Morgunblaðið - 05.04.1995, Page 8

Morgunblaðið - 05.04.1995, Page 8
8 MIÐVIKUDAGUR 5. APRÍL 1995 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Ykkur er óhætt að koma, þetta lítur út fyrir að vera alveg sauðmeinlaus þjóðflokkur . . . Nýjar reglur um niðurgreiðslur hjá Dagvist barna Heimgreiðslur falla niður 1. júní BORGARRÁÐSFULLTRÚAR Reykjavlkurlistans sjá ekki ástæðu til að fresta samþykkt nýrra reglna um niðurgreiðslur á dagvistargjöld- um þrátt fyrir tillögu sjálfstæðis- manna um að gerð verði könnun á nýtingu heimgreiðslu til foreldra. í samþykkt stjórnar Dagvistar bama, sem samþykkt var í borgar- ráði, er gert ráð fýrir að greiðslur til foreldra 2'A og 4'A árs bama falli niður frá og með 1. júní 1995. Á fundi borgarráðs í fyrri viku lögðu sjálfstæðismenn fram tillögu um að kannað yrði hvort foreldrar 500 bama hefðu nýtt sér heimgreiðslur til að greiða dagmæðmm eins og fulltrúar R-listans hafa haldið fram. Nýjar reglur Borgarráð samþykkti jafnframt að komið yrði á niðurgreiðslu til dagmæðra vegna barna 'A árs til 5 ára eða 6 þús. krónum fyrir börn 'A árs til 2 ára miðað við heilsdags- vist og fyrir böm 3-5 ára greiðast 9 þús. krónur miðað við heilsdags- vist. Gildistíminn er frá 1. septem- ber 1995. DÓMNEFND hefur valið sex verk- efni í undanúrslit í Hugvísi, keppni ungra vísindamanna. Alls bárust 35 verkefni, en höfundar verkefn- anna sex þróa verkefni sín frekar til 15. maí. Gera þeir grein fyrir verkefnunum og verða valdir 2-3 sem taka þátt í Evrópukeppninni. Verkefnin sex eru: Poseidon, höfundur Soffía H. Bjömsdóttur í MR. Frostmoli, höfundar Anna S. Arnardóttir og Eðvarð S. Bjama- son í MR. Súlfíð-Súlfat, höfundar Þá var samþykkt að niðurgreiðsl- ur á dagvistargjöldum hjá dag- mæðrum og á einka- og foreldra- reknum leikskólum fyrir börn náms- manna, sem báðir eru í námi, verði sambærilegar niðurgreiðslum til einstæðra foreldra frá og með 1. apríl 1995. Loks var samþykkt að niðurgreiðsla og styrkur til einka- eða foreldrarekins leikskóla fyrir böm einstæðra foreldra nemi 30 þús. krónum fyrir heilsdagsvist, frá 1. apríl 1995. Borgarráð samþykkti 1. lið með 3 atkvæðum gegn 2 og samhljóða liði 2-4. Mest til dagmæðra Vegna tillögu Sjálfstæðisflokks lögðu fulltrúar Reykjavíkurlistans fram tillögu, þar sem fram kemur að ekki sé ástæða til að fresta sam- þykkt nýrra reglna varðandi niður- greiðslu á dagvistargjöldum, þrátt fyrir tillögu um að fram fari-könnun á nýtingu heimgreiðslna til foreldra. Slík könnun sé sjálfstætt athuguh- arefni og telja fulltrúar Reykjavík- urlistans að hún muni staðfesta það Jón Þ. Einarsson, Jón Þ. Hallsson og Pálmar I. Guðnason, Fjöl- brautaskóla Suðurlands. Þykkval- úra, höfundar Aldís H. Egilsdóttir, Ármann Höskuldsson, Bjöm Matt- híasson, Emil Hadzic, Gunnar Friðfinnsson, Jóhann Öm Frið- steinsson, Margrét Þorsteinsdóttir. Markús 0. Másson, Reynir Hjálm- arsson og Sighvatur Bjarnason, Framhaldsskólanum í Vestmanna- eyjum. Sami hópur vinnur verkefn- ið Atferli loðnu. að niðurgreiðslur renni að mestu leyti til dagmæðra að frádreginni staðgreiðslu skatta. Verksvið ríkisins Þá segir: „Hins