Morgunblaðið - 02.06.1995, Blaðsíða 46

Morgunblaðið - 02.06.1995, Blaðsíða 46
46 FÖSTUDAGUR 2. JÚNÍ 1995 MORGUNBLAÐIÐ 14 k gull Verö kr. 3.400 Stúdentastjarnan hálsmen eða prjónn tlðn Sípuniisson Skortyripaverzlun Laugavegi 5 - sími 551 3383 SKOVERSLUN KOPAVOGS Hamraborg 3, sími 554 1754. Búnaðarbanki íslands, { austurbæjarútibú við Hlemm, Rvk. I Önnur símanúmer bankans breytast samkvæmt nýja símanúmerakeninu. BÚNAÐARBANKI ÍSLANDS - kjarai málsins! I DAG VELVAKANDI Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 14-16 frá mánudegi til föstudags Þakkarávarp frá borgarafundi í Súðavík ÍBÚAR Súðavíkur upplifðu í vetur, eftir að hörmung- amar höfðu dunið hér yfir, að það er gott að vera ís- lendingur. Strax eftir að snjóflóðið féll hófst undirbúningur að björgunarstarfínu um allt land. Menn voru rifnir úr störfum sínum víða um land og kallaðir til starfa hér í Súðavík. Það voru ákveðnir og yfirvegaðir menn, karlar og konur, á sjó og landi, sem gengu hér að björgunarstörfum við hin erfiðustu skilyrði. Allt þetta fólk vann þrek- virki hér við björgunar- störfín. Ekki má gleyma hlutverki leitarhunda og mikilvægu starfi þjálfara ' ~ þeirra. Á sama tíma hófu Rauði kross íslands og Hjálpar- stofnun kirkjunnar skipu- lag og undirbúning hjálp- arstarfs. Framkvæmd þess verður lengi f minnum höfð og er þessum aðilum til mikils sóma. Yfirstjórnandi almanna- varna hér á svæðinu, sýslumaðurinn á ísafirði, Almannavarnanefnd ísa- fjarðar, bæjarstjórinn á Isafirði, bæjarstjórn og starfsmenn ísafjarðarbæj- ar komu strax að málum svo eftir verður munað. Sama verður sagt um starfsmenn Sjúkrahússins á ísafirði og íbúa bæjar- ins. Eftir að björguriarstarfmu • lauk kom yfirlýsing frá rfk- ísstjóminni um að yfirvöld myndu styðja Súðvíkinga í uppbyggingu staðarins. Hún ákvað að nefnd ráðu- neytisstjóra skyldi fylgjast með framkvæmd uppbygg- ingarinnar og samræma aðgerðir opinberra aðila til þess að hraða og greiða fyrir uppbyggingunni. Það hafa þeir gert með miklum sóma. Stofnanir ríkisins hafa hraðað afgreiðslu er- inda héðan eins og hægt er. Stjóm Sambands íslenskra sveitarfélaga ásamt sveit- arfélögunum í landinu lögðu fram fjármuni til styrktar sveitarsjóði og ómetanlega aðstoð. Forseti íslands hefur sýnt velferð Súðvíkinga áhuga og styrkt þá í trúnni á framtíðina með umhyggju sinni og hlýhug. Fjölmiðlar í landinu og Póstur og sími tóku saman höndum og stóðu fyrir söfnun til stuðnings íbúum Súðavíkur. Það er þessum aðilum til mikils sóma hve myndarlega var staðið að undirbúningi og fram- kvæmd söfnunarinnar. Söfnunin Samhugur í verki sannar svo um munar að íslendingar standa saman sem einn maður þegar á þarf að halda. Örlæti, vel- vild og hlýhugur eru eigin- leikar sem búa í hveijum manni. í söfnuninni sýndu menn og konur að þeim er ekki sama. Aldrei fyrr hefur safnast eins mikið af fjármunum í einni söfn- un og þessari. Norrænir frændur okkar létu heldur ekki sitt eftir liggja. Það sannaðist með mjög rausnarlegu framlagi frá vinum okkar í