Morgunblaðið - 12.05.1995, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 12.05.1995, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. MAÍ1995 2í LEIKLIST Lcikfclag Akurcyrar GUÐ/JÓN Leikfélag Akureyrar. GUÐ/jón. Handrit, útlit og leiksljórn: Viðar Eggertsson. Tónlistarstjórn: Rósa Kristin Baldursdóttir. Lýsing: Ing- var Björnsson. LEIKFÉLAG Akureyrar hefur gengið til liðs við kirkjuna í höfuð- stað Norðurlands og frumsýnt at- hyglisvert leikverk í Safnaðarheim- ili Akureyrarkirkju. Er það einn af mörgum þáttum kirkjulistaviku, sem stendur frá 7. til 14. maí, og ekki sá ómerkasti. Leikstjórinn, Viðar Eggertsson, hefur unnið leik- textann úr ýmsum verkum Samuel Becketts, sem hann fellir saman í trausta heild. Öll eru þau þýdd af Árna Ibsen, en auk þess_ er ljóðið Engillinn eftir Baldur Óskarsson fellt inn í sýninguna. Það er ekki rétt að segja, að tónlist flutt af Tjarnarkvartettinum fléttist inn í verkið. Hlutverk hennar er miklu veigameira, oftar en ekki veita hún og ljóðin skýlaus svör við átakan- legu hjálparkalli; eða koma eins og styrk og hlý hönd, sem grípur um handlegg þess, sem er að sökkva í fen einsemdar, tómleika og jafnvel örvæntingar. Lögin, sem flutt eru, koma úr ýmsum áttum, en tónlist og textar valin af mikilli ná- kvæmni. Þessi einstæði kvartett úr Svarfaðardal hefur náð langt í list- rænni túlkun tónlistar, sem ein- kennist jafnt af sönggleði og aga og hefur yfir sér tæran, hógværan menningarsvip. Rósa Kristín Bald- ursdóttir annast tónlistarstjórn, en með henni skipa kvartettinn þau Kristjana Arngrímsdóttir og bræð- urnir Hjörleifur og Kristján Hjartar- synir. Þá er leiktjáning þessa fólks vel af hendi leyst. Það fer ekki á milli mála, að Viðar Eggertsson hefur notið þess að skipuleggja og „Mara kvíðans mannkyn treður“ móta þessa einstæðu sýningu. Hann hefur áður komið að uppfærslum á verkum Samuel Becketts með þeim hætti að ekki gleymist og m.a. hjá LA fyrir allmörgum árum. En það er ekki nóg að hafa einlægan áhuga, heldur verða menn að hafa innsæi og skarpan skilning. Það á þá ekki síst við um sýningu sem þessa þar sem leikstjórinn mótar heildarsýningu úr mörgum verkum og ræður niðurstöðunni. Viðari Eggertssyni bregst ekki bogalistin. Hann notfærir sér aðstæður út í hörgul, allt safnaðarheimilið er lagt undir sýninguna, salur, gangar, jafnvel lyftan, kapellan, og ein sen- an er á hjarnskafli úti fyrir hinum mikla austurglugga aðalsalar. Með aðstoð ljósahönnuðar, Ingvars Björnssonar, og hljóðtæknimanns, Gunnars Sigurbjörnssonar, flytjast myndir eðlilega til, skerpast eða mildast af mikilli nákvæmni. T.d. magnar skuggamynd gömlu kon- unnar í ruggustólnum þá túlkun Sigurveigar Jónsdóttur á vonleysi og þrúgandi bið, sem felst í þessum sérstæðu endurtekningum - þar sem orðin eru ekki einungis endur- tekin, heldur áherslur, tónhæð og stunur og dýpka þessa annarlegu og átakanlegu mynd. Það er vísast fráleitt að ætla sér að rekja gang sýningarinnar, taka hvert atriði á fætur öðru og gera því einhver skil. Þar eru raunar hvergi neinir blá- EIN skálanna á sýningunni Sýning á ELÍSABET Haraldsdóttir