Morgunblaðið - 02.06.1995, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 02.06.1995, Blaðsíða 32
32 FÖSTUDAGUR 2. JÚNÍ 1995 MORGUNBLAÐIÐ AÐSEIMDAR GREIINIAR Skokkarar lands- ins sameinumst! FYRIR níu árum bjó ég í Danmörku og var ekki með langa afreka- skrá í íþróttum. Á fyrsta degi í háskólan- um þar sá ég mjög sér- stakan Dana. Það var stúlka með langar lakkaðar neglur í pilsi, á háhæluðum skóm, með litríkan klút og sítt svart hár og stríðs- máluð. Mér varð star- sýnt á þessa stúlku sem féll ekki alveg inn í mynstur hinna heim- spekideildarnemanna og gaf mig á tal við hana við fyrsta tækifæri. Þetta varð besta vinkona mín og átti eftir að hafa mikil áhrif á mig og hún var bæði grænmetisæta og stundaði skokk! Einnig var hún í þolfimi, sem var svo til splunkunýtt þá og svo hjólaði hún að sjálfsögðu en í háhæluðum skóm og nælon- sokkabuxum sem stungu í stúf við klæðnað hinna Dananna þar sem skynsemin var aðalsmerki. Skokk var mér sem lokuð bók, ég var oft búin að horfa á skokk- ara úr bíl og fylltist hálfgerðri vor- kunnsemi yfir þessu vesalings fólki og gat ekki skilið hver tilgangur þess var, þetta hlyti að vera svo leiðinlegt. En vinkona mín, hún Mie, hin mikla framúrstefnukona, dró mig einn góðviðrisdaginn í skokk í skógi einum, eftir óska- hlaupabrautum skokkarans. Ég mætti, mjög treg, í ökklaháum upp- reimuðum strigaskóm og í einhverj- um mjúkum flíkum. Mie sveif á braut, á undan, með vasadiskótekið í eyrum og sagði mér að fylgja sér eftir eins og ég gæti. Ég þumbaðist af stað og var kominn með lungun í hálsinn eftir fáeina metra og skapið orðið svart. En til þess að bjarga því sem bjargað varð drattaðist ég áfram, meira af þrjósku en mætti, mest gangandi með fýlusvip en reyndi að hlaupa þegar ég mætti skokkurun- um. Þeir bjuggu augsýnilega yfir einhveiju sem ég bjó ekki yfir, því ánægjan skein út úr andlitunum. Þannig komst ég einhveija kíló- metra, blásandi og hálfragnandi og sá lítinn tilgang með þessu kval- ræði. Ég var búin að lofa Mie að reyna þetta þrisvar, gefa því tæki- færi, því hún vissi sem var að það var ekki nóg að hlaupa einu sinni. Í þriðja skiptið varð kvalræðið minna og ég var farin að njóta út- sýnis á meðan og eiga bétur með hreyfinguna. Til að gera langa sögu stutta varð ég háð því að hlaupa og hljóp á öllum tímum í Dana- veldi. Þróunin var ör og nýir hlaupa- skór urðu ómissandi og síðan hlaupaskór með loftpúðum, þvílík bylting. Þungu bomsunum var lagt og árangurinn batnaði en því miður urðu hlaupin stijálli þegar heim til íslands var komið. Ég skráði mig síðan í hlaupahóp hiá Námsflokkum Reykjavíkur í vor Hrund Sigurbjörnsdóttir Hlaupið er til stuðnings góðu málefni, segir Hrund Signrbjörns- dóttir, Ekki síður vegna aðhalds og ánægju, sem almenningshlaup veitir. og það varð til þess að koma mér í reglubundin hlaup án undankomu og ég stefni að sjálfsögðu á hlaup Krabbameinsfélagsins þann 3. júní (og jafnvel að hafa í fullu tré við Mie þegar við hittumst í sumar). Fyrst má nefna að hlaupið er til stuðnings góðu málefni en ekki síð- ur vegna þess aðhalds og þeirrar ánægju sem almenningshlaup veitir mér. Núna er skokkið orðið almenn- ingsíþrótt og það er tvímælalaust merki þess að maður sé að ánetjast skokki þegar gaman er orðið að mæta öðrum skokkurum. Það er ekki laust við að maður taki sig örlítið á og lyfti fótum eilítið hærra og bæti jafnvel í hraðann! Því hvaða skokkari kannast ekki við tilfinn- inguna að vilja gera sitt besta í hópi félaga og fá þannig ómetan- lega hvatningu? Hittumst hress þann 3. júní! Höfuadur er kennari. Holl hreyfing til heilsubótar EITT af merkjum sumarkomunnar hér á landi er vaxandi fjöldi fólks, ungs sem gamals, sem sést ganga, skokka eða hlaupa út um víðan