Morgunblaðið - 11.07.1995, Page 11
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
ÞRIÐJUDAGUR 11. JÚLÍ 1995 11
Útivistarsvæði hafnfirskra skáta
Nýplantaður trjágróður
skemmdur í Krýsuvík
TRJÁPLÖNTUR, sem plantað
var á útivistarsvæði í Krýsuvík
fyrsta sunnudag í júlí, fengu ekki
að vera lengi í friði en um helg-
ina voru þær traðkaðar niður og
sumar rifnar upp með rótum.
Sautján danskir skátar, sem hér
voru á ferð vegna Víkingahátíð-
arinnar, gróðursettu plönturnar í
sjálfboðavinnu í fimm beð og var
eitt þeirra sérstaklega illa leikið.
Útivistarsvæðið er í umsjá
skátafélagsins Hraunbúa frá
Hafnarfirði. Þegar félagsforingi
skátafélagsins, Pétur Már Sig-
urðsson, fór til Krýsuvík ur síð-
degis á sunnudag var búið að
stórskemma beðin. „Það virtist
hafa verði gengið á þeim og í
gengnum þau og plönturnar
hreinlega stignar niður. Sumum
plöntum var búið að sparka upp,“
segir Pétur.
Þetta er ekki í fyrsta skipti,
síðan skátafélagið tók landið í
sína umsjá árið 1965, að gróður
er skemmdur þar viljandi. „Eftir
að við girtum það af á ári trés-
ins, 1980, var hrossum og sauðfé
hleypt inn fyrir og drápu þau
hverja einustu plöntu sem við
höfðum gróðursett,“ segir Pétur.
í vor var síðan hafist handa
við gróðursetningu að nýju og
reið forseti íslands, frú Vigdís
Finnbogadóttir, á vaðið er hún
gróðursetti tijáplöntur á árlegu
vormóti Hraunbúa sem haldið var
á svæðinu um hvítasunnuhelgina.
Uppgræðsluátak eyðilagt
Að sögn Péturs voru trén, sem
traðkað var á um helgina, keypt
fyrir ágóðann af vormótinu og
því hafi uppgræðsluátak barn-
anna sem tóku þátt í mótinu í
raun verið eyðilagt. Það sé sárt
því þetta skemmi út frá sér og
fólki finnist tilgangslítið að reyna
að rækta upp ef gróðurinn sé
jafnóðum eyðilagður.
Pétur segir að þegar umsjónar-
maður Reykjanesfólkvangs var á
ferðinni í Krýsuvík á föstudag
hafi allt verið í stakasta lagi.
Hann biður þá sem kunna að
hafa orðið varir við óeðlilegar
HREGGSTAÐARVÍÐIR sem ekki fékk að dafna í friði. Vinnu-
flokkur unglinga frá Hafnarfirði fer í vikunni í Krýsuvík til
að lagfæra skemmdirnar.
DÖNSKU skátarnir snæða að lokinni gróðursetningu. Þeir
héldu síðan á Víkingahátíðina.
mannaferðir í Krýsuvík næstu tvo
sólarhringa á eftir að hafa sam-
band við lögreglu í Hafnarfírði.
Útivistarsvæði Hraunbúa er
um 20 hektara land undir rótum
Bæjarfells, í landi Hafnarfjarðar.
Krýsuvík urkirkja er innan þess
sem og skátaskáli byggður inn í
gamlar húsatóftir og er hann
notaður allan ársins hring. í vor
byggðu skátarnir hús fyrir al-
menningssalerni á svæðinu. Að
sögn Péturs er þetta eina almenn-
ingssalernið í Hafnarfirði sem og
það eina sem er á Krýsuvíkur-
svæðinu en um 100 þúsund
manns fara þar um á ári hveiju.
Einnig er fyrirhugað að gera
hindrunarbraut fyrir börn á aldr-
inum þriggja til tólf ára í kringum
svæðið.