vegar er ljóst að lítill hópur heimavinnandi foreldra nýtur góðs af þessum greiðslum sem em óverulegar og hafa ekki úrslitaáhrif varðandi atvinnuþátt- töku foreldra enda á verksviði ríkis- ins að koma til móts við bamafjöl- skyldur m.a. með barnabótum og bamabótauka. Við leggjum því til að tillögu um könnun á dagvistar- úrræðum verði vísað til stjómar Dagvistar bama og er því ekki fall- ist á frestun á afgreiðslu málsins." Tillagan var samþykkt með þremur atkvæðum gegn tveimur. Engar upplýsingar að baki I bókun sjálfstæðismanna segir að R-listinn hafi fullyrt að það fjár- magn sem greitt hafi verið vegna 500 bama hafi nýst illa. Þá segir: „Þær fullyrðingar R-listans áttu að styðja ákvörðun um afnám heim- greiðslna og því mikilvægt að svar lægi fyrir áður en ákvörðun um afnám yrði tekin. Þessari einföldu athugun hefur nú R-listinn hafnað þótt viðurkennt sé að engar upplýs- ingar liggi að baki fullyrðingar þeirra.“ Aukið valfrelsi í bókun Reykjavíkurlistans segir að tillaga meirihluta stjórnar Dag- vistar bama um breyttar reglur vegna niðurgreiðslu á dagvistar- gjöldum séu til þess fallnar að bæta stöðu dagmæðra og auka valfrelsli foreldra um dagvistarúrræði í sam- ræmi við lögboðin verkefni sveitar- félaga. Jafnframt telji listinn að í tillögunni felist markvissari nýting fjármuna en hingað til. Því væri ekki ástæða til að fresta gildistöku tillagnanna. Sex verkefni í undan- úrslit Hugvísis Rannsóknir Hjartaverndar Góður árangur í baráttunni gegn hjartasjúkdómum Uggi Þ. Agnarsson Aðalfundur Hjartaverndar er á morgun, en þar verða m.a flutt erindi um þau rannsóknarverkefni, sem unnið er að á vegum félagsins. Nýjar rannsóknir sýna, að dánartíðni af völd- um kransæðasjúkdóma hefur lækkað meira á ís- landi undanfarin ár en hjá nágrannaþjóðum. Uggi Agnarsson læknir segir skýringarinnar m.a. að leita í góðu heilbrigðiskerfi hér á landi. Að hvaða rannsðknum er nú unnið á vegum Hjartaverndar? „Við erum nú að vinna að 6. áfanga í hópskoðun Hjartaverndar, sem hefur gengið vel. Björn Einarsson öldrunarlæknir er í forsvari fyrir þessum hluta rannsóknarinnar, sem beinist að öldruðum. Við höf- um miklar væntingar um að rann- sóknin leiði í Ijós frekari upplýs- ingar um elliglöp og alzheimer- sjúkdóminn, svo dæmi séu tekin. Þá vonumst við til að fá vísbend- ingar um hvaða eiginleika það fólk hefur, sem nær háum aldri. Vonandi getum við birt einhveijar niðurstöður þessarar rannsóknar má næsta ári. Þá lauk fyrir nokkru rannsókn á hjartasjúkdómum í konum. Lilja S. Jónsdóttir læknir er að vinna úr þeim gögnum og niðurstöður ættu að liggja fyrir fljótlega. Hjartavernd tekur einnig þátt I fjölþjóðlegri rannsókn, Monica- verkefninu, sem fer fram á 38 stöðum víðs vegar um heim, en þó aðallega í Evrópu. Við höfum sérstaklega átt náið samstarf við Dani, Svía, Finna og Litháa. Þessi rannsókn gengur út á að fylgjast með algengi kransæðasjúkdóma, hvemig þeir hafi þróast undanfar- in ár og hveijir áhættuþættir í umhverfinu séu. Hér á landi get- um við sýnt fram á góðan árang- ur í meðferð við sjúkdómunum." Hversu algegnir eru kransæða- sjúkdómar hér og