Morgunblaðið - 13.10.1995, Side 10
10 FÖSTUDAGUR 13. OKTÓBER 1995
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
Deilur í kjölfar bréfs
stjómanda sinfóníunnar
Deilur hafa risið í tónlistarheiminum í kjöl-
far bréfs Osmo Vánská til útvarpsstjóra, þar
sem hann lýsir óánægju með störf Guðmund-
----------------------------
ar Emilssonar, tónlistardagskrárstjóra RUV.
Þá hafa fleiri látið þetta mál til sín taka,
eins og rakið er í þessari samantekt.
Hér fer á eftir bréf þeirra Hall-
dórs Haraldssonar, skólastjóra Tón-
listarskólans í Reykjavík, og Eriks
Bachs, stjórnanda tónlistarskólans í
Árósum, til Heimis Steinssonar út-
varpsstjóra. Bréfið var ritað á ensku
en birtist hér í íslenskri þýðingu.
„Undirritaðir hafa fengið í hendur
afrit af bréfí til yðar frá hr. Osmo
Vánská, aðalstjórnanda Sinfóníu-
hljómsveitar Islands, frá 9. október
er ber yfirskriftina „Störf Guðmund-
ar Emilssonar sem aðalskipuleggj-
anda“. Þar sem við sitjum í undir-
búningsnefnd NordSol 95-keppninn-
ar ásamt Guðmundi Emilssyni (G.E.)
ritum við yður þetta bréf til að tjá
yður álit okkar á þessu máli. Gagn-
rýni O.V. er augljóslega gagnrýni á
okkur alla þijá.
Tónlistarráð Norðurlanda, sem
Tónlistarskólinn í Reykjavík á aðild
að, rekur NordSol og Norrænu ein-
leikarahátíðirnar sem voru, G.E. var
ráðinn í stöðu framkvæmdastjóra
NordSol 95 eða „formanns undir-
búningsnefndar". Getsakir Osmo
Vanská (O.V.) um störf G.E. eru að
ökkar mati óréttlátar og við viljum
útskýra ákveðin atriði sem nefnd eru
í þessu einstaklega harðorða bréfi.
O.V. heldur því fram að Sinfóníu-
hljómsveitin hafi sætt „fyrirlitningu
og móðgunum" á lokatónleikunum.
Það þarf að vera ljóst frá upphafi
að markmið NordSol er að kynna
hæfileikaríkustu tónlistarmennina
úr röðum ungs fólks á Norðurlöndum
fyrir stærri áheyrendahópi og
styrkja þá þannig á framabrautinni.
Að þessu sinni var álitið að sam-
keppni væri heppilegust og sam-
komulag náðist við íslenska rík-
issjónvarpið um að Iokatónleikunum
og verðlaunaafhendingunni yrði
sjónvarpað beint, 45 mínútna sjón-
varpsdagskrá yrði einnig gerð er
send yrði út síðar á Norðurlöndunum
öllum og víðar.
Það var ekki fyrr en í vikunni er
keppnin fór fram að okkur var -sagt
að O.V. væri að æfa En Saga eftir
Sibelius fyrir lokatónleikana. Sjón-
varpið hafði tjáð okkur að við hefð-
um aðeins eina klukkustund og
stundarfjórðung fyrir lokatóníeikana
þar sem taka þyrfti myndavélarnar
niður og nota þær á öðrum vett-
vangi síðdegis sama dag og var því
augljóst að ekki yrði hægt að sjón-
varpa flutningi En Saga. Sinfón-
íuhljómsveitin yrði í þessum efnum
að taka tillit til ungu tónlistarmann-
anna, allt annað skipti minna máli.
Ef nægur tími hefði verið fyrir En
Saga myndum við ekki hafa haft
neitt á móti flutningi verksins. Það
var einfaldlega ekki tími til þess.
Að auki sagði Sjónvarpið okkur að
framleiðandinn hefði þurft viku til
að búa til „handrit" vegna þess að
mun flóknara er að kvikmynda flutn-
ing hljómsveitarverks en tónleika.
Það er því ekki rétt hjá O.V. er
hann fullyrðir að hægt hefði verið
að gera þetta með nokkrum æfing-
um í vikunni. Annað atriði í þessu
máli og það er mjög alvarlegt er að
O.V. lét þátttakendur ekki hafa
nægan tíma til að æfa fyrir tónleika
sína vegna þess að hann tók af þeim
tíma til að æfa En Saga. Þetta bend-
ir til þess að hann hafi í þessu máli
ekki haft af því áhyggjur hvort ungu
einleikararnir fengju nægilegan tíma
tii æfinga og með einhveijum hætti
virðist hann hafa misst sjónar á því
að tónlist einléikaranna tveggja var
aðalatriði lokatónleikanna, þarnæst
afhending verðlaunanna sem forseti
íslands annaðist.
