Morgunblaðið - 11.07.1995, Qupperneq 34
34 ÞRIÐJUDAGUR 11. JÚLÍ 1995
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ
BENEDIKT
STEINGRÍMSSON
+ Benedikt Krist-
ján Steingríms-
son fæddist á
Sauðárkróki 14. júlí
1926. Hann lést í
Reykjavík 1. júlí og
fór útför hans fram
frá Árbæjarkirkju
7. júlí.
Áfram skriður æviknör,
engu skal þó kvíða.
Handan hafs í vonarvör
vinir okkar bíða.
Þetta vísukom kom mér
í hug þegar mér barst
andlátsfregn vinar míns
Benedikts Steingrímssonar. Benni,
eins og hann var jafnan kallaður
fæddist á Sauðárkróki en fluttist
komungur til Vestmannaeyja með
foreldrum sínum, Hallfríði Ingibjörgu
Kristjánsdóttur og Steingrími Bene-
diktsyni, skólastjóra í Vestmannaeyj-
um. Þau eignuðust sjö böm, sex
drengi og eina stúlku
sem þau misstu korn-
unga. Benni, sem var
þeirra elstur ólst upp í
Eyjum og lauk þar
barna- og gagnfræða-
námi. í Eyjum dvaldist
Benni við ýmis störf til
ársins 1946 en fluttist
þá til Reykjavíkur og
hóf þar störf hjá Raf-
magnseftirliti ríkisins.
Þar starfaði hann sam-
viskusamlega allt til
ársins 1993, eða hátt í
hálfa öld.
Benni var nokkuð
hár maður og vel vax-
inn, svipurinn hreinn og drengilegur.
Hann var hógvær í framgöngu og
gjaman gmnnt á fölskvalausu bros-
inu, þegar á hann var yrt. Benni var
vel gefinn maður. Hann hafði gott
vald á móðurmálinu, og var því gott
að leita til hans þegar efa bar að í
þeim efnum. Hann var unnandi góðra
bóka og fagurra lista. Tónlistin var
honum dijúg dægradvöl og hann lék
prýðisvel á píanó og gítar. Hann
stillti strengi sína reglubundið mörg
undanfarin ár við samspil þriggja
góðvina sinna.
Það var notalegt að kóma í litla
sumarbústaðinn til þeirra hjóna við
Hafravatn. Þar litu þau vonglöð til
komandi ára, þegar annríki dagsins
hamlaði ekki lengur að njóta þar
næðis og unaðar útiverunnar við
vatnið.
Á þeirra framtíðarvonir brá
skyndilega skugga þegar Benni
veiktist alvarlega síðla árs 1993 og
varð að ganga undir mjög erfiðar
aðgerðir í ársbyijun 1994. Nokkmm
bata náði Benni þó furðu fljótt eftir
aðgerðimar og hefur þar vafalaust
hjálpað til hans heilbrigða líferni og
heilsurækt. Vonir fóru því að glæðast
á ný. Því miður reyndist þetta þó
aðeins svikahlé. Um síðastliðin ára-
mót varð ljóst að ekki yrði við vágest-
inn ráðið.
Þó Benna væri orðið ljóst hvert
stefndi þá reyndi hann að hamla á
móti meðan getan leyfði. Þegar ég
talaði síðast við hann, fyrir til þess
að gera stuttu síðan, og innti hann
eftir líðan svaraði hann stillilega og
eins og hló við: „Maður reynir að
standa meðan stætt er“. Og það
gerði Benni.
Við Benni störfuðum saman um
langt árabil. Sú samvera var ánægju-
leg og með öllu hnökralaus, enda var
hann með afbrigðum dagfarsprúður
maður og hallaði aldrei á aðra, hvorki
í orði né verki. Benni var þeirrar
gerðar að hann ávann sér vináttu
hvar sem hann fór.
Fyrir okkar löngu og góðu kynni
kveð ég þennan mæta dreng með
þökk og virðingu.
