Morgunblaðið - 18.07.1995, Blaðsíða 12
12 ÞRIÐJUDAGUR 18. JÚLÍ 1995
MORGUNBLAÐIÐ
Gæðastjórnun í menntakerfinu
Ráðstefna á vegum:
Fræðsluskrifstofu Norðurlandsumdæmis eystra Gæðastjórnunarfélags Norðurlands
Háskólans á Akureyri Menntaskólans á Akureyri
Verkmenntaskólans á Akureyri
Akureyri 25.-26. ágúst 1995
Staður: Verkmenntaskólinn á Akureyri
Föstudagur 25. ágúst.
kl. 9.00 Setning
Þorsteinn Gunnarsson, rektor Háskólans á Akureyri
Ávarp verndara
Frú forseti Vigdís Finnbogadóttir
Ávarp menntamálaráðherra
Björn Bjarnason
Fræðileg undirstaða gæðastjórnunar
Straumar og stefnur í gæðastjórnun
Fyrirlesari: Þorkell Sigurlaugsson, framkvæmdastjóri þróunarsviðs og
kynningarmála, Eimskips
Fræðileg undirstaða gæðastjórnunar
Fyrirlesari: Dr. Ármann Ingólfsson, dósent Háskólanum á Akureyri
Starting up a quality system for Swedish schools - some
experiences
Fyrirlesari: Mats Söderberg, skola och barnomsorg, Svenska
Kommunforbundet
Gæðastjórnun í grunnskólum
Promoting Quality in Schools: towards a model for school
improvement
Fyrirlesari: Mel West, University of Cambridge, Institute of Education
Fagmennska kennara og mat á skólastarfi
Fyrirlesari: Dr. Ólafur Proppé, prófessor við Kennaraháskóla íslands
Gæði skóla frá sjónarhóli skólastjórnenda
Fyrirlesari: Jón Baldvin Hannesson, skólastjóri Síðuskóla
Vettvangsábyrgð: fagmennska, frumkvæði og forysta sem
grundvöllurmenntunarframfara.
Fyrirlesari: Benedikt Sigurðarson, uppeldisfræðingur og skólastjóri
Gæðastjórnun í framhaldsskólum
Gæðastjórnun í Iðnskólanum í Reykjavík: tildrög, framkvæmd
og árangur
Fyrirlesari: Gísli Bachmann, gæðastjóri Iðnskólans í Reykjavík
How to create an effective school. Experiences from Finland
Fyrirlesari: Kauko Hámáláinen, University of Helsinki, Vantaa Institute
for Continuing Education
Hvernig skila gæði framhaldsskóla sér í háskóium?
Fyrirlesari: Dr. Friðrik H. Jónsson, dósent í sálfræði
Gæðastjórnun í háskólum
Ytri og innri viðskiptavinir háskóla: aðferðir við að mæta
væntingum þeirra og kröfum
Fyrirlesari: Sigurður Jóhannesson, stjórnfræðingur
Markviss gæðastjórnun
Fyrirlesari: Runólfur Smári Steinþórsson, lektor Háskóla Islands
Total quality management at Aston University (U.K.)
Fyrirlesari: Marlene Clayton, Aston University, Director, Staff
Development.
Laugardagur 26. ágúst.
Gæðastjórnun í grunnskólum
Tillaga að gæðakerfi leikskóla
Fyrirlesari: Jónína Lárusdóttir, leikskólakennari
Altæk gæðastjórnun á leikskóla
Fyrirlesari: Snjólaug Pálsdóttir, leikskólastjóri
Gæðastjórnun og skólastarf
Fyrirlesari: Smári Sigurðsson, lektor Háskólanum á Akureyri
Gæðastjórnun í framhaldsskólum
Umbótastarf í framhaldsskóla
Fyrirlesari: Hjálmar Árnason, alþingismaður
Samningsstjórnun, árangurs- og gæðamat
Fyrirlesari: Aðalsteinn Eiríksson, skólastjóri Kvennaskólans í
Reykjavík
Gæðastjórnun í háskólum
Gæðastjórnun í kennslustofunni
Fyrirlesari: Ólafur Jakobsson, sérfræðingur Háskólanum á Akureyri.
Væntingar nemenda til háskólanáms
Fyrirlesari: Smári Kristinsson, stjórnfræðingur.
Væntingar atvinnulífsins til menntunar í gæðastjórnun
Fyrirlesari: Baldur Hjaltason, framkvæmdastjóri Lýsis hf.
Evrópskt tilraunaverkefni um mat á háskólamenntun
Fyrirlesari: Dr. Arnór Guðmundsson, sérfræðingur,
menntamálaráðuneytinu.
