Morgunblaðið - 07.03.1995, Page 8
8 ÞRIÐJUDAGUR 7. MARZ 1995
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Kvótinn farinn
að ganga í erfðir
Hilllii
r&^iuAjD
Seðlabankastj óri um sviptingar á gj aldey r ismörkuðum
Kallar ekki á breytt
gengi íslenskrar krónu
SVIPTINGAR á gjaldeyrismörkuð-
um að undanförnu, lækkun Banda-
ríkjadals gagnvart Evrópumyntum
og gengisfelling spænska pesetans
og portúgalska escudosins, hafa
ekki mikil áhrif hér á landi og kalla
ekki á breytingar á gengi íslensku
krónunnar, að sögn Birgis ísleifs
Gunnarssonar, seðlabankastjóra.
Tilkynnt var um 7% gengisfell-
ingu spænska pesetans og 3,5%
lækkun portúgalska escudosins í
gærmorgun eftir ellefu klukku-
stunda langan fund gjaldmiðils-
nefndar Evrópusambandsins.
Gengi Bandaríkjadals gagnvart ís-
lensku krónunni var í gærmorgun
63,76 krónur og hafði þá lækkað
frá áramótum úr 68,30 kr. eða um
hálft sjöunda prósent. Dalurinn
lækkaði mikið um helgina, því á
föstudag var skráð gengi hans
65,32 kr. Miðað er við svonefnd
miðgengi. Gengi hans var i lág-
marki í gærmorgun, en hann
styrkti sig aðeins í sessi er á dag-
inn leið. Þýska markið og sviss-
neski frankinn hafa hins vegar
styrkt sig í sessi gagnvart íslensku
AÐFARANÓTT mánudags var beðið
um aðstoð lögreglu í húsi við Ægi-
síðu í Reykjavík þar sem fossaði inn
vatn í kjallaraíbúð. Er að var komið
náði vatnið í íbúðinni í klofhæð.
Í ljós kom að svokölluð pottæð
í götunni hafði gefíð sig, sökum
aldurs og þreytu að því er talið er,
og flæddi frá henni vatn, allt að
100 lítrar á sekúndu, sem kom upp
í innkeyrslu hússins og streymdi
inn í kjallaraíbúðina.
Samkvæmt upplýsingum frá
krónunni. Gengið þýska marksins
var 45,63 kr. í gær og hafði hækk-
að um 3,5% frá áramótum og sviss-
neski frankinn hækkað um 4,4%
gagnvart íslensku krónunni sama
tímabil.
Gengiskarfa viðmiðunin
Birgir sagði að gengi íslensku
krónunnar væri miðað við ákveðna
gengiskörfu. ECU myntin hefði
76% vægi í þessari körfu, Banda-
ríkjadalur 18% og japanska jenið
8% vægi. Gengiskarfan gerði það
að verkum að sveiflur, eins og ver-
ið hefðu á gengi Bandaríkjadals,
jöfnuðust út að verulegu leyti.
Hvað varðaði áhrifin af þessum
breytingum á íslenskt efnahagslíf
að öðru leyti en hvað gengi ís-
lensku krónunnar snerti, sagði
Birgir, að þetta hefði neikvæð áhrif
á viðskiptakjör okkar, þar sem
meira af útflutningi okkar færi til
Bandaríkjanna en sem næmi inn-
flutningi okkar þaðan. Raunar
hefði vægi dalsins í útflutningi
okkar verið að aukast og væri orð-
ið meira en hlutfall hans í gengi-
Vatnsveitu Reykjavíkur gerðu veð-
urfarsástæður að verkum að götu-
ræsi voru stífluð af klaka og því
tóku þau ekki við flaumnum. Innbú
íbúðarinnar mun vera meira eða
minna ónýtt, en tryggingafélag
Vatnsveitunnar greiðir tjónið.
Skrúfað var fyrir vatnsstreymið um
klukkan þijú um nóttina og slökkvi-
liðið fengið á vettvang til að dæla
út vatninu. Viðgerð á vatnsæðinni
stóð yfir í gær og átti henni að ljúka
síðdegis.
skörfunni segði til um. Á hinn bóg-
inn skulduðu íslendingar mikið í
Bandaríkjadölum og á móti kæmi
að skuldirnar lækkuðu sem næmi
lækkun dalsins.
