Morgunblaðið - 02.06.1995, Síða 56
MORGUNBLADID, KRINGLAN 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉE 569 1181,
PÓSTHÓLF 3040, NETFANG MBL@CENTRUM.IS / AKUREYRl: HAFNARSTRÆTI 85
FÖSTUDAGUR 2. JÚNÍ 1995
VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK
Gjaldeyristekjur
FYRIRTÆKI og hagsmunaaðilar í
ferðaþjónustu leggja fram 90% af
þeim íjármunum sem varið er til
kynningar á íslandi sem ferða-
mannalandi. Erna Hauksdóttir,
framkvæmdastjóri Sambands veit-
inga- og gistihúsa, segir að hlutur
ríkisins, stærsta hagsmunaaðilans,
af því heildarlj'ármagni sem varið
er til landkynningar sé aðeins 10%.
Ferðaþjónustan skapaði árið 1994
12% af heildargjaldeyristekjum þjóð-
arinnar, eða um 17 milljarða kr.
Erna segir að stefna hins opin-
bera í ferðamálum sé ekki til. Leidd-
^ ar hafi verið líkur að því að beinn
hlutur ríkissjóðs í gjaldeyristekjum
af ferðaþjónustu sé a.m.k. 30%.
Samkvæmt því hafi greinin skilað
ríkissjóði í beinum tekjum um 13,5
milljörðum kr. á sl. þremur árum.
■ Hver erlendur/28
-------»-♦■■4-------
Ferða-
þjónustan
skílaði 12%
Morgunblaðið/Golli
Fyrsta stigið gegn
bronsliði Svía
Mistök í
símaskrá
ÞAU MISTÖK urðu við vinnslu
nýútkominnar símaskrár að á síðu
1, þar sem eru mikilvæg símanúm-
er, er rangt númer skráð á slökkvi-
stöð og sjúkrabifreiðir í Hafnar-
firði, Garðabæ og Bessastaða-
hreppi.
Að sögn Bergþórs Halldórssonar,
yfirverkfræðings hjá Pósti og síma,
verður gengið frá því á þriðjudag
að notendur geti bæði hringt í
gamla símanúmerið með 55 fyrir
framan, þ.e. 5551100, og númerið
í nýju símaskránni, 11100, sem er
símanúmer slökkvistöðvar og
sjúkrabifreiða í Reykjavík.
Lausnin felst í því að númerið
5551100 verður í fullu gildi og ef
hringt verður af Hafnarfjarðar-
svæðinu í 11100 þá hringir á
slökkvistöðinni í Hafnarfirði. Hins
vegar, ef hringt er úr farsíma, þá
hringir á slökkvistöðinni í Reykja-
vík.
Morgunblaðið/Þorkell
Duo fyrir Guðna
GUÐNI Guðmundsson, rektor
Menntaskólans í Reykjavík,
útskrifaði í gær síðasta stúd-
entahóp sinn, 201 nýstúdent.
Hann hefur útskrifað hálft
fimmta þúsund stúdenta á
starfsferli sinum.
Guðni kvaddi samferðamenn
sína og óskaði eftirmanni sín-
um, Ragnheiði Torfadóttur,
velfarnaðar í starfi. Elsti yfír-
kennari MR, Eiríkur Haralds-
son, kvaddi fráfarandi rektor
samkvæmt gamalli hefð og
ýmsir afmælisárgangar fluttu
Guðna og nýstúdentum kveðju.
Geir Haarde þingmaður var
fulltrúi fyrsta árgangsins sem
Guðni útskrifaði árið 1971.
Hann tilkynnti að tónverkið
Duo fyrir Guðna hefði verið
samið í tilefni þess að Guðni
láti nú af störfum. Það var flutt
við útskriftina í gær og af-
henti Geir Guðna nóturnar að
verkinu innrammaðar.
■ Hógværð/10
ISLENSKA landsliðið í knatt-
spyrnu gerði 1:1 jafntefli við
landslið Svía í Evrópukeppninni
í Stokkhólmi í gærkvöldi. Svíar,
sem urðu í þriðja sæti í Heims-
meistarakeppninni í fyrra,
máttu hirða boltann úr netinu
þjá sér þegar á fjórðu mínútu
eftir að Arnar Gunnlaugsson
hafði skorað beint úr auka-
spyrnu af um 20 metra færi.
Islensku varnarmennirnir stóðu
sig vel og varnarveggurinn
stöðvaði ófáar aukaspyrnur en
Svíar jöfnuðu úr vítaspyrnu á
17. mínútu.
■ Leikurinn/B-blað
Næturfundur í sjómannadeilu
Nýjar tillögur
sjómanna ræddar
FORYSTUMENN sjómannasamtak-
anna lögðu sameiginlega tillögu sína
til lausnar sjómannadeilunni fyrir
forystumenn Landssambands ís-
lenskra útvegsmanna í gærkvöldi.
Viðræður milli forystumanna beggja
aðila um hvort tillagan myndaði
grundvöll til formlegs sáttafundar
stóðu enn yfir um miðnætti.
