Morgunblaðið - 23.09.1995, Side 43
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 23. SEPTEMBER 1995 43
FRÉTTIR
LAUGAVEGl B
SÍMl 551 4455
Aðalfundur Sagnfræðingafélags Islands
Dr. Haraldur Sigurðsson
heiðursfélagi
Námskeið um nýfrjáls-
hyggju og áhrif hennar
DR. HARALDUR Sig-
urðsson, fyrrverandi
bókavörður, verður
gerður að heiðursfé-
laga _ ,Sagnfræðingafé-
lags íslands á aðalfundi
þess, sem haldinn verð-
ur nk. þriðjudag, 26.
september. Haraldur,
sem varð 87 ára fyrr á
þessu ári, starfaði sem
bókavörður á Lands-
bókasafni íslands í yfir
30 ár. Eftir hann liggja
fjölmörg ritverk um
sagnfræði og ferðamál.
Mesta ritverk Har-
aldar er Kortasaga ís-
lands, en Haraldur
safnaði á starfsævi sinni fjöldanum
öllum af íslandskortum. Hann gaf
Þjóðarbókhlöðunni kortin og bóka-
safn sitt þegar bókhlaðan var opnuð
1. desember sl. Um er að ræða
geysilega verðmæta gjöf því að
uppistaðan í safninu eru fágætar
bækur og kort, sem sum hver eru
ekki til annars staðar.
Á aðalfundinum mun Guðmund-
ur Jónsson sagnfræðingur flytja
erindi sem hann kallar „Hvers virði
er sjálfsþurftarbúskapur fyrir þjóð-
Hafnar-
fjarðar-
ganga skáta
HAFNARFJARÐARGANGA skáta
verður á sunnudaginn kemui' um
gömlu vatnsveituna í Hafnarfirði.
Göngustjóri verður Albert J.
Kristinsson, starfsmaður Rafveit-
unnar og stórskáti, og mun hann
segja frá ýmsu fróðlegu um gömlu
vatnsveituna sem liggur frá Kald-
árbotnum.
Farið verður í rútu frá íþrótta-
húsinu við Strandgötu kl. 14 og
keyrt að Kaldárbotnum. Stefnt er
að því að skoða þar vatnsveituna
og ganga síðan eftir gömlu lögn-
inni, hlaðni steinstokkurinn skoð-
aður og honum fylgt þar til komið
er að þeim stað sem vatninu var
hleypt niður í hraunið. Þaðan verð-
ur fat'ið í Lækjarbotna þar sem
vatnið kont upp aftur og leifar
görnlu leiðslunnar skoðaðar allt að
síðustu leifunt hennar við Uthlíð.
-----------» ♦ ♦----
Kirkjudagur
í Grindavík
KIRKJUDAGUR verður í Grinda-
víkurkirkju sunnudaginn 24. sept-
ember. Hefst dagskráin með helgi-
haldi á Dvalarheimili aldraðra í
Víðihlíð kl. 12.45. Þar syngja stúlk-
ur úr barnakór kirkjunnar undir
stjórn þeirra Siguróla Geirssonar,
organista og Vilborgar Sigutjóns-
dóttur.
Síðan er messa í kirkjunni kl. 14.
Prestur er sr. Jóna Kristín Þorvalds-
dóttir. Kór kirkjunnar ásamt organ-
ista leiðir safnaðarsöng. Gítarleik-
ararnir Símon ívarsson og Michael
Hillenstedt flytja verk fyrir tvo gít-
ara. Eftir messuna býður sóknar-
nefndin kirkjugestum að þiggja
kaffiveitingar í safnaðarheimilinu.
KI. 16 verða gítartónleikar í
kirkjunni. Símon og Michael Hill-
enstedt flytja Ijölbreytta gítartón-
list. Aðgangur er ókeypis.
arframleiðsluna?" í
fyrirlestrinum gerir
Guðmundur tilraun til
að meta þá vinnu sem
unnin var á heimilum
bænda í gamla samfé-
laginu, en sú vinna
mælist ekki þegar
beitt er hefðbundnum
aðferðum við útreikn-
ing á þjóðarfram-
leiðslu. Hefðbundnir
útreikningar duga því
ekki þegar verið er að
meta þjóðarfram-
leiðslu í bændasamfé-
laginu. Reyndar hafa
margir gagnrýnt út-
reikninga á þjóðar-
framleiðslu í dag vegna þess að í
henni sé m.a. ekki tekið tillit til
þeirrar vinnu sem unnin er á heimil-
um og utan markaða.
Guðmundur Jónsson hefur und-
anfarið unnið að því að meta þjóðar-
framleiðslu á Islandi á árunum
1870-1945. í fyrirlestrinum mun
hann birta fyrstu niðurstöður af
rannsóknum sínum.