völl, ýmist á götum, gangstígum eða á úti- vistarsvæðum. Heilsuhlaup Krabba- meinsfélagsins er orðið árlegur viðburður, sem notið hefur síaukinna vinsælda fólks á öllum aldri frá því fyrst var hlaupið fyrir sjö árum. Nú er komið að Heilsu- hlaupinu á ný. Fyrir mögum eru útihlaup fjar- stæð árátta undarlegs fólks. Fyrir fáeinum árum var afar sjaldgæft að sjá fólk á heilsubótargöngu, við skokk eða hlaup. Aukinn frítími og betri meðvitund um mikilvægi hreyf- ingar til heilsubótar hefur breytt við- horfi fjöldans til líkamsræktar. Þeim fjölgar sífellt, sem kunna að meta þá líkamlegu og andlegu upplyftingu og vellíðan, sem rösk hreyfing veitir. Hæfileg áreynsla, segir Sveinn Magnússon, veit- ir aukinn þrótt og þrek. Hæfileg áreynsla veitir aukinn þrótt og þrek, útiveran veitir tilbreytinga- rík tengsl við mannlíf, bæjarlíf eða náttúru á þægilegan hátt. Margir hreyfa sig í kunningjahópi eða kynn- ast nýju fólki og öðlast þannig góðar samverustundir. Rösk hreyfing veitir ekki einungis vellíðan. Rannsóknir hafa sýnt fram á gagnsemi líkamlegrar áreynslu til verndar gegn ýmsum sjúkdóm- um, einkum hjarta- og æðasjúkdómum, en jafnvel einnig krabba- meini. Bætt meðvitund um eigin líkama og mikilvægi ræktunar hans er heilsubætandi og hvetur til hollra lífs- hátta. Hlaup er ekki eina leiðin til hreyfingar. Margir stunda sund reglulega. Rösk ganga hentar mörgum betur, hún getur gert líkam- lega sama gagn og hlaup en hætta á meiðslum er jafnvel minni. Göngum, skokkum eða hlaupum í Heilsuhlaupinu. Með því að standa að Heilsuhlaup- inu vill Krabbameinsfélagið vekja fólk til aukinnar meðvitundar um mikilvægi þess að fara vel með lík- ama sinn, veita honum holla hreyf- ingu og stuðla þannig að bættri líðan og heilsu. Tökum þátt í Heilsuhlaupinu, það er gott tækifæri fyrir þá sem vilja byija að hreyfa sig, gott tækifæri fyrir þá sem vilja byija aftur holla líkamsrækt eftir veturinn, gott tæki- færi fyrir þá sem hreyfa sig reglu- lega til að hitta nýtt fólk, gott tæki- færi fyrir alla fjölskylduna til að eiga góða og gagnlega stund saman. Övanir ættu líka að taka þátt, þeir geta gengið eða skokkað í stað þess að hlaupa. Höfundur er héraðslæknir Reykjaneshéraðs ogritari Krabbameinsfélags Reykjavíkur. Sveinn Magnússon M I Orkuverió verdur opid almenningi til sýnis auk þess sem slarfsemin verdur kynnt alla helgina. jSSk Á Iqugardaginn verdur sérstök hútíöardagskrá milli klukkan 10:00 - 18:00 og verdur þá oþid á fimm . stööum hjá Hitaveitu Sudurnesja. Æfe í orkuverinu vertiur m.a. bakad rúgbraud i ^ hágufuofni, bodid í útigriUveislu milli klukkan 12:00 - 15:00 og börninfá smágjafir. Ein öflugasta borhola í heimi í Eldvörþum verdur látin blása ogferskva tnssvœdið i Gjá verður oþið. Við aðalstöðvar Hitaveitu Suðurnesja að Brekkustíg 36 verður aðstaða og starfsemin kynnt. Börnin fá að spreyta sig á altstri lílilla rafmagnsbíla. Boðið verður upp á gqs og léttmeti. t>á er einnig opið að Fitjabraut 20-22, Aðveitustöð Fitjum og Dcelustöðin Fitjum. Bláa lónið, vinscelasti ferðamannastaður Islands, veitir sérstakan hátiðarafslátt alla helgitm. í nýju glcesilegu veitingatjaldi sem reist er út í lónið geta gestir sest niður ogfengið sér hressingu í einstöhu umhverfi. Lifandi músik alla helgina. A sunnudag og mánudag verða ýmsar óvcentar uppákomur sem verða kynntar á staðnum jöfnum höndum svo það er betra aðfylgjast með. Gestum gefst tcekifceri á að kyimast starfsemi Heilsufélagsins við Bláa lónið hf. og fá uþþlýsingar um göngudeildina og hinar ýmsu franúeiðsluvörur unnutn tír hráefnum lönsins sem HBL er að markaðssetja þessa dagana. BIÁA LÓNIÐ -cevintýri líkast! Sími: 426 8800 Hitaveita Suðurnesja
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.