Morgunblaðið - 18.07.1995, Side 35
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 18. JÚLÍ 1995 35
FRÉTTIR
Heimsklúbburinn
Kanadakynning á Hótel Sögu
ÁHUGI íslendinga á Kanada virð-
ist vaxandi, ef marka má eftir-
spurn eftir ferð Heimsklúbbsins
til Vestur-Kanada í september.
Félög íslendinga bæði í Calgary
og Vancouver búa sig af kappi
undir móttökur þessa hóps og efnt
verður til veisluhalds á báðum
stöðum, þar sem þátttakendur í
ferðinni eru boðsgestir Vestur-
Islendinga.
Félag íslendinga í Vancouver
mun annast kynningu fyrir gestina
í einn dag af fimm, sem dvalist er
í Vancouver. Til þessa er efnt til
að styrkja samtök og samband
þjóðanna og efna til áframhald-
andi kynna og vináttu.
Kanadaferð Heimsklúbbsins er
nærri uppseld, en vegna tilmæla
margra gengst Heimsklúbburinn
fyrir Kanadakynningu á Hótel
Sögu í kvöld. Þar munu fararstjór-
arnir Ari Trausti Guðmundsson,
jarðfræðingur, og Ingólfur Guð-
brandsson, forstjóri, lýsa Vestur-
Kanada og Klettafjöllunum sér-
staklega, jafnframt því að lýsa til-
högun ferðarinnar, þar sem mikið
EINS og undanfarin ár verða styrk-
ir veittir úr Menningarsjóði vest-
firskrar æsku til framhaldsnáms
sem vestfirsk ungmenni geta ekki
stundaði í heimabyggð sinni.
Að öðru jöfnu njóta eftirtaldir
forgangs um styrki úr sjóðnum:
1. Ungmenni sem misst hafa
fyrirvinnu, föður eða móður, og ein-
stæðar mæður.
2. Konur, meðan fullt launajafn-
rétti er ekki í raun.
3. Ef engar umsóknir eru frá
Vestfjörðum koma umsóknir Vest-
firðinga búsettra annars staðar.
Félagssvæði Vestfirðingafélags-
er til vandað og m.a. búið á bestu
hótelum Kanada. Ferðin hefst 13.
september og stendur í 15 daga.
ins er ísafjarðarsýslur, ísafjörður,
Stranda- og Barðastrandarsýslur.
Umsóknir skal senda fyrir lok
júlí til Menningarsjóðs vestfirskrar
æsku, b.t. Sigríðar Valdemarsdótt-
ur, Birkimel 8b, 107, Reykjavík, og
skulu meðmæli fylgja frá skóla-
stjóra eða öðrum sem þekkja við-
komandi nemanda, efni hans og
aðstæður.
Síðasta ár voru veittar 220 þús.
kr. til tveggja ungmenna sem eru
frá_ Vestfjörðum.
í stjórn sjóðsins eru Sigríður
Valdemarsdóttir, Torfi Guðbrands-
son og Haukur Hannibalsson.
Styrkir úr Menningar-
sjóði vestfirskrar æsku
Reiðskólinn Hrauni
Grímsnesi
Fyrir 10-15 ára
Erum að bóka
í síðsumars-
námskeiðin.
Sími 486 4444
Blab allra landsmanna!
- kjarni málsins!
VINNINGSTÖLUR LAUGARDAGINN _ 15.07.1995 |
(§)(£) 3)
VINNINGAR FJÖLDI VINNINGSHAFA UPPHÆÐ Á HVERN VINNINGSHAFA
1.5 ai 5 0 2.034.501
2.PIÚÍ5? 88.950
3. 4af 5 71 6.480
4. 3af5 2.360 450
Heildarvinningsupphæö: 3.823.431
m : ÆfifitS
BIRT MEÐ FYRIRVARA UM PRENTVILLUR
R AÐ AUGL YSINGAR
Glæsileg sumarhústil sölu
Getum afhent nú þegar tilbúin heilsárs sum-
arhús, með landi ef óskað er. Húsin eru til
sýnis við Húsasmiðjuna, Skútuvogi 16, Rvík,
og hjá Sumarhúsum Hamraverks hf. í Skúta-
hrauni 9, Hafnarfirði, sími 555 3755.
