Morgunblaðið - 02.06.1995, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 2. JLINÍ 1995 11
Sýningar
í Lista-
safninu
TVÆR myndlistarsýningar
verða opnaðar í Listasafninu
á Akureyri á morgun, laugar-
daginn 3. júní, kl. 16.00.
I austur- og miðsal eru verk
eftir Hauk Stefánsson og í
vestursal eru „ný aðföng,“
verk sem Listasafnið á Akur-
eyri hefur nýlega eignast, m.a.
eftir Erró, Guðmund Thorodd-
sen, Jón Laxdal og Jónas Við-
ar.
Listaverkabók
í tilefni af sýningu Hauks
Stefánssonar kemur út lista-
verkabók um hann, sem gefin
er út af fjölskyldu hans í sam-
vinnu við Listasafnið á Akur-
eyri. Ritstjóri er Haraldur Sig-
urðsson.
Haukur var fæddur árið
1901. Hann bjó í Kanada fram
á fertugsaldur er hann kom
til föðurlands síns. Haukur var
einn þeirra sem efldu mjög
myndlist á Akureyri, m.a. með
starfi sínu að kennslu frí-
stundamálara en þar vakti
hann áhuga stórs hóps á
myndlistinni. Haukur málaði
veggmyndir á heimilum fólks,
þrjú þeirra verka eru varðveitt
svo kunnugt sé, gangur í
Hafnarstræti 84 (Hótel
Harpa), í Oddeyrargötu 34 er
málað upp stiga og pall í einum
litatóni og í Strandgötu 2 er
málaður gangur.
Nonnahús
opnað
í g*ær
NONNAHÚS, minningarsafn
um barnabókahöfundinn og
jesúítaprestinn Jón Sveinsson,
hefur verið opnað og verður
opið daglega í sumar eða frá
1. júní til 1. september frá kl.
10 til 17.
Um háannatímann eða frá
20, júní til 10. ágúst verður
einnig opið á þriðjudags- og
fimmtudagskvöldum frá kl. 20
til 23.
Safnið er mikið sótt af út-
lendingum og einnig koma í
safnið Þjóðveijar sem þekktu
Nonna og hafa lesið bækur
hans. Safnið er einnig mikið
sótt af íslendingum en yngri
kynslóðin þekkir Nonna betur
úr myndinni Nonna og Manna
sem nýverið var sýnd í sjón-
varpinu heldur en af bókum
hans.
Stytta Nínu Sæmundsson
af Nonna hefur verið steypt í
brons í borginni Speicher í
Þýskalandi og er um þessar
mundir á stórri höggmynda-
sýningu í Niirnberg. Styttan
er væntanleg til landsins í
'sumar og hafa Samskip gefið
flutning sjóleiðina til íslands.
Dajislist ’95
í íþrótta-
höllinni
DANSLIST ’95 verður haldin
í íþróttahöllinni á Akureyri um
helgina. Pjölmargir þátttak-
endur víða að af landinu taka
þátt, en um er að ræða nokk-
urs konar danssmiðju þar sem
unnið er með allar gerðir
dansa. Tvær sýningar verða
haldnar, hin fyrri verður annað
kvöld, laugardagskvöld kl.
20.30 og hin síðari á sama
tíma á sunnudagskvöldið 4.
júnf.
AKUREYRI
AKO-plast og Plastprent stofna hlutafélag um plastiðnað
Velta tvöfölduð og helm-
ingsfjölgun starfsmanna
Morgunblaðið/Rúnar Þór
DANIEL Arnason, Bjarni Lúðvíksson, Eyþór Jósepsson, Alfreð Gíslason, Eysteinn Helgason og
Jóhann Oddgeirsson stjórnarmenn í nýju félagi um rekstur Akoplasts fylgjast með Gunnari Svein-
björnssyni að störfum í verksmiðju fyrirtækisins.
Erlingur
sýnir
í Deiglunni
ERLINGUR Valgarðsson sýnir
verk sín í Deiglunni í Grófargili
og er hún opin daglega frá kl.
14.00-18.00.
Á sýningunni eru 19 verk, unn-
in í olíu, lakk og akrýl. Sýningin
heitir Náttúrubrot og tengist
myndefnið náttúru landsins og er
það byggt á upplifun og minninga-
brotum listamannsins sem ferða-
langs um hálendi íslands.
