Morgunblaðið - 23.09.1995, Qupperneq 14
14 LAUGARDAGUR 23. SEPTEMBER 1995
MORGUNBLAÐIÐ
LAIMDIÐ
Samgöngubætur stytta og lengja hringveginn á Austurlandi
Tvær nýjar
brýr form-
lega opnaðar
Vaðbrekku - Halldór Blöndal
samgönguráðherra opnaði í fyrra-
dag nýjan veg um Meleyri og brú
yfir Breiðdalsá nálægt Breiðdal-
svík. A miðvikudag opnaði ráð-
herrann nýja brú yfir Jökulsá á
Dal á móts við bæinn Selland.
Þessar framkvæmdir kostuðu
samtals 366 milljónir króna.
Nýi vegurinn um Meleyri færir
Breiðdalsvík í þjóðbraut við hring-
veginn og styttir leiðina um suður-
firði Austfjarða um 9,7 km, en
lengir hringveginn um 2,6 km.
Nýja brúin yfir Breiðdalsá er 90
metra löng með tveimur akbraut-
um. Hún leysir af hólmi slæma
brú við Eydali. Gamla brúin var
byggð 1939 og hafði takmarkað
burðarþol, vegurinn þar var slæm-
ur og aðkoma að brúnni þröng og
brött.
Framkvæmdir við nýja veginn
hófust í janúar 1993 og var brúin
byggð um sumarið. Seint um
haustið var umferð hleypt á veginn
til bráðabirgða. Unnið var að
klæðningu vegarins í fyrra og
verkinu að fullu lokið í sumar.
Heildarkostnaður varð 162 millj-
ónir króna, brúin kostaði 72 millj-
ónir og vegagerðin 87 milljónir.
Verktaki við vegagerðina var
Guðmundur Björgólfsson og bræð-
ur, brúna smíðaði vinnuflokkur
Vegagerðarinnar.
Brú yfir Jökulsá á Dal
Nýja brúin yfir Jökulsá og
vegurinn að henni leysa af hólmi
snjóþungan og úr sér genginn
vegarkafla og brú frá árinu 1931.
Morgunblaðið/Sigurður Aðalsteinsson
Klippt á borðann
NÝJA brúin yfir Jökulsá á Dal var formlega opnuð 20. septem-
ber síðastiiðinn. F.v.: Helgi Hallgrímsson vegamálastjóri, Krist-
inn Briem skrifstofustjóri hjá Vegagerðinni, Sigbjörn Nökkvi
Björnsson og Halldór Blöndal samgönguráðherra.
Morgunblaðið/Sigurður Aðalsteinsson
Áningarstaður
VEGFARENDUR geta hvílst á áningarstað við austurenda nýj
brúarinnar yfir Jökulsá á Dal.
Við þessa framkvæmd styttist
hringvegurinn um 2,6 km sem
vegur upp samsvarandi lengingu
vegarins við Breiðdalsvík.
Nýja brúin er 125 metra löng
og með tveimur akbrautum. Hún
er hæsta brú landsins, brúargólfið
er 38 metra fyrir ofan ána. Við
austurenda nýju brúarinnar er
áningarstaður og göngustígur nið-
ur að gilbarminum. Þar geta veg-
farendur horft niður í hrikalegt
árgilið.
Framkvæmdir hófust 1993 með
lagningu vegar að brúarstæðinu.
Byijað var að srníða brúna í árs-
byijun 1994 og hún tekin í notkun
í september 1994. í sumar var
lögð klæðning og lokið við frá-
gang.
Verktakar við brúarsmíðina
voru ístak hf. og Héraðsverk hf.
annaðist vegagerðina. Fram-
kvæmdirnar kostuðu alls 204
milljónir króna. Þar af kostaði
brúin. 117 milljónir og vegurinn
87 milljónir.
Morgunblaðið/Björn Blöndal
FULLTRÚAR Eyjakrakkanna fengu hlýjar viðtökur þegar þeir komu til landsins á þriðjudag frá
þeim aðilum sem styrktu þau til ferðarinnar. Frá vinstri til hægri eru Geir Þórarinn Zoega frá
ísaga, Guðrún Þórsdóttir frá Fræðsluskrifstofu Reykjavíkur ásamt Árna Johnsen alþingismanni.
