Morgunblaðið - 12.08.1995, Síða 9
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 12. ÁGÚST 1995 9
Veiðijakkar og buxur
á mjög góðu verði
Jakkl m/lausu fóðri kr. 4.970
Buxurkr, 2.300
5% staðgreiðsiuafsláttur,
einnig af póstkröfum
greiddum innan 7 daga.
ÚTÍLÍFf
GLÆSIBÆ - SÍMI 581 2922
FRÉTTIR
Bretar áhugasamir um samstarf við íslendinga á sviði hugbúnaðar
Læknablaðið
Varað við
lokunum
geðdeilda
í RITSTJÓRNARGREIN nýjasta
tölublaðs Læknablaðsins er þungum
áhyggjum lýst yfir þeirri stefnu sem
niðurskurðurinn í heilbrigðisþjón-
ustunni hafi tekið, þegar byrjað sé
að loka geðdeildum. Eindregið er
varað við afleiðingum slíkra að-
gerða.
Áherzla er lögð á það, að lokanir
sjúkradeilda, sérstaklega geðdeilda,
bitni mjög harkalega á sjúklingum
og aðstandendum þeirra. Sjúkling-
arnir fái ekki nauðsynlega meðferð
og bata þeirra seinki með ófyrirsjá-
anlegum afleiðingum. Mikið sé lagt
á aðstandendur, sem bundnir eru við
umönnun og fátt sé erfiðara en að
annast mikið veikan geðsjúkling.
Á geðdeild Landspítalans hafa
ekki fengizt heimildir til að fjölga
starfsfólki frá 1981, „þrátt fyrir sí-
vaxandi álag á illa launað starfsfólk,
sem leggur sig fram um að gera
sitt bezta,“ eins og segir orðrétt í
greininni.
Faglært starfsfólk lykilatriði
Höfundur ritstjórnargreinar
Læknablaðsins, Tómas Helgason
yfirlæknir, telur að niðurskurðurinn
og lokanir sjúkradeilda verði lands-
mönnum dýr, ekki aðeins vegna
þjáninga sjúklinganna og aðstand-
enda þeirra, heidur einnig vegna
þess að hætta er á að bata seinki,
fleiri verði fatlaðir til langs tíma,
fleiri þurfi að dvelja lengur á sjúkra-
húsi og fleiri þurfi örorkulífeyri og
félagslega aðstoð.
Garðplöntu-
SKYNDI8ALA
Allt að f
aðefns 2 dagar
iim illi IIÆGT
AI) PLANTA
afsláttur
Aukin samvinna til góðs
Fjölærar plöntur
fjallafuraminni
Fjallafura ttærri
Garðróúr
Kvittir (marfar?erðir)
$kó?arplöntur íbökkum
Ltjn?rÓ«r((tórar)
keypt hluta í til að mynda breskri
bílaframleiðslu, sem sjái mörgum
bílaframleiðendum annars staðar í
Evrópu fyrir varahlutum og tækja-
búnaði.
„Breskur bílaiðnaður er fjölþjóð-
legur í dag og leggur t.d. þýskum
bílaframleiðendum til afar mikil-
vægan hluta af þeim tækjabúnaði
sem þeir nota í sína bíla. Erlendir
fjárfestar, t.d. Japanir, sem hafa
keypt stóra hluti í breskum fyrir-
tækjum, sjá sér einnig mikinn hag
í að viðhalda tengslunum við Evr-
ópu með evrópsku yfirbragði fram-
leiðslunnar, evrópskum birgjum
o.s.frv., og miða við Evrópu sem
aðalmarkað sinn. Einnig er vert að
minna á að mörg bresk fyrirtæki
eru áberandi fjárfestar á heimsvísu,
eins og Bandaríkjamenn hafa t.d.
orðið áþreifanlega varir við þar sem
Bretar eru stærri fjárfestar en Jap-
anar eins og sakir standa," segir
Mason.
Samkeppni til góðs
Mason kemur til íslands nokkr-
um sinnum á ári og hefur í heim-
sóknum sínum fundað með mörgum
helstu forkólfum íslensks athafna-
lífs. Hann segist vilja horfa til við-
skiptatengsla hérlendis fyrir utan
Reykjavík og hann geti greint mikla
ánægju á landsbyggðinni með þá
stefnu að horfa á landið sem mörg
aðskilin markaðssvæði en einblína
ekki eingöngu á höfuðborgarsvæð-
ið.
