Morgunblaðið - 01.06.1995, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 1. JÚNÍ 1995 2
LISTIR
• BORGARSTJÓRINN í Róm,
Francesco Rutelli, hefur séð sig
um hönd og ákveðið að leyfa
óperusýningar í borginni í sum-
ar. Rúm vika er síðan hann blés
allt sýningarhald af í óperunni
vegna deila við starfsmannafé-
lög óperunnar sem hótuðu verk-
föllum og vinnustöðvum vegna
fyrirhugaðs niðurskurðar. Nú
hafa þau lagt fram loforð um
að fara ekki í verkfall, gegn því
að sýningar verði í sumar og
að 51 lausráðinn starfsmaður
gangi fyrir um fastráðningar.
Settar verða upp óperurnar
Tosca og Rigoletto, auk þess
sem frumfluttur verður ballett
sem byggir á lífi kvikmynda-
leikstjórans Federico Fellinis.
• UPPBOÐSHALDARINN
Christie’s er að færa út kvíarn-
ar á Indlandi á sama tíma og
aðalkeppinauturinn, Sotheby’s,
dregur saman seglin þar í landi.
Þetta þykir djarfleg ákvörðun
í ljósi þess að Sotheby’s hefur
átt í erfiðleikum með listmuna-
uppboð í landinu. Þeir náðu
hámarki árið 1992 í kjölfar upp-
boðs á indverskum listmunum
en þá reyndu indverskir toll-
verðir að koma í veg fyrir að
munirnir yrðu fluttir úr landi
auk þess sem skattayfirvöld
gerðu innlendum kaupendum
lífið leitt.
• STRÍÐIÐ á Balkanskaga hef-
ur haft áhrif víða, m.a. i lista-
lífi Lundúna. Nýlega bannaði
bæjarráð í einum hluta Lund-
úna sýningu á serbneskri list
og menningu, þrátt fyrir að
verkin á sýningunni séu yfir
einnar aldar gömul. Sýningin
átti að vera á vegum félags
Serba í borginni fór fyrir brjóst-
ið á bæjarráðsmönnum úr
Verkamannaflokknum, sem ótt-
uðust að hún myndi reita Bosn-
íumenn og Króata til reiði.
„Mynduð þið leyfa nasistum að
selja upp sýningu," spurði reið-
ur bæjarráðsmaður. Serbar
brugðust hinir verstu við
ákvörðun bæjarráðsins sem
skipti að endingu um skoðun
og ákvað að leyfa sýninguna,
nokkrum klukkustundum áður
en hún hafði átt að hefjast. Það
var hins vegar of seint, Serbarn-
ir höfðu fengið inni í klaustri í
öðrum borgarhluta.
• FYRIR þremur vikum var
Martyn Bedford ritstjóri í
lausamennsku við lítið breskt
staðarblað. Nú er honum hamp-
að sem nýjustu stjörnunni í
breska bókmenntaheiminum og
hann á um skyndilega um 10
milljónir ísl. kr. í banka. í byij-
un maí sendi Bedford handrit
að bók til umboðsskrifstofu í
London, vonlítill um útgáfu.
Nú slást hins vegar bókaforlög
um útgáfuréttinn að bók hans,
sem fjallar um mann sem hefn-
ir sín grimmilega á gömlu
kennurunum sínum. „Mér leið-
ast klisjur en ég verð að gípa
til einnar nú; þetta er draumur
sem hefur ræst,“ segir Bed-
ford, sem hefur setið við skrift-
ir síðustu sex til sjö ár og ekki
tekist að fá neitt útgefið fyrr
en nú. Bedford hefur sagt upp
starfi sínu en hans bíður m.a.
að velja útgefanda að bókinni,
sem nefnist „Acts of Revision"
og kemur væntanlega út næsta
vor.
Ertu að hugsa um
töMmnni?
Aö fara í TVÍ (krefst stúdentsprófs)
og læra kerfisfræði og forritun í 2 ár
(um 50% falia eftir 1. önn).
Aö fara í tölvunarfræði í HÍ (krefst
stúdentsprófs) og læra kerfisfræði og
forritun í 3-4 ár (um 40% falla í lok 1. árs).
Að fara á mörg stutt tölvunámskeið hjá
tölvuskólum og læra ýmislegt hagnýtt
(en þú færð ekki samhengi og yfirsýn).
Að fara í námið TÖLVUNOTKUN í
FYRIRTÆKJAREKSTRI hjá okkur.
Á 19 vikum muntu öðlast heildaryfirsýn og
ítarlega þjálfun i notkun þess búnaðar sem
algengastur er i dag og um næstu framtið.
Námið okkar er einnig ágætis undirbúningur
fyrir frekara nám í tölvufræði!
Þegar þú útskrifast getur þú nýtt þér tölvur
til að leysa fjölbreytt og spennandi verkefni
og veitt öðrum ráðgjöf og aðstoð.
Þú verður sá starfskraftur sem flest
tölvuvædd fyrirtæki sækjast eftir.
Unnt er að stunda námið með vinnu.
569 77 69
562 10 66
(B>
NÝHERJI
STJÓRNUNARFÉLAGS ÍSLANDS
OG NÝHERJA
Sijúrnunarfúicy
Islands
VERÐ KR. 1.690
VERÐ KR. 2.990-3.990
VERÐ KR. 2.290-3.990
Erobik-taska
Sport-taska
VERO KR. 2.290-3.390
VERÐ KR. 2.990-3.990
VERÐ KR. 1.990
VERD KR. 1.990-3.190
VERÐ KR. 2.990-3.990
VERÐ KR. 2.790
Jakkafatataska
ÞOUPIft
BORG ARKRINGLU N NI
Opiðvúkadaga
írákl.12-18.30
Föstudaga frá kl. 12-19
Laugardagaírákl, 10-16