Morgunblaðið - 06.09.1995, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 06.09.1995, Blaðsíða 18
18 MIÐVIKUDAGUR 6. SEPTEMBER 1995 MORGUNBLAÐIÐ LISTIR Fullkomnasta tölvutónver á landinu tekur til starfa í Kópavogi Morgunblaðið/Kristinn HILMAR Þórðarson og Ríkharður H. Friðriksson í nýju tónveri Tónlistarskóla Kópavogs. Myndrænt hljóð TÓNLISTARSKÓLI Kópa- vogs hefur starfsemi í nýju tónveri með aðstöðu til að fást við tónlist og hljóð- hönnun með tölvu, þann 1. október næstkomandi. Tónverið verður það fullkomnasta í sinni röð sem sett hefur verið upp hér á landi, að sögn forstöðumanna versins, þeirra Hilm- ars Þórðarsonar og Ríkharðs H. Frið- rikssonar og Fjölnis Stefánssonar skólastjóra Tónlistarskólans. Möguleikar versins eru miklir eins og blaðamaður komst að raun um þegar hann heimsótti það. Nótnarit- un, tölvustýrðir hljóðgjafar, hljóð- breytitæki, stafræn hljóðupptaka, hljóðvinnsla, hljóðmyndun og staf- ræn eftirvinnsla á hljóði er meðal möguleika búnaðarins. Hnökrar klipnir af Tónverið er ekki mikið um sig miðað við möguleikana sem það gef- ur. „Hlutimir minnka með árunum. Þessi litla tækjasamstæða hefði t.d. tekið heilan vegg í hljóðveri fyrir um 15 árum,“ segja þeir og benda á samstæðu sem hefur að geyma staf- rænt kassettutæki, geislaspilara, segulband auk tækis sem hefur að geyma hundruð ólíkra hljóða sem má vinna með auk þess sem það getur leikið 16 raddir samtímis til viðbótar 8 úr öðru tæki sem er þarna staðsett líka. Hægt væri að setja inn raddir næstum heillar sinfóníuhljóm- sveitar og leika í herberginu. „Við getum fært tónlist af ein- hveijum þessara hljómflutnings- tækja yfir á tölvuna sem umbreytir upplýsingum sem hún fær yfir í staf- rænt form, ef það er ekki stafrænt fyrir, og setur það síðan upp mynd- rænt.“ Máli sínu til stuðnings spila þeir upptöku með gömlum manni að kveða vísur. Sú upptaka var frekar slæm en þeir höfðu hreinsað hana upp þannig að hljómur var allur ann- ar. Röddin sést á tölvuskjá og alla hnökra er hægt að klípa af. Vísnamaðurinn er teygður og tog- aður á alla kanta og látinn syngja í keðju við sjálfan sig, hægt og hratt, aftur á bak og út á hlið án mikilla vandkvæða. „Þetta er Photoshop tón- listarinnar,“ segja þeir en photoshop er myndvinnsluforrit þar sem' hægt er að vinna með myndir á ýmsa vegu í tölvu. „Það er raunverulega allt hægt í þessu þegar þú ert kominn með hljóðið inn í tölvuna. Þú gætir snúið og breytt ræðu hjá Davíð Odds- syni þannig að hann hljómaði eins og harðasti alþýðubandalagsmaður," segir Ríkharður og hlær. Ný tegund tónlistarmanna Boðið verður upp á þrennskonar nám í verinu í vetur; nótnaritun með tölvu, tölvutónlist sem valgrein og tölvutónlist sem aðalgrein. Það síð- asttalda er nýjung hér á landi að sögn forstöðumannanna. Ætlunin er að úr þessu námi spretti ný tegund íslenskra tónlistarmanna sem hafi tölvu sem aðalhljóðfæri. Nótnaskrift verður ein af grein- unum sem kenndar verða þama. Fólk getur komið og lært eingöngu að rita inn nótur, prenta út fyrir sjálft sig eða til að gefa út. Einnig getur það látið hin ýmsu hljóðfæri leika verkið og yfirfært það svo á kas- settu. „Það eru ekki gerðar miklar kröfur um tónfræðikunnáttu til að koma í nótnaritunina þó allir verði að sækja tíma í því fagi þegar þeir byija í skólanum. Eins er það með hljóðhönnunina, að þú þarft ekki að kunna neitt áður en þú byijar í henni þó skemmtilegra sé að vita