Morgunblaðið - 01.06.1995, Side 39
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
+ Þröstur Berg-
mann Ingason
fæddist í Reykjavík
25. júlí 1959. Hann
andaðist 22. maí sl.
Foreldrar hans voru
Rósa Frímannsdótt-
ir íþróttakennari og
Ingi Bergmann
kennari. Þröstur
var ókvæntur og
barnlaus. Hann
verður jarðsunginn
frá Víðistaðakirkju
í Hafnarfirði í dag
og hefst athöfnin kl.
13.30.
ÞAÐ er með trega og söknuði sem
ég kveð elskulegan frænda minn.
Við vorum systraböm og náin tengsl
voru á milli fjölskyldnanna er við
ólumst upp. Nú er hann horfinn úr
þessum jarðneska heimi og er það
huggun harmi gegn að hugsa sér
að nú sé hann í skjóli venslafólks
sem áður hefur horfið til feðra er
hlúi að honum og styrki.
Hann ólst upp í faðmi foreldra
sinna þótt leiðir þeirra skildu, þegar
Þröstur var enn á unga aldri. Var
hann augasteinn foreldra sinna.
Þröstur var efnilegt bam og gjörvi-
legur piltur. Fyrirferðamikili var
hann sem barn og sýndi mikinn þrótt,
þegar hann stálpaðist. Það kom
snemma í ljós, að hann var skarp:
greindur og sóttist nám afar léjtt. í
upphafi var það ísaksskóli, þá Álfta-
mýrarskóli og seinna lá leiðin í
Menntaskólann við Hamrahlíð. Hann
varð snemma prýðis skákmaður,
aðeins 17 ára var hann í landsliðs-
flokki í þeirri grein. Síðar snéri hann
sér að brids, en hafði þar styttri
dvöl. Hann lagði út í lífið og starf-
aði á ýmsum vettvangi að mestu
hérlendis. Hann varð ekki sjálfur fjöl-
skyldumaður, eignaðist ekki böm,
en stutta sambúð reyndi hann þó.
Þannig var lífshlaupið í stuttu máli.
Lífið er ekki alltaf gjöfullt og þar
skiptast á skin og skúrir. Þetta átti
ekki síst við hjá frænda mínum og
því var ekkert ljúfara að heyra en
að vel gengi og að allt væri í
stakasta lagi. En sú rödd er nú
þögnuð og við það hefur tilveran
breyst. Því er ekki annað mögulegt
en að ylja sér við minningarnar og
þá sérlega sætar bernskuminningar,
sem hrannast upp í huganum.
Ein af minum fyrstu minningum
er bílferð með Þresti og foreldrum
hans, en þá þótti mér nokkuð til
Legsteinar
Krossar
, Skildir
Malmsteypan kaplahraunis
UPT T A Vlf 220 HAFNARFJÖRÐUR
111. SÍMI 565 1022 FAX 565 1587
ERFIDRYKKJUR
P E R L A N sími 620200
þess koma að ferðast
um í einkabíl. Mér er
minnisstætt hversu
veðrið var gott, bíllinn
flottur og fínn og for-
eldramir glæsilegir og
allt virtist þetta snúast
um lítinn, óþekkan,
ærslabelg. Einhverju
sinni vildi ég passa
Þröst og fara með hann
í göngutúr, en móðir
hans var vantrúuð á
getu mína til þess, sem
mér var þá ekki full-
ljóst hvers vegna.
Nauðaði ég lengi vel
og fékk að fara út með bamið. Það
var klætt í tvískiptan, rauðan galla
og beisli sett á. Það skipti engum
togum þegar út var komið lagðist
litla barnið í tauminn og réði alger-
lega ferðinni. Ég var nú heldur
sneypt og varð að játa ósigur minn
í þessu barnapíustandi. Þá man ég
eftir peysujólunum og örvænting-
unni, þegar ekki bólaði á einum ein-
asta hörðum pakka. Síðasta peysan
kom og eftir lauslega ytri kreistingu
sagði Þröstur afar daufur: „Það var
ekkert í þessum". En minningabrot-
in tengjast þó að mestu kátínu,
ærslum og skemmtilegum leikjum.