Föstudaginn 6. október sagði
hann einum okkar að yrði fiutningi
En Saga ekki sjónvarpað væri alls
ekki öruggt að hann myndi sjá um
hljómsveitarstjórnina. Hann hélt
okkur í algerri óvissu um lokatón-
leikana þangað til félagar í Norræna
tónlistarráðinu sendu honum skila-
boð á laugardagsmorgun þar sem
honum var tjáð að ef hann ákvæði
að stofna með einhveijum hætti í
voða lokatónleikunum myndi ráðið
segja frá málinu opinberlega og út-
skýra hvað hefði valdið, af áður-
nefndri orsök.
O.V. nefnir einnig að G.E. reyni
að vera í sviðsljósinu, t.d. lesi hann
upphátt allar upplýsingar sem fram
komi í prentaðri lagaskrá. Öllum
tónleikum í vikunni var útvarpað,
þeim síðustu einnig sjónvarpað og
þar sem áheyrendur eða áhorfendur
voru ekki með skrá heima hjá sér
er ljóst að kynna þurfti tónleikana
munnlega. Þess vegna þurfti að vera
hægt að sjá og heyra G.E. Hann var
einfaldlega að vinna sitt starf fyrir
ríkisútvarpið.
í eftirskrift minnist O.V. á breyt-
ingar á skipun í dómnefnd og við
verðum að útskýra að föstudaginn
29. september hafði Sibeliusaraka-
demían í Helsinki samband við G.E.
og skýrði honum frá því að Kaija
Saarikettu prófessor, fulltrúi Finna
í dómnefndinni, he'fði veikst og væri
ráðlágt að fara ekki í nein ferðalög,
verið væri að leita að öðrum prófess-
or til að koma í stað hennar. Þar
sem enginn fannst stakk G.E. upp
á því við Sibeliusarakademíunaa að
O.V., sem væri Finni, kæmi í stað
hennar og bað um að akademían
staðfesti samþykki sitt við þessu
fyrirkomulagi formlega með bréfi.
Áð því fengnu reyndi hann marg-
sinnis að ná sambandi við O.V. en
án árangurs. Þetta var laugardaginn
30. september og sunnudaginn 1.
október er hann var önnum kafinn
við undirbúninginn og við að taka á
móti þátttakendunum og sumum
félaga dómnefndarinnar að utan.
Þrátt fyrir þetta vorum við ekkert
órólegir því að við bjuggumst við
að O.V. kæmi ekki seinna en á
sunnudagskvöld, það kom okkur
mjög á óvart að hann kom ekki til
að stjórna mánudagsæfingunni, kom
ekki fyrr en seint á mánudagskvöld
og var því æfíngadögunum með
hljómsveitinni fækkað um einn í
þijá. Á mánudagsmorgun var O.V.
enn ekki kominn til að stjórna hljóm-
sveitinni, við urðum að taka ákvörð-
un og ljóst var að það urðu að vera
tveir dómnefndarmenn frá einu land-
anna til að halda oddatölunni (5) í
nefndinni. Þar sem við vissum að
G.E. hafði oft setið í dómnefnd eða
verið í forsæti slíkrar nefndar báðum
við hann vinsamlegast að taka sætið.
Bréf O.V. virðist, þegar öllu er á
botninn hvolft, vera ritað í skyndi-
bræði. Hann sendir ráðherra menn-
ingarmála og öllum liðsmönnum sin-
fóníuhljómsveitarinnar afrit, okkur
finnst þetta styrkja þetta álit okkar
og sýna allt of harkaleg viðbrögð
af hálfu hans.
Eftir stendur að það er ekki álit
íslendinga, sem O.V. nefnir og virð-
ist hafa áhyggjur af, sem er í húfi í
málinu heldur hans eigið álit erlendis
og einkum á Norðurlöndunum. Árs-
fundur Samtaka norrænna stjórn-
enda sinfóníuhljómsveita var haldinn
í Reykjavík um leið og NordSol-
keppnin og hefði O.V. staðið við hót-
anir sínar er mögulegt að þeir hefðu
skýrt frá hegðun O.V. hvarvetna á
Norðurlöndum. Hvað sem því líður,
O.V. annaðist hljómsveitarstjórnina á
lokatónleikunum, af sinni venjulegu
færni, og fyrir það vorum við allir
þakklátir og tjáðum honum það.