íslenska menntakerfið
íslenska menntakerfið
Fyrirlesari: Stefán Baldursson, skrifstofustjóri menntamálaráðuneyti.
Horft til framtíðar - pallborðsumræður
Þátttakendur: Ármann Ingólfsson, Marlene Clayton, Mats Söderberg,
Mel West, Kauko Hámáláinen og Þorkell Sigurlaugsson
Ráðstefnan er ætluð skólastjórnendum, kennurum og öllu áhugafólki um
skólamál. Ráðstefnugjald er kr. 7000,- og eru kaffiveitingar og hádegis-
verður innifalinn í ráðstefnugjaldinu. Að kvöldi 25. ágúst verður hátíðarkvöld-
verður í Bláhvammi fyrir ráðstefnugesti og þarf að skrá sig sérstaklega í hann
(verð kr. 3.000.-). Tekin hafa verið frá herbergi á góðum kjörum á Hótel Eddu,
Akureyri 461-1434 og í Kjarnalundi (Hótel Harpa) s: 461-1400. Þeim sem
óska eftir gistingu er bent á að sjá sjálfir um bókun á viðkomandi hótelum og
láta þess getið að þeir muni sitja ráðstefnuna.
Skráning á ráðstefnuna er á aðalskrifstofu Háskólans á Akureyri í síma
463-0900 og lýkur henni 1. ágúst.
Ráðstefnugjald greiðist við afhendingu ráðstefnugagna á ráðstefnustað.
AKUREYRI
Eyþór Pétursson í Baldursheimi
Aftur á byrjunarreit
FORELDRAR barna í Skútustaðá-
skóla, þeir sem búa við sunnanvert
Mývatn, höfnuðu tillögu sveitar-
stjómar um tilraun til skólahalds
til fjögurra ára og lögðu fram grein-
argerð með atkvæði sínu.
Þar kemur fram að tillögu sveit-
arstjórnar sé ekki hægt að meta
sem samkomulag heldur einhliða
tillögu sveitárstjórnarinnar þar sem
engu megi breyta. Þar sé auk held-
ur vikið verulega frá hugmyndum
starfshóps sem sent hefði frá sér
skýrslu um skólamálin. Hafnað er
löngum biðtíma yngstu nemenda
að lokinni kennslu fram að heim-
keyrslu, tekið fram að óljóst sé
hvernig fyrirhugað sé að meta fjög-
urra ára áætlunina, engar tillögur
komi fram um vegabætur eða stytt-
ingu aksturstíma í skóla og tillagan
feli ekki í sér neina framtíðarlausn
eða fyrirheit sem varði hag nem-
enda heldur sé hún einungis frestun
á ríkjandi ástandi.
Reynum eitthvað annað
Eyþór Pétursson í Baldursheimi,
talsmaður foreldra barna við Skútu-
staðaskóla, sagði að með ákvörðun
sveitarstjórnar 13. júlí væru málin
einfaldlega komin á ný á byijunar-
reit. Menn stæðu nú í svipuðum
sporum og í fyrrahaust, jafnvel
væri staðan nú verri en þá, málin
hefðu farið í hring og nú hefði hon-
um verið lokað. „Ég hef ekki trú á
því að við sættum okkur við þessa
niðurstöðu. Við hljótum að reyna
eitthvað annað. Þar er um ýmsar
leiðir að ræða en ég get ekki sagt
til um það hver verður valin. Það
hefur ekki verið athugað ennþá,
enda lá niðurstaða sveitarstjórnar
ekki fyrir fyrr en á fimmtudaginn
var.
Þetta getur til dæmis verið
spurning um það hvað við fáum til
baka frá hreppnum, hvort hugsan-
legt verður að reyna einkaskóla eða
eitthvað slíkt. Ef ráðuneytið sam-
þykkir að verði einkaskóli á Skútu-
stöðum er sá möguleiki fyrir hendi
að kennaramir verði launaðir af
ríkinu, en það breytist svo 1996
þegar allt verður fært til sveitarfé-
laganna og þá er spurningin hvað
verður gert, hvort þetta mál lendir
þá utan við kerfið. En fleira kostar
peninga í rekstri skóla, til dæmis
aksturinn og húsnæðið. Jöfnunar-
sjóður sveitarfélaga greiðir akstur
og mötuneyti nú og spurningin er
hvað hann gerir, hvort hann fellir
niður greiðslur til Skútustaða-
hrepps eða er tilbúinn að koma inn
í þetta dæmi okkar. Þetta og annað
þarf að fá á hreint.“
LJÓSMYNDASAMKEPPNI
*Áskillnn er réttur
til aö nota
verölaunamyndirnar
1 auglýsingum.
Þú færð upplýsingar og
þátttökuseðil í næstu búð.
Skilafrestur er til 31. ágúst 1995.