Morgunblaðið - 18.07.1995, Side 33
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
ÞRIÐJUDAGUR 18. JÚLÍ 1995 33
+ Valgerður
Skarphéðins-
dóttir fæddist 5.
nóv. 1899 á Tann-
stöðum, Hrútafirði,
en ólst upp í Guð-
laugsvík, Bæja-
hreppi, Stranda-
sýslu. Hún lést á
sjúkrahúsinu á
Akranesi 11. júlí
1995. Valgerður var
dóttir hjónanna
Skarphéðins Jó-
hannssonar og Guð-
rúnar Sæmunds-
dóttur, hún var 5. í
röð sjö systkina.
Hinn 24. september 1921 giftist
Valgerður Magnúsi Gíslasyni
bónda á Kirkjufelli í Eyrasveit.
Hann lést 22. nóv. 1977. Börn
Valgerðar og Magnúsar eru: 1)
Gunnar Skarphéðinn, f. 11. sept.
1922, d. 4. des. 1937. 2) Gísli, f.
7. júní 1925, bifreiðastjóri á
Grundarfirði. Maki Gróa Guð-
jónsdóttir, d. 15. nóv. 1985. Börn
þeirra eru sjö. 3) Haraldur, f.
19. maí 1927, rafvirki í Reykja-
vík. Maki Þóra M. Hreiðarsdótt-
ir. Börn þeirra eru þrjú.'4) Elsa,
MINNINGARNAR um ömmu eru
einungis góðar. Það var alltaf gott
og friðsælt að koma til hennar. Hún
var svo hlý og hafði nóg hjartarúm
fyrir öll barnabörnin. Eflaust hefur
stundum rignt þegar ég kom í heim-
sókn en það hefur gleymst, því í
minningunni eru bara sólardagar.
Amma var fróð kona og kunni vel
að segja frá. Það var einstaklega
gaman að heyra hana segja frá ýmsu
sem hafði hent hana í lífinu. Jafn-
framt lagði hún áherslu á að allir
ættu að vera sannir og heiðarlegir
og eftir því lifði hún sjálf.
Söknuðurinn er sár en minning-
arnar ylja. Ég er þakklát fyrir allt
sem amma gaf mér til að hafa áfram
f. 20. nóv. 1928,
húsmóðir í Reykja-
vík, d. 20. okt. 1983.
Maki Björn Jón
Lárusson. Börn
þeirra eru fjögur.
5) Alfreð, f. 7. júní
1930, stýrimaður á
Grundarfirði. Maki
Kristín Friðfinns-
dóttir. Börn þeirra
eru fimm. 6) Aðal-
heiður, f. 29. jan.
1932, starfsstúlka á
Grundarfirði. Maki
Magnús Alfsson.
Börn þeirra eru
tvö. 7) Stella, f. 9.
jan. 1936, starfsstúlka í Reykja-
vík. Maki Þórir Þórðarson. Börn
þeirra eru fjögur. 8) Gunnar
Skarphéðinn, f. 23. mars 1942,
sjómaður á Grundarfirði. Maki
Friðsemd I. Ólafsdóttir. Börn
þeirra eru þrjú. Einnig ólu Val-
gerður og Magnús upp syst-
urson Valgerðar, Lýð Valgeir
Lárusson, f. 18. sept. 1939, d.
25.Jan. 1964.
Utför Valgerðar fer fram frá
Grundarfjarðarkirkju í dag og
hefst athöfnin klukkan 14.00.
á lífsleiðinni. Guð blessi minningu
hennar.
Ásta.
í fáum orðum langar okkur systk-
inin að skrifa nokkur þakkar- og
kveðjuorð til hennar Valgerðar
ömmu, sem andaðist á Sjúkrahúsi
Akraness 11. júlí 1995, þá 95 ára
að aldri. Þrátt fyrir háan aldur bar
amma aldur sinn vel og var alltaf
vel til höfð. í heimsóknum til ömmu
var okkur alltaf tekið með opnum
örmum og var þá mikið skrafað og
rætt saman. Aldrei fórum við með
tóman maga frá henni ömmu því nóg
átti hún af kræsingum. Amma átti
það til að yrkja ljóð og orti hún fal-
legt ljóð um Hörð Grétar sem honum
þykir mjög vænt um og heldur mikið
upp á.