Aðalfundurinn verður haldinn í
húsi Þjóðskjalasafns íslands að
Laugavegi 162 og hefst kl. 20:30.
Haustmót TR
HAUSTMÓT Taflfélags Reykjavík-
ur, sem jafnframt er meistaramót
félagsins, hefst á sunnudaginn 24.
september ki. 14. Mótið skiptist í
aðalkeppni, unglingakeppni og svo
hraðskákmót sem fram fer að lokinni
aðalkeppninni.
í aðalkeppninni verður skákmönn-
um skipt í riðla eftir skákstigum. í
efstu riðlunum verða 12 skákmenn
en neðsti riðillinn verður opinn öllum.
Tefldar verða ellefu umferðir með
umhugsunartímanum 1 ‘/2 klst. á 30
leiki og svo 45 mínútur til að Ijúka
skákinni.
Fyrsta umferðin fer fram sunnu-
daginn 24. september og sú síðasta
miðvikudaginn 25. október. Í A-riðli
verða verðlaun sem hér segir: 1.
65.000 kr„ 2. 35.000 kr. og 3. 20.000
kr. Einnig eru verðlaunagripir fyrir
fimm efstu sætin og Skákmeistari
TR 1995 hlýtur farandbiakr að laun-
um. Verðlaun í hinum flokkunum eru
verðlaunagripir fyrir þijú efstu sætin
og svo hlýtur sigurvegari flokksins
réttindi til að tefla í einum flokki
hærra að ári.
Unglingaflokkur Haustmótsins
teflir laugardaginn 30. september og
14. október og hefst taflmennskan
kl. 14 bæði skiptin. Hausthraðskák-
mót fer fram sunnudaginn 29. októ-
ber og hefst kl. 14.
------» ♦ ♦------
■ MÁLÞING um þjóðarátak í at-
vinnu- og launamálum verður á Hót-
el Borg mánudaginn 25. september
kl. 14. Frummælendur verða nokkrir
lykilmenn úr íslensku atvinnulífi og
fulltrúar aðila vinnumarkaðarins.
Fundurinn er opinn öllum.
VALERIA Ottonelli frá Genúa-
háskóla mun dvelja hér á landi sem
gestakennari við heimspekideild HÍ
í september og október og mun hún
bjóða áhugamönnum um heimspeki
upp á námskeið um fijálshyggju
nútímans, hugmyndafræði og áhrif.
í fréttatilkynningu frá Endur-
menntunarstofnun Háskólans segir:
„Er rétt að neyða menn til að hjálpa
öðrum? Ei' eignarréttur grundvall-
arþáttur frelsisins? Er sköttun rétt-
lætanleg og þá að hvaða marki?
SÝNING Ferðaklúbbsins 4x4,
„Ferða- og útivistarsýning fjöl-
skyldunnar 1995“ var opnuð í
Laugardalshöllinni í fyrradag,
en sýningunni lýkur á sunnudag-
inn. Tii sýnis eru margir af öflug-
ustu og verklegustu fjallajeppuni
félagsmanna Ferðaklúbbsins
ATKVÆÐAGREIÐSLA vegna
kjörs til formannsembættisins í
Alþýðubandalaginu hefst föstudag-
inn 29. september og lýkur á há-
degi 13. október. Allir fullgildir
félagar í flokknum hafa atkvæðis-
rétt í kjörinu.
Atkvæðaseðlar verða póstsendir
þeim félagsmönnum sem eru á
kjörskrá þann 29. september en
kjörskrá byggist á upplýsingum frá
hveiju Alþýðubandalagsfélagi fyrir
sig. Kjörskrárstofn liggur frammi
á skrifstofu flokksins að Laugavegi
3 í Reykjavík en jafnframt hefur
Alþýðubandalagsfélögum verið
sendur listi yfir félagsmenn sína
sem eru á kjörskrá.
Það er skilyrði fyrir félagsaðild
að vera 16 ára að aldri og skulda
Hvaða rök eru fyrir róttækri ein-
staklingshyggju og viðskiptafrelsi?
Námskeiðið ijallar um spurningar
af þessu tagi í ljósi kenninga ný-
fijálshyggjumanna, svo sem Ro-
berts Nozick, Friedrichs von Hayek
og Miltons Friedman. Námskeiðið
verður kennt á ensku. Lesnir verða
stuttir textar úr ritum nýfijáls-
hyggjumanna."
Námskeiðið fer fram dagana
25., 27. og28. septemberkl. 20.15-
22.15.
