Morgunblaðið - 18.07.1995, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 18.07.1995, Blaðsíða 36
36 ÞRIÐJUDAGUR 18. JÚLÍ 1995 MORGUNBLAÐIÐ Tommi og Jenni Ferdinand Ég trúi því ekki að ég sitji hérna í eyðimörkinni Hlusti á „hana“ segja... hjá Steini og hlusti á hann segja ævisögu sína... afsakaðu... BREF ITL BLAÐSINS Kringlan 1103 Reykjavík • Sími 5691100 • Símbréf 569 1329 Umdeildir dómar í skaðabótamálum Frá Jóni Erlingi Þorlákssyni: DÓMAR Hæstaréttar frá 12/1 1995 og Héraðsdóms Reykjavíkur frá 20/6 sl. hafa orðið að umræðuefni í ijölmiðlum að undanfömu. Ástæð- an er sú að í dómunum voru stúlkum dæmdar lægri slysabætur en piltar mundu hafa fengið fyrir sams konar áverka. Munurinn stafar af því að stúlkum eru áætlaðar lægri tekjur en piltum. Þetta þykir mörgum hin mesta ósvinna. Ég tek undir undir það að í þessu felist ranglæti og því þurfi að breyta. En málið er flóknara en svo að mis- ræmi verði leiðrétt með einum dómi eða tveimur. Það hefur lengi verið reglan hér að slysabætur væru háðar tekjum hins slasaða árin fyrir slys, og er þá átt við fullorðið fólk, sem farið er að vinna fyrir tekjum. Því meiri tekjur þeim mun hærri bætur fyrir sama áverka. Þessi regla er konum óhagstæð vegna þess að þær hafa gegnumsnejtt lægri tekjur en karlar. Ef umræddir dómar hefðu gengið út á það að unglingsstúlkan skyldi fá sömu bætur og piltur, eins og flestum mun finnast eðlilegt, þá hefði orðið til nýtt misræmi milli hennar annars vegar og hins vegar stúlku sem komin er út á vinnumark- aðinn og vinnur fyrir miðlungstekj- um eða lægri. Það virðist því sem dómstólamir hafí átt um tvo kosti að velja, báða vonda. Annars vegar að láta mis- rétti milli pilta og stúlkna haldast, eða búa til nýtt misræmi milli ungl- ingsstúlkna annars vegar og fullorð- inna kvenna hins vegar. Dómararnir völdu fýrri kostinn. Skaðabótalögin sem tóku gildi 1. júlí 1993 leiðrétta misræmið milli pilta og stúlkna. En þá er hætt við að síðara misréttið komi upp, því að bætur til þeirra sem komnir eru út í atvinnulífíð verða eftir sem áður háðar tekjum. Ég hef komist að þeirri niðurstöðu við skoðun á miklum fjölda slysa- mála að slysabætur eigi ekki að fara eftir tekjum. Yfírgnæfandi meiri- hluti slysa, sem bætt eru, eru þess eðlis að ekkert bendir til að tjón hinna slösuðu sé í hlutfalli við tekjur þeirra. Flest slysin valda illa skil- greindum tekjumissi, svo sem áverk- ar á hálsi og baki. Stundum má jafn- vel færa að því rök að lág-launamað- urinn verði fyrir meira tapi en sá sem hærri hefur tekjurnar. í bók sem ég gaf nýlega út, Slysa- bætur og íslensk skaðabótalög, held ég því fram að aðalreglan eigi að vera sú að slysabætur séu óháðar tekjum, en fari eingöngu eftir áverk- anum sem orðið hefur. Þá verður ekkert misræmi af því tagi sem fyrr er nefnt. Ég er sannfærður um að slík aðal- regla um staðalbætur muni henta vel við uppgjör yfírgnæfandi meiri- hluta tjóna. Én undantekningar geta verið, þar sem víkja þarf frá staðlin- um. Má sem dæmi nefna ef píanó- leikari missir fíngur. í slíkum tilvik- um má leggja þá skyldu á herðar þeim sem slasast að sanna að hann verði fyrir meira tjóni en algengt er af sama áverka. JÓN ERUNGUR ÞORLÁKSSON, Skólagerði 22, Kópavogi. A öðrum stjörnum - og þessari Frá Þorsteini Guðjónssyni: HÉR KEMUR nokkuð handa lærðum mönnum og þó auðskilið hveijum manni: Sólin stendur kyrr á himni og er á hraðri ferð; þetta er hægt að stað- hæfa með réttu frá ýmsum sjónar- miðum og hrekja með rökum jafn- oft, og verður þó dagljóst yfír þessu myrka og torskilda máli um hreyf- ingu og kyrrstöðu. Hvaðeina sem staðhæft er, er rétt og rangt. Það er sjálfur Herakleitos, hinn myrki og torskildi, sem staðhæft hefur þetta, með réttu og röngu. En aldrei hefði Kerakleitos sagt að rangt og rétt væri jafngott né að það væri sama hvort er. Slíkt er ekki annað en flatneskja, stílleysi. Ég skil ekki í honum doktor Helga að taka ekki eftir því, að Herakleit- os komst næst því allra fornspekinga að skitfa eðli drauma líkt og hann sjálfur gerði; Stóumenn fylgdu hon- um víst eitthvað eftir í þessu. Ugg- laust hefur Helgi vitað þetta, en ekki talið nógu nákvæmt hjá þeim, til þess að tæki því að minnast á það. Meira lét hann með Stjörnu- Odda (ca. 1075-1145), sem komst nærri því að uppgötva draumgja- fasambandið. Pýþagóras hafði hann í hávegum, og þó allra mest fyrir setninguna um að „sálir manna'og dýra væru komnar frá stjörnunum". Þar þykir mér reyndar Herakleitos komast feti framar, því hann segir bert, og án þess að stilla upp gagn- stæðu, að „lífið sé neisti frá efni stjarnanna". Því betur sem menn íhuga þá setningu, því betur skilja þeir hve stórkostlegur sannleikur er í henni fólginn. Sumar uppgötvanir eru svo óvæntar, að margir verða blindir af því að líta í ljóma þeirra. Jafnvel skrifuð orð, sem á blaði standa, dyljast þeim. Lærður maður, sem hafði verið að lesa í Ennýal doktors Helga, fór að segja mér, að setning- in eftir Pýþagóras, (um að sálir manna og dýra væru komnar frá stjörnunum) gæti ekki verið rétt eftir höfð: sérfræðingar væru búnir að fínkemba öll grísk fornrit svo rækilega að þar væri ekkert eftir. Það gæti ekki verið að íslendingur hefði fundið þetta. Ég fór á kon- ungsbókhlöðuna í Kaupmannahöfn, fékk með Hippolytus biskup og fann setninguna; skildi jafnframt af hverju Diels og öðrum snillingum fornmálanna hafði dulist hún: kaflinn var um talnadulspeki, og allir höfðu gefíst upp á því stagli — nema doktor Helgi. Hann komst alla leið, og fann setninguna. ÞORSTEINN GUÐJÓNSSON. Allt efni sem birtist i Morgunblaðinu og Lesbók verður framvegis varðveitt í Gagnasafni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari þar að lútandi.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.