Morgunblaðið - 12.05.1995, Síða 10

Morgunblaðið - 12.05.1995, Síða 10
J 10 FÖSTUDAGUR 12. MAÍ 1995 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Kyrniingarefni um jarðhita á marg- miðlunardiski ÚTISAMKOMA á vegrim Hjálpræðishersins á Lækjartorgi um aldamótin. Hundrað ár liðin frá fyrstu samkomu Hersins á Torginu Hjálpræðisherínn á íslandi fagnar í dag 100 ára afmæli, en 12. maí 1895 var fyrsta samkoma hersins haldinn á Lækjartorgi í Reykjavík. Aðalhátíðahöldin í tilefni afmælisins verða hins vegar um næstu helgi. FORSVARSMENN Verkfræði- stofunnar Rafhönnunar binda miklar vonir við útflutning á ís- lenskri verkfræðivinnu og hugviti og vísa til Danmerkur í því sam- bandi, þar sem þriðjungur allrar verkfræðivinnu er fluttur út. Hefur fyrirtækið í kynningarskyni látið útbúa margmiðlunardisk í sam- vinnu við ýmsa aðila, þar sem m.a. er sett fram hvað íslendingar geta boðið upp á jarðhitaþekkingu og fyrirtækið sjálft kynnt. Verður diskurinn kynntur í lok maí á einni stærstu jarðhitasýningu og ráð- stefnu í heimi, sem haldin verður í Flórens. Diskurinn inniheldur tugi fræði- og tæknilegra greina um jarðhita- nýtingu, fróðleik um háhitasvæði, auglýsingar auk annars efnis frá íslandi svo sem vinnu nemenda í Grandaskóla í tengslum við jarð- hita, tónlist og myndbönd frá ís- lenskum listamönnum auk hita- veituherma Rafhönnunar. „Eftir því sem við vitum best er þetta fyrsti íslenski diskurinn með kvikmynd, tónlist og öðru margmiðlunarefni, sem gerður er í þessum tilgangi," sagði Daði Ágústsson framkvæmdastjóri Raf- hönnunar á kynningarfundi í gær. Taldi hann slíkan disk hafa marga kosti fram yfir bæklinga, sem ráð- stefnugestir skildu jafnvel eftir. „Við bindum miklar vonir við að þátttakendur taki diska með sér heim og sýni vinnufélögum sínum að lokinni ráðstefnu," sagði hann og benti jafnframt á að þarna yrðu allir fremstu sérfræðingar í heimi á sviði jarðhita. Möguleikar í margmiðlun Birni Bjarnasyni menntamála- ráðherra var afhentur fyrsti disk- urinn og nefndi hann m.a. í ræðu sinni mikilvægi og þá möguleika sem þessi tegund miðlunar býður upp á. Hann nefndi einnig sam- vinnu Rafhönnunar og Náms- gagnastofnunar. „Ég held að þeg- ar sá diskur kemur út muni menn átta sig á því hve margmiðlun hefur mikið gildi fyrir menntun í landinu, almenna fræðslu og hvemig hægt er að kynna landið,“ sagði hann. Ingvar Birgir Friðleifsson skóla- stjóri Jarðhitaskólans lýsti ánægju með samstarfið um jarðhitaherm- inn. „Fyrir skóla eins og Jarðhita- skólann er ómetanlegt að hafa tæki eins og verið er að útbúa fyr- ir okkur, því að við erum með nem- endur frá 30 löndum í öllum heims- álfum,“ sagði hann. Hallgrímur Sigurðsson sérfræðingur hjá Raf- hönnun benti á að með jarðhita- herminum væri hægt að þróa stjómbúnað og þjálfa starfsfólk áður en það hæfi störf og líkti herminum við flughermi, sem margir kannast við. Tveir Rúmenar, sem eru nem- endur við Jarðhitaskólann, munu fá jarðhitaherminn með sér utan og fer hann til háskóla í Rúmeníu en sá næsti fer til Kína. UPPHAF Hjálpræðishers- ins má rekja til trúboðs Englendinga í Austur- löndum 1865, en nafnið Salvation Army fékk hann 1878, og þá fyrst fór hann að breiðast út til annarra landa. Að sögn Daníels Óskarssonar, yfírforingja Hjálpræðishersins á Islandi og Færeyjum, var frum- kvöðullinn að stofnun Hjálpræðis- hersins hér á landi Þorsteinn J. Davíðsson, ættaður úr Vatnsda.1 í Húnavatnssýslu, en hann hafði frelsast í Kanada. „Leiðtoginn sem kom hingað var Kristian Eriksen og var Þor- steinn hans hægri hönd og rit- stjóri Herópsins. Þeir komu hingað til lands með Lyru og voru með fyrstu samkomuna á Lækjartorgi og svo í Góðtemplarahúsinu þá um kvöldið, en þar var Hjálpræðisher- inn til húsa til haustsins 1895 þegar hann keypti gamla Herkast- alann, sem hafði áður verið bæði sjúkrahús og hótel. Hann stóð á sama stað og Herkastalinn stend- ur núna, en núverandi bygging var reist 1916,“ sagði Daníel. Starfsemin alla tíð öflug Starfsemi Hjálpræðishersins hér á landi héfur alla tíð verið öflug þótt Herinn hafi aldrei verið mjög fjölmennur. Strax árið 1896 byrjaði starfið á Isafirði og svo 1904 á Akureyri, en einnig voru samkomusalir á Siglufirði, í