Morgunblaðið - 11.07.1995, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 11. JÚLÍ 1995 19
ERLENT
Reuter
39 farast
í rútuslysum
Barist á Sri Lanka
Reynaað
umkringja
Jaffna
Colombo. Reuter.
STJÓRNARHERINN á Sri Lanka
hóf stórsókn gegn Tamíl-tígrunum
svonefndu, uppreisnarmönnum úr
röðum Tamíla á norð-austurhluta
eyríkisins, á sunnudag.
Var barist hart í gær við borgina
Sandilipay, skæruliðabækistöð sem
stjórnarhermenn náðu þegar á
sunnudag. Herir stjórnvalda beita
tangarsókn og sækja fram í tveim
fylkingum inn á Jaffnaskaga þar
sem Tígramir hafa ráðið lögum og
lofum um árabil.
Stjórnarhermenn hafa til umráða
fallbyssur og skriðdreka auk þess
sem flugher og floti taka þátt í að-
gerðunum en á Jaffnasvæðinu er
mikið af lónum. Fylkingarnar sækja
fram frá bækistöð nyrst á eynni,
Palaly-flugstöðinni, til suðurs og
bendir allt til þess að markmiðið sé
að umkringja Jaffna-borg, aðalvígi
skæruliða.
TUTTUGU og tveir létust og
32 slösuðust þegar spænskur
fólksflutningabíll valt á hrað-
braut í suðurhluta Frakklands
um miðnætti á sunnudag.
Björgunarmenn bera hér einn
hinna slösuðu. Farþegar x bíln-
um, sem sést í bakgrunni, voru
alls 57, flestir spænsk, frönsk
og hollensk ungmenni, á leið frá
Amsterdam til Barcelona. Bíl-
stjórinn, sem er spænskur, var
yfirheyrður af lögreglu, en
fregnir herma að hann hafi
sofnað við stýríð. Slysið átti sér
stað norður af borginni Avign-
on. Að sögn lögreglu rakst bíll-
inn á vegrið þegar hann var að
fara fram úr vörubíl og valt um
70 metra leið.
Nokkur hundruð slökkviliðs-
menn og tugir lækna voru með-
al björgunarmanna sem komu
á staðinn, þar sem beita þurfti
klippum til þess að ná fólki út
úr bílnum.
Fjórir fórust og 25 slösuðust
er slóvakískur fólksflutninga-
bíll lenti í árekstri við franskan
vörubíl í héraðinu Meuse í norð-
urhluta Frakklands í gær.
Þrjár konur fórust þegar
rúta féll um 10 metra fram af
hraðbraut skammt frá Barcel-
ona í gær. Tuttugu og tveir slös-
uðust. Bílstjóri rútunnar missti
stjórn á henni þegar hjólbarði
sprakk á bíl sem hann var að
fara framúr.
Neil Kinnock, samgöngu-
málafulltrúi Evrópusamband-
ins, sagði í gær að reglugerð
um sætisbelti og styrk farþega-
sæta í fólksflutningabílum
skráðum í Evrópusamband-
slöndunum tæki væntanlega
gildi í október á næsta ári.
Reglugerðin ætti að tryggja að
viðeigandi sætisbelti væru í rút-
um og fest sem skyldi, ennfrem-
ur væru ákvæði um hversu
sterk sjálf sætin skyldu vera.
Húshrunið í Suður-Kóreu
Fannst á lífi eftir
níu sólarhringa
Seoul. Reuter.
Loftárás á kirkju
Útvarpsstöð Tígranna sagði að
herflugvélar stjórnarinnar í
Colombo hefðu á sunnudag varpað
sprengjum á kirkju kaþólskra í Nav-
ali, skammt norðan við Jaffna-borg.
65 hefðu farist og rúmlega 100
særst.
í kirkjunni hefðu aðallega verið
heimilislausar fjölskyldur. Alls
hefðu um 150 óbreyttir borgarar
fallið í sókn stjórnarhersins og
300.000 orðið að flýja heimili sín.
Prestur safnaðarins í Jaffna, faðir
Emanuel, hefði fordæmt árásina á
kirkjuna sem hefði fylgt í kjölfar
viðvarana stjórnvalda er beðið hefðu
fólk um að halda sig heima eða leita
skjóls í opinberum byggingum.
TUTTUGU og eins árs gömlum
námsmanni var á sunnudag bjargað
úr rústum verslunarhúss í Seoul í
Suður-Kóreu, eftir að hafa legið í
níu og hálfan sólarhring grafinn í
rústum byggingarinnar. Björgunar-
menn voru löngu búnir að gefa upp
alla von um að finna fleiri á lífi og
þeim brá því í brún þegar þeir urðu
hans varir er verið var að grafa upp
lík úr rústunum.
Maðurinn, Choi Myong-Sok, var
í kjallara verslunarinnar er bygg-
ingin hrundi en þar var hann í híuta-
Andófsmaður handtekinn í Kína
Fær að hitta
bandarískan
ræðismann
Peking. The Daily Telegraph.