Samninganefndir sjómannasam-
takanna komu saman til fundar hjá
Fiskverð á mörkuðum hefur hækkað í sjómannaverkfallinu
Fiskvinnslu víða hætt í
dag vegna hráefnisskorts
FISKVINNSLU verður hætt í
nokkrum sjávarútvegsfyrirtækjum
í dag vegna hráefnisskorts. Sums-
staðar hefur tekist að halda uppi
vinnslu með afla af fiskmörkuðum,
rússafiski og karfa af færeyskum
skipum.
Fiskvinnsla í sjávarútvegsfyrir-
tækjum hefur víðast hvar verið í
gangi fram undir þetta, en hráefni
er nú að verða af skornum skammti.
Vinnsla stöðvast í mörgum fyrir-
tækjum um helgina. Þetta á t.d.
við Granda, Útgerðarfélag Akur-
eyringa og Vinnslustöðina í Vest-
mannaeyjum. Haraldur Böðvarsson
hf. á Akranesi hefur keypt þorsk
af fiskmörkuðum og karfa af fær-
eyskum togurum og þar verður
vinnsla í þrjá daga í næstu viku.
Unnið verður alla næstu viku hjá
Isfélagi Vestmannaeyja hf, en þar
eru til næstum 100 tonn af
rússafiski. Skólafólk fær þó ekki
vinnu í næstu viku.
Erfitt að kaupa fisk
Svavar Svavarsson, framleiðslu-
stjóri hjá Granda, sagði að þó að
mikið væri tilvinnandi að geta hald-
ið vinnslunni áfram neyddust fyrir-
tækin til að loka vegna hráefnis-
skorts. Erfitt væri að kaupa fisk á
mörkuðum vegna hás verðs.
Minni afli hefur borist til fisk-
markaða í verkfallinu en venjulega
og hefur fiskverð því farið hækk-
andi. Meðalverð á þorski á öllum
mörkuðunum var 90 krónur hvert
kíló í fyrradag, en meðalverðið var
innan við 80 krónur fyrir 10 dögum.
Það eru fyrst og fremst krókabát-
ar og bátar af Vestfjörðum sem
selja á mörkuðum. Góð veiði er núna
hjá smábátum á Breiðafírði og mik-
ill afli ferþví um Fiskmarkað Breiða-
fjarðar. I þessari viku hafa verið
seld um 100 tonn á dag á markaðin-
um. Tryggvi L. Óttarsson, fram-
kvæmdastjóri Fiskmarkaðs Breiða-
Qarðar, sagði áð þetta væri um 30%
minna magn en á sama tíma í fyrra.
Af öðrum mörkuðum er sömu
sögu að segja. Mun minna hefur
borist á land á Faxamarkaði en
venjulega. Um 20 tonn hafa verið
seld þar á dag síðustu dagana. Svip-
að magn hefur verið til sölu á Fisk-
markaði Suðumesja.
Á fiskmörkuðunum á ísafirði og
Patreksfírði hafa menn ekki mikið
orðið varir við verkfallið enn sem
komið er að öðru leyti en því að
fiskverð hefur hækkað þar.
ríkissáttasemjara klukkan 10 i gær-
morgun. Á fundinum var ákveðið
að reyna að móta nýja tillögu um
verðmyndun á sjávarfangi á grund-
velli hugmynda sem hafa verið til
umræðu í Karphúsinu undanfarna
daga, en þau mál hafa einkum stað-
ið í vegi fyrir samkomulagi í deilunni.
Forystumenn sjómannasamtak-
anna unnu að tillögugerðinni til
klukkan átta í gærkvöldi. Þá gengu
þeir á fund ríkissáttasemjara og í
framhaldi af því var boðaður fundur
með forystumönnum LÍÚ. Stór hluti
samninganefndar útvegsmanna var
þá kominn til síns heima.
Sérsamningar til umræðu
Stjórnir margra félaga útvegs-
manna og sjómanna komu saman
víða um lánd í gær til að ræða stöð-
una í kjaradeilunni. í Vestmannaeyj-
um, á Akureyri og víðar voru sér-
samningar til umræðu á þessum
fundum, en eftir því sem best er
vitað hefur ekkert félag ennþá sam-
þykkt að taka samningsumboðið af
samningamönnum í Karphúsinu.
Stjórn Skipstjóra- og stýrimanna-
félags Norðlendinga fundaði í gær
og var ákveðið að bíða enn og sjá
hvað kæmi út úr viðræðum sjó-
mannasamtakanna. Guðmundur
Steingrímsson, framkvæmdastjóri
félagsins, sagði að einstakir útgerð-
armenn á Norðurlandi hefðu haft
samband við félagið í gær og ítrekað
vilja sinn til að gera sérsamninga.
Hann sagði að félagið vildi að við-
ræður um gerð slíkra samninga
færu fram við Útvegsmannafélag
Norðurlands, en ekki einstakar út-
gerðir.