Morgunblaðið - 06.09.1995, Blaðsíða 36
36 MIÐVIKUDAGUR 6. SEPTEMBER 1995
MORGUNBLAÐIÐ
JHttrguttlsIiibtb
BRÉF
TIL BLAÐSINS
2^ i mk APfoem MiekUfi) r\ Q&tS{&<//£FSt r /
Grettir
Tommi og Jenni
Ljóska
Smáfólk
IF THAT LITTLE REP
HAIREP 6IRL WA5
HERE, I COULP PU5H
HER ON THE 5UJING..
'ZT
Ef litla rauðhærða stelp-
an væri hérna gæti ég
ýtti henni í rólunni.
SHE'P Sfitc PUSH ME \ / l
HI6HER,CHARLIE BROWNl"
ANP SHE'D LIKE ME {MÁfbt)
BETTERTHAN ANVONE..
‘~~Lr~rz— —töT"
\ C ((t C\
*~*9má**' %
Ég myndi ýta henni Hún myndi segja: „Ýttu Ef til vill.
í háaloft og hún mér hærra, Kalli Bjarna!“
myndi hlæja. Og henni myndi líka betur
við mig en nokkurn annan.
Kringlan 1103 Reykjavík • Sími 5691100 • Símbréf 569 1329
Hvað er framundan
í atvinnulífinu?
Frá Hafsteini Ólafssyni:
MIKIL breyting er nú framundan í
atvinnulífinu. Með litlum tilkostnaði
er nú hægt að sýna fram á hve
auðvelt er að framleiða ódýr stór og
smá hús úr íslenskum efnum að stór-
um hluta - og varanlegum - efnum
og er þá mikið sagt. Efnin eru til
hér á landi. í Ungveijalandi og Tyrk-
landi svo að eitthvað sé nefnt. Það
þarf mikla orku til að framleiða slík
hús og við eigum mikið af henni og
gætum margfaldað framleiðsluna ef
okkur sýnist svo. Burðarvirki eru
víða til og hér kemur perlusteinn til
greina raunverulega í fyrsta skiptið
í byggingasögunni í slíkum mæli og
hér er talað um. Ég ætla mér ekki
þá dul að við reyndum einir að út-
breiða slíkan framleiðslumáta út um
heiminn. Til þess eru þetta of stór
dæmi fyrst og fremst.
Helmingi ódýrari
Þessi hús geta verið um helmingi
ódýrari í byggingu en sambærileg
hús byggð í dag eftir hefðbundnum
leiðum og efniskaupin yrðu ódýrari
í þessi hús en önnur sambærileg
hús. Þetta stafar af því hve litla
vinnu þarf við að byggja slík hús
og vinna hefur lengst af verið um
helmingur af byggingakostnaðinum.
Það er skipt um efni í þessum hús-
um. Steinsteypa er lítið notuð og lít-
ið timbur. Gluggar og hurðir eru
ekki framleiddar lengur í sama formi
og áður. Við þurfum að sjá um fram-
leiðslu á sérhönnuðum tvöföldum
kjölum og lokuðum rennubandslaus-
um þakrennum í þessi hús. Við yrð-
um að herða gler í miklum mæli og
vera tilbúin til að afhenda öryggis-
gler í stórum stíl til útflutnings vítt
um heiminn. Margt fleira kemur til
sögunnar sem heilar verksmiðjur
þarf til að framleiða en verður ekki
talið upp hér og nú.
Við mætum svo beinni andstöðu
gegn slíkum fyrirætlunum fyrir mik-
inn misskilning sem stafar af
hræðslu við breytingar á atvinnulíf-
inu í heild. Þetta eru ný og erfið
dæmi fyrir marga af því að þeir
gera sér ekki grein fyrir hvað við
erum fáir í landinu svo að hægt
væri að líka því við eitt hverfí í stór-
borgum erlendis og gætum því allir
haft nóg að gera ef við tækjum þessu
skynsamlega. Allir virðast þó sam-
mála um að eitthvað verði að gera
í þessu máli en enginn bendir enn á
leiðir til úrlausna. Við horfum blind-
um augum á fiskleysið í sjónum og
gerum okkur sek um að kaupa sí-
fellt stærri og afkastameiri fiskiskip
nú þvert ofan í ástandið í útvegsmál-
um. Þetta er méð ólíkindum. Opni
svo einhver augu í aðrar áttir máli
þessu til varnaðar reynast alls engir
peningar til, ekki einu sinni peningar
til að rannsaka slíka hluti hvað þá
meir.
