Morgunblaðið - 02.06.1995, Qupperneq 33

Morgunblaðið - 02.06.1995, Qupperneq 33
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. JÚNÍ 1995 33 AÐSENDAR GREINAR Ung-mennafélögin og umhverfismál ITENGSLUM við landsmót Ung- mennafélags íslands sem haldið var að Laugarvatni sl. sumar ákváðu Ungmennafélag íslands og umhverf- isráðuneytið að bindast samtökum um að vinna að bættri umgengni um hafið, strendur, ár og vötn lands- ins. Átakið hófst formlega með fræðsluþingi sunnudaginn 26. febr- úar í vetur og í kjölfarið fylgdu fræðsluþing í öllum landshlutum. Umhverfismál hafa frá upphafi skip- að stóran sess hjá ungmennafélags- hreyfingunni, og hún hefur starfað undir kjörorðinu „Ræktun lýðs og Iands‘‘ allt frá stofnun Ungmennafé- lags íslands árið 1907, þessi orð segja mikið um það starf sem fram fer innan ungmennafélagshreyfing- arinnar, bæði fyrr á tímum og enn í dag. Náttúra íslands og vatnið, segir Þórir Jónsson, er mesta _______auðlind sem íslenska þjóðin á. í upphafí var það stefnumál ung- mennafélagshreyfingarinnar að klæða landið skógi að nýju og skila því til baka sem kynslóðirnar hafa tekið frá landinu. í málgagni Ungmennafélags ís- lands, Skinfaxa, má lesa árið 1909: „Sambandsstjóm vill styðja að því af mætti, að sterkur áhugi og starfs- þrá vakni hjá æskulýð vorum í skóg- ræktarmálinu. Það er eitt hinna feg- urstu verkefna, er æskulýður vor getur tekist á hendur. ísland skógi vaxið á ný er svo fögur hugsjón, að hún ætti að brenna dáð og dug til framkvæmda inn í æskulýðinn. Verkin verða að bera þess merkin, að vér viljum ÍSLANDI ALLT. Ann- ars verður það glamuryrði eitt og oss til dómsfellis." Árið 1912 gaf UMFÍ út rit uni skógrækt sem Guðmundur Davíðs- son hafði samið. Var ritið sent öllum skuldlausum áskrifendum Skinfaxa, og einnig selt í lausasölu. Þótti ritið kærkomið leiðbeiningarit, og var m.a. notað við kennslu í bændaskó- lanum á Hvanneyri,- Af þessu má sjá að ræktunarmál hafa verið ofar- lega í hugum aldamótakynslóðarinn- ar. Á seinni árum hafa augu ung- mennafélagshreyfingarinnar beinst í auknum mæli að umgengni um landið, sem því miður hefur alls ekki verið ásættanleg. Við búum í neyslu- þjóðfélagi í dag og því fylgir mikið af umbúðum sem flestar hverjar eru ekki umhverfisvænar, umbúðum var oft og einatt hent út um bílglugga eða fyrir borð á fiskiskipum, ekið í sjóinn, hent í ána eða bæjarlækinn, sagt var að lengi taki sjórinn við, í dag segjum við: „Sjórinn tekur ekki lengur við“. Árið 1989 tóku ungmennafélagar höndum saman og tíndu rusl með- fram þjóðvegum landsins, tókst það verkefni mjög vel, það er mín skoðun að þetta átak hafí skilað sér mjög vel út í þjóðfélagið, þjóðin hafi farið að hugsa sig um tvisvar áður en hent er rusli út um bílglugga, þvi mun minna rusl er við þjóðvegi landsins í dag en var fyrir þetta átak, en betur má ef duga skal. Við verðum að gæta vel að hvað við leggjum frá okkur, allt leitar með einum eða öðrum hætti til sjávar. Okkur ber einnig að gæta vel að vatninu í landinu, ennþá eigum við til gott vatn, en verður það lengi ef við höldum ekki vöku okkar? Ég tel svo ekki vera, við verðum að spyrna við fótum ef við ætlum pkkur í framtíðinni að geta auglýst ísland sem land hreinleika og óspilltrar náttúru. Náttúra íslands og vatnið er mesta auðlind sem ís- lenska þjóðin á, og við verðum að gæta þessarar auðlindar fyrir komandi kynslóðir. Hafið, strendur, ár og vötn landsins eru undir- staða hreinleika íslenskrar náttúru, og því er það nú að Ungmennafélag ís- lands í samvinnu við um- hverfisráðuneytið hefur tekið að sér að vinna að hreinsun á fjörum, ár- UMHVERFIÐ 1 OKKAR HONDUM nafnið bökkum og vatnsbökkum í landinu, við njótum við þetta verkefni stuðnings og velvilja ýmissa hags- munaaðila svo sem í sjáv- arútvegi, bændasamtaka, sveitarfélaga og einnig velviljaðra fyrirtækja sem eru tilbúin leggja málinu lið. Verkefnið hefur hlotið Umhverfíð í okkar höndum“. að hefjast er hreinsun- in. Hreinsunarátakið hefst 5. júní, sem er alþjóðlegur umhverfis- dagur samkvæmt ákvörðun Sameinuðu þjóðanna, og nú ríður á að ungmennafélagar um land allt, sem og aðrir velunnarar ís- lenskrar náttúru, legg- ist á eitt um að hreins- unarátakið takist sem allra best og verði ís- lendingum hvatning til bættrar umgengni við hafið, strendur ár og vötn landsins. Þórir Jónsson Sá hluti verkefnisins sem nú er Það þarf þó að ýmsu að gæta þegar svo viðamikið hreinsunarátak er í vændum, við strendur, ár og vötn landsins eiga margir hagsmuna að gæta er varðar lífsafkomu þeirra, svo sem reki, æðarvarp o.fl. ég vil því hvetja alla sem ætia sér að vinna að hreinsunará- takinu að gera það í fullri samvinnu við landeigendur, og gæta þess vel að henda ekki verðmætum og spilla ekki fuglalífi. Að lokum vil ég hvetja alla landsmenn til þátttöku í umhverf- isverkefninu og_ bæta með því náttúru íslands þannig að við getum kinnroðalaust auglýst ísland sem land hrein- óspilltrar náttúru. „Um- leika og hverfið er í okkar höndum" Höfundur er formaður Ungmennafélags íslands.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.