Morgunblaðið - 11.02.1995, Side 28
28 LAUGARDAGUR 11. FEBRÚAR 1995
AÐSENDAR GREINAR
MORGUNBLAÐIÐ
AUSTANMYND
TÁKN Asíu-ferðakaupstefnunnar — ólíkar stíltegundir í byggingarlist landanna.
Á krossg’ötum
þjóðanna
RAUÐ dögun víkur fyrir grárri
morgunskímu meðan risaþotan frá
ástralska flugfélaginu Qantas
rennir sér niður til lendingar með
400 farþega um borð. Þeir sem eru
svo lánsamir að geta sofíð á nætur-
löngu flugi núa stírur úr augum
og eru albúnir að mæta nýjum
degi hinum megin á hnettinum,
þar sem lífið hefur
annan lit og mýkri tón
og seiðmögnuð dulúð
fyllir loftið. Svona
auðvelt getur verið að
ferðast, sé rétta leiðin
valin. Ég hef fyrir
löngu sannfærst um
hátt raungildi far-
gjaldsins með Qantas,
hvort sem er til Ástral-
íu eða Suðaustur-
Asíu. Aðeins nýjustu
farkostir eru notaðir,
Boeing 747-400, með
gott sætarými, veit-
ingar og þjónustu í
sérflokki. Misskilinn
sparnaður tekur oft
dýran toll, því að gott
ferðalag getur snúist upp í martröð
við slæmar aðstæður.
Asíuþjóðimar hafa heiðrað mig
með boði sínu um þátttöku í Asean
Tourism Forum til að skiptast á
skoðunum um ferðamál og fylgjast
með því sem er efst á baugi á
segulmagnaðasta svæði ferðalaga
í heiminum. Framundan er viku-
löng ráðstefna, fundahöld, veislu-
höld og nærri fímmtíu viðskipta-
fundir með fólki frá sex þátttöku-
ríkjum, sem mæltu sér mót í Bang-
kok dagana 7.-13. janúar sl.
Bangkok - dögun nýrrar aldar
Á leið inn í borgina frá Don
Muang-flugvelli blasir við ný borg-
armynd. Áður var hún kölluð „Fe-
neyjar austursins", með engar
umferðaræðar nema vegi vatnsins
milli lágreistra húsanna, sem stóðu
á staurum. Fyrsta umferðargatan,
Nýstræti, var opnuð árið 1862, á
dögum Mongkuts konungs, sem
var Rama IV (1851-68) af Chakri-
konungsættinni, en hún hefur farið
með völd í Tælandi allt frá stofnun
Bangkoks árið 1782. Mongkut var
hámenntaður hugsuður sem opnaði
land sitt fyrir vestrænum nýjung-
um er leiddu til stórframfara, en
hélt þó fast á sjálfstæði lands síns
svo að nýlenduherrar fengu engin
ítök, en landið auðgaðist af við-
skiptum við Vesturlönd. í konungs-
garði risu hallir og undurfögur
musteri í svifléttum formum og
teygðu logagylltar spírur sínar og
hvolflaga stúpur til himins, þakin
postulíni í ótal litbrigðum eða
skíragulli. Hliðstæða á
Vesturlöndum var
engin til, en Feneyjar
hertoganna var
íburðarmesta borg
Vesturlanda á sinni
tíð, hallimar við Canal
Grande í stílútfærslu
endurreísnar (rinac-
ente) eða barokks. Þar
er „Gullhúsið" (Ca
d’Oro) búið að vera
hulið vinnupöllum í
mörg ár. Það mun stolt
stíga fram í dagsljósið
að nýju á þessu ári,
en gullklæðningin
hvarf fyrir mörgum
öldum. Musteri Bang-
koks skarta enn sínu
skíragulli og em djásn þessa lands
og heimsins alls. Sjálfur hafði
Mongkut stundað munkdóm og
Suðaustur-Asía býður
vestrænum ferðamönn-
um lífsgæði sem vart
fínnast annars staðar,
að mati Ingólfs
Guðbrandssonar, og
hvergi á jafnlágu verði.
agað sál sína við lögmál Búddha
í 27 ár, áður en hann tók við kon-
ungdómi. Virðing Tælendinga fyrir
konungi sínum er takmarkalaus
og gengur næst guðdómi. Núver-
andi konungur Tælands, Bhumi-
bol, kom til valda árið 1946 og
fyllir senn fímmtíu ár á valdastóli
sem Rama IX., ástsæll og virtur
af allri alþýðu ásamt drottningu
sinni, Sirikit fögru. Einveldi Tæ-
landskonunga lauk árið 1932, og
samkvæmt gildandi stjómarskrá
fer þing og ríkisstjóm með þrískipt
vald. Þegar til kastanna kemur,
er það herinn sem hefur tögl og
hagldir, en persónuáhrif konungs-
hjónanna eru víða áþreifanleg.
Tælendingar era hátíðaglatt fólk
og nota hvert tækifæri til að gera
sér dagamun við veisluhöld, tónlist
og dans. Tæland er eina ríkið í
Suðaustur-Asíu, sem aldrei laut
erlendum yfirráðum. Tælenskt da-
gatal er þéttsett tyllidögum af
margvíslegu tilefni til að lofsyngja
almættið og náttúrana. Strax nú
í upphafi árs 1995 er byijað að
fagna 50 ára konungdómi Bhumi-
bols, sem hefur verið lengur við
völd en nokkur annar konungur
Tælands, og standa hátíðahöldin
til ársloka 1996. Sjö milljónir
byggja Bangkok í dag og fjölgar
stöðugt vegna landflótta úr sveit-
unum, en í landinu öllu, sem er
rúmlega fimm sinnum stærra en
ísland, búa um 60 milljónir. Nútím-
inn heldur hratt innreið sína í
Bangkok í formi vestræns stíls í
byggingum úr steypu, stáli og
spegilgleri, er skjótast upp í loftið
með undrahraða tækninnar og era
að breyta borgarmyndinni við
Kóngsfljótið — Chao Phrya — í
háhýsaframskóg, meðan skógar
landsins af kjörviði eyðast af
mannavöldum. Sá sem sér grósk-
una í byggingariðnaði Tælands
undrast ekki að sementsverksmiðja
er stærsta fyrirtæki landsins.
