Morgunblaðið - 02.06.1995, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 02.06.1995, Blaðsíða 18
18 FÖSTUDAGUR 2. JÚNÍ 1995 MORGUNBLAÐIÐ ERLEIMT 1 Fannst lifandi undir látnum föður Neftegorsk. Reuter. BJÖRGUNARMENN fundu í gær fólk á lífi í rústum húsa i Neftegorsk á Sakalíneyju, fjór- um dögum eftir að jarðskjálfti lagði bæinn í rúst. Meðal þeirra sem björguðust í gær var þriggja mánaða stúlkubarn. Lítil von um að fleiri finnist á lífi Rússneskir embættismenn sögðu, að útilokað væri að fólk, sem kynni að vera innlyksa í húsarústum, lifði lengur en fjóra til fimm sólarhringa. Björgunarmenn hafa unnið í kappi við klukkuna við að leita að fólki á lífi í rústum bæjarins. Sex manns var bjargað á lífi í gær, þar af þremur börnum, en jafnframt fundust lík 30 manna. Meðal þeirra síðar- nefndu voru lík táninga sem létust er þeir voru að dansa síð- asta dansinn í diskóteki. Faðirinn fleygði sér yfir piltinn Vladímír Shapoval, lands- sljóri á Sakhalín, sagði að stúlkubarnið hefði verið við góða heilsu og óskaddað. Nánar sagði ekki af björgun hennar, en hins vegar tók það björgun- armenn 24 stundir að losa um átta ára. stúlku, Önju. Þá sögðu rússnesk blöð frá því, að 11 ára piltur, Valeríj Kazanov, hefði bjargast lifandi eftir að hafa verið rígfastur undir látnum föður sínum í 86 stundir. Hafði faðirinn fleygt sér yfir piltinn þegar skjálftinn reið yfir til þess að skýla honum er húsið hrundi. A myndinni má sjá Valeríj Kazanov með vel þeginn vatns- sopa sem björgunarmenn réttu honum eftir að hann fannst í rústunum í Neftegorsk. Bíður hann þess að losna. Fundist hafa lík 620 íbúa en óttast er að talan eigi eftir að hætta i rúmlega 2.000 manns. Saksóknari höfðar mál Vegna eyðileggingarinnar í skjálftunum hefur saksóknari Sakhalín-eyju þegar hrundið af stað lögsókn. Snýst hún um brot á byggingarreglum og er refs- ingar krafist samkvæmt 251. grein hegningarlaga, að sögn Inferfax-fréttastofunnar. Reuter Köstuðu eggjum að Karli prins Dublin. Reuter. ÍRSKIR þjóðemissinnar köstuðu fjórum eggjum að Karli Bretaprins við Trinity College í Dublin í gær og munaði minnstu að eitt þeirra hæfði hann. Hópurinn sem mótmælti heim- sókn Karls prins til írlands taldi aðeins um eitthundrað manns. Til samanburðar söfnuðust mörg þús- und manns saman skammt þar frá og fögnuðu Karli og veifuðu nokkr- ir breskum fána er hann gekk um Dublin. Karl er fyrsti meðlimur konungs- fjölskyldunnar sem heimsækir Ira frá því þeir sögðu sig úr lögum við Englendinga 1922. Fyrir aðeins einu ári hefði heimsókn af þessu tagi verið talið óhugsandi. Blaðið Evening Standard í London sagði í gær, að líklegt væri að Elísabet drottning færi í opinbera heimsókn til írlands. Ákvörðun yrði tekin í ljósi þess hvernig til tækist með heimsókn Karls. Breskir og írskir embættismenn sögðu að af slíkri heimsókn yrði fyrr en seinna. Spenna eftir að Grikkir staðfestu Hafréttarsáttmálann Óttast að Grikkir færi út lögsögu sína Ankara. Reuter. TYRKIR hófu í gær umfangsmiklar heræfingar í Eyjahafi, sem standa munu í tvær vikur. Ríkir mikil spenna í samskiptum Tyrkja og Grikkja eftir að gríska þingið stað- festi Hafréttarsáttmálann sl. fimmtudag. Grikkir undirrituðu Hafréttar- sátmálann árið 1982 en hafa ekki staðfest hann fyrr en nú. Veitir sáttmálinn þeim rétt til að færa út lögsögu sína í tólf mílur hvenær sem er. Tyrkir hafa lýst því yfir að ef Grikkir láti verða af því að útfæra lögsöguna gæti það leitt til stríðsátaka. Eyjahafið yrði „grískt stöðuvatn“ Tyrkir neita að undirrita sátt- málann og segja að gildistaka hans myndi gera Eyjahafið að grísku stöðuvatni og loka aðgangi Tyrkja Reuter