Þröstur gaf okkur systkinunum ekk-
ert eftir í spilamennskunni, þótt
hann væri talsvert yngri
Er við urðum fuliorðin tóku við
samræður um lífíð og tilveruna,
rabb um daginn og veginn, hárklipp-
ingar og aðrar uppákomur. Nú heyr-
ir þetta allt fortíðinni til, en ég man
afar góðan dreng.
Kolbrún
Æskuvinur minn Þröstur Berg-
mann er látinn, langt fyrir aldur
fram. Enn einu sinni hefur „Bakk-
us“ lagt góðan dreng að velli.
Mér eru enn í fersku minni okkar
fyrstu kynni. Það var árið 1972.
Heimsmeistaraeinvíginu í skák var
nýlokið og við báðir komnir með
skákdellu. Sameiginlegur vinur okk-
ar kynnti okkur. Það var strax
ákveðið að fara heim til Þrastar og
taka eina skák. Ég fékk fljótlega
mun verri stöðu. Þá kallaði Þröstur
á mömmu sína, mér til undrunar,
„Mamma, komdu og sjáðu stöðuna
hjá mér, sjáðu biskupana, þeir ráða
línunum hérna og miðborðinu.
Mamma hans kom og leit á okkur,
og var ánægð með strákinn sinn.
Ekki veit ég hvort hún hafði mikið
vit á stöðunni. En ég var ekki á því
að gefast upp, teflt skyldi til síðasta
manns. Þröstur uggði ekki að sér.
Mér tókst að leiða hann í gildru og
hann var óveijandi mát í næsta leik.
En skyndilega, eins og hendi væri
veifað, lágu allir mennirnir á gólf-
inu. Svona var Þröstur; einlægur,
barnalegur og rogginn með sinn hlut
þegar vel gekk. En að sama skapi
sár og svekktur þegar á móti blés.
Við vorum fjórir félagarnir: Ég,
Þröstur, Frikki og Steini. Við mynd-
uðum kjarnann í skáksveit Álfta-
mýrarskóla, sem var ósigrandi á
þessum árum. Heimili Þrastar varð
okkar samkomustaður, kannski
vegna þess að þar voru flestar
skákbækurnar og bestu stereógræj-
urnar. Oft var teflt og spilað langt
fram á nótt. Við áttum því láni að
fagna að Taflfélag Reykjavíkur var
með félagsheimili sitt stutt frá okkar
hverfi. Þangað lá leiðin á æfingar
og mót. Þröstur var fljótur að vinna
sig uppúr unglingaflokknum og
tefldi hann síðan í meistaraflokki og
landsliðsflokki með ágætum ár-
angri. Hann var stórmeistaraefni og
hefði hann eflaust náð þeim titli ef
„Bakkus konungur" hefði ekki sett
strik í reikninginn. Þröstur hafði
hæfileika á fleiri sviðum. Mig langar
að rifja upp eitt skemmtilegt atvik
úr skólaferðalagi sem við fórum í, í
landsprófi (10. bekk). Það var farið
í helgarferð í Húsafeli. Einn morgun-
inn fóru nokkrir krakkar í sundlaug-
ina og voru að keppast við að synda
sem lengst í kafí, og urðu ansi
montnir ef þeir náðu að synda eina
ferð yfir laugina. Jæja, kemur nú
Þröstur Bergmann á svæðið, ný-
vaknaður með sígarettu í kjaftinum,
hann stingur sér til sunds, syndir 3
ferðir í kafi, kemur uppúr, blæs varla
úr nös og biður um eld. Slíkir voru
yfirburðir hans. Móðir Þrastar
stundaði sundkennslu á sumrin og
lærði Þröstur því snemma að synda.
Ekki iagði Þröstur stund á íþrótt-
ir þó hann hefði hæfileikana í það.
Einu sinni lét hann þó tilleiðast að
taka þátt í fijálsíþróttamóti. Hann
gerði sér þá lítið fyrir og setti ís-
landsmet'í þrístökki án atrennu í
unglingaflokki. Þröstur var mjög
hæfileikaríkur unglingur, en því mið-
ur bar hann ekki gæfu til að þroska
þessa hæfileika sína.