Aðspurður sagði Birgir að fram-
haldið hvað varðaði gengisþróun
dalsins væri mjög óljóst. Því hefði
lengi verið spáð að dalurinn hlyti
að vera kominn í lágmark, en þær
spár hefðu ekki ræst og dalurinn
haldið áfram að falla. Á móti hefðu
þýska markið, svissneski frankinn
og japanska jenið verið að styrkja
sig í sessi.
Birgir sagði að gengisfelling pes-
etans og escudosins væri fyrst og
fremst áfall fyrir evrópska mynt-
samstarfið og myndi ekki verða til
þess að greiða fyrir því að draumur-
inn um sameiginlegan evrópskan
gjaldmiðil yrði að veruleika.
Verð á sólarlanda-
ferðum óbreytt
Helgi Jóhannsson, fram-
kvæmdastjóri Samvinnuferða-
Landsýnar, sagði að gengislækkun
spænska pesetans og portúgalska
escudosins hefði ekki í för með sér
breytingar á verði sólarlandaferða
í ár, þar sem gengið hefði verið frá
samningum um gistirými í þessum
löndum í ágúst í fyrra og búið
væri að greiða fyrir það. Hins veg-
ar gerði þetta það að verkum að
ódýrara yrði að lifa í þessum lönd-
um fyrir ferðamenn sem færu á
þessar slóðir í sumar.
Bílaumboðið Jöfur flytur inn bif-
reiðar frá Bandaríkjunum, en sam-
kvæmt upplýsingum umboðsins
miðast verð bifreiðanna við þýsk
mörk, en ekki bandaríkjadal. Er
það gert vegna þess hve gengi
bandaríkjadals hefur verið sveiflu-
kennt og gefur í langflestum tilvik-
um betri raun heldur en að miða
við gengi dalsins.
Bílheimar hafa einnig umboð
fyrir bandarískar bifreiðar, en bif-
reiðatx»þaðan eru eingöngu fluttar
inn samkvæmt sérpöntunum.
Vatnsæð í sundur á Ægisíðu
Vatn fossaði inn og
skemmdi kjallaraíbúð
Kvenprófessor við raunvísindadeild Hl
Kennslan lít-
ils virði án
rannsókna
FORSETI íslands
skipaði Ágústu
Guðmundsdóttur
nýlega prófsessor í mat-
vælaefnafræði við efna-
fræðiskor raunvísinda-
deildar HÍ, og er skipunin
afturvirk og miðast við
þann tíma sem umsóknin
var lögð inn, eða 1. desem-
ber 1993. Með skipuninni
er Ágústa fyrst kvenna til
að vera skipuð prófessor
við raunvísindadeild HÍ,
jafnframt því að vera fyrsti
prófessorinn í matvæla-
fræði við skólann, en mat-
vælafræði hefur verið
kennd til BS-prófs í raun-
vísindadeild frá 1977.
Doktorsverkefni Ágústu
fjallaði um rannsóknir á
flutningi B-12 vítamíns inn
í frumur. Síðustu árin hefur hún
hins vegar einkum fengist við
rannsóknir á þróun náttúrulegra
rotvarnarefna úr fískbakteríum í
samvinnu við Rannsóknastofnun
fískiðnaðarins og erlenda aðila.
Eru þessi náttúrulegu rotvarnar-
efni ætluð til notkunar í matvæium
í stað tilbúinna rotvarnarefna sem
sum hver eru talin óæskileg heilsu
manna.
- Hvaða tilgangi þjónar þessi
rannsókn?