Að lokum: Þegar haft er í huga
hve alvarlegt þetta mál, sem komið
hefur upp vegna bréfs O.V., er teljum
við það óhjákvæmilegt að þér séuð
með allar staðreyndir þess á hreinu
og tekið verði fullt tillit til þeirra við
mat á stöðu G.E. í tónlistarlífi íslend-
inga sem O.V. hefur stofnað í mikla
hættu.“
„Útúrsnúningar
sem vöktu hlátur“
Osmo Vánská aðalstjórnandi Sin-
fóníuhljómsveitar íslands segir í
samtali við Morgunblaðið, að fullyrð-
ingar Guðmundar Emjlssonar, tón-
listardagskrárstjóra RÚV, þess efnis
að hann hafi haldið forseta íslands
í gíslingu, séu fáránlegar. „Guð-
mundur fer með útúrsnúninga og
ósannindi sem vöktu hjá mér hlátur,
allt þangað til hann fór að ræða um
forsetann," segir Osmo.
Guðmundur sagði í samtali við
Morgunblaðið í gær að Osmo hafi
ætlað að hafa „En Saga“ eftir Sibel-
ius seinast á dagskránni, en orðið
æfur og skipt um skoðun þegar hann
komst að því að forsetinn og töku-
menn sjónvarpsins yrðu farnir áður
en það væri flutt. Hann hafi í fyrstu
neitað að stjórna nema „En Saga“
væri flutt framar í dagskránni, en
síðan fallist á að stjórna ef tryggt
væri að forsetinn væri viðstaddur til
loka tónleikanna.
Vill virðingu fyrir SÍ
Osmo segir hins vegar að seinasta
föstudag hafi Guðmundur tilkynnt
að tímaáætlun forsetans væri svo
þröngur stakkur sniðinn að hún yrði
að fara af tónleikunum klukkan 15,
á sama tíma og tæknimenn sjón-
varpsins tækju saman föggur sínar.
„Ég gerði engar kröfur um að
forsetinn væri viðstaddur, en þegar
ég frétti sama dag og tónleikarnir
voru haldnir að svo yrði, vildi ég af
skiljanlegum ástæðum ljúka tónleik:
unum um leið og forsetinn færi. í
mínum huga var ástæðulaust að
leika að því loknu, og ekki væri ráð-
legt að gerá hlé sem trufla myndi
áhorfendur og snúa síðan aftur til
að leika eitt verk. Ég myndi aldrei
nokkurn tímann reyna að þvinga
forseta íslands eða hafa áhrif á veru
hennar á nokkurn hátt,“ segir Osmo.
Guðmundur fullyrti að Osmo hafi
viljað hafa verk finnska tónskáldsins
aftast á dagskránni í því skyni að
geta „einn baðað sig í fagnaðarlátum
í lokin“ og þurfa ekki að „deila sviðs-
ljósinu með öðrurn". Osmo segir
þennan málflutning fullkomlega
fjarstæðukenndan.
„Þetta er óralangt frá hugmynd-
um mínum. Það eina sem skiptir
máli í mínum huga er hljómsveitin,
því að oft er það svo að fjölmiðlar
beina aðeins augum sínum að stjórn-
endum og einleikurum en gleyma
hljómsveitinni. Ég vildi hins vegar
benda á að íslendingar eiga afar
góða sinfóníuhljómsveit og að hún
yrði ekki meðhöndluð með óvirðingu,
eins og að sjónvarpsmenn færu áður
en hún léki og sýndi hvað í henni
býr. Að einhver skuli hins vegar telja
mig upptekinn af eigin dýrðarljóma
í þessu sambandi er með öllu ósatt.“
Samskiptaörðugleikar
„Ég hefði ekki lagt fyrir mig
hljómsveitarstjórnun ef ég hugsaði
á þessum forsendum, því að enginn
veit á þeim tíma hvort verk hans
skili árangri. Ég gat ekki gert mér
vonir um þau jákvæðu viðbrögð og
gagnrýni sem heimsblöð á borð við
Los Angeles Times eða New York
Times hafa birt um tónleika undir
minni stjórn og hljóðupptökur, en
þar sem þau eru staðreynd, þarf ég
ekki að reyna að upphefja mig á
Nord-Sol, lokakeppni ungra tónlist-
armanna, eða annars staðar. Ég hef
aldrei þurft að baða mig í sviðsljós-
inu, en sé hins vegar hvað býr að
baki orðum Guðmundar.