opnaði íjrær sýningu á skálum í Gallerí Úmbru í Bernhöftstorfu. Skálarnar eru unnar í vetur sem leið en með vorkomuna í huga. Þær eru unnar í postulin og sein- leir, sem myndaðist í jarðlögum löngu áður en ísland reis úr hafi. skálum Skálarnar eru óður til íslensks vorgróðurs með ósk um að lið list- ræna og notagildið haldist í hend- ur. Sýningin er opin þriðjudaga til laugardaga frá kl. 13-18 og sunnudaga frá kl. 14-18. Henni lýkur 31. maí. Flæði og fræhús M YNDLIST ARSYN - ING Evu Benjamíns- dóttur, sem ber heitið Flæði & fræhús verður opnuð á laugardag kl. 14 í Listhúsi 39, Strandgötu 39, Hafn- arfirði. Þetta er þriðja einka- sýning Evu á 12 árum. Hún sýndi 1983 í Ás- mundarsal og 1988 í Gallerí Evu á Miklu- braut 50 sem var einnig heimili Evu. Þá eru ekki meðtaldir tveir gjörn- ingar, annar á Harvard Square, Cambridge, Massaschusetts, 1984, og sá síðari í júlí 1989 á Lækjar- torgi, þar sem Eva valtaði yfir nokk- ur þrívíddarverk að miklum íjölda viðstödd- um og var verkið til sýnis í nokkra mánuði í ÁTVR, Kringlunni. Eva lauk námi frá The School of the Muse- um of Fine Arts í Bost- on og BFA-gráðu frá Tufts University vorið 1984. Hún hefur tekið þátt í sjö samsýningum hér heima, í Frakklandi og Bandaríkjunum. Eva sýnir 27 lítil verk, unnin á þessu ári með blandaðri tækni, akríl og olíu. Listhús 39 er oþið virka daga kl. 10-18, laugardaga 12-18 og sunudaga 14-18. Eva Beiyamínsdóttir LISTIR þræðir, þótt oft sé djarflega teflt eins og í atriðinu, sem fram fer í kapellunni, en þar fer Rósa Guðný Þórsdóttir á kostum í frábærri ein- ræðu. Leikararnir, Aðalsteinn Bergdal, Barði Guðmundsson, Dofri Hermannsson, Rósa Guðný, Sigur- veig og Sigurþór Albert Heimisson leggja sál sína í þetta verk og verð- ur þar ekki gert upp á milli. Eldmóð- ur leikstjórans og markvís stjórn byggð á djúpum skilningi gera sömu kröfur til leikaranna og hljóð- færaleikara í stroksextett (ath.: þeir eru sex talsins) og þar slær enginn feilnótu eða lætur eftir sér að ofleika. Engir bregðast: En hvaða erindi á þetta verk inn á Kirkjulistaviku. Það ber okkur þau mikilvægu skilaboð, að kirkjan og starf hennar eigi sér ekki af- markaðan bás, þar sem einungis er leikið á gullna hörpu og brosað blítt, heldur leggur hún eyru við ómstríðum tónum mannlegra ósigra og eymdar. Hér birtist maðurinn okkur í örbirgð sinni. Þau, sem eiga sér ekki huggun og jafnvel komin svo langt út á kaldan klaka vonleys- is, að ekkert fær hjálpað nema Guð einn, eða eins og segir í sálmi Páls V. G. Kolka, sem kvartettinn syng- ur við lag Þorkels Sigurbjörnssonar: Mara kvíðans mannkyn treður, mætt af þungri synd. Þjökuð verðld velkist milli vöku og svefns með augu blind. Lát hinn mikla lúður gjalla, leiftur sundra þokuhjúp, geisla þinnar sannleikssólar sindra um myrkvað hugardjúp. Þannig stefnir boðun þessa verks til „Drottins hnatta og heima“. Ekki eftir hinni venjubundnu préd- ikunarleið, heldur um farveg fijálsr- ar, safarikrar listar, sem krefst þess að fylgst sé með, afstaða tek- in og miskunnar beðið af heilu hjarta. Bolli Gústavsson AÐSTANDENDUR sýning- arinnar; Rúrik