Morgunblaðið - 13.10.1995, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 13.10.1995, Blaðsíða 24
Morgunblaðið/Kristinn flkngtuiMabtík MORGUNBLAÐIÐ 24 FÖSTUDAGUR 13. OKTÓBER 1995 ER HÆGT AÐ LÆKKAIÐGJÖLDIN? íslenski bílatryggingamarkaðurinn er erfiður viðureignar og verður áreiðanlega ekki auðunninn. Þó virðist nýr aðili geta átt viss færi. Helgi Bjamason dregur saman helstu niðurstöður úr flokki greina um bílatryggingar sem birst hafa í blaðinu undanfarna daga. FÉLAG íslenskra bifreiða- eigenda hóf umræðuna um bílaiðgjöldin með kröfu um lækkun ið- gjalda á þeim grundvelli að þau væru óeðlilega há hér í saman- burði við hin Norðurlöndin. Einnig var bent á peninga í bólgnum bóta- sjóðum sem nota mætti til að lækka iðgjöldin. Talsmenn trygg- ingafélaganna töldu hins vegar öll tormerki á því að hægt væri að lækka iðgjöldin. Forystumenn FÍB svöruðu með því að hefja undirbún- ing að alþjóðlegu útboði bílatrygg- inga með það að markmiði að lækka iðgjöld um 20-30%. í greinaflokki Morgunblaðsins um bílatryggingar undanfarna daga hefur þeirri spurningu ekki verið svarað hvort mögulegt sé að lækka iðgjöldin, eða hversu mikið. Hins vegar hefur verið reynt að brjóta til mergjar einstaka þætti málsins þannig að fólk geti sjálft myndað sér skoðun. Spennandi útboð Miklll vendipunktur verður í þessu máli síðar á árinu þegar FIB opnar tilboð í tryggingaútboðinu. Verður spennandi að fylgjast með því hvað félagið nær að safna miklu liði og síðan hvort erlend tryggingafélög, eða hugsanlega innlendir aðilar, treysta sér ti! að bjóða lægri iðgjöld en tryggingafé- lögin sem fyrir eru á markaðnum. Það verður ekki fyrr en þá að hægt verður að átta sig til fulls á því hvor deiluaðili hefur rétt fyrir sér. Og það svar miðast að sjálf- sögðu eingöngu við þann tíma- punkt, framtíðin verður að leiða það í ljós hvort nýr aðili geti rekið þessa tryggingagrein betur en ís- lensku tryggingafélögin. Við athugun á máiinu í heild hafa skýrst ýmis atriði sem áhrif hafa á iðgjöld bílatrygginga. Sum benda til þess að mögulegt sé að lækka iðgjöldin en önnur til þess að á því séu litlar líkur. Nokkrir plúsar Meðal þeirra atriða sem gætu bent til þess að mögulegt væri að lækka iðgjöldin er sú staðreynd að á íslenska markaðnum hefur ekki orðið saman þróun í flokkun vátryggingataka eftir áhættu og í nágrannalöndunum og því er ekki „réttur“ munur á iðgjöldum „slæmra" ökumanna og „góðra“. Erlent félag gæti hugsanlega náð. fótfestu. á markaðnum í gegn um útboð FIB með því að sækjast ein- ungis eftir bestu áhættunni og bjóða þar lægri iðgjöld en nú tíðk- ast en losa sig undan verri áhættu- hópunum. Þetta er auðvitað hæg- ara sagt en gert og mér hefur verið bent á að íslensku trygginga- félögin hafi til dæmis ekki treyst sér til þess að bjóða lægra iðgjald gegn því að tiltekinn maður mætti einn aka bílnum, vegna ákvæða í reglugerð um bílatiyggingar sem takmarkar endurkröfurétt trygg- ingafélaga þegar tryggingaskil- málar eru brotnir. Fram hafa komið upplýsingar um að tryggingafélögin hafi verið að byggja upp öryggisálag á bóta- sjóði allra síðustu árin, eftir að þau höfðu brunnið upp á stuttum tíma eftir breytingar á umferðarlögum 1987. Forstöðumaður Vátrygg- ingaeftirlitsins segir að verulegt hreint öryggisálag sé í sjóðunum, án þess að birta um það beinar tölur, en orð hans verða varla túlk- uð öðruvísi en svo að álagið skipti milljörðum kr. Sé það rétt sam- svarar öryggisálagið næstum því iðgjöldum í heilt ár. Sérfræðingar eru sammála um að þörf sé á ör- yggisálagi vegna framtíðaráhættu í þessari grein en deila má um það hvort það álag sem nú hefur verið myndað er nákvæmlega það rétta. Þá virðast tryggingafélögin hafa verið að leggja fé í bótasjóði vegna óvissunnar um áhrif skaðabóta- laga. Fyrstu vísbendingar eru að koma í ljós og benda þær til þess að meðaltjónabætur séu heldur að lækka eftir mikla hækkun undanf- arin ár en lítil reynsla er komin á það hvað alvarlegustu líkamstjónin munu kosta tryggingafélögin. Lín- ur skýrast betur í lok þessa árs. Ef tryggingafélögin geta hætt að stækka bótasjóðina af framan- greindum ástæðum ætti það að skapa svigrúm til lækkunar ið- gjalda. Þetta er þó háð afkomu greinarinnar og má halda því fram með nokkrum rökum að öryggis- álag bótasjóða í bílatryggingum hafi einnig myndast með fé af ið- gjöldum annarra tryggingagreina. Einnig mínusar Á móti þessu vega nokkur atriði sem draga úr líkunum á lækkun iðgjalda. Nýtt tryggingafélag þyrfti væntanlega að byggja upp bótasjóði með tryggingaiðgjöldum af íslenska markaðnum og standa íslensku félögin því ágætlega að vígi í samkeppninni, með það ör- yggisálag sem þau virðast hafa náð að byggja upp. Ljóst er að tjónareynsla er mjög slæm á íslenska markaðnum. Kostnaður við tjón er tvö- til þre- falt meiri en á hinum Norður- löndunum. Ástæðan hefur ekki verið skýrð til fulls en þó er vitað að bótaskyld tjón eru fleiri hér og hvert líkamstjón dýrara. Þá er við- urkennt að rekstrarkostnaður ís- lensku tryggingafélaganna er lægri en algengast er erlendis. Er erfitt að sjá hvaða möguleika er- lent tryggingafélag hefur til að gera betur á þessum sviðum. Nema það geti valið sér betri áhætturnar, eins og fyrr er vikið að. Það hefur sænska tryggingafé- lagið Skandia reyndar verið að reyna að gera á þessum markaði með því að auka áhættuflokkun en kostnaður við tjón hefur reynst meiri en reiknað var með. Skandia_ býður ekki sænsk ið- gjöld á íslandi, heldur iðgjöld áþekk þeim sem alíslensku trygg- ingafélögin bjóða. Sama gildir um félög sem eru með starfsemi víðs vegar um Evrópu. Þau verðleggja sig eftir aðstæðum á hverjum markaði. Það er vísbending lim að samanburður á iðgjöldum milli landa getur aðeins verið til að- halds, erlend tryggingafélög munu ekki bjóða sömu iðgjöld á íslandi og þau eru með á einhverjum öðr- um mörkuðum. Erfiður markaður Sú staðreynd að markaðssókn Skandia inn á íslenska bílatrygg- ingamarkaðinn hefur kostað móð- urfélagið yfir 300 milljónir kr. á þremur árum hlýtur að vera góð vísbending um að þetta sé fremur erfiður markaður og ekki auðvelt að taka hann með trompi. Tölur

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.