hver er sá árangur sem náðst hefur í barátt- unni við þá? „Hér á landi veikjast 450 karlar af hveijum 100 þúsund íbúum á ári, en um 100 konur. Árið 1982 og 1983 voru 486 skráð tilfelli af bráðri kransæðastíflu og konur voru 20% af þeim hópi. Af þessum hópi voru 26% látin við komu á sjúkrahús. Af þeim sem lagðir vom inn voru 12% látin 28 dögum síðar og að ári liðnu vom 18% látin. Við gerðum sams konar könnun árin 1991 og 1992. Þá vom 549 sjúklingur í hópnum. Af þeim voru 21% látin við komu á sjúkrahús. Af þeim sem lagðir vom inn vom 9% látin 28 dögum síðar og ári síðar var sú tala komin í 12%, sem er marktækur munur frá fyrra tímabilinu. Þama sjáum við skýrt árangur af lækningum. Við emm betur í stakk búin nú til að kljást við kransæðasjúkdóma, lyf eru betri og frá því að fyrri könnunin var gerð höfum við hafíð notkun á blóðþynningarlyfjum við með- ferð og þau hafa haft sitt að segja.“ Hvaða áhættuþættir eru það sem hafa áhrif á kransæðasjúk- dóma? „Sá stærsti, eins og fram kom í báðum rannsóknunum, eru reyk- ► Uggi Þ. Agnarsson læknir fæddist í Reykjavík 19. nóvem- ber 1949. Hann lauk stúdents- prófi frá MR1969 og prófi frá læknadeild HÍ 1976. Hann stundaði framhaldsnám í lyf- lækningum og hjartasjúkdóm- um við háskólann í Connecticut í Bandaríkjunum og lauk þaðan sérfæðingaprófi bandarískra hjartalækna. Uggi sneri heim 1986 og hóf þá störf við rann- sóknarstofu Hjartaverndar, auk þess sem hann hefur starf- að á Landspítala og Sjúkrahúsi Akraness og rekið eigin stofu. ingarnar. Af yngri einstaklingum sem veikjast, þ.e. á aldrinum 35-55 ára, reykja þrír af hveijum fjórum. Umtalsverður hópur fólks fær kransæðasjúkdóma á besta aldri, þegar einstaklingurinn ætti að vera í blóma lífsins og virðast reykingar ráða miklu um þessa þróun. Annar áhættuþáttur er blóðfíta. íslendingar hafa tiltölu- lega hátt hlutfall blóðfítu, en það hefur lækkað jafnt og þétt með breyttu mataræði. Aukin líkams- þjálfun hefur einnig haft sitt að segja. Þó eru ýmsir sem reka sig á að hlutfall blóðfítu lækkar ekki þótt þeir grennist. Þeir eru því áfram I áhættuhópi og við þurfum að taka afstöðu til þess hvemig á að bregðast við, hvort við eigum til dæmis að gefa þessum hópi dýr lyf og þá sérstaklega karlmönnun- um, en blóðfita er sérstaklega áhættuþáttur hjá þeim.“ Hvert verður næsta rannsóknarverkefni? „Næsta stórverkefni erum við þegar farin að ráðgera, en það er afkomenda- rannsókn. Hún fer þannig fram, að afkomendur þeirra, sem þegar hafa tekið þátt í hóprannsóknum, koma til okkar og við reynum að gera okkur mynd af því hve ríkur þáttur erfðir eru í kransæðasjúk- dómum. Þessi rannsókn getur hafíst í haust, en hún tekur líkega 1-2 ár. Það hefur staðið okkur fyrir þrifum hvað við höfum getað annað fáum þátttakendum í einu, en við ætlum að reyna að auka afköstin nú. Við vonumst til að fá styrkveitingu, svo við getum bætt Vilmundi Guðnasyni lækni í hópinn, en hann er sérfræðingur I læknisfræðilegri erfðafræði og hefur unnið við mjög áhugaverðar rannsóknir í London." Stærsti áhættuþáttur eru reykingar

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.