Færeyj- um og framlagi Lions- manna á Norðurlöndum sem söfnuðu miklum fjár- munum til uppbyggingar- innar. Síðast en ekki síst ber að nefna óeigingjarnt starf þeirra einstaklinga sem völdust til þeirra erfiðu trúnaðarstarfa að úthluta söfnunarfé landsmanna. Öllum má vera ljóst að það er ekki einfalt að setja reglur um ráðstöfun á svo miklu ijármagni. Lánið var, að til þessara starfa völdust einstaklingar með þekkingu og reynslu, sem reyndist ómetanleg í störf- um þeirra. Framangreind upptalning er ekki tæmandi. Fjöl- margir aðilar innanlands og utan buðu fram aðstoð sína. Fyrir það og allt framangreint þakka Súð- víkingar heilum huga um leið og þeir biðja góðan Guð að blessa alla þá er að málum komu og störf þeirra um ókomna tíð. Um rjúpuna SIGFINNUR frá Skaga- firði hringdi í Velvakanda og vildi koma á framfæri upplýsingum til greinar- höfundar sem skrifaði í Morgunblaðið um ijúpuna. Þar kom fram að greinar- höfundur væri um 90 ára og fæddur f kringum 1904 og fjallaði hann m.a. um fall ijúpunnar úr hungri og harðrétti. Vildi Sigfmn- ur árétta að ijúpan hefði fallið mikið frostaveturinn 1918 og væri hægt að leita heimilda m.a. í ævisögu Lárusar í Grímstungu. Tapað/fundið Gleraug-u fundust GLERAUGU í svörtu hulstri fundust sl. sunnu- dag á bílastæði við hús Myndlista- og handíðaskól- ans við Laugarnesveg. Upplýsingar í síma 553-6359. Kettlingar KETTLINGAR fást gefins á gott heimili. Upplýsingar í síma 5544497. Myndavél tapaðist MYNDAVÉL af gerðinni Fuji DL500Wide tapaðist á Snæfellsnesi 13. maí sl. Á svæðinu kringum Arnar- stapa og Lóndranga. Vélin er merkt eiganda. Finnandi vinsamlegast hringið í síma 5667016. Gleraugu GLERAUGU fundust á Seltjamarnesi í krinum 20. maí sl. Umgjörðin er af Armani-gerð, gylltar spangir og brúnyijótt. Upplýsingar í síma 5611523. Karlmannsúr tapaðist KARLMANNSÚR tapaðist á körfuboltavelli hjá Grandaskóla eða á leiðinni að skýli SVR á Kapla- skjólsvegi. Finnandi vin- samlegast hafi samband í síma 5526548. LEIÐRÉTT Átök anda líklega mökun FRÓÐIR menn hafa bent á að þijár myndir af átökum andasteggs og kollu, sem birtust í Morgunblaðinu í vikunni, hafi einfaldlega sýnt mökun andanna enda sé mökunartímibili and- anna ekki lokið enn. Sjón- arvottar sögðu blaðamanni að í þessu tilviki hafi marg- ir steggir reynt mök við kolluna og því hafí aðfar- imar þótt nokkuð harka- legar. Sérfræðingar benda á að hópmökun sé algeng í þéttbýli þar sem þéttleiki anda er mikill. Fugla- og líffræðingar telja þó að kalla megi hópmökun af- brigðilega kynhegðun en hún geti vel átt sér stað á pollum eða þröngum bú- stöðum anda í sambýli með mönnum í bæjum og borg- um. Myndabrengl Nöfnum Þorgerðar Sigurð- ardóttur og Sigríðar Sig- urðardóttur var víxlað í myndatexta í Morgunblað- inu í gær. Hlutaðeigandi era beðnir velvirðingar á þessum mistökum. Verkfallsátök Vegna mistaka var rang- hermt í frétt í Morgunblað- inu í vikunni að rútu hefði verið ekið yfír fót verkfall- svarðar. í raun ók verk- fallsvörður yfir fót rútueig- anda, sem