Morgunblaðið - 18.07.1995, Síða 13

Morgunblaðið - 18.07.1995, Síða 13
MORGUNBLAÐIÐ AKUREYRI ÞRIÐJUDAGUR 18. JÚLÍ1995 13 LAIMDIÐ Skemmtiferðaskip í Grímsey Grírasey. Morgunblaðið. SKEMMTIFERÐASKIP kom til Grímseyjar á fimmtudag, en fá- títt er að þau komi hingað. Skip- ið heitir Academic Ioffe og mun vera rússneskt að uppruna en með því eru bandarískir ferða- menn. Ferðinni var heitið til Grænlands en þangað var ekki unnt að komast fyrir ís. Aætlun var því breytt og á skipið að vera komið til Reykjavíkur á ný á morgun. Það er ekki injög stórt af farþegaflutningaskipi en alls munu 66 farþegar hafa stigið á land í Grímsey og fóru þeir í skoðunarferðir vítt og breitt um eyjuna. Mývatnssveit Allt skólahald í Reykjahlíð S VEIT ARSTJ ORN Skútustaða- hrepps samþykkti á fundi sínum 13. júlí með 3 atkvæðum gegn 2 að öll starfsemi Grunnskóla Skútu- staðahrepps fari framvegis fram í Reykj ahlíðarskóla. I greinargerð með samþykktinni segir meðal annars að sveitarstjórn hafí leitað faglegrar ráðgjafar hjá Fæðsluskrifstofu umdæmisins og niðurstaða hennar í skýrslu frá því í febrúar 1993 hafi verið ótvíræð: „Ljóst er að nemendafjöldi í sveitar- félaginu er ekki það mikill að for- sendur séu til þess að skipta honum og ekki fyrirsjáanlegar breytingar á nemendafjölda skólahverfísins. Því er æskilegast, skynsamlegast og hagkvæmast að sameina skólann á einum stað.“ Fræðsluskrifstofa hafí ekki tekið afstöðu til þess hvorn skólann skyldi velja, Skútustaða- skóla eða Reykjahlíðarskóla. Ágreiningur um skólaskipanina í greinargerðinni segir að þrátt fyrir andstöðu hluta íbúanna hafi sveitarstjórn ákveðið að flytja allt skólahald í Reykjahlíðarskóla, sem var nýbyggður og rúmaði allt skóla- haldið, en ákveðið að halda skólasel fyrir yngstu nemendurna í þrjú ár. Agreiningur um skólaskipanina hafí valdið óvissu og rótleysi í skóla- starfi og óánægja hluta notenda skólans með fyrirkomulagið dragi úr möguleika hans til að skila ár- angursríku starfi. Leitað hafí verið lausnar með því að skipa starfshóp með aðild ráðu- neytis, Fræðsluskrifstofu og heima- manna og hann hafi skilað greinar- gerð í maí síðastliðnum. Sveitar- stjóm hafí á grundvelli hennar end- urskoðað afstöðu sína til flutnings alls skólastarfs til Reykjahlíðar- skóla og full samstaða verið um tillögu að tilraun til skólahalds til fjögurra ára. Fyrri tvö árin yrðu 6-12 ára börn í skólaseli í Skútu- staðaskóla, seinni tvö árin yrðu all- ir nemendur í Reykjahlíðarskóla og að því loknu yrði reynslan metin og ákveðið hvort áfram yrði skóla- sel að Skútustöðum. Tillögu um tilraun hafnað Þessa tillögu hafi sveitarstjóm lagt fyrir alla hlutaðeigandi gegn því skilyrði að hún kæmi því aðeins til framkvæmda að allir aðilar sam- þykktu hana. Foreldrar barna við Skútustaðaskóla hafi hafnað tillög- unni. Itrekaðar tilraunir til að ná fram skólaskipulagi sem friður ríki um hafi reynst árangurslausar og sveitarstjórn ákveði nú skólaskipu- lag samkvæmt gmnnskólalögum. Sáttaleiðir hafa ekki fundist Sigurður Rúnar Ragnarsson, sveitarstjóri í Skútustaðahreppi, sagði frá því að hugmyndin um að færa skólahald í hreppnum í Reykjahlíðarskóla hafi verið mjög hörð andstaða gegn því að leggja skólasetrið á Skútustöðum af, svo hörð að það hafi valdið erfíðleikum í skólastarfinu og bitnað á börnun- um. Því hafi verið leitast við með öllum hætti að koma málum þannig fyrir að menn gætu verið sáttir við skólaskipulagið. Sveitarstjórn hafi hvað eftir annað bakkað frá tillög- um sínum án þess þó að láta af hugmyndum um einn skóla sem lokamark. í síðustu tilraunum sveit- arstjórnar hafi verið sett upp fjög- urra ára áætlun þar sem fyrri tvö árin yrði skólahaldið eins og sunn- anmenn vildu og seinni tvö árin eins og sveitarstjórn teldi best og báðar leiðir þannig reyndar og að þeim tíma liðnum yrðu málin öll metin og á grundvelli þess yrði ákveðið um framhaldið. Miðstöð fólks í atvinnuleit MIÐSTÖÐ fyrir fólk í atvinnuleit á Akureyri hefur verið rekin undan- farin ár í Safnaðarheimili Akur- eyrarkirkju. Yfir sumarmánuðina verður starfsemi