hvað nóturnar heita. En hvað er hljóðhönnun? „Hljóðhönnun er m.a. það þegar þú færir hljóð inn á tölvuna eins og til dæmis orðið blaðamaður í þinni framsögn og vinnur úr því sérstakt hljóð, hannar nýtt hljóð. “ Ekki boðberar ákveðinnar tónlistarstefnu Hætt er við að einhveijir hugsi sér gott til glóðarinnar og fái vatn í munninn þegar stúdíó af þessari stærðargráðu er komið í gagnið og Iangi til að fá þar vinnuaðstöðu. „Innritun í skólann er hafin en þeir sem vilja komast í nám í Tónver- inu og fá aðstöðu til að vinna þar, verða að vera innritaðir í skólann og hafa náð 15 ára aldri. Þetta er hugs- að sem kennslustúdíó frekar en vinn- ustúdíó," sögðu þeir. Þeir sögðust vilja að það kæmi fram að þeir væru ekki boðberar ein- hverrar sérstakrar tónlistarstefnu heldur frekar að veita alhliða tilsögn, tæknilega sem tónlistarlega „Svo má fólk gera hvað sem því sýnist," sögðu þeir. Einnig sögðust þeir mundu hvetja nemendur í tónverinu til samstarfs við aðra nemendur í tónlistarskólanum. Við vonum að þetta verði það vin- sælt að svipuð hljóðver spretti upp eins og gorkúlur um allan bæ,“ sagði Hilmar. Þeir sem vilja kynna sér tónverið geta mætt á opið hús sem verður þann 23. september næstkomandi kl. 14-17, eða skoðað heimasíðu tón- versins og tónlistarskólans á alnet- inu. Heimasíða TTK er: http://rvik. ismennt. is/ ' ttk/ Morgunblaðið/Sverrir LEIKHÓPUR Möguleikhússins. Höfuðáhersla á íslensk verk Gunnsteinn Ólafsson stjórnandi um Maríuvesper Monteverdis Eins og mosabeð til að hvílast í Morgunblaðið/Þorkell GUNNSTEINN Ólafsson MÖGULEIKHÚSIÐ, barna- og ungl- ingaleikhús, hefur nú hafíð sjötta leikár sitt, en það er jafnframt annað leikár þess í nýju leikhúsi við Hlemm. Frá upphafí hefur Möguleikhúsið lagt höfuðáherslu á að sýna frum- samin islensk verk og svo mun einn- ig verða í vetur. Leikárið hefst með því að teknar verða upp að nýju sýningar á Ástar- sögu úr fjöllunum, sem er sýning fyrir böm á aldrinum 2ja til 6 ára, byggð á sögu Guðrnnar Helgadóttur. Sýningin er ferðasýning, en verður einnig sýnd í húsnæði Möguleikhúss- ins; Í bytjun október frumsýnir Mögu- leikhúsið nýtt íslenskt bamaleikrit, Ævintýrabókina. Höfundur og leik- stjóri er Pétur Eggerz. Messíana Tómasdóttir hannar leikmynd og búninga, tónlist er eftir Guðna Franzson og David Walters sér um lýsingu. Ævintýrabókin er ætluð börnum á aldrinum 3-10 ára. í nóvember hefur Möguleikhúsið sýningar á jólaleikritinu Smiður jóla- sveinsins. Leikritið var fyrst á dag- skrá leikhússins fyrir jólin 1992 og naut þá þegar fádæma vinsælda. Hér er um að ræða sannkallað jóla- ævintýri fyrir börn á aldrínum 2-10 ára. Höfundur handrits og söngtexta er Pétur Eggerz en tónlist er eftir Ingva Þór Kormáksson. I febrúar verður frumsýnt nýtt íslenskt unglingaleikrit, Ekki svona, eftir Aðalstein Ásberg Sigurðsson og Pétur Eggerz. Sýningin er sam- vinnuverkefni Möguleikhússins og Leikfélags Reykjavíkur. Þar er fjall- að um líf nokkurra ungmenna í menntaskóla. Síðasta verkefni leikársins er leik- rit sem unnið verður upp úr Njáls- sögu. Hér er um að ræða hópvinnu- verkefni þeirra Hlínar Agnarsdóttur, Guðna Franzsonar og Stefáns Sturlu Siguijónssonar. Auk sýninga leikhóps Möguleik- hússins verður boðið upp á gestasýn- ingar og aðrar uppákomur í leikhús- inu. í nóvember kynnir Möguleikhússið tónlistardagskrána, Berrössuð á tán- um, í samvinnu við Aðalstein Ásberg og Önnu Pálínu, en