Eftir að við fluttumst frá Grund-
arfirði fækkaði heimsóknum til
ömmu, en þegar farið var vestur var
tækifærið notað og amma heimsótt.
Amma bar hlýju til allra og leið-
beindi okkur inn á réttu brautir lífs-
ins og var ætíð að gefa okkur góð
ráð.
Elsku amma, við kveðjum þig með
söknuði en vitum að þú ert komin í
góðra manna hendur og að það verð-
ur vel tekið á móti þér eins og þú
hefur alltaf tekið á móti okkur.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
(V. Briem.)
Guðrún, Hörður Grétar
og Ólafur.
Elsku amma, það kom að því að
við misstum þig. Oft hefur sú hugsun
flogið í gegnum huga okkar undan-
farin ár þegar veikindi hafa heijað
á þig að nú mundum við missa þig
en alltaf barðist þú á móti og náðir
að sigra. Núna hafði Hann betur og
eftir situr fjölskyldan þín stóra og
lætur hugann reika um liðna tíð.
Okkur systkinunum er efst í huga
þegar við lítum til baka hve gott og
gaman það var að heimsækja ykkur
afa í Kirkjufell. Til þeirra ferða var
lengi hlakkað enda voru þær há-
punktur sumarsins. Alltaf beiðst þú
niðri við hlið og tókst fagnandi á
móti gestunum og þegar inn í bæ
var komið beið okkar uppdekkað
borð með ijúkandi kaffi og heima-
bökuðu meðlæti. Heimili ykkar afa
á Kirkjufelli var ætíð öllum opið og
á sumrin var þar mikið líf og fjör.
Barnabörnin sóttu mjög í að koma
til ykkar og þeim var alltaf vel tek-
ið. Frá Kirkjufelli eigum við systkin-
in okkar kærustu æskuminningar.
Ekki var síður gott að koma til
ykkar eftir að þið fluttuð inn í Grund-
arfjörð. Þar bjugguð þið ykkur fal-
legt heimili þar sem hannyrðir og
bækur voru í hávegum höfð. Sein-
ustu árin áttir þú heimili á dval-
arheimilinu Fellaskjóli á Grundar-
firði. En þó að aðstæður þínar breytt-
ust í tímans rás og heilsunni hrakaði
kom alltaf sama spurningin upp í
huga okkar á hveiju vori: „Hvenær
eigum við að fara vestur og heim-
sækja ömmu?“ Móttökurnar voru
alltaf jafneinlægar, hlýjan og ástin
til ættingjanna var einstök.
Amma, þú varst falleg kona og
vaktir athygli fyrir gáfur og glæsi-
leika hvar sem þú komst. Þú varst
góður hagyrðingur og eru ófáar vís-
urnar sem þú ortir um afkomendur
þína. Það var aðdáunarvert hvað þú
fylgdist vel með og hvað það var þér *»
mikilvægt að allt þitt fólk hefði það
sem best.
Að lokum viljum við þakka þér
fyrir hlýju og góðvild sem þú auð-
sýndir okkur og fjölskyldum okkar
allt fram á síðasta dag.
Mitt kærasta yndi, við kveðjum þig nú
með klökkvandi saknaðar tir
með þökk fyrir allt, sem okkur varst þú,
og enn þá skal okkur varða
þótt líkaminn ljúfi sé nár.
(H.H.)
Guð blessi minningu elskulegrar
ömmu okkar.
Þórdís, Vala, Magriús
og Gunnar Þór.
ERFIDRYKKJUR
. Krossar
áleiði
I vÍQarlit oq máloSir.
Mismunondi mynsiur, vönduo vinna.