Villa mín. Við hjónin vottum þér,
bömum þínum og öðmm aðstand-
endum dýpstu samúð okkar.
F. Hraundal.
+ Hildiþór Lofts-
son, fæddist i
Gröf í Miðdal í Dala-
sýslu, 17. ágúst
1905. Hann lést á
Selfossi 3. júlí síðast-
liðinn. Foreldrar
hans voru Loftur
Magnússon og Jó-
hanna Guðný
Guðnadóttir. Þau
eignuðust þrettán
börn og tólf þeirra
komust upp. Tvö af
þeim eru á lífi í dag.
Þau eru Málfríður
og Hörður.
Hildiþór kvæntist
Aðalheiði Guðnadóttur og eign-
uðust þau tvær dætur, Fjólu, f.
23. ágúst 1932, maður hennar
er Sigurður Sighvatsson og eiga
þau fjögur börn, og Onnu, f. 20.
janúar 1934. Hildiþór og Aðal-
heiður slitu sambúð.
Útför hans fer fram frá Selfoss-
kirkju í dag og hefst athöfnin kl.
14.00.
AFI er dáinn. Ekki hefði ég trúað
því að þetta tómarúm myndaðist
innra með mér þegar afi dó. Við afí
gerðum svo margt saman í gegnum
súrt og sætt. Afi var dugnaðarfork-
ur. Fyrstu minningar um afa vom
þegar hann kom á Engjaveginn á
gamlárskvöld, sprengdi kínveija við
misjafnar undirtektir, en alltaf fann
hann bandamann í mér.
Afi rak söluskála undir Ingólfs-
fjalli í mörg ár. Oft fómm við bræð-
umir þangað hjólandi, eða á puttan-
um, til þess að hjálpa honum, t.d.
við að hreinsa planið o.fl.
Afí hafði mikla veiðibakteríu.
Margar voru veiðiferðimar sem við
fómm í saman. Minnis-
stæðastar era þó ferð-
irnar sem við fórum
vestur í Dali. í þeim
ferðum sagði afi mér
margar sögur, meðal
annars þegar hann
missti föður sinn sjö ára
gamall og fjölskyldan
sundraðist. Þá gerði
maður sér grein fyrir
því að lífið hans afa
hafði ekki alltaf verið
dans á rósum. Alltaf
talaði afi vel um Dala-
menn.
Þegar afi fór að eld-
ast, fómm við margar
verslunarferðir til útlanda. Afi var
kaupmaður af lífi og sál í áratugi.
Þeir era ekki margir kaupmennirnir
sem fara einir í verslunarferðir til
útlanda 87 ára að aldri, og með tak-
markaða málakunnáttu. Mörg
skondin atvik komu fýrir í þessum
ferðum, sem ég mun geyma í minn-
ingunni.
Þegar við Agga fómm að byggja
húsið okkar í Reyrhaganum, fylgdist
afi vel með og ekki lét hann sig
muna um það að múra bílskúrinn
að innan, þá hátt á áttræðisaldri.
Þegar við eignuðumst dætur okkar
var afi tíðari gestur hjá okkur en
áður og upp frá því var hann alltaf
hjá okkur á aðfangadagskvöldum,
ánægður eftir erfiða jólaverslun.
Það fyrsta sem dætur okkar
spurðu um, þegar þær fréttu að lang-
afi þeirra væri dáinn var: Verðum
við þá ein um jólin? Já, svona er lífið.
Afi, við viljum þakka þér fyrir all-
ar stundimar sem við áttum saman.
Guð blessi þig.
Hjalti, Ragnheiður,
Þórhildur og Gunnhildur.
HILDIÞOR LOFTSSON
ATVIN N M3AUGL YSINGAR
Apple-umboðið hf.
óskar eftir að ráða
sölumann
Leitað er að dugmiklum sölumanni sem hef-
ur áhuga á tölvubúnaði og hugbúnaði tengd-
um Apple- og Macintosh-tölvum.
