Morgunblaðið - 23.09.1995, Page 21
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
LAUGARDAGUR 23. SEPTEMBER 1995 21
Forbes
vill í Hvíta
húsið
BANDARÍSKI auðkýfingur-
inn og útgefandinn Malcolm
„Steve“ Forbes yngri hefur
ákveðið að sækjast eftir því
að verða í framboði fyrir repú-
blikana í forsetakosningunum
á næsta ári. Forbes er 48 ára
og aðalritstjóri og forseti tíma-
ritsins Forbes Magazine. Hann
hyggst verja sem svarar 1,6
milljörðum króna af eigin pen-
ingum í kosningabaráttuna og
segir brýnt að kaupsýslumað-
ur verði kjörinn í Hvíta húsið
til að draga úr áhrifum at-
vinnustjórnmálamanna og
hagsmunapotara. Níu menn
sækjast nú eftir framboði fyrir
repúblikana og Bob Dole, leið-
togi meirihlutans í öldunga-
deild þingsins, þykir líklegast-
ur til að verða tilnefndur.
Shevard-
nadze í
framboð
EDÚARD Shevardnadze, leið-
togi Georgíu, skráði sig í gær
sem frambjóðanda í forseta-
kosningunum 5. nóvember og
þykir mjög líklegur til að fara
með sigur af hólmi. She-
vardnadze hóf kosningabar-
áttuna með loforðum um að
koma í veg fyrir upplausn
landsins þegar hann afhjúpaði
stóran minnisvarða um Davíð
konung, sem sameinaði Georg-
íu fyrir 800 árum. „Við eigum
að taka Davíð til fyrirmynd-
ar,“ sagði leiðtoginn. „Hann
beitti friðsamlegum aðferðum
til að sameina landið. Við lát-
um það ekki viðgangast að
landið okkar leysist upp.“
Jeltsín vill
friðmælast
BORÍS Jeltsín, forseti Rúss-
lands, reyndi í gær að draga
úr spennunni í Tsjetsjníju og
kvaðst staðráðinn í að leysa
deiluna um framtíð héraðsins
með friðsamlegum hætti.
Hann sagði að ekki yrði gripið
til aðgerða vegna banatilræðis
sem sendimanni hans var sýnt
á dögunum og kvað nokkra
tsjetsjenska uppreisnarmenn
reyna að grafa undan friðar-
viðræðum.
„Það sem er að gerast í
Tsjetsjníju er harmleikur, fyrir
okkur öll. Og við munum sigr-
ast á afleiðingunum í samein-
ingu,“ sagði forsetinn.
Powell vel
tekið í Boston
COLIN Powell, fyrrverandi
forseta bandaríska herráðsins
og hugsanlegum forsetafram-
bjóðanda, var fádæma vel tek-
ið þegar hann heimsótti Bost-
on vegna kynningar á nýrri
bók hans á fimmtudag. Pow-
ell þykir hafa farið hamförum
við áritun bókanna og nokkur
met eru sögð hafa verið sett.
Áætlað er að afköst hans hafi
verið um 1.000 áritanir á
klukkustund. 2.000 manns
komu í verslanamiðstöð í borg-
inni til að kaupa bækur hans
og biðröðin náði alla leið að
bílageymslunni. Útgefendurn-
ir búast við metsölu og hafa
þegar prentað bókina í 1,2
milljónum eintaka.
Lokað fyrir rafmagn til kafbátastöðva rússneska norðurflotans
Moskvu. Reuter.
Hermenn í öll
orkuverin
HERMENN voru sendir í fyrradag
í öll raforkuver á Kolaskaga til að
koma í veg fyrir, að yfirvöld á
skaganum lokuðu aftur fyrir raf-
magnið til kafbátastöðva norður-
flotans rússneska vegna ógreiddra
raforkureikninga. Gerðist það fyrir
þremur dögum en að sögn Tass-
fréttastofunnar eru kjarnorkukaf-
bátar, sem hefur verið lagt, í svo
slæmu standi, að fari straumurinn
af, er hætta á að kjarnakljúfurinn
ofhitni og bráðni.
Talsmaður norðurflotans sagði
í gær, að yfirmaður hans hefði
gefið út fyrirskipun um að gripið
yrði til allra ráða til að koma í veg
fyrir rafmagnsleysi í kafbátastöðv-
unum, þar á meðal valdbeitingar
ef nauðsyn krefði. Sagði hann, að
hermennirnir hefðu neytt starfs-
menn orkuveranna til setja
strauminn á aftur og yrðu áfram
í verunum.
Þetta er ekki í fyrsta sinn, sem
rafmagnið er tekið af rússneska
hernum vegna rafmagnsskulda.
Fyrir viku var lokað í annað sinn
á árinu á mikilvæga tilraunastöð
fyrir eldflaugar og það sama var
gert nýlega gagnvart Eystrasalts-
flotanum í Kalíníngrad. Þá duttu
út ratsjárstöðvar á staðnum og
Qarskipti við flotann.
„Fljótandi
Tsjernobyl“
Vegna skorts á geymslurými eru
kjarnakljúfarnir enn um borð í
kafbátum, sem hefur verið lagt,
og Aiexei Yablokov, ráðgjafi Borís
Jeltsíns, forseta Rússlands, í um-
hverfismálum, sagði í viðtali við
þýska sjónvarpið sl. mánudag, að
þessir kljúfar eða kafbátar væru
eins og „fljótandi Tsjernobyl“, sem
gæti sprungið þá og þegar.
S
á
Frumsýnum
Nissan Maxima QX
Um helgina frumsýnum við einn glæsiiegasta lúxusbíl
sem Nissan verksmiðjurnar hafa sent frá sér.
Hinn glænýi Nissan Maxima QX hefur hlotið fádæma góðar viðtökur hvarvetna.
Nýja Nissan Maxima QX vólin er ein sú tæknivæddasta og léttbyggðasta V6 vél sem framleidd er í dag.
Komdu á bílasýninguna hjá okkur um helgina og kynntu þér þetta
magnaða og glæsilega flaggskip Nissan flotans.
Nissan Maxima - Magnaðir eiginleikar.
Léttar
veitingar: .auau^'"
BKI
]<ÁFFI
Bílasýning:
laugard. 14-17
sunnud. 14-17
NI5SAN
Ingvar
Helgason hf.
Sævarhöfða 2
Sími 525 8000