Morgunblaðið - 05.04.1995, Síða 11
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 5. APRÍL 1995 11
FRÉTTIR
Morgunblaðið/Rúnar Þór
HALLDÓR Ásgrímsson hitti menntaskólanema að máli í MA.
Formaður Framsóknarflokksins
Þúsund manns án
vinnu vegna sam-
dráttar í landbúnaði
LAUNAMUNUR milli karla og
kvenna brann heitt á ungum mennta-
skólastúlkum, nemum í 4.F en Hall-
dór Ásgrímsson, formaður Fram-
sóknarflokksins, kom í stjórnmála-
fræðitíma hjá bekknum í gærdag og
ræddi við stúdentsefni um stefnu
flokksins.
Halldór sagðist ekki hafa trú á
„patentlausnum" hvað launamismun
varðar né heldur að hægt yrði að
uppræta hann með lagasetningu og
benti m.a. á, að svo virtist sem jafn-
réttislögin hefðu ekki skilað sér sem
skyldi. Hann hefði meiri trú á að
unnt yrði að uppræta þann mikla
mun sem virtist vera milli launa karia
og kvenna með því að konur gengju
sem mest inn í áður hefðbundin
karlastörf og öfugt. í hans huga
væri það ekkert annað en ranglæti
að konur hefðu að meðaltali um 65%
af launum karla fyrir svipuð störf
eins og fram hefði komið í nýlegum
könnunum. Þetta ætti vissulega ekki
bara að vera mál kvenna, karlar
ættu líka að láta til sín taka til að
ná fram jöfnuði milli kynjanna í
launamálum.
Störf verða til í sveitunum
Samdráttur í landbúnaði kom til
umræðu og taldi Halldór að um 1.000
manns af þeim 6-7.000 sem nú væru
án atvinnu á Islandi væru það í kjöl-
far samdráttar í landbúnaði. Hann
taldi töluverðan hluta af þeim 12.000
stöfum sem skapa þarf fram til alda-
móta verða til í sveitunum, þar væru
sóknarfæri m.a. í ferðaþjónustu og
einnig á sviði vistvæns landbúnaðar.
Tengsl Framsóknarflokksins við
bændur voru gerð að umtalsefni og
minnti formaður flokksins á nýlega
bíóauglýsingu, en í henni er Halldór
látinn baula. „Við gætum sem hæg-
ast gert svona auglýsingu, látið for-
sætisráðherra krunka undir mynd-
inni, svona til að minna aðeins á
Hrafnsmálið. Slíkar auglýsingar eru
að okkar mati bara ekki viðeigandi,
það er afar leiðinlegt að kosningabar-
áttan sé komnin niður á þetta stig,“
sagði Halldór.
Fjölda annarra mála bara á góma.
Mmenntaskólanemar spurðu for-
mann Framsóknarflokksins um
skattamál. Hann sagði það stefnu
flokksins að hækka ekki skatta á
atvinnulífið og væri hann algjörlega
ósammála Alþýðubandalaginu í þeim
efnum, sem vildi setja hátekjuskatt
á fyrirtæki. Halldór tók Útgerðarfé-
lag Akureyringa sem dæmi en hagn-
aður félagsins var yfir 150 milljónir
á liðnum ári. Ef skattar yrðu lagðir
á hagnað fyrirtækja sem færi yfir
50 milljónir hefðu 100 milljónir lent
í hátekjuþrepi, það myndi leiða til
þess að stofnuð yrðu fleiri félög um
reksturinn þannig að fyrirtækin lentu
ekki í hátekjuþrepinu.
Baráttufundur
Kvennalistans
BARÁTTU- og skemmtifundur
Kvennalistans í Reykjavík verður
haldinn á Hótel Borg kl. 20.30 í dag.
Guðrún Agnarsdóttir læknir flytur
inngangsorð, frambjóðendumir
Kristín Ástgeirsdóttir, Guðný Guð-
björnsdóttir og Þórunn Sveinbjarnar-
dóttir brýna fundarfólk. Flutt verður
tónlist og Ijóð.
Heiðursgestur er Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir borgarstjóri.
Menning-
arhátíð
Þjóðvaka
ÞJÓÐVAKI stendur fyrir menn-
ingarhátíð alla þessa viku. Hún
hófst með opnum fundi sl. mánu-
dagskvöld um samskipti Reykja-
víkurborgar og Alþingis undir
heitinu „Reykjavík, ó Reykjavík,
þú yndislega borg“. Sérstakur
gestur fundarins var Ingibjörg
Sólrún Gísladóttir borgarstjóri,
sem hér sést með Guðrúnu
Árnadóttur og Ástu R. Jóhann-
esdóttur. Meðal fundargesta var
formaður Þjóðvaka, Jóhanna
Sigurðardóttir. I kvöld verður
söngskemmtun á Kaffi Reykja-
vík kl. 21.30, þar sem Kvenna-
kór Reykjavíkur syngur undir
stjórn Margrétar Pálmadóttur
og í kvöld verða tónleikar á
Rauða ljóninu kl. 22, þar sem
fram koma Bubbi Morthens og
Hinir guðdómlegu Neanderdals-
menn.
Morgunblaðið/Þorkell
• •
Ossur Skarphéðinsson um formann Alþýðubandalagsins
Sækir fylgi til vinstri fyrir
stjóm með Sjálfstæðisflokki
Morgunblaðið/Þorkell
OSSUR Skarphéðinsson ræðir við starfsmenn Póstgíróstofunnar.