Simi 91-35929 og 35735
H
Styrktarfélag krabbamelnBBjúkra barna
Minningarkort Styrktarfélags
Krabbameinssjúkra barna
fást hjá félaginu
í síma 676020. Ennfremur í
Garðsapóteki og
Reykjavíkurapóteki.
+
TORFI BRYIMGEIRSSON
frá Búastöðum,
Vestmannaeyjum;
til heimílis í Akurgerði 62,
Reykjavik,
sem lést 16. júlí, verður jarðsunginn frá
Hallgrímskirkju miðvikudaginn 26. júlí
kl. 13.30.
Erla Þorvarðardóttir,
Njáll Torfason, Kristin Arsælsdóttir,
Bryndís Torfadóttir, Hólmgrímur Þorsteinsson,
Bryngeir Torfason, Sigrún S. Hreiðarsdóttir,
Guðmundur H. Torfason, Björg Jakobina Þráinsdóttir,
barnabörn og barnabarnabarn.
VALGERÐUR SKARP-
HÉÐINSDÓTTIR
ATVINNUA UGL YSINGA R
„Au pair“ - London
„Au pair“ óskast sem fyrst til íslenskrar fjöl-
skyldu í London til að gæta 4ra ára drengs
sem byrjar í skóla í haust.
Upplýsingar gefur Gunnar í símum 552-4911
og 554-3907.
Sölufólk - dagvinna
Dugmikið sölufólk óskast í dagvinnu við sölu
á skráningum í bókina íslensk fyrirtæki
1996. Viðkomandi verður að hafa bíl til
umráða. Vinna hefst í byrjun ágúst og
stendur í 2-3 mánuði. Góðir tekjumöguleikar.
Nánari upplýsingar gefur Hildur Kjartans-
dóttir í síma 515 5631.
IRGDI
BÓKA & BLAÐAÚTGÁFA
Seljavegur 2, 101 Reykjavík.
Grunnskólinn Þingeyri auglýsir
Kennarar
Getum enn bætt við okkur tveimur hressum
kennurum. Ýmis hlunnindi í boði. Nánari
upplýsingar veitir Garðar Vignisson, skóla-
stjóri, í heimasíma 456 8311.
Umsóknarfrestur er til 30. júlí.
Afgreiðsla
-erlendar bækur
Óskum að ráða starfskraft til framtíðarstarfa
í verslun okkar, sem býður upp á eitt
landsins mesta úrval erlendra bóka. Starfið
krefst þekkingar og áhuga á erlendum
bókum.
Skriflegar umsóknir sendist okkur fyrir
föstudaginn 21. júlí nk.
bók/kla, /túdervta,
v/Hringbraut- 101 Reykjavík
Leikskólakennarar
athugið
Starf leikskólastjóra við Leikskólann Hraun-
brún, Bifröst, er laust til umsóknar.
Einnig starf leikskólakennara og þroskaþjálfa
við leikskólann Klettaborg, Borgarnesi.
Upplýsingar um fyrra starfið gefur Gróa
Ragnvaldsdóttir, sími 435 0037, en hin síð-
ari Ásdís Baldvinsdóttir, sími 437 1425.
Umsóknir berist undirritaðri bæjarskrifstofu
Borgarbyggðar fyrir 28. júlí nk.
Félagsmálastjórinn í Borgarbyggð.
RADAéGí YSINGAR
TIL SÖLU
Motorola GSM
Nýr Micro t.a.c. 5000 selst á 3.800 n.kr.
Sími 00 47 77093785
er til sölu, ef viðunandi boð fæst. Elsta starf-
andi bílasala landsins, 40 ára, á besta stað í
borginni, fyrir neðan Perluna. Sími 551 5014.
SUMARHÚS/-L ÓÐIR
Sléttuhlíð, Hafnarfirði
Óskum eftir sumarhúsi við Sléttuhlíð, Hafnar-
firði, til kaups.
Lysthafendur skili inn nöfnum og nánari upp-
lýsingum á afgreiðslu Mbl., merktum:
„KE - 071995“.