miðstöðvarinnar í handverks- og tómstundamiðstöð- inni Punktinum. A miðvikudögum verður kaffí og brauð á borðum í Punktinum og prestar verða til viðtals. Einu sinni í mánuði verður samverustund í Safnaðarheimilinu með auglýstri dagskrá. A morgun, miðvikudag, verður samverustund í Punktinum klukkan 15.00. Þangað eru velkomnir allir sem eru atvinnulausir og í atvinnu- leit. Morgunblaðið/Sigríður Ingvarsdóttir. ERLENDIR ferðamenn fylgjast áhugasamir með söltuninni. Erlendir ferðamenn skoða síldar- minjasafnið Siglufirði - Hingað til hefur Siglufjörður ekki getað státað af mörgum erlendum ferðamanna- hópum á sumrin, en nú er að verða breyting þar á, því Úr- val/Útsýn í samvinnu við Síldar- minjasafnið hefur undanfarnar helgar komið með erlenda ferða- mannahópa og mun þar verða framhald á næstu helgar. Er þessir erlendu ferðalangar koma til Siglufjarðar hafa þeir þegar ferðast víðsvegar um land- ið og skoðað ýmislegt, s.s. gamla bóndabæi og kynnt sér búskapar- hætti fyrri tíma, en á Siglufirði sjá þeir m.a. söltunarsýningar, fá leiðsögn um Síldarmipjasafnið og fræðslu um hvemig Iífíð gekk fyrir sig í síldinni og um þá þjóð- félagslegu þýðingu sem síldarút- vegurinn hafði. Að sögn Örlygs Kristfinnsson- ar safnvarðar hafa fararsljórar og ferðamenn virst mjög ánægðir með heimsókn sína á safnið og sjá þeir e.t.v. betur samhengið í þvi hvað kom þjóðinni út úr mold- arkofanum og til nútíma lifnaðar- hátta, en það var einmitt síldin og þorskurinn. Morgunblaðið/Arnór Ragnarsson SVEINN Ingi Þórarinsson með minkinn framan við Gerðaveg 16 þar sem sást fyrst til dýrsins. Minkur í garðinum í Garðinum Garði - „Við vorum bara að horfa út í garðinn hjá okkur um sólarlags- bil á laugardagskvöldið þegar við rákum augun í þetta kvikindi þar sem hann var að sniglast í blóma- beðinu.“ Það er Sveinn Ingi Þórarinsson sem segir frá, en hann býr að Gerða- vegi 16 ásamt foreldrum sínum. „Ég snaraði mér út, greip einn af uppáhalds steinunum hennar mömmu, og réðist til atlögu. Mink- urinn stökk undir bíl en eftir nokk- urt þvarg náði ég að drepa hann. Það kom í ljós að þetta var lítið dýr, trúlega hvolpur, sem eitthvað hefír villst af leið því við höfum aldr- ei orðið vör við mink hér áður“ sagði Sveinn Ingi. Að sögn fulltrúa á bæjarskrifstof- unum í Keflavík eru í dag greiddar 1.100 krónur fyrir minkaskottið. Morgunblaðið/Líney Sigurðardóttir GUÐRUN Krisljánsdóttir héraðslæknir á Þórshöfn ásamt forrráðamönnum félaganna fiinm, starfsfólki heilsugæslustöðvar og heilsugæslustjórn. Hjartalínuritinn kominn Þórshöfn - Eftir samvinnu fímm félaga er markinu loksins náð og hjartalínuriti kominn á Heilsugæslu- stöðina hér á Þórshöfn. Það voru Rauða kross deildin, slysavarnadeild kvenna, Kvenfélagið Hvöt, Lions- klúbburinn Fontur og Kvenfélag Þistilfjarðar sem tóku saman hönd- um og öfluðu íjár til kaupa á þessu nauðsynlega tæki, sem hingað kom- ið kostar tæpa hálfa milljón króna. Tækið var afhent formlega á Heilsugæslustöð Þórshafnar og mættu þar forráðamenn félaganna og starfsfólk heilsugæslustöðvar. Guðrún Kristjánsdóttir heilsugæslu- læknir útskýrði notkun tækisins og sýndi myndband þess efnis. Félög- unum fimm voru færðar bestu þ'akk- ir, bæði munnlega og í skrautrituð- um skjölum og höfðu menn á orði hve miklu væri hægt að áorka ef allir legðu saman. Heilsugæslustöðvar um land allt eru mikilvægar stofnanir og almenn- ingur gerir kröfur um að þær séu vel tækjum búnar. Töluvert vantar upp á að þessar stofnanir eigi þau tæki sem æskilegt er til þess að þjóna dreifbýlinu. Sem dæmi má nefna augnsmásjá en að sögn Guðrúnar Kristjánsdóttur héraðslæknis þyrfti slíkt tæki að vera til á svæðinu. Það gæti verið verðugt verkefni fyrir félagasamtök á Þórshöfn, Raufarhöfn og Kópaskeri að safna fyrir augnsmásjá en þessi svæði hafa verið sameinuð undir einni heilsugæslustjórn. Að afhendingu lokinni var gestum boðið í myndarlegar veitingar á heilsugæslustöðinni og er ekki frá- leitt að kræsingarnar hafi kynt und- ir nýjum söfnunaráhuga hjá gestum. L.S.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.