Morgunblaðið - 14.06.1995, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 14. JÚNÍ 1995 3
VATIMAVEXTIR
Morgunblaðið/RAX
UM sextíu hektarar af ræktuðu landi bæjarins Egilsstaða eru undir vatni. Fljótahúsið svokallaða, sem stendur nú úti í vatninu, hefur
aldrei áður verið eins og eyja í vatninu. Húsið, sem sumir vilja kalla Flugstöðina, var eitt sinn þjónustumiðstöð fyrir Catalinu-flugbáta.
Metvor-
fylla í
Lagarfljóti
VATNSHÆÐ Lagarfljóts fór í
22,28 metra í gær og segja menn
þá að metvorfylla sé í fljótinu.
Næst hæst var vatnshæðin að
vori 22,27 metrar árið 1989.
Hæst fór vatnshæðin í 22,43
metra í haustflóði árið 1968.
Árni Snorrason, forstöðumað-
ur Vatnamælinga Orkustofnun-
ar, flaug yfir vatnasvæðið við
Egilsstaði í gær. Hann sagði að
algengt væri að vatnshæðin í
fljótinu væri um 21,5 metrar að
vori og um 2 metrum lægri að
vetri. Vatnavöxtinn nú mætti
fyrst og fremst rekja til mikilla
hlýinda síðustu tvo til þrjá daga
á eftir köldu tímabili. Framhald-
ið réðist af hitastiginu og ef mið-
að væri við veðurspá myndi enn
halda áfram að hækka í fljótinu.
60 hektarar af túni undir flóð
FLÓÐIÐ hefur eyðilagt varp við Lagarfljót og flætt
yfir um 60 hektara af ræktuðu landi Egilsstaða-
bænda, að sögn Gunnars Jónssonar annars ábú-
andans. Þó flóðið virðist úr lofti farið að nálgast
flugbrautina ískyggilega telur Halldór Bergsson-
loftskeytamaður á flugvellinum ekki hættu á því
að flæði yfir brautina.
Halldór sagði að völlurinn væri byggður 40
sentimetra upp fyrir hæstu flóðamörk og væru
um 60 sentimetrar og slakki í að vatnið færi í
brautina. „Stundum flæddi aðeins inn á austasta
kantinn á gömlu flugbrautinni og því var tekið
mikið tillit til flóðanna þegar hin nýja var byggð.
Miðað var við mesta flóðið árið 1968 og brautin
höfð 40 sentimetrum hærri. Þó 40 sentimetrar
sýnist ekki mikið á tommustokknum þarf óhemju
magn til að ná þeirri hæð,“ sagði Halldór.
Leið verr í gær
„Mér leið verr í gær. Nú er skaðinn skeður og
ekkert við því að gera,“ sagði Gunnar Jónsson á
Egilsstöðum. Hann telur að um 60 hektarar af
túni hafi farið undir vatn og man ekki eftir öðru
eins að vori til. Egilsstaðabændur, Gunnar og
faðir hans, þekkja hættuna af vorflóðum og fresta
alltaf áburðardreifingu á hluta túnanna þar til
flóðghættan er liðin hjá.
Hins vegar segir Gunnar að flóðið hafi farið
yfir 20 hektara af túni sem borið hafði verið á
fyrir skömmu og allur sá áburður skolist nú í
burtu. Flóðið seinki sprettunni og geti haft þær
afleiðingar að áburðardreifingunni seinki um þtjár
vikur. Þar að auki segir Gunnar að óhemju mikið
af drasli komi með vatninu. Gunnar sagðist óttast
að stór varpsvæði anda, gæsa, stelks, lóu og ann-
arra tegunda hafi farið undir flóð.
50 sentimetrar í
Lagarfljótsbrú
Árni sagði að hægt væri að
miða við að vatnavextir yrðu við
18 gráðu hita. Vöxturinn rénaði
við 12-14 stig. Hins vegar sagði
hann að leysingarnar héldu
áfram, því enn ætti mikið af snjó
eftir að taka upp.
Vatnsyfirborðið hækkaði um
hálfan sentimetra á klukkustund
í gær og vantaði um 50 senti-
metra á að vatnið næði Lagar-
fljótsbrú. Ekki sagði Árni hættu
á að vatnavextir tepptu umferð
um brúna eða að hún skemmdist.
Nú er rétti tíminn
í ár er sérlega hagstætt að fjárfesta í atvinnutækjum.
Það er vegna sérstakra laga um flýtifyrningar
atvinnutækja sem keypt eru árin 1994 og 1995. Þau
má fyrna allt að tvöfaldri venjulegri fyrningu, næstu
þrjú rekstrarár eftir að þau eru keypt. Fjárfesting í ár
er því heillaráð.
Viðgefum þérgóð ráð
Við hjá Glitni sérhæfum okkur í fjármögnun hvers kyns
atvinnutækja. Við getum bent þér á leiðir þar sem þú
losnar við að binda rekstrarfé í tækinu og þar sem
fyrirgreiðsla þín í viðskiptabankanum helst óskert.
Þú kannt eflaust að meta að geta fengið 100%
fjármögnun en njóta samt staðgreiðsluafsláttar hjá
seljanda tækisins.
Skjót afgreiðsla
Fjármögnun með Kjörleiðum Glitnis er
fljótleg. Þegar nauðsynleg gögn liggja
fyrir af þinni hálfu, er umsókn þín
afgreidd á skjótan hátt.
í Glitnirhí
DÓt\uRFYRIRTÆKI ÍSLANDSBANKA Ármúla 7, 155 Reykjavík Sími 560 88 00 og 560 88 20. Myndsími 560 88 10.
Út er komið upplýsingarit um
Kjörleiðir Glitnis. Þarerá
einfaldan hátt fjallað um
ólíkar gerðir fjármögnunar.
Hringdu og fáðu eintak eða
líttu inn og spjallaðu við
ráðgjafa okkar.
OTTÓ - GRAFlSK HÖNNUN LJÓSM: SIGURGEIR SIGURJÓNSS0N