Morgunblaðið - 12.05.1995, Síða 56
MORGUNULAÐIÐ, KRINGLAN 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SlMBRÉF 569 1181,
PÓSTHÓLF 3040, NETFANG MBUSCENTRUM.IS / AKUREYRl: HAFNARSTRÆTI 85
FÖSTUDAGUR 12. MAÍ 1995
VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK
Breyta minni í þús-
undum bréfasíma
Kostnaður
á bilinu
1.100 til
2.700 kr.
PÓSTUR og sími hefur sent umsjón-
armönnum bréfasíma tilmæli um að
breyta símanúmerum í svonefndum
nafngjafa tækjanna áður en ný síma-
númer taka gildi 3. júní. Eftir þann
tíma mun símbréf sem sent er á
gamla símanúmerið ekki komast til
skila.
Ef símanúmerið er í nafngjafan-
um kemur það fram í öllum faxtækj-
um, bæði hjá sendanda og viðtak-
anda sendingar. í bréfi Pósts og síma
segir að mjög mikilvægt sé að breyta
símanúmerinu í nafngjafanum svo
tækin sendi ekki lengur frá sér núm-
er sem hætt verður að nota 3. júní.
Þetta eigi einnig við um tölvur sem
notaðar eru til að senda símbréf.
Einnig er bent á að breyta þurfi
númerum í minni bréfasíma og ann-
arra símtækja.
Fagmenn þarf til
Það er mismunandi eftir tækjum
hve auðvelt er að breyta símanúm-
eri í nafngjafa bréfasíma. Hægt er
að breyta mörgum tækjum með hlið-
sjón af leiðbeiningabæklingi sem
fylgir þeim en önnur tæki eru með
læsingu og þarf þá að kalla til fag-
menn. Hjá viðhaldsdeild Pósts og
síma fengust þær upplýsingar að
notendum væri bent á að hafa sam-
band við þau fyrirtæki sem bréfasím-
arnir voru keyptir af.
Nokkur þúsund bréfasímar eru í
landinu og hefur Póstur og sími sjálf-
ur selt um 1.000 þeirra. Samkvæmt
upplýsingum frá Pósti og síma þurfa
eigendur bréfasíma að greiða 1.100
krónur fyrir að láta breyta símanúm-
erum í nafngjafa, ef þeir koma sjálf-
'ir með tækin á verkstæði. Þurfi við-
gerðarmaður frá Pósti og síma að
koma á staðinn kostar það um 2.700
krónur með akstri. Hjá einkafyrir-
tækjum fengust þær upplýsingar að
slíkt yrði væntanlega skilgreint sem
útseld verkstæðisvinna í klukkutíma
sem þyrfti að greiða um 2.000 krón-
ur fyrir auk aksturs.
■ Aðeins 12%/C1
Morgunblaðið/Hlynur Ársælsson
KARLARNIR á Hólmaborginni voru kampakátir þegar búið var
að drekkhlaða skipið af spriklandi síld. Upp úr skipinu komu
um 1.570 tonn þegar landað var á Siglufirði í gær. Hólmaborg-
in var fyllt í tveimur köstum og á innfelldu myndinni er nótin
komin að siðunni með um 850 tonn.
Sfldin gæti gefið 2 mfllj-
arða í útflutningstekjur
SAMTALS var búið að landa um 32.550 tonnum af síld úr norsk-
íslenska síldarstofninum á átta löndunarstöðum hér á landi í gær.
Veiði íslensk síldveiðiskip um 200 þúsund tonn gæti útflutningsverð-
mæti síldarinnar numið um tveimur milljörðum króna. Hólmaborgin
landaði í gær um 1.570 tonnum af síld á Siglufirði, sem líklega er
mesti afli sem komið hefur upp úr íslensku veiðiskipi. Var þetta í fyrsta
skipti í 27 ár sem síld úr þessum stofni er landað á staðnum.
Reiknað er með að í hlut íslend-
inga af þeim 250.000 tonna veiði-
kvóta sem íslensk og færeysk
stjórnvöld sömdu um að setja sér
einhliða úr norsk-íslenska síldar-
stofninum í eigin lögsögu geti kom-
ið um 200.000 tonn. í fýrra var
landað hér á landi 21.000 tonnum
af síld úr stofninum og að sögn
Ásgeirs Daníelssonar, hagfræðings
hjá Þjóðhagsstofnun, var söluverð-
mæti síldarafurðanna þá um 210
milljónir króna.
Ekkert skip við veiðar í gær
Miðað við svipað verð og þá
fékkst fyrir lýsi og síldarmjöl ætti
því verðmæti hluts íslendinga úr
norsk-íslenska síldarstofninum að
geta orðið um tveir milljarðar
króna. Til samanburðar má geta
þess að heildarverðmæti loðnuafl-
ans á síðasta ári var 10,3 milljarðar
króna, og þar af fékkst 6,1 milljarð-
ur fyrir mjöl og lýsi.