Hafn- arfirði og á Seyðisfirði en í stuttan tíma. „Þótt Herinn hafi verið fámenn- ur þá hefur þetta alltaf verið þó nokkuð mikið starf sem hann hef- ur innt af hendi. I Reykjavík var strax byijað með Samveijann, hjálparstarf og mat fyrir fátæka. Fastir liðir í starfseminni hafa verið samkomurnar og rekstur gistihússins, sem í byijun var reist til að vera skjól fyrir sjómenn. Gistihúsið hefur í seinni.tíð líka verið skjól fyrir marga á vegum Félagsmálastofnunar, en áður en Félagsmálastofnun kom til var Morgunblaðið/Ámi Sæberg DAÐI Ágústsson framkvæmdastjóri Rafhönnunar hf. afhenti Birni Bjarnasyni menntamálaráðherra fyrsta margmiðlunar- diskinn, sem inniheldur ýmsar upplýsingar um jarðhita og ýmislegt honum tengt. Ný frönsk- íslensk ratsjárstöð á Stokkseyri tekin formlega í notkun í dag Rannsakar eðli segul- storma í jónahvolfinu FRANSKAR rannsóknarstofnanir og Raunvísindastofnun Háskólans vígja í dag með formlegum hætti nýja ratsjá við Stokkseyri, sem hefur það hlutverk að rannsaka eðli jónahvolfs- ins. Rannsóknimar miða m.a. að því að skiija eðli segulstorma, en þeir valda oft á tíðum truflunum á fjar- skiptum. Ratsjáin við Stokkseyri er hluti af alþjóðlegu neti ratsjáa sem fylgj- ast með jónahvolfinu. Við Stokkseyri hefur verið komið upp sextán 15 metra möstrum sem hefur verið rað- að upp með 15 metra millibili. „Þessi möstur senda frá sér út- varpsbylgjur sem endurkastast frá jónahvolfinu. Með því að skoða merkin er hægt að sjá hvernig jóna- hvolfið er að breytast. Meðal þess sem við viljum rannsaka með þessu eru fyrirbæri eins og segulstormar, sem er lítið vitað um, en þeir hafa veruleg áhrif á öll fjarskipti á jörð- inni. Að grunni til er verið að rannsaka eðli jónahvolfsins. Með þeim er ætl- unin að auka við þekkingu okkar á samspili jarðar og sólar. Það hagnýta við þessar rannsóknir er m.a. það að með þeim vonumst við eftir að komast að því hvað veldur eð'ii trufl- ana á fjarskiptum," sagði Þorsteinn I. Sigfússon, prófessor og stjórnar- formaður Raunvísindastofnunar Há- skólans. Franskar rannsóknarstofnanir standa að þessum rannsóknum í sam- vinnu við Raunvísindastofnun Há- skólans. Frakkamir fjármagna fram- kvæmdirnar á Stokkseyri, en kostn- aður hleypur á tugum milljóna. Hluti af stærri rannsóknum Ratsjáin á Stokkseyri er hluti af stærra verkefni sem samanstendur af átta ratsjám umhverfís norður- segulskaut jarðarinnar, en áhrifa- svæði þeirra teygir sig frá Alaska til Finnlands. Löndin sem taka þátt í verkefninu eru Kanada, Bandaríkin, Bretland, Finnland og Frakkland og er hvert land ábyrgt fyrir uppsetn- ingu og starfsemi a.m.k. einnar rat- sjár í keðjunni. Svipuð keðja er einn- ig í uppsetningu á suðurhveli jarðar. Ratsjárnar vinna tvær og tvær saman. Ratsjáin á Stokkseyri vinnur með ratsjá sem stendur við Goose Bay á Labrador. Ratsjánum er báð- um beint á sama svæði, þ.e.a.s. jóna- hvolfið yfir Grænlandi. Þær eru full- komlega sjálfvirkar og starfa allan sólarhringinn, alla daga ársins. Gunniaugur Bjömsson mun hafa umsjón með rannsóknunum af hálfu Rannsóknastofnunar Háskólans. Rannsóknir á segulsviði jarðar hafa staðið hér í 30 ár Raunvísindastofnun Háskólans hefur staðið að rannsóknum á segul- sviði jarðar allt frá 1957, en þá var sett á stofn rannsóknarstöð í Mos- fellssveit. Þorbjöm heitinn Sigur- geirsson prófessor beitti sér fyrir stofnun stöðvarinnar og Þorsteinn Sæmundsson stjamfræðingur hefur unnið að þessum málum síðan 1963. Við stofnunina er háloftadeild, sem á m.a. í samstarfi við japanska vísindamenn. Þeir eiga á þremur stöðum á landinu rannsóknarmið- stöðvar sem rannsaka norðurljósin. Stöðvarnar eru staðsettar í Æðey, Augastöðum í Borgarfirði og á Tjör- nesi. Bændur á þessum stöðum sjá um rekstur stöðvanna fyrir japönsku vísindamennina. Breskur rannsóknarhópur er að skoða möguleika á að setja upp svip- að kerfi í Þykkvabæ til að rannsaka aðra staði í jónahvolfinu. Þorsteinn sagði erlendra vísinda- manna áhugasama um rannsóknir á jónahvolfinu hér á landi þar sem ís- land væri vel staðsett í jaðri þessa norðurljósasvæðis. Ratsjáin við Stokkseyri verður til sýnis á morgun, frá kl. 10-16:30.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.