Forstöðumaður fjármálasviðs
VR á þingi LÍY
Samið verði um
kjör til 15-25 ára
Sluppu með
skrámur eft-
ir útafakstur
FÓLKSBÍL var ekið út af þjóðveg-
inum skammt innan við Grundar-
fjörð um klukkan hálfsex á laugar-
dagsmorgun með þeim afleiðingum
að hann valt. Femt var í bílnum,
tvær sextán ára stúlkur og tveir
piltar, litlu eldri, og voru stúlkurn-
ar fluttar á sjúkrahús í Reykjavík
með þyrlu. Ekkert þeirra slasaðist
þó alvarlega.
Bíllinn var á vesturleið og lenti
út af veginum við Kverná. Stúlk-
urnar hentust út úr bílnum en þær
voru ekki í bílbeltum. Þær voru
fluttar með sjúkrabíl til Akraness
og áfram með þyrlu til Reykjavík-
ur. í ljós kom að þær voru mikið
marðar og skrámaðar en meiðslin
reyndust ekki eins alvarleg og í
fyrstu var óttast.
Ökumaðurinn, sem er um tví-
tugt, var fluttur á sjúkrahús í
Stykkishólmi með minniháttar
meiðsli.
Bíllinn er gjörónýtur. Gmnur
leikur á að ökumaðurinn hafi verið
undir áhrifum áfengis.
SÚ spurning var borin fram á þingi
Landssambands íslenskra verslun-
armanna hvort ekki væri rétt að
gera kjarasamninga til 15 til 25 ára
í Ijósi reynslu af kjarasamningum
úndanfarinna ára.
Það var Gunnar Páll Pálsson, for-
stöðumaður fjármálasviðs VR, sem
velti upp þessari spurningu á þing-
inu. Erindi hans er birt í nýútkomu
blaði VR. Gunnar sagði m.a. að ef
litið væri á kaupmáttarþróun undan-
farinna 15 ára, frá 1980 til ársloka
1994, kæmi í ljós að kaupmáttur
starfsstétta ASÍ í úrtaki Kjararann-
sóknarnefndar hefði lækkað að með-
altali.
Á sama tíma hefðu laun hækkað
um tvö þúsund prósent, ísland verið
í fremstu röð hvað varðar fjölda tap-
aðra vinnustunda vegna verkfalla og
atvinnuleysi hefði einnig orðið veru-
legt. í spá Þjóðhagsstofnunar kæmi
fram að bati í efnahagslífi fram að
aldamótum hrykki ekki til að draga
úr atvinnuleysi heldur myndi það
standa í stað.
Gunnar Páll sagði að horft hefði
verið framhjá þeirri staðreynd í
kjarasamningum að aukinn kaup-
máttur myndaðist ekki við samninga-
borðið ef ekki væri til innisjæða fyr-
ir kaupmáttaraukningu í þjóðar-
búinu. Þá virtist liggja ljóst fyrir að
ábati fyrri hluta tímabilsins hefði
ávallt allur verið tekinn út, en ekki
geymdur tii mögru áranna.
Stígandi kaupmáttur
Bar Gunnar Páll fram þá spumingu
hvort verkalýðshreyfingin ætti að
marka kröfu um aukningu kaupmátt-
ar til langs tíma og óska eftir gerð
kjarasamnings til ársins 2010 eða
2020 með endurskoðunarákvæðu. Þar
væri miðað við að stígandi yrði í kaup-
mætti og gert ráð fyrir einni til þrem-
ur kreppum á tímabilinu.
Rúm 200 eintök
seld af Hátíð
í hálfa öld
SELST hafa milli tvö og þtjú-
hundruð eintök af bókinni Hátíð í
hálfa öld sem Reykjavíkurborg gaf
út vegna lýðveldisafmælisins
1994.
Gísli Árni Eggertsson æsku-
lýðs- og tómstundafulltrúi hjá
Iþrótta- og tómstundaráði segir
ennfremur að Reykjavíkurborg
hafi fengið eitt þúsund eintök til
gjafa og hafi tæplega þijú’nundruð
eintök þegar verið látin af hendi
til ráðamanna og vegna kynningar
bókarinnar.