Samkvæmt upplýsingum Til-
kynningaskyldunnar eru um 30 ís-
lensk skip nú við síldveiðarnar og
undanfarna daga hafa þau ein-
göngu verið við veiðar í færeysku
lögsögunni. í gær var hins vegar
ekkert íslenskt skip þar við veiðar,
en þau voru öll annaðhvort á heim-
leið með fullfermi eða á útleið aftur
eftir löndun. Tvö dönsk skip eru
sögð hafa verið við síldveiðar í Síld-
arsmugunni, og var talið að tíu
dönsk skip til viðbótar væru á leið-
inni þangað.
Í gær hafði mest af síld borist á
land í Neskaupstað, en þar hafði
þá verið landað 7.500 tonnum. Á
Eskifirði hafði verið landað 5.500
tonnum, á Seyðisfirði 5.000 tonn-
um, á Reyðarfirði 4.000 tonnum, á
Hornafirði og á Þórshöfn hafði ver-
ið landað 3.500 tonnum á hvorum
stað og á Raufarhöfn hafði verið
landað tæplega 2.050 tonnum.
Öll síldin hefur farið í bræðslu,
en áhugi er á því á ýmsum stöðum
að verka síldina þegar áta í henni
hefur minnkað. Þannig hefur Bú-
landstindur hf. á Djúpavogi t.d.
enga síld tekið til bræðslu enn sem
komið er, en þar er áhugi á að taka
síld til verkunar þegar hún þykir
hæf til þess.
■ Hátíðablær á bænum/8
Hundur gerði vart um eld við Þórsgötu í fyrrinótt
TÍKINNI Mistý er svo fyrir að
þakka að ekki fór verr en raun
varð á í fyrrinótt þegar kviknaði
í ruslatunnum við Þórsgötu 10.
„Klukkan um hálffimm í nótt
fór hundurinn að láta mjög ófrið-
lega og ég vaknaði og fann
að það var eitthvað óeðlilegt
á seyði,“ sagði eigandi
Mistýjar, Örn Hafsteinn
Baldvinsson, í samtali við
Morgunblaðið í gær, hund-
urinn hljóp geltandi milli
hæða í húsi hans. „Ég heyrði
snark eins og viður væri að
brenna, kíkti út og sá eld-
haf. Þá höfðu tvær rusla-
tunnur fuðrað upp og eldur
farinn að svíða viðarsvalir á
húsinu við hliðina."
Örn og gestur hans Björn
Sveinsson vöknuðu við há-
vaðann í tíkinni, hlupu til,
vöktu íbúa á efri hæð í
næsta húsi þar sem eldurinn var
mestur og höfðu að mestu lokið
við að slökkva eldinn þegar
Fór að láta
ófriðlega
Morgunblaðið/Ámi Sæbcrg
MISTÝ er tæplega ársgömul blendings-
tík. Með henni eru Örn Hafsteinn Bald-
vinsson og Björn Sveinsson.
slökkvilið bar að. Til þess tæmdu
þeir úr tveimur slökkvitækjm og
jusu að auki vatni á eldinn.
Tunnurnar standa á bak við
hús númer 14 við Þórsgötu, sem
er bárujárnsklætt timburhús, og
undir timbursvölum. Auk sval-
anna urðu skemmdir á skúr sem
tilheyrir húsi Arnar Hafsteins,
Baldursgötu 34.
Varðstjóri hjá slökkvilið-
inu sagði í samtali við Morg-
unblaðið í gær að ef nokkrar
mínútur hefðu liðið til við-
bótar, án þess að nokkuð
hefði verið að gert, hefði
eldurinn náð að festa sig í
húsið. Ljóst er talið að
kveikt hafi verið í tunnun-
um.
Talsverðar reyk- og sót-
skemmdir urðu, sérstaklega
á efri hæð Þórsgötu 14. Á
neðri hæð þess húss er heild-
verslunin S.A. Sigurjónsson
og urðu miklar skemmdir
þar vegna reyks og lyktar.
Að sögn Sigurjóns Ara Sigurjóns-
sonar varð miiljónatjón í fyrir-
tæki hans.
Hallgrímur B. Geirsson
ráðinn framkvæmda-
stjóri Morgunblaðsins
Á FUNDI stjómar Ár-
vakurs hf., útgáfufé-
Iags Morgunblaðsins, í
gær var ákveðið að
ráða Hallgrím B. Geirs-
son, hæstaréttarlög-
mann, viðtakandi fram-
kvæmdastjóra Morgun-
blaðsins og tekur hann
við því starfi á næstu
mánuðum.
Haraldur Sveinsson,
sem verið hefur fram-
kvæmdastjóri Morgun-
blaðsins frá árinu
1968, lætur jafnframt
af því starfi, en hann
ára að aldri. Hann
lauk lagaprófi frá
Háskóla Islands árið
1975, varð héraðs-
dómslögmaður árið
1977 og hæstaréttar-
lögmaður 1985. Hall-
grímur B. Geirsson
var kjörinn í stjórn
Árvakurs hf. á árinu
1986 og jafnframt
formaður stjómar og
hefur gegnt því starfí
síðan.
Hallgrímur B.
Geirsson er kvæntur
Hallgrímur Geirsson Aðalbjörgu Jakobs-
verður sjötugur á þessu ári. dóttur og eiga þau eina dóttur,
Hallgrímur B. Geirsson er 45 Ernu Sigríði.