það er á dagskrá með Ijóðum, sögum og söngvum fyr- ir krakka á aldrinum 2ja til 7 ára. Norski leikhópurinn Tripiechio, Underland & co heimsæir Möguleik- húsið í febrúar með sýninguna Með bakpoka og banana, en það er gam- anleikur fyrir alla 3ja ára og eldri. MARÍUVESPER Montiverdis var frumflutt í Akureyrarkirkju síðastlið- inn laugardag og hefur hlotið góða dóma. Framkvæmd og skipulagning tónleikanna er í höndum Gunnsteins Ólafssonar sem einnig stjómar tón- leikunum. Gunnsteinn er frumkvöð- ull að því að kynna ítalska tónskáld- ið Claudio Monteverdi (1567-1643) hér á landi en hann stóð einnig fyrir frumflutningi á óperu hans, Orfeo, hér fyrir tveimur árum en hún er talin fyrsta fullgilda verk sinnar teg- undar. Nýr heimur Aðspurður segist Gunnsteinn hafa kynnst Monteverdi fyrst í tónlistar,- háskólanum í Búdapest. „Ég hreifst mjög af þessari tónlist, þetta var alveg nýr heimur sem maður hafði ekki komist í tæri við áður. Ég tók svo að kynna mér tónlist hans fyrir alvöru þegar ég var sjálfur á Italíu í ítölskunámi. Ég fylgdist með æfing- um á óperu eftir Monteverdi í óper- unni í Bologna í tvo mánuði. Ég lærði gríðarlega mikið á þessu og ákvað að láta til skarar skríða hér heima og flytja Orfeo hér, reyndar í tónleikaformi. Hérna heima mættu mér miklar hindranir. Það voru í fyrsta lagi ekki til hljóðfæri sem þarf til að flytja þessa tónlist. í öðru lagi vantaði söngvara sem þekktu stílinn en í þessari tónlist er alls konar flúr sem menn læra ekki í annarri tegund tónlistar. En það leystist með því að ég fékk skólafélaga minn frá Frei- burg, Hans Jörg Mammel, til að syngja aðalhlutverkið. Ég fékk líka unga íslenska söngvara til að taka þátt í þessu með mér. Ég komst svo í tæri við erlenda blásturshljóðfæra- leikara eftir miklum krókaleiðum. Þessi frumraun haustið 1993 tókst mjög vel og því ákvað ég að halda áfram þessu kynningarstarfí nú.“ Gegn hraðanum En hvemig stendur á því að þessi tónlist hefur ekki heyrst meira en raun ber vitni hér á landi? „Það sem hefur háð þessari tónlist er að tónlistarmenntun manna nær iðulega ekki aftar en til Bachs og Hándels sem voru uppi heilli öld á eftir Monteverdi," segir Gunnsteinn, „í verkum Monteverdis er barokk- tónlist að stíga sín fýrstu skref. Þessi tónlist virðist líka mjög frá- hrindandi á pappímum. Aríurnar sem Monteverdi skrifar eru oft bara ein einsöngslína og ein bassalína. Því þarf undirleikarinn sjálfur að spinna undirspilið eins og andinn blæs hon- um í bijóst. Undirleikarinn þarf að lesa úr bassalínunni hvaða hljómar eigi að vera á hveijum stað. Þetta hefur staðið dálítið í mönnum. Þessi verk eru líka til þannig að einhveijir hafa skrifað út aðrar raddir fyrir ofan bassalínuna. Slíkar forskriftir samræmast hins vegar ekki eðli þess- arar tónlistar. Eðli hennar byggist á því að hljóðfæraleikarinn spinni út frá eigin hjarta við bassalínuna. Þessi tónlist lifir á þessu, ef hún er skrifuð niður, deyr hún.“ Gunnsteinn segir að tónlist Monte- verdis eigi mjög vel við á okkar tím- um. „Hún á vel við á tímum hrað- ans, er eins konar andsvar við honum því að í henni er eiginlega ekkert til sem heitir tími. Það er eins og. allt standi í stað. Það verður að flytja þessa tónlist á hljóðlátan og hæglát- an hátt, þetta er ekki tónlist sem maður rumpar af. Hún er eins og mosabeð sem gott er að leggjast í og hvílast."

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.