Árin liðu og samverustundunum
fækkaði og drykkjuvandamálið óx.
Oft fór hann í meðferð með misjöfn-
um árangri. Síðastliðinn vetur var
hann edrú að mestu leyti, og hringdi
hann þá oft í mig. Ég bar þá veiku
von í brjósti að nú væri hann loksins
að ná áttum. En þá kom kallið.
Foreldra Þrastar hefur misst sinn
einkason. Ég bið góðan guð að veita
þeim styrk á erfiðum stundum.
Hilmar Hansson.
ÞRÖSTUR
BERGMANNINGASON
Erfidrykkjur
Glæsileg kaffi-
hlaðborð, fallegir
salir og mjög
góð þjónusta.
Upplýsingar
í síma 22322
FLUGLEIÐIR
niim LormiiDiit
FIMMTUDAGUR 1. JÚNÍ 1995 39
+
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir og amma,
SIGURÁST FRIÐGEIRSDÓTTIR
frá Hellissandi,
verður jarðsungin frá Áskirkju, Reykjavík, föstudaginn 2. júni
kl. 15.00.
Börn, tengdabörn,
barnabörn og barnabarnabörn.
Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug við
andlát og útför móður okkar, fóstur-
móður, tengdamóður, ömmu og
langömmu,
MARGRÉTAR
KRISTJÁNSDÓTTUR
frá Bugðustöðum.
Sérstakar þakkirtil starfsfólks á hjúkrun-
arheimilinu Eir fyrir frábæra umönnun.
Kristján Samsonarson, Fanney Samsonardóttir,
Jón Samsonarson, Helga Jóhannsdóttir,
Kolbeinn Magnússon, Sigurbjörg Guðjónsdóttir,
ÓmarÁrnason, Ingibjörg Oskarsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Þökkum innilega auðsýnda samúð og
vináttu, nær og fjær, við sviplegt frá-
fall ástkærrar dóttur, móður, systur,
tengdamóður og mágkonu,
JÓHÖNNU SVEINSDÓTTUR
bókmenntafræðings
og rithöfundar.
Sveinn B. Hálfdanarson, Gerða R. Jónsdóttir,
Álfheiður Hanna Friðriksdóttir, Jónas Þorbjarnarson,
Hjalti Jón Sveinsson, Jóhanna S. Sigþórsdóttir,
Óttar Sveinsson.
+
Alúðarþakkir fyrir auðsýnda samúð og
vinarhug við andlát og útför elskulegs
eiginmanns míns, föður, tengdaföður
og afa,
GÍSLA R. SIGURÐSSONAR
fyrrv. útgerðarmanns,
Faxastíg 41.
Sigríður Lovísa Haraldsdóttir
Jón Kr. Gíslason, Guðný Alfreðsdóttir,
Sigríður Lovísa Jónsdóttir, Freydís Jónsdóttir,
Freyr Jónsson.
Birting afmælis- og
minningargreina
Morgunblaðið tekur afmælis- og minningargreinar til birtingar end-
urgjaldslaust. Greinunum er veitt viðtaka á ritstjórn blaðsins í Kringl-
unni 1, Reykjavík, og á skrifstofu blaðsins í Hafnarstræti 85, Akur-
eyri. Þá er enn fremur unnt að senda greinarnar í símbréfi í númer
691181. Það eru vinsamleg tilmæli blaðsins að lengd greinanna fari
ekki yfir eina og hálfa örk A-4 miðað við meðallínubil og hæfilega
línulengd — eða 3600-4000 slög. Greinarhöfundar eru beðnir að
hafa skírnarnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum.
Við birtingu afmælisgreina gildir sú regla, að aðeins eru birtar
greinar um fólk sem er 70 ára og eldra. Hins vegar eru birtar afmæl-
isfréttir ásamt mynd í Dagbók um fólk sem er 50 ára eða eldra.
.w MHNRBEHG J LUI ERFISDRYKKjAN i/eislusalur Lágmúla 4, sími 588-6040 •'
LEGSTEINAR
MOSAIK H.F.
Hamarshöfða 4 — sími 871960