Morgunblaðið - 05.04.1995, Side 48

Morgunblaðið - 05.04.1995, Side 48
MORGUNBLAÐIÐ 48 MIÐVIKUDAGUR 5. APRÍL 1995 Stóra sviðið: • FÁVITINN eftir Fjodor Dostojevskí Kl. 20.00: Fim. 6/4 - fös. 21/4. Ath. aðeins þrjár sýningar eftir. Söngleikurinn • WEST SIDE STORY e. Jerome Robbins og Arthur Laurents við tónlist Leonards Bernsteins Kl. 20.00: Fös. 7/4 uppselt - lau. 8/4 uppselt - sun. 9/4 uppselt - fim. 20/4 - lau. 22/4 uppselt - sun. 23/4 örfá sæti laus. Ósóttar pantanir seldar dagiega. • SNÆDROTTNINGIN eftir Evgeni Schwartz Byggt á ævintýri H.C. Andersen. Sun. 9/4 kl. 14 - sun. 23/4 kl. 14 næstsíðasta sýning. Ath. aðeins þrjár sýning- ar eftir. Smíðaverkstæðið: Barnaleikritið • LOFTHRÆDDI ÖRNINN HANN ÖRVAR eftir Stalle Arreman og Peter Engkvist Lau 8/4 kl. kl. 15. Miðaverð kr. 600. • TAKTU LAGIÐ, LÓA! eftir Jim Cartwright Kl. 20.00: Fim. 6/4 uppselt - fös. 7/4 uppseit - lau. 8/4 uppselt - sun. 9/4 uppselt - fim. 20/4 uppselt - fös. 21/4 uppselt - lau. 22/4 uppselt - sun. 23/4 uppselt. Ósóttar pantanir seldar daglega. Listaklúbbur Leikhúskjallarans: • DÓTTIRIN, BÓNDINN OG SLAGHÖRPULEIKARINN eftir Ingibjörgu Hjartardóttur Ath. breyttan sýningatfma mið. 5/4 og þri. 11/4 kl. 20.30. Aðeins tvær sýning- ar eftir. Húsið opnað kl. 20.00, sýningin hefst stundvíslega kl. 20.30. GJAFAKORTíLEIKHÚS - SÍGILD OGSKEMMTILEG GJÖF Miðasala Þjóðleikhússins er opin alla daga nema mánudaga frá kl. 13.00 til 18.00 og fram að sýningu sýningardaga. Tekið á móti símapöntunum virka daga frá kl. 10.00. Græna línan 99 61 60 - greiðslukortaþjónusta. Jg BORGARLEIKHUSIÐ T LEIKFÉLAG REYKJAVÍKUR STÓRA SVIÐIÐ KL. 20: • VIÐ BORGUM EKKI - VIÐ BORGUM EKKIeftirDt.no Fo Frumsýning lau. 22/4 kl. 20, sun. 23/4, fim. 27/4. • LEYNIMELUR 13 eftir Harald Á. Sigurðsson, Emil Thoroddsen og indriða Waage. Aukasýningar vegna mikillar aðsóknar, lau. 8/4. Allra síðustu sýningar. • DÖKKU FIÐRILDIN eftir Leenu Lander. 8. sýn. fös. 7/4, brún kort gilda, fáein sæti laus, 9. sýn. fös. 21/4, bleik kort gilda. LITLA SVIÐIÐ kl. 20: • FRAMTÍÐARDRAUGAR eftir Þór Tulinius 30. sýn. fös. 7/4 allra síðasta sýning. Munið gjafakortin okkar - frábær tækifærisgjöf! Miðasalan er opin alla daga nema mánudaga frá kl. 13-20. Miðapantanir í síma 680680 alla virka daga kl. 10-12. - Greiðslukortaþjónusta. eftir Verdi Sýning fös. 7. apríl, lau. 8. apríl. Síðustu sýningar fyrir páska. Ósóttar pantanir seldar þremur dögum fyrir sýningardag. Sýningar hefjast kl. 20. Munið gjafakortin - góð gjöf! Miðasalan er opin frá kl. 15-19 daglega, sýningardaga til ki. 20. Sími 11475, bréfsími 27384. - Greiðslukortaþjónusta. LEIKFELAG AKUREYRAR • DJÖFLAEYJAN eftir Einar Kára- son og Kjartan Ragnarsson. Sýn. fös. 7/4 kl. 20.30, lau. 8/4 kl. 17, mið. 12/4 kl. 20.30, fim. 13/4 kl. 20.30, fös. 14/4 kl. 00.01 miðnætursýn., lau. 15/4 kl. 20.30. Miðasalan opin virka daga kl. 14-18, nema mánud. Fram að sýningu sýning- ardaqa. Sími 24073. Stúdentaleikhúsið Hátíðarsal Háskóla íslands ro Beygluð ást 3. sýn. fim. 6/4 kl. 20 - 4. sýn. fös. 7/4 - kl. 20 - 5. sýn. sun. 9/4 - 6. sýn. þri. 11 /4. Miðapantanir í síma 14374 (allan sólarhringinn) HUGLEIKUR sýuir í Tjarnarbíói FÁFNISMENN Leikstjóri: Jón St. Kristjánsson. 