Kepptu við snillinga í samkeppni ungra vísindamanna
Sjáum ekki eftir einni mínútu
sem við lögðum í verkefnið
Keflavík - „Þetta var ákaflega gam-
an og við sjáum ekki eftir einni mín-
útu sem við lögðum í þetta verkefni,
sögðu þau Aldís Egilsdóttir og Reyn-
ir Hjálmarsson, nemendur í Fram-
haldsskóla Vestmannaeyja eftir vel
heppnaða ferð til Newcastle í Eng-
landi þar sem Þau hrepptu þriðja
sætið í Evrópukeppni ungra vísinda-
manna sem þar fór fram. Alls tóku
24 þjóðir þátt í keppninni og voru
þátttakendur um 100. Þetta var í 7.
sinn sem keppnin er haldin en í fyrsta
sinn sem Islendingar eru meðal kepp-
enda. Rannsóknarverkefnið sem ungl-
ingamir úr Eyjum fóru með í keppn-
ina var hrygningaratferli og líffræði
loðnunnar við íslandsstrendur.
Alls tóku 10 nemendur í Fram-
haldsskólanum í Eyjum þátt í rann-
sóknarverkefninu sem var verkefni í
Hugvísiskeppninni sem haldin var hér
á landi síðastliðið vor ög gaf þátttöku-
rétt í Evrópukeppnina.
Mikil vinna liggur að baki þessa
verkefnis hjá krökkunum úr Eyjum
og um þriggja vikna skeið var höfð
vakt allan sólarhringinn á meðan
hrygning loðnunnar stóð yfir í fiska-
safninu þar sem rannsóknimar fóru
fram en þær stóðu yfir frá 15. febr-
úar til maí. Margar merkilegar niður-
stöður komu fram við rannsóknimar
og má þar nefna að mun færri hrogn
eru í hverri hrygnu en talið var og
að allir hængarnir drápust að hrygn-
ingu lokinni, en liðlegá 4,7% hrygn-
anna hefðu lifað.
Þau Aldís og Reynir sögðu að þau
hefðu verið að keppa við snillinga á
ýmsum sviðum sem sumir hveijir
hefðu verið ótrúlega vel tækjum bún-
ir og raunar hefðu sumir verð með
búnað til /annsókna sem ekki væri
enn til á íslandi.
„Við hittum óg kynntumst mörgum
áhugaverðum krökkum sem sumir
hveijir voru snillingar og þessi ferð
hefur okkur verið í alla staði ógleym-
anleg," sögðu þau Aldís og Reynir
ennfremur. Alls voru 54 verkefni
kynnt á mótinu og unnu 12 þeirra til
verðlauna.
Endurvarp sj ón-
varpsefnis á Isafirði
ísafirði - Nokkrir einstaklingar á
Isafirði hafa að undanförnu kannað
möguleika á að stofna hlutafélag
um endurvarp sjónvarpsefnis með
örbylgju á ísafirði. Undirbúnings-
fundur var haldinn í síðustu viku
en stofnfundur félagsins verður
haldinn á ísafirði í næstu viku.
Það er fyrirtækið Elnet hf. í
Reykjavík sem m.a. er hluthafi í
hinu nýstofnaða íslenska sjónvarpi
hf. sem verður bakhjarl hins nýja
fyrirtækis á ísafirði en Elnet stóð
m.a. að baki stofnunar samskonar
fyrirtækis í Vestmannaeyjum sem
hóf útsendingar fyrir um mánuði.
Stofnkostnaður stöðvarinnar á
ísafirði er áætlaður um 12 milljónir
króna.
í upphafi er gert ráð fyrir að
einn maður starfi við stöðina en auk
gervihnattasendinga verða sendar
út auglýsingar, kvikmyndir og jafn-
vel fréttir frá ísafirði.
Það eru tveir ungir ísfirðingar,
þeir Gunnar Atli Jónsson, starfs-
maður Flugleiða á ísafirði, og Guð-
mundur Ragnar Rúnarsson, starfs-
maður Hraðfrystihússins Norður-
tanga á ísafirði, sem hafa haft veg
og vanda af undirbúningi stofnunar
félagsins.
Röng myndbirting
ÞAU leiðu mistök urðu á bls. 14 í blaðinu í gær, að röng mynd
birtist með fréttinni um gjöf Kiwanismanna til réttargeðdeildar-
innar að Sogni. Hér birtist rétta myndin, sem sýnir fulltrúa
Kiwanishreyfingarinnar, þar á meðal Eyjólf Sigurðsson verð-
andi heimsforseta, og starfsmenn réttargeðdeildarinnar. Blaðið
biður alla viðkomandi afsökunar á þessum mistökum.