I fORVAL
Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar,
fyrir hönd Hitaveitu Reykjavíkur,
áformar að bjóða út einangrun og
frágang samskeyta á hlífðarkápum
hitaveitupípna. Útboðið verður lokað
að undangengnu forvali.
Hlífðarkápurnar sem ganga skal frá
eru plastpípur, PEH 90 mm til 400
mm í þvermáli. Gengið er frá sam-
skeytunum ofan í skurði eftir að aðr-
ir verktakar hafa lokið við að sjóða
saman stálpípur. Vinnusvæðið er á
öllu veitusvæði Hitaveitu Reykjavíkur.
Lögð er áhersla á að væntanlegir
bjóðendur hafi reynslu af verkum þar
sem gerðar eru miklar og stöðugar
gæðakröfur. Hinsvegar er ekki nauð-
synlegt að bjóðendur hafi áður unnið
samskonar verk og hér um ræðir.
Starfsmenn verktaka þurfa að Ijúka
námskeiðum í einangrun og frágangi
samskeyta áður en vinna hefst.
Forvalsgögn eru afhent á skrifstofu
vorri, Fríkirkjuvegi 3, Reykjavík, gegn
kr. 5.000 skilatryggingu.
Forvalsgögnum skal skila á sama
stað fyrir kl. 16.00, þriðjudaginn 25.
júlí 1995.
INNKAUPASTOFNUN
REYKJAVÍKURBORGAR
Fríkirkjuvegi 3 - Sími 552 58 00 - Fax 562 26 16
UTBOÐ
F.h. Gatnamálastjórans í Reykjavík,
er óskað eftir tilboðum í ýmis smá-
verk. Verk þetta er nefnt:
Ýmis smáverk vestan
Reykjanesbrautar.
Helstu magntölur eru:
Uppúrtekt
Fylling
Mulinn ofaníburður
Hellu-og steinalögn
Þökur
Verkinu skal að fullu lokið fyrir
1. nóvember 1995.
Útboðsgögn verða afhent á skrif-
stofu vorri, Fríkirkjuvegi 3, Reykjavík
frá og með þriðjudeginum 18. júlí,
gegn kr. 10.000 skilatryggingu.
Tilboðin verða opnuð á sama stað
miðvikudaginn 26. júlí 1995, kl. 11.00
f.h.
3.700 rm
3.100 rm
2.800 fm
1.100 fm
1.100 fm
77/5
INNKAUPASTOFNUN
REYKJAVÍKURBORGAR
Fríkirkjuvegi 3 - Sími 552 58 00 - Fax 562 26 16
VITA-OG HAFNAMÁL
Stálþil - Krossanesi
Hafnarstjórn Akureyrar óskar eftir
tilboðum í gerð stálþilsbakka.
Verkefnið er fólgið í að reka 106 m langt
stálþil, sprengja 90 m skurð fyrir þilið á
12 m dýpi, fylla um 8,000 rm af fyllingarefni
og ganga frá þybbum á þili.
Verkinu skal lokið eigi síðar en 15. desem-
ber 1995.
Útboðsgögn verða afhent á Vita- og hafna-
málastofnun, Vesturvör 2, Kópavogi og á
skrifstofu Akureyrarhafnar frá og með þriðju-
deginum 18. júlí 1995 gegn 5000 kr. greiðslu.
Tilboð verða opnuð á sömu stöðum fimmtu-
daginn 3. ágúst 1995 kl. 14.00.
Hafnarstjórn Akureyrar.
Aðalstöðvar KFUM
og KFUK, Holtavegi 28
Samkoma í kvöld kl. 20.00.
Vitnisburði hafa Helgi Elíasson
og Sverrir Axelsson.