„Ég trúi staðfastlega á sam-
keppni og veit af eigin reynslu að
hún eykur val neytenda og lækkar
verðlag," segir Mason.
kr. 149
kr. 590
kr. 890
kr. 398
kr. 299
kr. 347
kr. 1.490
FYRIR um þremur
árum bauð Michael
Heseltine aðstoðarfor-
sætisráðherra Eng-
lands, þá viðskiptaráð-
herra og forseti breska
viðskiptaráðsins,
breskum fyrirtækjum
að leggja fram krafta
100 framámanna í
bresku viðskiptalífi, í
því skyni að hleypa af
stokkunum miklu
kynningar- og við-
skiptaátaki á 80 helstu
markaðssvæðum Eng-
lands í heiminum. Út-
flutningsátakið kallast
Overseas Trade Services og er höf-
uð Norðurlandadeildar Bob Mason,
sem nú er staddur hérlendis.
ísland er í 71. sæti listans yfir
helstu markaðssvæði Breta og varð
aukning í viðskiptum landanna á
milli ára í fyrra, með þeim árangri
að markaðshlutdeild Breta hérlend-
is jókst talsvert. BretlHnd er jafn-
framt í fararbroddi kaupenda á ís-
lenskum vörum, mestmegnis fiskaf-
urðum eins og sakir standa. Bob
Mason kveðst vonast eftir enn frek-
ari aukningu á næstu árum og hann
líti _svo á að miðað við fjölda íbúa
sé ísland eitt mikilvægasta mark-
aðsland Englendinga, þótt það sé
vitanlega smár og viðkvæmur
markaður að mörgu leyti.
Aukin viðskipti
markmið
„Heseltine segist í anda stjórn-
málamanna ekki vilja ákveða eitt
tiltekið markmið í viðskiptum, en
við reynum hins vegar að móta
markaðsstefnu, skipta þeim svæð-
um niður sem vekja áhuga okkar
og fylgja þeirri stefnu að auka við-
skipti á öllum markaðssvæðunum
áttatíu og markaðshlutdeild okkar
á kostnað keppinauta, án þess að
negla niður prósentuhlutfall eða
fjárhæðir í því sambandi," segir
Mason.
Hann segir eitt forgangsmála í
viðskiptum Breta við íslendinga
vera á sviði fjarskipta, hugbúnaðar
og tölvukosts. ísland
standi framarlega í
þróun hugbúnaðar en
hann telji að það geti
færst. enn framar með
því að taka upp nána
samvinnu við bresk
hugbúnaðarfyrirtæki,
bæði í þeim tilgangi að
aðlaga breskan hug-
búnað fyrir íslenskan
markað og þróa hug-
búnað fyrir heims-
markaðinn. „Aukin
samvinna væri báðum
aðilum tvímælalaust til
góðs, og þó að mitt
starf feli ekki í sér
samningsgerð eða slíkt, get ég und-
irbúið jarðveginn fyrir aukið sam-
starf og hvatt menn til að leita eft-
ir upplýsingum og tengslum milli
landanna, á þessu sviði viðskipta
sem öðrum,“ segir Mason. Hann
sjái ejnnig margvíslega möguleika
fyrir íslendinga að nýta sér trygg-
inga- og fjármálaþjónustu í Eng-
landi, sem sé afar öflug og mikilvæg
efnahagslífi Englands, hvort sem
menn hafi áhuga á fjármögnun eða
ráðum til að fjárfesta í Bretlandi
eða á Norður-írlandi. Englendingar
geti eins og flestir vita einnig boðið
margs kónar hráefni til iðnaðar á
borð við kol og stál, auk véla og
tækja.
Styrkur Breta
vanmetinn
Mason kveðst telja að menn van-
meti oft styrkleika bresks iðnaðar,
því fjölmörg dæmi séu tii um hversu
Bretland stendur framarlega í við-
skiptum. Þár á meðal megi nefna
bílaframleiðslu, sem sé afar sam-
keppnishæf á heimsmarkaði, þvert
á það sem margir haldi eftir slæmt
gengi á seinasta áratug. Þetta sé í
samræmi við stefnu breskra stjórn-
valda sem vilji halda niðri verð-
bólgu, tryggja að launakostnaður
fari ekki fram úr hófi og auka
gæði breskrar vöru. Erlendir fjár-
festar hafi þannig haldið innreið
sína í England, sem ríkisstjórn og
fyrirtækjastjórnendur fagni, og
Bob Mason
Kjarni málsins!