„Upphaflega var ætlunin að
nota þessi rotvarnarefni í fískaf-
urðir og ýmis fleiri matvæli. Við
erum þarna að reyna að þróa rot-
varnarefni sem eru heppilegri til
notkunar út frá heilsusjónarmið-
um en þau efni sem nú eru í notk-
un. Þau gætu t.d. lengt geymslu-
þol físks sem fluttur er milli landa,
þannig að hann haldist lengur
ferskur. Þarna er verið að gera
tilraunir með þessi efni ásamt öðr-
um svipuðum. Við þurfum eig-
inlega að einangra fleiri efni áður
en árangur næst, því að vandamál-
ið við þessi efni er að þau verka
á svo fáar bakteríur og í raun
ekki á helstu skemmdu bakteríur
í fiski. Þetta er helsta vandamálið
sem við glímum við. Þessari rann-
sókn miðar ágætlega, en er þó
skammt á veg komin því að rann-
sóknir af þessum toga taka afar
langan tíma. Rannsóknin veldur
því engri byltingu, að minnsta
kosti ekki enn sem komið er, en
ef við getum haldið þessu starfí
áfram, gefst okkur væntanlega
kostur á að líta á fleiri tegundir
af bakteríum og útvíkka sviðið
þannig að við fáum fjölvirk efni,
þ.e. efni sem eru einangruð úr
mörgum bakteríum. “
Jafnframt þessu fæst Ágústa
við erfðatæknilegar
Agústa Guðmundsdóttir
► Ágústa Guðmundsdóttir
fæddist 1945 í Reykjavík, varð
stúdent frá öldungadeild MH
1976, lauk BS-prófi í matvæla-
fræði frá Háskóla íslands 1980
og doktorsgráðu frá örveru-
fræðideild University of Virgin-
ia 1988. Hún starfaði við grunn-
rannsóknir í matvælafræði við
Raunvísindastofnun 1980-1984
og frá 1988 til dagsins í dag
hefur hún unnið að eigin rann-
sóknum í matvælaefnafræði við
sömu stofnun.
Gætu lengt
geymsluþol
fisks
rannsóknir á ensímum
úr þorski til matvæla-
vinnslu, og eru þær
unnar í samvinnu líf-
efnafræðistofu Raun- “
vísindastofnunar og University of
California í San Francisco.
„Þessi rannsókn snýst um að
klóna gen fyrir ensím, eða með
öðrum orðum að framleiða þorska-
ensím í örverum, meðal annars til
þess að nota þessi ensím í mat-
vælaiðnaði og jafnvel annars kon-
ar iðnaði. Eitt það merkilegasta
við þessi ensím úr fiskinum, er að
þau eru virk við lægra hitastig en
önnur ensím úr lífverum sem lifa
við hærra hitastig. Við erum líka
að kanna hvað valdi að þessi en-
sím séu kuldavirkari heldur en t.d.
sambærileg ensím úr rottum, sem
kunningjar mínir í Kaliforníu eru
að rannsaka.“
- Þessi viðfangsefni eru um
margt séríslensk, ekki satt?
„Eg skildi strax eftir að ég kom
heim frá doktorsnámi að miklu
vitrænna væri að tengjast þeim
rannsóknum sem væru fyrir hér-
lendis, þannig að maður sé hluti
af stærri einingu en ekki einn út
í horni að paufast. Við höfum ver-
ið 3-4 að meðaltali á rannsókna-
stofu minni í fullu starfi, en að
hvorri rannsókn starfa ekki undir
sex eða sjö manns alls. Af fyrr-
greindum ástæðum sneri ég mér
nær alfarið að jafn íslenskum fyr-
irbærum og raun ber vitni. “
- Sækja konur minna í raunvís-
indafög en karlar, miðað við að
þú er fyrsti kvenprófessorinn í
deildinni?
„Á seinustu árum hefur fólki
menntuðu á sviði erfðatækni fjölg-
að mikið, og ég held að hlutföllin
milli kynjanna séu afar jöfn hér-
lendis á því sviði. Margir eru hins
vegar ekki í kennarastöðum, held-
ur starfa sumir á sjúkrahúsunum
og aðrir á rannsóknarstofnunum.
Nú eru 36 prófessorar f deildinni
og þar af er ég eina
konan, en til viðbótar
eru 26 dósentar og þar
að sex konur. Ég held
þó ekki að konur eigi
undir högg að sækja í
deildinni, þær eru bara seinni á
ferðinni og hafa ekki til skamms
tíma farið í langskólanám. Nú fer
það hins vegar mjög vaxandi.“
í embætti Ágústu felst 45%
kennsluskylda, 40% rannsóknir og
afgangnum er varið í stjórnun. „Sá
sem rekur rannsóknarstofu þarf
að leggja mikinn tíma í hana, ekki
síst að afla ljár til að hún geti
borið sig. Mér finnst stundum að
ég hafi aldrei nógan tíma fyrir
rannsóknir. Kennslan er þó mjög
skemmtileg og væri lítils virði ef
henni fylgdu ekki rannsóknir einn-
ig.“