Allir velkomnir.
Hvítasunnukirkjan
Fíladelfía
Kraftaverk í Laugardalshöll!
Samkoma með ameríska predik-
aranum Benny Hinn í Laugar-
dalshöll í kvöld kl. 20.00.Við vilj-
um benda fólki á að mæta tíman-
lega því í fyrra þurftu margir frá
að hverfa.
Höllin opnuð kl. 18.00.
Aðgangur ókeypis og allir vel-
komnir meðan húsrúm leyfir.
Hallveigarstíg 1 • sími 614330
Dagsferð laugard. 22. júli
Kl. 09.00 Búrfell í Þjórsárdal.
Fjallasyrpa. 4. áfangi.
Dagsferð laugard. 22. júlí
Kl. 09.00 Árnes, eyjan í Þjórsá.
Dagsferð sunnud. 23. júlí
Kl. 10.30 Brynjudalur - Hrísháls
- Botnsdalur. Brottför frá BSÍ,
bensínsölu, miðar við rútu. Einn-
ig uppl. i Textavarpi bls 616.
Helgarferðir 21 .-23. júlí
1. Tröllakirkja - Holtavörðu-
heiði. Gengið um fáfarnar slóðir.
Gist í tjaldi. Fararstjóri Gunnar
S. Gunnarsson.
2. Básar við Þórsmörk. Göngu-
ferðir við allra haefi, góð gistiað-
staða í skála og fyrir tjaldgesti.
Fararstjóri Eyrún Osk Jensdóttir.
Útivist.
'smgar
Halla Sigurgeirsdóttir,
andlegur læknir og miðill.
Sjálfsuppbygging: Áruteiknun/
tvö form, verundarmyndir/leið-
arljós.
Sími 554 3364.
FERÐAFELAG
ÍSLANOS
MÖRKINNI 6 - SlMI 568-2533
Miðvikudaginn 19. júlf:
Kl. 08.00 Þórsmörk - dagsferð
- verð kr. 2.700.
Kl. 20.00 Esjuhlíðar, skógarstíg-
ar (kvöldferð) - verð kr. 800.
Helgarferðir 21 .-23. júlí
1) Landmannalaugar - Hrafn-
tinnusker. Gist eina nótt í Hrafn-
tinnuskeri.
2) Þórsmörk. Gist í Skagfjörðs-
skála - gönguferöir.
3) 22.-23. júlí - kl.08.00 -
Fimmvörðuháls - gengið frá
Skógum - gist eina nótt í Þórs-
mörk.
Sumarleyfisferðir F.Í.:
1) 27. júlí-1. ágúst (6 dagar):
Aðalvík (gist í tjöldum).
2) 4.-7. ágúst (4 dagar): Hest-
eyri í Jökulfjörðum. Gist í húsum
og tjöldum.
3) 21 .-25. júlí: Strandir - Drang-
ar - Ingólfsfjörður. Öku-
/gönguferð. Gist í svefnpoka-
plássi, á Finnbogastöðum,
Dröngum og Laugahóli. Siglt að
Dröngum frá Munaðarnesi.
Margir áhugaverðir staðir heim-
sóttir.
4) 22.-27. júlí: Á Lónsöræfum
(6 dagar). Gist í Múlaskála á
Lónsöræfum. Gönguferðir dag-
lega i stórbrotnu landslagi.
5) 25.-30. júlí: Hveravellir -
Geitland (6 dagar). Göngutjöld.
6) 29. júlí-3. ágúst: Húsavik -
Þeistareykir - Mývatn. Flogið
til Húsavíkur og gengið þaðan
sem leiö liggur um Þeistareyki,
Gæsadal að Mývatni þar sem
litast verður um á svæðinu.
Ferðafélagið skipuleggur ódýr-
ar sumarleyfisferðir með stað-
kunnugum fararstjórum. Kynn-
ist eigin landi í ferðum með
Ferðafélaginu.
Ferðafélag (slands.
Kjarni málsins!