Haraldsson, Þórunn Sigurðardóttir, Ragn- hildur Rúriksdóttir, Þóra Friðriksdóttir og Gunnlaugur Helgason. Sumarhrollvekja Kaffileikhússins NÚ STANDA yfir æfíngar á sum- arleikriti Kaffíleikhússins, herbergi Veroniku, eftir Ira Levin. Leikendur eru Rúrik Haraldsson, Þóra Friðriks- dóttir, Ragnhildur Rúriksdóttir og Gunnlaugur Helgason. Leikstjóri er Þórunn Sigurðardótt- ir og þýðandi Ingunn Ásdísardóttir. Verkið verður frumsýnt 25. maí og er aðalmenningarviðburður Sögu- og menningarhátíðar í gamla vestur- bænum, sem. haldin verður 20.-28. maí. Sýningar munu halda áfram í sumar eftir að hátíðinni lýkur. Verkið er fyrsta heilskvöldssýning Kaffíleikhússins. Höfundur þess, Ira Levin, er þekktur leikrita- og hand- ritahöfundur í Bandaríkjunum. Hann gerði meðal annars handritið að kvik- mynd Polanskís, Rosemary’s Baby. Herbergi Veroniku er hrollvekja og gerist í herbergi Veroniku í gömlu húsi í Massachusetts í Bandaríkjun- um. Listaklúbbur Leikhúskjallarans Dagskrá- in í maí LISTAKLÚBBUR Leikhúskjallarans hefur ákveðið dagskrá sína fyrir maímánuð. Mánudaginn 15. maí mun gítar- leikararnir Hinrik Bjarnason og Rún- ar Þórisson leika spænska og suður- ameríska tónlist og Sophie Schoonj- ans og Guðrún Birgisdóttir saman á hörpu og flautu. Mánudaginn 22. maí verður flutt dagskrá sem ber heitið Ég kem frá öðum löndum með öll mín ævintýr aftan á mér. íslensk hjón taka á móti áhorfendum og bjóða þeim til borðs með sér. Konan skemmtir gest- um og minnir þá á íslensk verðmæti og manngildi. Textarnir eru allir eft- ir Islendinga, allt frá Látra-Björgu til Morgunblaðsins í dag. Flytjendur eru Guðrún Gísladóttir leikari og Helga Þórarinsdóttir víóluleikari. Leikstjóri Þórunn Sigríður Þorgríms- dóttir. Þessi dagskrá var flutt á veg- um íslendingafélaga á Norðurlönd- um nú fyrir síðustu jól. Mánudaginn 29. maí verður flutt dagskrá tileinkuð Hauki Morthens söngvara fyrr og síðar. Rakin verður saga hans sem söngvara og mörg af vinsælustu lögum hans sungin. Flytjendur eru leikararnir Hinrik Ól- afsson, Valgeir Skagfjörð og Vígdís Gunnarsdóttir. Heimildarmaður er Trausti Jónsson en umsjón hefur Sigríður Margrét Guðmundsdóttir. Þessi dagskrá verður jafnframt sú síðasta á vegum Listaklúbbs Leikhúskjallarans í vetur en hann hefur starfað að nýju í september. Þá verður Bókmenntahátíð íReykja- vík ’95. ossvogsstffðSn M plöntusalan í Fossv ji Opið kl. 8-19, um helgar kl. 9-17, sími 564-1777 Einstakt tilboð þessa helgi: Aspir í pottum, 100-120 cm., kr 120 Nýtt á Islandi: Vefjaræktað birki frá Bæjarstað, Ijóst og íturvaxið. Sýnishorn/verðdæmi: Garðplöntur, skógar- plöntur, fjölærar plönt- ur, innfluttar plöntur, rósarunnar, stór tré. Einnig garðverkfæri, plöntu- stafir, áburður, trjákurl og kraftmold 30 I kraftmold kr. 600 Einir Blue Carpet kr. 1.460 Dvergfura kr. 1.360 Sitkagrenibakki kr. 1.560 Ráðgjöf - þjónu Magnús Magnússon, garðyrkjufræðingur. Auður Jónsdóttir, sölustjóri. Hólmfríður Geirsdóttir, garðyrkjufræðingur, stöðvarstjóri. 1ferðskrá og plöntulisti komin út - Sendum um allt land
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.