Hann hefur reynt að koma undir
sig fótunum sem stjórnandi hérlend-
is, en staðreyndin er sú að SÍ hefur
neitað að leika framvegis undir hans
stjórn, og ég heid að hann sé að
hugsa um sjálfan sig þegar hann
ræðir um þörf til að baða sig í dýrð-
arljóma. Að minnsta kosti þarf ein-
hver annar á honum að halda en ég.“
Hann ítrekar að samskiptaörðug-
leikar SÍ og tónlistardagskrárstjóra
RÚV eigi sér langa forsögu, en mis-
tök þau sem gerð hafi verið vegna
lokatónleika Nord-Sol séu kornið
sem fyllti mælinn.
„Guðmundur hefur uppi_ einræð-
istilburði sem hafa valdið SÍ miklum
erfiðleikum, hann leynir hana vitn-
eskju á þann hátt að upplýsinga:
flæði og skipulagningu á tímum SÍ
til upptöku í útvarpi er verulega
ábótavant. Eina ósk mín er sú að
RÚV láti Guðmund hætta öllum af-
skiptum af málefnum SÍ, því að ég
get ekki lengur orða bundist. Ég vil
hins vegar ekki að umræðan sé í
sama anda og Guðmundur hefur
haft frammi, enda eingöngu til þess
að rugla utanaðkomandi í ríminu,
en minni bara á að árekstur af þessu
tagi myndi aldrei verða að tilefnis-
Iausu,“ segir Osmo.
Bréf Osmo Vanska
til útvarpsstjóra
✓
Hér fer á eftir bréf sem Osmo
Vánská, aðalstjórnandi Sinfóníu-
hljómsveitar íslands, hefur sent
Heimi Steinssyni útvarpsstjóra:
„Eftir lokatónleikana laugardag-
inn 7. október gafst mér tækifæri
til að spjalla við marga um Nord-Sol-
keppnina. Ég ræddi m.a. við fulltrúa
Nordiska Konservatorierádet, sem
höfðu tekið þátt í að skipuleggja
keppnina. Allir voru þeir sammála
um að einleikararnir ungu hefðu
verið frábærir en því miður vöktu
margir þeirra máls á skelfilegu
skipulagi og vandræðum ýmsum
sem komið hefðu upp vegna einræð-
istilburða G.E. sem ráða vildi algjör-
lega öllu. Þetta fólk spurði: Er þetta
sú mynd sem íslendingar vilja gefa
umheiminum?
Þessi spurning er tilefni þess að
ég sest niður og greini frá reynslu
minni af Nord-Sol-keppninni.
Hlutverk skipuleggjanda er að
hafa framkvæmd með höndum en
ekki að setja sjálfan sig í kastljósið.
Á tónleikum er óþarfi að tiltekinn
aðili kynni dagskrána þegar hún
liggur fyrir á prenti.
A lokatónleikunum einkenndist
framkoman í garð hljómsveitarinnar
af fyrirlitningu og var móðgandi.
Einungis fyrsta hluta tónleikanna
var sjónvarpað og niðurröðuhin í
lokin þegar leikið var stutt Hljóm-
sveitarverk (En Saga eftir Sibelius)
var fráleit frá listrænu sjónarmiði.
Ég spyr: Hvernig má það vera að
daginn fyrir tónleikana, á föstudag,
tjáði Halldór Haraldsson, einn skipu-
leggjenda Nord-Sol, mér að hann
vissi ekkert um að flytja ætti „En
Saga“? G.E. sem á sæti í verkefna-
nefnd hljómsveitarinnar gat ekki
komið þessum upplýsingum á fram-
færi við Halldór þótt hann hefði
hálft ár til þess.
Þessi saga öll einkennist af svo
furðulegum og órökréttum svörum
og fullyrðingum að spyrja verður:
Er einhver að ljúga?
Samkvæmt upplýsingum sem ég
fékk á föstudag frá Ríkissjónvarpinu
hefði verið hægt að lengja útsend-
ingartímann og sýna alla tónleikana
hefði mönnum þar á bæ verið kunn-
ugt um það viku áður að flytja ætti
„En Saga“. Er heppilegt að gefa
erlendum áhorfendum þessa mynd?
Ég hef nú verið aðalstjórnandi
Sinfóníuhljómsveitar íslands í rúm
tvö ár. Á hverju ári er nokkrum vik-
um varið til vinnu fyrir útvarp. Oft
hefur hljómsveitin kvartað undan
þessu við mig. Útsetningar berast
of seint: Upplýsingar um stjórnend-
ur, verkefni og einleikara berast svo
seint að vandræðum veldur. Guð-
mundur Emilsson er ábyrgur fyrir
þessu starfi af hálfu Ríkisútvarps-
ins. Mjög erfitt er að eiga við hann
samskipti vegna þess að hann vill
stjórna öllu og heldur upplýsingum
aðeins fyrir sig.