Þetta er fyrsta einkasýning Erl-
ings, en hann hefur áður tekið
þátt í samsýningum, m.a. í Deigl-
unni og í Falun í Svíþjóð.
Erlingur er Akureyringur,
fæddur árið 1961, hann sótti nám-
skeið í Myndlistaskólanum á Akur-
eyri árið 1981 og þá var hann við
nám í Haraldsbo skólanum í Falun
í SvQ)jóð árin 1988 og 1989.
Sýningin stendur til 8. júní
næstkomandi.
♦ ♦ ♦
REKSTUR AKO-plasts/Pob verður
aðskilinn og nýtt hlutafélag stofnað
um plasthlutann í starfsemi fyrirtæk-
isins og mun Plastprent hf. í Reykja-
vík leggja fram helming hlutaflár í
nýja hlutafélagið á móti núverandi
eigendum. Gert er ráð fyrir að velta
fyrirtækisins tvöfaldist og eins verður
starfsmönnum fjölgað um helming.
Viðræður hafa staðið yfír að und-
anfömu milli eigenda Akoplasts/Pob
á Akureyri, Plastprents og Sölumið-
stöðvar hraðfrystihúsanna, sem á hlut
í Plastprenti, um að efla plastiðnað á
Akureyri. Niðurstaðan er sú að rekstri
félagsins verður skipt, starfsemi á
sviði prentiðnaðarins verður tekin út
úr plastþættinum og tvö ný hlutafélög
stofnuð.
Hlutafé aukið
Fyrirhugað er að auka hlutafé í
Akoplasti um helming og verður það
40 milljónir króna. Ætlunin er að fjár-
Ljósmynd/Hjálmar Júlíusson
festa í vélum og búnaði til plastfram-
leiðslunnar, en að sögn Daníels Áma-
sonar framkvæmdastjóra mun fyrir-
tækið einbeita sér að framleiðslu á
plastumbúðum fyrir sjávarútveginn,
m.a. fyrir SH.
Áætlanir gera ráð fyrir að við fyrir-
hugaðar aðgerðir muni velta fyrirtæk-
isins aukast um helming og verða um
250 milljónir króna á ári. Þá er einn-
ig gert ráð fyrir að aukning í fram-
leiðslu muni hafa í för með sér tvöfóld-
un á starfsmannafjölda í plastfram-
leiðslunni en í framtíðinni munu 8
starfsmenn sinna þessum þætti í
starfsemi fyrirtækisins.
Plastprent hf. í Reykjavík leggur
fram helming nýs hlutafjár í Ako-
plast og sagði Eysteinn Helgason
framkvæmdastjóri, að um væri að
ræða rökrétt áframhald á fyrra sam-
starfí fyrirtækjanna. Plastprent hefði
selt Akoplasti stóran hluta af sínu
hráefni fram til þessa. „Við sjáum
Steingrímur
sýnir í Gamla
Lundi
SÝNING á málverkum eftir Stein-
grím St. Th. Sigurðsson listmálara
stendur yfír um þessar mundir í
Gamla Lundi við Eiðsvöll á Akureyri.
Þetta er 79. einkasýning málar-
ans og 7. sýning hans í fæðingarbæ
sínum. Um 60 verk eru á sýning-
unni, næstum öll ný og þá hyggst
Steingrímur bæta við nýjum verk-
um á sýninguna, sem hann tileinkar
Akureyri, daglega.
Fjölmenni var við opnun sýning-
arinnar, en þar lék m.a. kvartett
Guðjóns Pálssonar úr Vestmanna-
eyjum að viðbættum Hauki Ágústs-
syni sem söng með.
einnig tækifæri með þessu samstarfi,
við komumst nær okkar viðskiptavin-
um á svæðinu og getum þjónað þeim
betur,“ sagði Eysteinn.
Hagræðing
Daníel Ámason sagði að þessar
aðgerðir væm gerðar í því skyni að
ná fram hagræðingu og aukinni sér-
hæfíngu. „Við vonum að hún skili sér
til okkar viðskiptavina í hagstæðara
vömverði og við teljum einnig að
þessar aðgerðir muni hafa í fór með
sér aukna möguleika fyrir okkur í
framtíðinni," sagði Daníel.
Samúel sýnir á
Café Olsen
í SUMAR verða verk eftir Samúel
Jóhannsson til sýnis á veggjum
Gafé Olsen við Ráðhústorg á Akur-
eyri.
