banda að undanfömu hafí niður-
-staðan orðið sú að keyra hratt í við-
ræður um aðra þætti í kröfugerð
sambandanna en þá sem lúta að
kaupliðnum í fyrri hluta næstu viku.
„Við skynjum mjög sterkt áherslu
á að samningum verði hraðað og
það sem stendur alls staðar upp úr
í þessum viðræðum er að það sé
ekki tekin áhætta varðandi verð-
bólgu og vaxtaþróun."
27.500
steratöflur
sagðar til
eigin nota
27.500 töflur af vöðvaaukandi
sterum fundust við leit toll-
varða í fórum tveggja kvenna
á sextugsaldri og tæplega
fimmtugs karlmanns í flugstöð
Leifs Eiríkssonar á Keflavíkur-
flugvelli í fyrrakvöld.
Maður á þrítugsaldri, sonur
karlsins og annarrar konunnar,
hefur viðurkennt að eiga ster-
ana. Hann neitaði að hafa ætlað
að selja lyfin en kvað þau ætluð
til eigin nota.
Fólkið var að koma frá Tæ-
landi með tengiflugi frá Kaup-
mannahöfn. Sterarnir, sem
voru í plastpokum, fundust í
nokkrum leikfangahundum
fyrir börn sem fólkið var með
í farangri sínum.
ÓLAFUR Guðmundsson, rannsóknarlögreglumaður, með hluta steranna og Ieikfangahundana
þrjá sem nota átti til að smygla í gegnum tollinn á Keflavíkurflugvelli.