Ég legg eindregið til að Ríkisút-
varpið losi Guðmund Emilsson und-
an öllum skyldum hans sem varða
Sinfóníuhljómsveit íslands. Óhugs-
andi er að samvinna á þessu sviði
geti skilað árangri.
Jafnframt hefur G.E. tekið að sér
stjórnun. Sinfóníuhljómsveit íslands
hefur neitað að leika undir hans
stjórn af listrænum ástæðum. Þetta
veldur augljóslega vandræðum.
Ég vona að orðið verði við þessum
tilmælum mínum sem fyrst.
Virðingarfyllst;
Osmo Vanska. [sign]
Aðalstjórnandi Sinfóníuhljóm-
sveitar íslands.
P.S. Nú í morgun (9. október)
fékk ég óvæntar upplýsingar frá
Sibeliusar-akademíunni í Helsinki.
Þegar dómarinn frá Finnlandi, Kaija
Saarikettu, kennari við Sibeliusar-
akademíuna, veiktist stungu þeir
upp á að ég tæki sæti hennar í dóm-
nefndinni. Þetta staðfestu þeir síðar
bréflega. Þeir voru mjög undrandi
þegar þeir fréttu í morgun að ég
hefði ekki átt sæti í dómnefndinni.
Þegar ég ræddi þetta mál við G.E.
síðasta þriðjudag minntist hanh ekk-
ert á þessa tillögu Sibeliusar-aka-
demíunnar. En hann gat þess að
hann hefði tekið sæti í nefndinni!
Og skyndilega var hann orðinn for-
maður dómnefndar! Furðulegt!
Ég spyr enn á ný: Er þetta sú
mynd sem íslendingar vilja draga
upp af þjóðinni erlendis?"
Samrit af bréfinu voru send Birni
Bjarnasyni, Halldóri Haraldssyni,
Herði Sigurgestssyni, Runólfi B.
Leifssyni, Guðmundi Emilssyni, og
öllum hljóðfæraleikurum Sinfóníu-
hljómsveitarinnar."
Mögulegt að sýna „En Saga“
Þorgeir Gunnarsson, aðstoðardag-
skrárstjóri Sjónvarps, segir að hugs-
anlegt hefði verið að sýna frá flutn-
ingi á „En Saga“, að því tilskildu að
dagskráin hefði verið þétt.
„Eflaust hefði verið hægt að skipu-
leggja dagskrána að öðru leyti þann-
ig að verkið kæmist fyrir, en fyrirvar-
inn var allt of skammur. Við vissum
ekki endanlega hver dagskrá Nord-
Sol yrði fyrr en á föstudaginn, en
höfðum tilkynnt Guðmundi Emilssyni
á miðvikudag að við hefðúm lítinn
tíma vegna beinnar útsendingar strax
á eftir,“ segir Þorgeir og kveðst telja
að nægjanlegt hafi verið að vita um
flutninginn á „En Saga“ á mánudegi.
Hann segir að forsvarsmönnum
dagskrárdeildar hafl komið mjög á
óvart að „En Saga“ væri flutt í loka-
keppninni og hann kunni engar skýr-
ingar á að nákvæmari fregnir af
dagskránni bárust ekki fyrr til Sjón-
varpsins. Ábyrgðin liggi hjá skipu-
leggjendum Nord-Sol.
Sveinbjöm I. Baldvinsson, deild-
arstjóri innlendrar dagskrárdeildar
sjónvarps, sagði að við undirbúning
málsins hefði aldrei verið minnst á
flutningi „En Saga“ heldur einungis
einieiksverkanna tveggja. Hann
sagðist telja að ein af ástæðunum
fyrir því að deilur urðu um fram-
kvæmd sjónvarpsútsendingarinnar
hefði verið, að sá misskilningur hefði
komist á kreik að tónleikunum yrði
sjónvarpað beint til fleiri landa. Það
hefði aldrei staðið til. Hins vegar
yrði gerð heimildarmynd um Nord-
Sol sem sýnd yrði á Norðurlöndunum
og hugsanlega víðar.
Heimir Steinsson útvarpsstjóri
vildi ekki tjá sig um málið í gær.
§
m
vj
í
4
V
(
i
I
í
i
á
\
i
u
I (
(
<
I
I
<
<