Atvinnuleysið
Atvinnuleysið er komið til að vera
og vex með tímanum svo lengi sem
leitað er að leiðum til úrbóta. Hús
eru nú hætt að seljast fyrir það eitt
hvað þau eru dýr í byggingu og
verðið komið langt fram úr því verð-
lagi sem boðið verður upp á í náinni
framtíð. Hin nýju hús eru byggð upp
tvöföld með tvo útveggi unna úr
hertum glerjum raðað upp á einfald-
an hátt og þökum að sama skapi.
Innri útveggir eru svo reistir upp
úr tveimur til þremur sjálfstæðum
öryggisgleijum límdum saman með
límum sem líma saman gler og
málma með snertingu einni saman.
Bilið á milli útveggja er mismunandi
að stærð og þar eru burðarvirkin
staðsett. Þau eru studd dregurum
og þverbitum í gólfum og loftum.
Hin eiginiegu hús eru svo byggð
fyrir innan báða þessa útveggi. Milli-
veggir gólf og loft eru byggð upp
úr léttum, einangrandi, eldtraustum
og sjálfberandi plötum unnum úr
perlusteini og/eða öðrum efnum sem
til greina koma í slíku tilfelli.
Þetta hefur ekki gengið inn í Is-
lendinga enn sem komið er. Það er
eins og verið sé að fara fram á of
mikið, nema hvað? Því stefni ég til
útlanda með þessi mál nú. Það vill
svo til að Hollendingar framleiða nú
milliveggi sem henta vel inn í þessi
mál og þangað er stefnt nú. Ekki
verður framhjá því komist hvað sé
framundan hjá þeirri þjóð sem tekur
þetta ekki til greina. Hún gefur þar
með öðrum þjóðum tækifæri á að
verða fyrstar til að útbreiða þessa
hluti út um heiminn. Bíða svo eftir
því að í hafnir komi skip full af slík-
um húsum til sölu hveijum þeim sem
hafa vilja. Þá væri of seint í rassinn
gripið að fara þá að reyna að kom-
ast inn í slíkar nýjungar í byggingar-
iðnaðinum með heiminn yfirfullan
af slíkum húsum. Þá væri sú þjóð
búin að glata öllum hagnaði af slíkri
framleiðslu fyrir lífstíð hvorki meira
né minna. Hver vill svo bera ábyrgð
á slíku framferði? Það er vá fyrir
dyrum.
Af nógu er að taka
Slíkri framleiðslu fylgir mikil
vinna og sala á efnum og mikill
gjaldeyrir er í húfi. Við óttumst ekki
markaðinn fyrir slík hús. Þjóðverjar
segjast verða að byggja um 2 millj.
íbúða fyrir aldamót. Júgóslavía er í
rúst og Rússar geta varla flutt heim
heri sína fyrir íbúaskorti heima fyr-
ir. Hér er þó aðeins talað um brot
af heiminum. Af nógu er að taka.
Við fljótum sofandi að feigðar
ósi. Við beygjum okkur ekki fyrr en
við erum neydd til þess í orðsins
fyllstu merkingu, þetta er komnið
til að vera. Við neyðumst fljótlega
til að stytta vinnutímann verulega.
í beinu framhaldi af því verðum við
að taka til endurskoðunar allt okkar
efnahagslíf. Kasta fyrir róða mestu
af þeim kjarasamningum sem gerðir
hafa verið til þessa. Reikna upp á
nýtt alla launasamninga manna á
slíkum forsendum. Um þetta er
hægt að skrifa langt og mikið mál
en verður að bíða um sinn. Þetta
er skrifað til að reyna að vekja
umtal um þessi mál og sjáum hvað
setur í þeim efnum. Þetta er í raun
eitt það síðasta sem kemur frá okk-
ur í náinni framtíð.
Þessum hugmyndum hefur verið
þinglýst og þær stimplaðar hjá lög-
bókandanum í Reykjavík með „Not-
aríus Publicus" stimpli og erum því
viðurkenndir sem fyrstir til að festa
slíka framleiðslu á blað og hyggj-
umst verja hana frammi fyrir dóm-
stólum ef þurfa þykir.
HAFSTEINN ÓLAFSSON,
byggingameistari, Kópavogi.
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók verður framvegis varðveitt í
upplýsingasafni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu það-
an, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu
efni til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.