Starfssvið sölumanns felst í beinni sölu til
viðskiptamanna, mati á markaðsmöguleik-
um og vinnu með samstarfsmönnum að því
að sölu- og þjónustumarkmið fyrirtækisins
náist.
Viðkomandi þarf að vera þægilegur í sam-
skiptum, hafa frumkvæði í sölumálum, ná-
kvæmur í vinnubrögðum og tilbúinn að leggja
sig allan fram.
Viðkomandi þarf að hafa stúdentspróf eða
hliðstæða menntun og æskilegt er að hafa
einhverja reynslu í sölu- og markaðsstörfum.
í umsókn þurfa að koma fram nákvæmar
upplýsingar um menntun og fyrri störf.
Farið verður með allar upplýsingar sem trún-
aðarmál og öllum umsóknum verður svarað.
Þeim, sem telja sig uppfylla þær kröfur, er
að ofan greinir, er boðið að senda inn um-
sókn til KPMG Sinnu hf. fyrir 15. júlí 1995.
□□DQsinna hf.
REKSTRAR- OG STJÓRNUNARRÁÐGJÖF
Bæjarhrauni 12, Sími 565-3335
220 Hafnarfjörður Myndriti 565-1212
KPMG Sinna hf. veitir ráðgjöf á ýmsum sviðum stjórnunar- og starfs-
mannamála og einnig sérhaefða ráðningarþjónustu. KPMG Sinna
hf. er i samstarfi við KPMG Management Consulting.
Bakarf
Aðstoðarmaður óskast
Bakarinn á horninu óskar eftir aðstoðar-
manni í bakarí. Vaktavinna.
Upplýsingar gefur Magnús í síma 557 1222.
Brekkubæjarskóli, Akranesi
Gangavörður
Laus er til umsóknar staða gangavarðar í
Brekkubæjarskóla, Akranesi.
Um er að ræða 50% starf.
Umsóknarfrestur er til 24. júlí nk. og skal
umsóknum skilað á bæjarskrifstofurnar, Still-
holti 16-18, 3. hæð, á eyðublöðum sem
þar fást.
Nánari upplýsingar veitir bæjarritari
í síma 431 1211.
Bæjarritarinn á Akranesi.
Tónlistarskóli
Vopnafjarðar
Tónlistarskóli Vopnafjarðar auglýsir eftir
skólastjóra og kennara við skólann. Ráðið er
í störfin frá og með 1. ágúst 1995.
A síðasta skólaári stunduðu um 40 nemend-
ur nám við skólann. Hér er um að ræða
skemmtileg og krefjandi störf fyrir metnaðar-
fulla einstaklinga á stað, þar sem félagslíf
er fjölbreytt og menningarlíf í blóma.
Umsóknum skal skila til Vilmundar Gíslason-
ar, sveitarstjóra, fyrir 15. júlí, sem jafnframt
veitir nánari upplýsingar í síma 473 1122
eða 473 1210.
Frá fræðslustjóra
Reykjanesumdæmis
Staða aðstoðarskólastjóra við Smáraskóla í
Kópavogi er laus til umsóknar.
Umsóknarfrestur er til 30. júlí nk.
Allar upplýsingar gefur skólastjóri, Valgerður
Sn. Jónsdóttir, í síma 554 6100.
Fræðslustjórinn íReykjanesumdæmi.
Sjúkrahús Skagfirðinga,
Sauðárkróki
Hjúkrunarforstjóri
Staða hjúkrunarforstjóra við Sjúkrahús Skag-
firðinga á Sauðárkróki er laus til umsóknar.
Umsóknarfrestur er til 8. ágúst nk., en stað-
an veitist frá 1. október nk.
Umsóknir, ásamt upplýsingum um menntun
og fyrri störf, skulu sendartil Birgis Gunnars-
sonar, framkvæmdastjóra sjúkrahússins.
Nánari upplýsingar veita framkvæmdastjóri
og hjúkrunarforstjóri í síma 455 4000.