4x4, og nýjustu jeppar bílaum-
boðanna. Seljendur jeppaauka-
hluta sýna og kynna vörur sínar,
sýndar eru jeppabreytingar, við-
legu- og útivistarbúnaður og allt
það helsta í leiðsögu- og fjar-
skiptabúnaði. Sýningin er opin
frá 10-22 um helgina.
ekki meira en eitt gjaldfallið félags-
gjald. í frétt frá yfirkjörstjórn Al-
þýðubandalagsins segir að nýir fé-
lagar geti komist á kjörskrá með
því að ganga í flokkinn fyrir 29.
september og kæra sig um leið inn
á kjörskrá. Þá geti þeir sem telji
sig hingað til hafa verið félaga í
flokknum, en hafi af einhveijum
ástæðum fallið af kjörskrá, kært
sig inn á kjörskrá fram að því að
atkvæðagreiðslu lýkur. Kærur
verða að vera skriflegar og fylgja
verður staðfesting á því að viðkom-
andi sé fullgildur félagi.
Tvö eru í kjöri til formannsemb-
ættis Alþýðubandalagsins, al-
þingismennirnir Margrét Frí-
mannsdóttir og Steingrímur J. Sig-
fússon.
Blindrafé-
lagið leitar
til velunnara
UM þessar mundir er Blindrafélag-
ið að fara af stað með nýja fjáröflun
þar sem leitað er til fyrirtækja og
almennings. Almenningi er boðið að
styrkja Blindrafélagið með 2.800
krónum og gerast þannig velunnarar
Blindrafélagsins. Það sem velufinar-
inn fær í staðinn er afsláttarkort sem
veitir afslátt á bilinu 10-50% hjá 130
fyrirtækjum á höfuðborgarsvæðinu
og Akureyri.
Með hveiju korti eru gefnir tveir
bíómiðar í Háskólabíói. Þeir einstakl-
ingar sem greiða fyrrnefnda upphæð
, fá kort sem sýnir að þeir eru velunn-
arar Blindrafélagsins. Framan á
kortinu stendur: Styrkur velunnara
Blindrafélagsins. Kortin gilda út árið
1996. Hægt verður að fá kortin á
skrifstofu Biindarfélagsins, Hamra-
hlíð 17, og auk þess verða sölumenn
á ferðinni að selja í hús og víðar.
í fréttatilkynningu segir að þetta
nýja fyrirkomulag sé viðbót og nýr
valkostur í styrktarmannakerfi fé-
lagsins. Á síðustu tveimur árum hafa
5.000 styrktarfélagar gengið til liðs
við félagið. Um þessar mundir eru
fulltrúar félagsins einmitt að afla
nýrra félaga með sérstöku kynning-
arátaki í síma.
Blindrafélagið, samtök blindra og
sjónskertra á Islandi, var stofnað 19.
ágúst 1939. Félagið vinnur að hags-
munarmálum blindra og sjónskertra
og margvísleg starfsemi fer fram á
vegum þess.
-----» ♦ ♦-----
Bæklunardeild
Borgarspítalans
Að leita
langt yfír
skammt
MORGUNBLAÐINU hefur borist
eftirfarandi athugasemd til birtingar:
„ÞAÐ vakti furðu okkar á Bækl-
unarlækningadeild Borgarspítalans
þegar við lásum um það í Morgun-
blaðinu 21. september að það þyrfti
að leita út fyrir landsteinana eftir
bæklunarskurðlækni til þess að gera
aðgerðir á sjúklingum með með-
fædda hryggskekkju. Á Bæklunar-
lækningadeild Borgarspítalans hafa
verið gerðar frá ársbyijun 1992 um
25 aðgerðir á ungu fólki með hrygg-
skekkju, þ.á m. börnum með með-
fædda hryggskekkju. Árangurinn
hefur verið góður og sparnaður heil-
brigðiskerfisins mikill. Aðgerðirnar
hafa verið gerðar af Ragnari Jóns-
syni, bæklunarskurðlækni, sem hefur
áralanga reynslu af slíkum aðgerðum
og hlaut sína þjálfun á bæklunar-
lækningadeild háskólaspítalans í
Gautaborg.
Við á Bæklunarlækningadeild
Borgarspítalans teljum að ekki þurfa
að leita út fyrir landsteinana eftir
þessari þekkingu þar sem hún hefur
verið til staðar á Borgarspítalansum
sl. fjögur ár.“
Dr. Haraldur
Sigurðsson
Morgunblaðið/Ásdís
Ferða- og úti-
vistarsýning
Formannskjör Alþýðubandalags
Kjörskrá verður iokað
29. september
Úskar Guðmundsson
Yohji Yamamata, Dalce & Gabbana, Saki,
Iceberg, Benetton, Filtenberg og Ileiri
DLERAUENAHÚS ÚSKARS
I3ICMIEGA
vítamín og kalk
fæst í apótekinu