ÖSSUR Skarphéðinsson, umhverfís-
ráðherra, sagði á fundi með starfs-
mönnum Póstgíróstofunnar í Reykja-
vík að með yfirlýsingum sínum um
nauðsyn á myndun vinstri stjórnar
að loknum kosningum væri Olafur
Ragnar Grímsson, formaður Alþýðu-
bandalagsins, fyrst og fremst að
biðla eftir atkvæðum vinstri manna
til að gera flokkinn nægilega öflugan
til að mynda tveggja flokka stjóm
með Sjálfstæðisflokknum.
Þar sem Alþýðubandalagið hefði
ekki lýst yfír að það útilokaði stjórn-
arþátttöku með Sjálfstæðisflokknum
væru yfirlýsingar formannsins um
vilja til að mynda vinstri stjórn ekki
trúverðugar.
Össur sagði í svari við fyrirspum
starfsmanns að Alþýðuflokkurinn
mundi standa við áður gefnar yfirlýs-
ingar og leggjast gegn hugmyndum
samgönguráðherra um einkavæð-
ingu Pósts og síma. Það væri í and-
stöðu við stefnu flokksins að einka-
væða ríkisfyrirtæki sem störfuðu á
sviðum þar sem um fákeppni eða
einokun væri að ræða.
Kjarabætur til póstmanna
Þá sagði Össur að hann teldi rétt
að huga að leiðum til að leiðrétta
kjör starfsmanna Pósts og síma, en
fram kom að 35% félagsmanna póst-
mannafélagsins væru á láglaunabót-
um. Össur kvaðst telja að kanna
þyrfti möguleika á því að verja hluta
þeirra 1.400 milljóna króna sem
Póstur og sími skiluðu í tekjur til
ríkissjóðs til þess að hækka laun
starfsmanna umfram aðra.
Neytendur hefðu þegar notið góðs
af rekstrarafgangi stofnunarinnar í
lægri gjaldskrá og ríkissjóður hefði
hagnast af framlagi fyrirtækisins til
ríkisins. Rétt væri að huga að því
hvort starfsmenn ættu nú að njóta
árangurs fyrirtækisins. Nauðsynlegt
væri að líta til þess að fyrirtækið
hefði þá sérstöðu meðal ríkisfyrir-
tækja að það væri ekki rekið fyrir
framlög úr ríkissjóði heldur tekjur
sem það aflaði sjálft.
Össur Skarphéðinsson sagði að
árangur af starfi ríkisstjómarinnar
væri m.a. sá að á sama tíma og at-
vinnuleysi væri vaxandi í nágranna-
löndunum væri það á undanhaldi hér
og hefði aldrei náð því hámarki sem
spáð hefði verið. 2000 ný störf hefðu
orðið til á síðasta ári og mætti m.a.
rekja það til þess að ríkisstjómin
hefði leyft landanir erlendra skipa
sem hér hefðu fært að landi 30 þús-
und tonn af rússaþorski til vinnslu;
einnig hefði stuðningur ríkisstjómar-
innar, einkum Alþýðuflokksins og
forsætisráðherra, við Smuguveiðar
orðið til þess að hér urðu til ígildi
5-600 ársverka.
Félag Loggiltra Bifkeidasala
NYJA BÍLAHOLLIN FUNAHOFDA I S: 567-2277
Fílag Loggiltra Bifkeiðasala
Grand Cherokee 4,0L árg. '94, ek. 9
þús. km., grænn, álfelgur, cen., R/O.
V. 3.900.000. Ath. skipti.
MMC L-300 4x4 Minibus diesel
árg. '90, ek. 145 þús. km., grár.
V. 1.350.000. Ath. skipti.
km., hvítur, álfelgur, spoiler.
V. 690.000. Ath. skipti.
Daihatsu Charade CX 5 dyra, 5 g.,
árg. '91, rauöur ek. 32 þús. km.
V. 650.000. Ath. skipti.
Ford Escort 1,4 CLX árg. '93, grár, ek.
25 þús. km., 5 dyra, 5 g. V. 1.050.000.
Ath. skipti.
BILATORG FUNAHOFDA I S: 587-7777
Toyota Hilux Double Cap SR5 bensin
árg. '94, ek. 17 þús. km., grár, 32"
dekk, álfelgur, hús, brettak.
V. 2.290.000. Ath. skipti.
FtLAO Loggiltra Bifreiðasala
sóllúga, spoilerar, álfelgur, Low profile
dekk, ek. 66 þús. km. V. 1.850.000.
Sjón er sögu ríkari
Toyota Landcruiser VX árg. '91, silfur-
grár, álfelgur, 35" dekk, sóllúga, spil,
mjög fallegt eintak, ek. 87 þús. km.
V. 3.690.000. Skipti.
Toyota 4Runner V6 árg. '91, grár, 32"
dekk, álfelgur, ek. 50 þús. km.
V. 2.300.000. Skipti.
Ford Airostar XLT 4WD árg. '90,
blásans., 7 manna. Einn meö öllu.
Toyota Hiace 4WD diesel árg. '91,
hvítur, sóllúga, vsk. bíll, ek. 89 þús. km.
V. 1.400.000. Skipti.
Toyota Corolla Touring GL árg. '90,
blásans., sóllúga, álfelgur,
ek. 65 þús. km. V. 1.070.000. Skipti.
NU ER BESTI SOLUTIMINN FRAMUNDAN - VANTAR ALLAR GERÐIR BILA A STAÐINN