3. sýn. fös. 7/4 kl. 20.30, 4. sýn. lau. 8/4 kl. 16.00 Ath. 5. sýn. sun. 9/4 kl. 20.30, 6. sýn. mið. 12/4 kl. 20. Miðasalan opnar kl. 19 sýningardaga. Miðasölusími 551-2525, símsvari allan sólarhringinn. blabib - kjarni málsins! Sjábu hlutina í víbara samhengi! FÓLK í FRÉTTUM Morgunblaðið/Jón Svavarsson JIRI Berger, Sigríður Jónsdóttir, Guðrún Agn- arsdóttir og Ágústa Sigfúsdóttir. Fáfnismenn í Tjarnarbíói ► LEIKVERKIÐ Fáfnismenn var frumsýnt í Tjarnarbíói fyrir skömmu. Áhugaleikfélagið Hugleikur flytur verkið og taka hátt í þrjátíu manns þátt í sýningunni. Leikstjóri er Jón Stef- án Kristjánsson, en höfundar verksins eru Ár- mann Guðmundsson, Hördís Hjartardóttir, Sæv- ar Sigurgeirsson og Þorgeir Kristinsson. JÓN Gunnar Þorsteinsson, Aðalheiður Þor- steinsdóttir, Svava Daníelsdóttir og Steinn Guðmundsson. ELÍSA Þorsteinsdóttir, Ingibjörg Hafstað og Þórunn Jónsdóttir. Glataði 300 ástarbréfum frá Moore FYRRVERANDI eiginkona Rogers Mo- ore, Dorothy Squires, sagði síðastliðinn sunnudag að hún hefði glatað þrjú hund- ruð ástarbréfum frá leikaranum. Hún sagði þau vera algjört einkamál. Squires var gift Moore frá 1953 til 1969 og sagði að bréfin kynnu að hafa glatast þegar húsgögn hennar voru boðin upp árið 1990 eftir að hún varð gjaldþrota. „Bréfin voru mér afar kærkomin lesn- ing á liðnum árum,“ sagði söngkonan, sem er 80 ára, á fréttamannafundi. „Þau veittu mér huggun á erfiðum tímum og mér dytti aldrei í huga að birta þau.“ Moore, 67 ára, sem er hvað frægastur fyrir að hafa leikið í ófáum myndum um James Bond, neitaði að tjá sig um málið. Squires veitti honum ekki skilnað fyrr en hann hafði búið með þriðju eiginkonu sinni, Luisu Mattioli, í sjö ár. Moore og Mattioli skildu í janúar síðastliðnum. Fjölmiðl- ar greindu frá því að hann hefði orðið ástfanginn af ríkri danskri ekkju að nafni Christinu „Kiki“ Tholstrup sem er ára. Gitte ófrísk DANSKA kynbomban Brigitte Nielsen er orðin ófrísk í fjórða sinn og á von á sér í maí. Væntanlegur faðir er sviss- neskur kapp- akstursmaður að nafni Raoul Orol- ani Meyer og er það fimmti mað- ur Brigitte eða Gítte eins og hún er kölluð. Hún varð fyrst fræg fyrir samband sitt við vöðvatröllið Sylvester Stallone. Líður að Kvik- myndahátíðinni í Cannes Þ- UNDIRBÚNINGUR fyrir Kvikmyndahátíð- ina í Cannes er nú í full- um gangi, þótt ekki verði endanlega skýrt frá því hvaða myndir verði sýndar á hátíðinni fyrr en 25. apríl. Líklegt er talið að kvikmynd franska leiks1jóra-tví- eykisins Jean Pierre Jeunet og Marc Carots „Borg týndu barnanna" verði opnunarmynd á hátiðinni. Þá hefur þegar verið ákveðið að myndirnar „Ed Wood“, „Beyond Rangoon“, „The Neon Bible“, „Land and Free- dom“, „Carrington" og „Canadian Bacon“ muni keppa um verðlaunin. Auk þess er búist við að myndimar „Byrði hvíta mannsins“ með Travolta og Belafonte, „Jefferson í París“, „Koss dauðans" og „Day Trippers“ verði sýndar á hátíðinni, en óvíst er hvort þær muni keppa um verðlaunin. Um helgina skýrði Morgunblaðið svo frá því að Kvikmyndahátíð- in í Cannes yrði helguð minningu leiksljórans Johns Fords. Hann er frægastur fyrir myndir sínar úr villta vestrinu, þar á meðal „Stageco- ach“.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.