Kom út í jólaösinni
Útgáfa bókarinnar kostaði tæp-
ar tíu milljónir króna og segir Gísli
kostnað vegna ljósmynda hafa
verið miklu meiri en ráð hafi verið
fyrir gert. Uppgjör vegna seldra
eintaka stendur yfir en búið er að
bókfæra rúmar 62.000 krónur í
sölutekjur fyrir þetta ár sem
stendur að Gísla sögn. Segir hann
ennfremur að inni í heildarkostn-
aði sé virðisaukaskattur sem sé
endurkræfur.
Gísli segir að bókin hafi verið
kynnt með hefðbundnum hætti en
ekki hafi borið jafn mikið á henni
og skyldi þar sem fimm dagar
hafi verið til jóla þegar prentun
lauk.
Eins og fram hefur komið fór
fjárhagsáætlun lýðveldishátíðar-
nefndar tæpum 20 milljónum fram
úr áætlun og skiptist kostnaður
vegna hátíðahaldanna sem hér
segir: Laun vegna hreinsunar,
fána og ’götulokunar 2 milljónir,
laun og launatengd gjöld starfs-
manna borgarinnar vegna undir-
búnings, skipulagningar og vinnu
hátíðisdagana 8,1 milljón, auglýs-
ingar, kynning og prentun 4 millj-
ónir, skemmtikraftar 10 milljónir,
íþróttaviðburðir 4,5 milljónir, mat-
ur og kaffí starfsmanna 800 þús-
und, bifreiðakostnaður, vélaleiga
og hljóðkerfi 6,3 milljónir, sýning-
ar 2 milljónir, efniskostnaður
vegna leiksviða, sýningarpalla og
þess háttar 3,3 milljónir, morgun-
athafnir 1 milljón, uppgjör vegna
aðkeyptrar vinnu á fyrra ári 2
milljónir og útgáfa bókar
9.959.606 krónur.
Fótbrotnaði á Fimmvörðuhálsi
Dani á sjötugsaldri lá
og beið eftir hjálp
DANI á sjötugsaldri, sem fór einn
síns liðs fótgangandi frá Skógum
yfir í Bása í Þórsmörk, fótbrotnaði
á Morinsheiði aðfaranótt sunnu-
dags.
Maðurinn reyndi að láta vita af
sér með því að senda upp blys um
nóttina en ekki náðist að staðsetja
þau rétt. Talið var að þau kæmu
frá fólki í Þórsmörk sem hafði
kveikt varðeld og skotið upp flug-
eldum, sér til skemmtunar. Að sögn
lögreglu var athugað með blysin
en menn áttuðu sig ekki á því að
þau gætu komið ofan af Morins-
heiði.
Gönguhópur frá Útivist í Básum
gekk fram á manninn á sunnudag.
Hann hafði breitt tjald yfir sig og
þannig náð að halda á sér hita og
amaði ekkert að honum annað en
að hann gat ekki gengið. Lögreglan
á Hvolsvelli fékk tilkynningu um
manninn um tvöleytið og um hálf-
þijúleytið héldu félagar úr björgun-
arsveitinni Dagrenningu af stað.
Þeir báru manninn niður í Bása og
fluttu hann síðan á bíl á heilsu-
gæslustöðina á Hvolsvelli. Þangað
var komið á áttunda tímanum í
fyrrakvöld.
Gert var að meiðslum mannsins
og fékk hann síðan að fara.
B arcelona
í júlí og ágúst
frá 29.900
Heimsferðir fljúga í beinu leiguflugi til Barcelona í júlí og ágúst.
Kynnstu þessari heillandi borg sem er minnisvarði um marga frægustu
listamenn Spánar, með ótrúlega fjölbreyttu mannlífi innanum listasöfn,
kirkjur, veitingahús og skemmtistaði og hefur myndast hér andrúmsloft sern
er einstakt í Evrópu. Barcelona er um leið ein af háborgum tískunnar og
ein framsæknasta borg í Evrópu í dag.
Verð 29.900 Verð 43.800
Skattar og forfallagjald Vika á Hótel Cortes
kr. 3.660. " m.v. 2 í herbergi.
Verð með sköttum, Verð með sköttum,
kr. 33.560. kr. 47.460.
Innifalið í verði:
Vika í Barcelona, flug og gisti;
sbttar og forfallagjald.
Austurstræti 17, 2. hæð. Sími 562-4600.