AÐALRÆÐISMAÐUR Bandaríkj-
anna í Kína, Arturo Macias, hitti í
gær andófsmanninn Harry Wu, sem
kínversk stjórnvöld hafa haft í haldi
síðan 19. júní. Á laugardag var til-
kynnt að Wu yrði ákærður í Kína
fyrir njósnir. Fulltrúi bandaríska
sendiráðsins í Kína greindi frá því í
gær að Macias hefði hitt Wu í gær,
en ekki fengust frekari fregir af
fundinum.
Wu flúði frá Kína til Bandaríkj-
anna fyrir 10 árum og er bandarísk-
ur ríkisborgari. Hann var 19 ár í
kínverskum fangabúðum vegna and-
ófs og eftir að hann var látinn laus
1985 hefur hann einbeitt sér að skrif-
um um kínversk fangelsi og meint
mannréttindabrot innan veggja
þeirra.
Svartur listi
Samkvæmt leynilegum, „svörtum
endurkomulista" sem lögregla í Kína
hafði og mannréttindasamtök gerðu
uppvíst um fyrr á þessu ári var Wu
einn af 49 „meðlimum andófssam-
taka erlendis", sem innflytjendaeftir-
litsmenn áttu að hafa sérstakar gæt-
ur á og meðhöndla með ákveðnum
hætti.
Þá sem töldust „persónur í flokki
eitt“ samkvæmt listanum átti að
handtaka um leið og þeir komu til
Kína. „Persónum í flokki tvö“ átti
að neita um landvist og snúa aftur
til þess lands sem þær komu frá.
„Persónum í flokki þrjú“ átti að
bregðast við eftir því sem aðstæður
kröfðust hveiju sinni. Wu var í þeim
flokki. Hann kom til Kína frá Kazak-
hstan 19. júní og var handtekinn
vegna gruns um að vegabréf hans
væri ekki sem skyldi, og héfur verið
haldið í einangrun síðan. Ferðafélaga
hans var vísað úr landi. Ekki var
látið uppi hvar Wu var í haldi og
hann fékk ekki að tala við banda-
ríska embættismenn, og er þetta
brot á samkomulagi milli landanna.
Stirð samskipti Kína
og Bandaríkjanna
Samkvæmt tilkynningum frá kín-
verskum stjórnvöldum verður réttað
í máli Wus í borginni Wuhan, í Hu-
bei-héraði, og á hann yfir höfði sér
líflátsdóm, eða að minnsta kosti
langa fangelsisvist.
Enn er of snemmt að segja til um
hver dómurinn mun verða, en ekki
leikur vafi á að stjómvöld í Peking
vilja færa sér mál hans í nyt. Bæði
er, að yfirvöld vilja refsa Wu, sem
fyrrum ríkisborgara Kína, fyrir að
hafa sagt umheiminum frá því sem
átti sér stað í kínverska „gúlaginu“,
en allar upplýsingar um það teljast
ríkisleyndarmál.
En ekki er síður mikilvægt fyrir
kínversk stjórnvöld að Wu er banda-
rískur ríkisborgari og kemur sér vel
fyrir þau að hafa hann í haldi nú
þegar samskipti Bandaríkjanna og
Kína em stirð vegna heimsóknar
forseta Tævans, Lee Teng-hui, til
Bandaríkjanna.
Þegar Bill Clinton, Bandaríkjafor-
seti, hreyfði engum andmælum við
einkaheimsókn Tævansforseta til
Bandaríkjanna í síðasta mánuði
brugðust Kínveijar við með því að
binda enda á fundahöld fulltrúa ríkj-
anna og kölluðu sendiherra sinn í
Washington heim. Síðan hófst í opin-
berum málgögnum kínverskra yfír-
valda mikil herferð gegn Bandaríkj-
unum.
Kínversk yfírvöld hefðu því varla
getað haft hendur í hári Wus á heppi-
legri tíma. Forseti Kína, Jiang Zem-
in, varaði við því fyrir nokkrum dög-
um, að Bandaríkjamenn „hlytu að
gjaída þess“ að hafa veitt Tævansfor-
seta leyfi til þess að koma til Banda-
ríkjanna.
* Reuter
CHOI Myong-Sok myndar sigurtákn
með fingrunum á bráðamóttöku spít-
alans sem hann var fluttur á.
starfi sem sölumaður í skódeild
barna. Tvær konur sem voru í kjall-
aranum lifðu einnig hrunið af en
þær drukknuðu er slökkviliðsmenn-
sprautuðu vatni á elda sem
kviknuðu í rústunum.
Choi var illa haldinn af
vökvatapi og hafði lést um
tæp sex kíló er hann
fannst.
Hann var þó nægilega
hraustur til að treysta sér
til að ræða við blaðamenn
og sagðist hafa reynt að
sofa sem mest til að láta
tímann líða. Erfiðasta
augnablikið sagði hann
hafa verið er önnur kvenn-
anna tveggja greindi hon-
um frá því að hún væri að deyja.
„Ég vildi ræða við einhvern. Það
var enginn til að tala við,“ sagði
hann.