Morgunblaðið - 25.03.1995, Qupperneq 30
I
30 LAUGARDAGUR 25. MARZ 1995
MORGUNBLAÐIÐ
Gígja sýnir
í Allra-
handa
GÍGJA Baldursdóttir opnar-
málverkasýningu í Gallerí
Allrahanda, Akureyri laugar-
daginn 25. mars. Gígja er
fædd í Reykjavík 1959,
stundaði nám við Myndlista-
skólann í Reykjavík
1980- 81, Oslo Maleskole
1981- 82, Myndlista- og
handíðaskóla íslands
1982- 86, lauk BFA gráðu
frá Iowa State University
1992. Þetta er fimmta einka-
sýning Gígju, en hún hefur
haldið sýningar bæði hér
heima og erlendis.
Sýningin verður opin alla
daga frá kl. 14-18 og lýkur
sunnudaginn 9. apríl.
Kvikmynda-
sýning fyrir
börn
FINNSKA bamamyndin Rölli
verður sýnd í Norræna húsinu
sunnudaginn 26. mars kl.
14.. Þessi mynd fjallar um
tröllið Rölla, sem býr einn í
kofa sínum. Myndin er 100
mín og er með finnsku tali.
Allir velkomnir og aðgangur
ókeypis.
Kvikmynd
um Zhúkov
„ZHÚKOV marskálkur -
blöð úr ævisögu“ nefnist
heimildarkvikmynd, sem
sýnd verður í bíósal MÍR,
Vatnsstíg 10, nk. sunnudag,
26. mars kl. 16. í myndinni
segir frá frægasta hershöfð-
ingja Sovétríkjanna í síðari
heimsstyijöldinni, Georgíj
Zhúkov, en hann átti m.a.
hlut að sigri sovéskra hersins
í orrustunni um Moskvu og
rak síðan flótta Þjóðveija
vestur á bóginn, allt til Berlín-
ar.
Aðgangur er ókeypis og
öllum heimill meðan húsrúm
leyfir.
Þrír einleikir
í Deiglunni
ÞRÍR einleikir eftir Ingi-
björgu Hjartardóttur, Bónd-
inn, Dóttirin og Slaghörpu-
leikarinn verða sýndir í Deigl-
unni á Akureyri laugardaginn
25. mars kl. 16.
Leikstjóri er Sigríður Mar-
grét Guðmundsdóttir. Leik-
endur eru Guðbjörg Thorodd-
sen, Guðlaug María Bjarna-
dóttir og Ingrid Jónsdóttir.
Þættirnir segja sögu þriggja
kvenna sem eiga að baki mis-
munandi lífsferil.
Fílharmónía
flytur Messías
SÖNGSVEITIN Fílharmónía
flytur Messías eftir Hándel í
Langholtskirkju í dag,
laugardag 25. mars og
sunnudag 26. mars kl. 16.30
báða dagana. Einsöngvarar
verða þau Elísabet F. Eiríks-
dóttir sópran, Alina Dubik
alt, Kolbeinn Ketilsson tenór,
Bjarni Thor Kristinsson bassi
og Xu Wen sópran. Auk þess
leikur 22 manna kammer-
sveit og konsertmeistari er
Szymon Kuran. Stjórnandi er
Úlrik Ólason.
LISTIR
Eiríkur
Guðmundsson
Steinunn Inga
Óttíirsdóttir
Steinunn
Haraldsdóttir
Þröstur
Helgason
Frásagnarbókmennt-
ir átjándu aldar
FÉLAG um átjándu aldar fræði
boðar til málþings um frásagnar-
bókmenntir átjándu aldar, laugar-
daginn 25. mars í Þjóðarbókhlöðu,
fyrirlestrarsal á 2. hæð. Hefst mál-
þingið kl. 14.
Atjánda öldin var tímabil mikilla
umskipta í íslenskri frásagnarlist
því að þá var lagður grundvöllur
að skáldsagnagerð síðari tíma auk
þess sem ritun sjálfsævisagna óx
fiskur um hrygg. Þá bar mikið á
ferðafrásögnum, rómönsugerð og
þýðingum almúgabóka og ævin-
týrasagna að ógleymdum þjóðsög-
um. íslendingar tóku að fást við
sjálfa sig og samtíð sína í frásagn-
arbókmenntum sem voru mun fjöl-
skrúðugri og merkilegri en almennt
hefur verið talið. Á málþinginu
verða flutt eftirfarandi ijögur erindi
um frásagnarlist þessa tíma.
Eiríkur Guðmundsson, Því nú
skaltu deyja. Um mót rómönsu og
skáldsögu í verkum Jóns Oddssonar
Hjaltalín; Steinunn Inga Óttarsdótt-
ir, Af íslenskum Gúllíver og Ódys-
seifi. Um Reisubók Eiríks Björns-
sonar og Ferðasögu Áma Magnús-
sonar frá Geltastekk; Steinunn
Haraldsdóttir, Skáldsagan-Tíma-
spursmál? Um tímavitund í frásagn-
arbókmenntum upplýsingatímans;
Þröstur Helgason, Tilurð höfundar-
ins. Efling sjálfsverunnar á 18. og
19. öid í ljósi íslenskrar skáldskap-
arfræði.
Öllum er heimill aðgangur.
LÚÐRASVEIT Grunnskóla Þorlákshafnar lék á tónleikunum.
Tónlistarskóli Árnesinga 40 ára
ÞORLÁKSHAFNARDEILD
Tónlistarskóla Árnesinga hélt
tónleika þann 15. mars sl. í til-
efni af 40 ára afmæli skólans.
Tónleikarnir voru vel sóttir.
Efnisskráin var fjölbreytt, m.a.
léku fiðlu-, trompet- og klari-
netthópar, Lúðrasveit Þorláks-
hafnar og Skólalúðrasveit.
Einnig komu fram einsöngvari
og einleikarar, allt nemendur
skólans sem eru komnir lengra
í námi. Félagar í Söngfélagi
Þorlákshafnar sungu sem gestir
á tónleikunum.
Alls starfa fimm kennarar
auk deildarstjóra við tónlistar-
kennsluna. Nemendur eru um
eitt hundrað á öllum aldri.
Deildarstjóri Þorlákshafnar-
deildar er Robert Darling og
stjórnar hann jafnframt Lúðra-
sveit og Söngfélagi.
Deildinni voru færðar góðar
gjafir í tilefni afmælisins. Bjarni
Jónsson oddviti Ölfushrepps
flutti ræðu og sagði meðal ann-
ars að í haust væri stefnt að því
að öll starfsemi deildarinnar
færðist inn í Grunnskólann.