TYRKNESKI herinn hóf umfangsmiklar heræfingar í Eyjahafi í gær. að helstu alþjóðlegum siglingaleið- um þar sem að margar grískar eyjar liggja mjög nálægt tyrknesku ströndinni. Með heræfíngunum sem nú eru Gefuin nytiahlutum nýttlif RRKÍ hefur opnað nyfjamarkað með notaðan húsbúnað. Hlutir á verði fyrir okkur öll. Opið frá kl. 13:00 tll 18:00 Verkefnið styrkja: S0RPA HREINSUN OG FLUTMINGUR að hefjast er talið að þeir vilji leggja áherslu á stöðu sína á Eyjahafi. Grikkir segja heræfinguna vera ögrun við þá en tyrknesk stjórn- völd benda á að öllum hlutaðeig- andi ríkjum hafi verið greint frá þeim með nægum fyrirvara. Gömul deila Deilurnar um Eyjahaf hafa stað- ið árum saman og árið 1987 lá við styijöld vegna deilna um námarétt- indi í Eyjahafi. Vestrænir stjómarerindrekar telja margir ólíklegt að Grikkir nýti sér ákvæði Hafréttarsáttmál- ans um útfærslu lögsögunnar og að það sem vaki fyrir Andreas Papandreou forsætisráðherra sé að bæta samningsstöðu sína gagnvart Tyrkjum í Kýpurdeilunni. Hershöfð- ingi hættir PAVEL Gratsjev, vamarmála- ráðherra Rússlands, sagðist í gær hafa tekið við afsagnar- beiðni Alexanders Lebeds, hers- höfðingja, sem er sagður ætla að bjóða sig fram í forsetakosn- ingunum í landinu á næsta ári. Lebed hefur verið áberandi og umdeildur hermaður, og oft orð- aður við forsetaembættið sem arftaki Borís Jeltsíns. Gratsjev sagði við fréttastofuna Interfax í gær að Lebed hefði „augsýni- lega ákveðið að gerast stjórn- málamaður af einhverju tagi.“ Lebed hefur gagnrýnt harðlega slaka frammistöðu rússneska hersins í Tsjetsjníu. 25 farast í aurskriðu AURSKRIÐA í bænum Salvad- or í Brasilíu varð að minnsta kosti 25 manns að aldurtila á þriðjudag. Óttast er að allt að 50 hafi farist í skriðunni. Að sögn björgunarmanna hafa níu manns fundist á lífi. Skriðan féll eftir 10 daga úrhellis rign- ingu í bænum, þar sem um hálf önnur milljón manna býr á hættusvæðum. Ræða á um frið í Líberíu STRÍÐSHERRANN sem kom af stað borgarastríðinu sem staðið hefur í Líberíu í fimm ár, Charles Taylor, var væntanleg- ur til Nígeríu í gær. Þar á að hefja viðræður um hvernig koma megi á friði í Líberíu. Taylor kemur til Nígeríu í boði hershöfðingjans sem þar fer með völd, Sani Abacha, og að sögn aðstoðarmanna Abacha á að ræða „öll óleyst vandamál." Embættismenn í Nígeríu segja að þessi fyrsta heimsókn leið- toga Fylkingar þjóðernissinna til Nígeríu frá því blóðugt borgarastríð braust út í Líberíu, sé mikilvægur þáttur í viðleitni til að koma á friði. Búist er við að Taylor dvelji í Nígeríu í fimm daga. Deila um orðalag afsökunar EMBÆTTISMENN flokkanna þriggja í samsteypustjórn Tomi- ichi Murayama í Japan leitast nú við að finna lausn á deilu um hvort og þá hvernig Japön- um beri að biðjast afsökunar á þeim hörmungum sem stríðs- rekstur Japana í seinni heims- styijöld olli íbúum Asíu. Félagar í Sósíalistaflokki Murayamas vilja að þingið samþykki af- dráttarlausa afsökunarbeiðni, en harðlínumenn í röðum Fijáls- lynda lýðræðisflokksins hafna því að gert verði meira en að lýsa yfir samúð vegna þeirra sem féllu í stríðinu. Nokkrir fé- lagar í Sósíalistaflokknum hafa gefið í skyn að þeir muni segja skilið við samsteypustjórnina ef hún samþykki ekki ótvíræða afsökunarbeiðni vegna hernáms Japana á Kóreu, innrásar þeirra í Kína og önnur Asíulönd. NYTJAMARKAÐURINN REYKJAVÍKURDEILD RAUÐA KROSS ÍSLANDS Bolholti 6 Sími 588 1440 O VIÐSKIPTANAM Fjölbrautaskólinn Breiðholti FJðLBRAUTASXÚUNN BREIÐHOtTI Verslunarpróf Skrifstofubraut — Verslunarbraut Ritarabraut Stúdentspróf 4 brautir FB þegar þú velur verknám
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.