Þetta er þrettánda einkasýning
Samúels, en síðast sýndi hann í
Listhúsinu Þingi í vetur. Hann
hefur auk þess tekið þátt í fjölda
samsýninga á undanförnum
árum.
Morgunblaðið/Diðrik Jóhannsson
Kartöflugarðar undir snjó
Arnarneshreppur. Morgunblaðið.
KARTÖFLUGARÐAR utan Ak-
ureyrar eru enn annaðhvort und-
ir snjó eða mjög blautir. Garð-
arnir á Silastöðum í Glæsibæjar-
hreppi vita vel á móti sólu fyrri
hluta dags en sólar hefur lítið
notið í vor.
Eiríkur Sigfússon bóndi á Síla-
stöðum segir þó mest komið und-
ir því liver hitinn verður i sum-
ar. Gullaugakartöflur þurfi um
100 daga sprettu til að ná upp-
skeru, premier 10-20 dögum
styttri. Uppskeran fer þá eftir
hitanum í sumar og hvort garð-
arnir sleppa við næturfrost. Ei-
ríkur hefur ræktað kartöflur í
um 40 ár og gerir ráð fyrir að
nú verði sett niður um 3 vikum
seinna en í meðalári.
LAUFÁSPRESTAKALL: Grenivík-
urkirkja: Fermingarguðsþjónusta
hvítasunnudag kl. 11.00.
Fermd verða:
Anna Margrét Sigurgeirsdóttir,
Túngötu 12, Grenivík.
Ármann Dan Árnason,
Túngötu 21, Grenivík.
Heiða Björk Vilhjálmsdóttir,
Túngötu 20, Grenivík.
Heba Björk Helgadóttir,
Ægissíðu 14, Grenivík.
Kolbrún Eva Helgadóttir,
Ægissíðu 14, Grenivík.
Þóra Guðrún Þorsteinsdóttir,
Túngötu 25, Grenivík.
SVALBARÐSKIRKJA: Hátíðar-
guðsþjónusta kl. 14.00 á hvítasunnu-
dag. Hólmfríður Benediktsdóttir
sópransöngkona og dóttir hennar
syngja einsöng og tvísöng í mess-
unni.
LAUFÁSKIRKJA: Fermingarguðs-
þjónusta 2. hvítasunnudag kl. 14.00.
Fermingar
um hvíta-
sunnu
Fermdur verður Gísli Hjörleifsson,
Löngumýri 18, Akureyri.
MÖÐRUVALLAPRESTAKALL:
Hátíðarguðsþjónusta verður í Möðru-
vallakirkju á hvítasunnudag, 4. júní,
kl. 11.00. Ferming og altarisganga.
Fermd verða:
Guðrún Hildur Guðmundsdóttir,
Möðruvöllum 3, Hörgárdal.
Jóhann Egilsson,
Richardshúsi, Hjalteyri.
Sveinbjörn Sigurbjörnsson,
Miklagarði, Hjalteyri.
GLÆSIBÆJARKIRKJA: Hátíðar-
guðsþjónusta verður kl. 14.00 á
hvítasunnudag. Ferming og altaris-
ganga.
Fei-md verða:
Anna Rósa Friðriksdóttir,
Gásum, Glæsibæjarhreppi.
Dröfn Guðjónsdóttir,
Hlöðum 2, Glæsibæjarhreppi.
Þórgunnur Oddsdóttir,
Dagverðareyri, Glæsibæjarhreppi.
STÆRRI-ÁRSKÓGSKIRKJA:
Fermingarmessa verður á hvíta-
sunnudag kl. 11.00.
Fermd verða:
Kristján Freyr Pétursson,
Aðalbraut 11, Árskógssandi.
Elsa Dögg Benjamínsdóttir,
Ásholti 6, Hauganesi.
Hrafnhildur Petra Brynjarsdóttir,
Ægisgötu 9, Árskógssandi.
íris Rún Gunnarsdóttir,
Aðalgötu 1, Hauganesi.
HRÍSEYJARKIRKJA: Hátíðar-
guðsþjónusta verður á hvítasunnu-
dag kl. 14.00.
Dansleikur
Vinsælasta stuðsveit
landsins, Hljómsveit
GEIRMUNDAR
VALTÝSSONAR
ásamt
HELGU MÖLLER
leikur fyrir dansi í
kvöld.
HÓTEL KEA.