Löngu er búið að fylla síkin og
leggja stræti þar sem áður sigldu
bátar. Mikið af þungaflutningum
fer enn eftir fljótinu, en dugir ekki
til. Umferðin er eilíft vandamál og
á vissum dagstíma situr hún nán-
ast föst á Sukumvitstræti. Hún
hefur þó lagast mikið nýlega við
opnun hraðbrautar, hávegar frá
flugvelli gegnum borgina. Stór-
borgir Austurlanda eiga ekki ann-
að svigrúm en að færa umferðina
upp í loftið.
Hvað er Asean?
Samtök þjóða Suðaustur-Asíu,
Association of South East Asian
Nations, vora stofnuð árið 1967
milli Tælands, Malasíu, Singapore,
Indónesíu og Filippseyja, og Bra-
nei bættist í hópinn 1984. Þeim
svipar á sinn hátt til Norðurlanda-
ráðs um samskipti á sviði menning-
Ingólfur
Guðbrandsson
AUKIN RÉTTINDI
Vinnuvélanámskeið verður haldiö
ef næg þátttaka fæst á Selfossi
dagana 24. febrúar - 6. mars.
(kvöld- og helgar-námskeið)
Skráning og upplýsingar
í síma 98-34660.
Iðntæknistofnun
STRENDUR Phuket draga að sér fleiri og fleiri ferðamenn.
ar og viðskipta og að nokkra til
Evrópusambandsins. Efling ferða-
þjónustu er eitt af höfuðmarkmið-
um samtakanna, en samkvæmt
opinberam tölum er aukning henn-
ar í heiminum hvergi jafnmikil og
í löndum Suðaustur-Asíu. Ferðalög
þangað hafa tekið fjörkipp nú,
þegar kreppunni linnir, og spáð er
að gestafjöldinn frá Evrópu tvö-
faldist á næstu tveimur árum.
Hvað veldur þessum vinsældum?
Ferðakaupstefnugestum í Bang-
kok ber saman um að raungildi
ferðakostnaðar sé hvergi hærra en
hér, þ.e. hér fæst mest fyrir farar-
eyrinn, svo að gengi hans er jafn-
vel tvöfalt eða þrefalt miðað við
Vesturlönd. Hærra fargjald frá
Evrópu vinnst fljótt upp í miklu
lægri dvalarkostnaði. Ferðatíma-
ritin birta niðurstöður sem sýna
mestan fjölda gæðahótela í heimin-
um á þessu svæði. Gæðin eru fólg-
in í staðsetningu, búnaði, veiting-
um og þjónustu, sem vart á sinn
líka. Slík gæði finnast varla í Evr-
ópu né Ameríku, en það sem kemst
næst því kostar helmingi eða þre-
falt meira. Hinir heimsvönu þekkja
þennan mun og notfæra sér hann.
Við það bætist aðdráttarafl af öðr-
um toga, svo sem hlýtt og sólríkt
veður mikinn hluta ársins, rótgróin
þjóðmenning og litríkt mannlíf með
framandi hefðir, töfrar náttúrunn-
ar í landslagi, hitabeltisgróðri og
fögrum baðströndum, fjölbreytt og
bragðgott fæðuval og síðast en
ekki síst kurteisi og ljúfmennska
íbúanna. Að öllu samanlögðu býður
Suðaustur-Asía vestrænum ferða-
manni lífsgæði, sem vart fínnast
annars staðar og hvergi á jafnlágu
verði. Eiginlega sætir það furðu
að íslendingar skuli ekki notfæra
sér þessi gæði í meira mæli á
meðan verðlagið helst enn svo lágt,
í stað þess að leita alltaf á sömu
staðina aftur og aftur, bundnir á
klafa vanans.
Stærsta ferðakaupstefna Asíu
Asean-löndin skiptast á að
kynna sig fyrir öðram þjóðum
heims með Asean Tourism Forum,
sem nú fór fram í Bangkok í sýn-
ingarhöll Sirikit drottningar, var
síðast haldin í Singapore en verður
í Surabaya á eynni Jövu í Indínes-
íu á sama tíma að ári. Miklar
umræður vora að þessu sinni um
fastan samastað kaupstefnunnar í
framtíðinni, en hreyfanleiki hennar
milli landa þykir auka á fjölbreytn-
ina. Um eitt þúsund fyrirtæki selj-
anda og kaupenda vora skráðir
þátttakendur í ár. Gestgjafarnir,
Asíulöndin fimm, skiptu með sér
kvöldum ráðstefnudaganna og
kynntu hver sitt land og þjóð með
glæsilegum veisluhöldum og
menningarlegum uppákomum í
dansi, söng og skrautsýningum.
Sérstaka hrifningu vakti á Ind-
ónesíukvöldinu, þegar landsstjór-
inn af Jövu gekk á svið og tók
lagið með hljómsveitinni eins og
þjálfaður atvinnusöngvari. Hátíðin
fór fram í veislusal Imperial Que-