vildi ekki vílq'a úr vegi fýrir honum sam- kvæmt upplýsingum Morg- unblaðsins. Beðist er vel- virðingar á þessu rang- hermi sem stafar af villandi upplýsingum. Pennavinir SAUTJÁN ára finnsk stúlka með áhuga á bóka- lestri, bréfaskriftum, sjón- varpi, tónlist o.fl.: Mia Luostrainen, Halmekatu 12 C 21, 40320 JyviiskylS, Finland. ÁTJÁN ára Tanzaníupiltur með áhuga á bréfaskrift- um, tónlist, íþróttum: Alphonce E. Rimoy, P.O. Box 738, Moshi-Kilimanjaro, Tanzania. Víkveiji skrifar... VÍKVERJI hefur heyrt margar ánægjuraddir með sígildu útvarpsstöðvarnar tvær sem í boði eru nú um stundir. Ástæða er til að taka undir með þessu fólki. Um langa hríð var gamla gufan eina útvarpsrásin sem bauð upp á sí- gilda tónlist en nú hefur valið auk- ist til muna hjá þeim sem unna slíkri tónlist og er það vel. Þarna er boðið uppá heimslist sem göfgar andann. XXX INUR Víkverja bað hann að koma á framfæri þökkum til lögreglunnar fyrir framúrskarandi lipurð við borgara þessa lands. Hann kvaðst hafa nýlega orðið vitni að umferðarslysi þar sem lítið barn var farþegi og lögreglumennirnir hefðu annast þetta litla barn eins og það væri þeirra eigið. Nærgætni þeirra við það fólk sem hlut átti að máli hefði verið einstök. Þá kvaðst vinur Víkveija hafa lent í því að gleyma lyklunum inni í bíl sínum og lögreglan hefði komið að vörmu spori og bjargað málunum. Víkveiji vill taka undir þessi orð. xxx * IGÆR var, í fyrsta skipti í marga mánuði, hlýrra á hádegi á Akur- eyri en í Reykjavík. í höfuðborginni var 11 stiga hiti en 12 stiga hiti í höfuðstað Norðurlands. Norðlend- ingar hafa eflaust verið þessu mjög fegnir enda veturinn búinn að vera með fádæmum kaldur og snjóþung- ur og vorið sömuleiðis. Víkveiji hitti á dögunum fólk að norðan, sem sagðist vera að gefast upp á veðráttunni og væri að hugsa um að flytja suður eða jafnvel til útlanda. Þetta kann að breytast nú þegar Ioks kemur gott veður nyrðra en þetta er hugsun sem hefur eflaust sótt að mörgum íbúum snjó- þungra svæða á Norðurlandi og Vestfjörðum. XXX * ASTÆÐA er til að fagna því að gömlu þvottalaugarnar I Laugardal hafa verið gerðar upp. Og á grunni þvottahússins sem byggt var árið 1901 hefur verið reist sýningargrind þar sem fjallað er um sögu þvottalauganna í máli og myndum. Borgarstjórinn í Reykjavík mun einmitt opna þessa sýningu formlega í dag. Ástæða er til að færa forystu- mönnum borgarinnar þakkir fyrir þá myndarlegu uppbyggingu sem átt hefur sér stað í Laugardalnum. Þangað er hægt að sækja skemmt- an og fróðleik og byggja upp líkama og sál. xxx Víkveiji vill nota tækifærið og koma þeirri hugmynd á fram- færi að setja upp sögusýningar á fleiri stöðum í borgarlandinu. Þann- ig mætti t.a.m. setja upp sýningu' við höfnina, sem sýndi byggingu hennar og þróun útgerðar og flutn- ingastarfsemi. Einnig mætti setja upp skemmtilega sýningu í Öskju- hlíð, þar sem sýndar væru myndir frá stríðsárunum og umsvifum setu- liðsins. Svona mætti áfram telja.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.