Morgunblaðið - 13.10.1995, Blaðsíða 16
16 FÖSTUDAGUR 13. OKTÓBER 1995
VIÐSKIPTI
MORGUN BLAÐIÐ
Staðsetning álvers Columbia Aluminium skýrist í árslok
Aðildin að EES
styrkir stöðu íslands
Þeir Þorsteinn Siglaugsson, Einkaklúbbnum, Atli Örn Jónsson
og Sigurður Jónsson, Eurocard, Guðmundur Guðlaugsson, Einka-
klúbbnum og Bergsveinn Samsted, Eurocard gengu frá samningi
fyrirtækjanna.
Eurocard semur
við Einkaklúbbinn
Atlaskorthafar fá aðild
EUROCARD á Íslandi hefur geng-
ið frá samningi við Einkaklúbbinn
sem veitir öllum korthöfum ATL-
AS-kreditorta fulla aðild að
klúbbnum án sérstaks aukagjalds
fyrir korthafa, að því er segir í
frétt.
Einkaklúbburinn er einn stærsti
fríðindaklúbbur hér á landi og
hefur starfað síðan 1992. Klúbbfé-
lagar eru nú um 11 þúsund. Klúbb-
urinn veitir félögum 10-50% af-
slátt af vörum og þjónustu fyrir-
tækja um alit land og hefur sér-
stök áhersla verið lögð á þarfir
ungs fólks í þessu sambandi. Fjöldi
veitinga- og skemmtistaða bjóða
klúbbfélaga velkomna.
Nýlega gerði Einkaklúbburinn
samninga fyrir félaga sína við
valda veitingastaði í Dublin á ír-
landi og ráðgert er að slíkir samn-
^Zr/s/cr
TÍSKULITIRNIR
HAUSTIÐ '35
ingar verði gerðir á fleiri stöðum
erlendis þar sem íslendingar venja
komur sínar.
Þá segir ennfremur að Atlas-
kortið og Einkaklúbburinn séu að
hefja öflugt markaðsátak meðal
ungs fólks og vænti sér mikils af
þessu samstarfí. Sérstakur klúbb-
ur sem Landsbanki íslands starf-
rækir fyrri ungt fólk, Náman, sé
einnig í nánu samstarfí við Euroc-
ard og Einkaklúbbinn.
FYRRI stofnfundur Þýsk-íslenska
verslunarráðsins var haldinn í gær
í húsakynnum Verslunarráðs ís-
lands. Auk Verslunarráðs stóðu
þýska sendiráðið hér á landi, ís-
lenska sendiráðið í Bonn og Útflutn-
ingsráð íslands að stofnun ráðsins.
Það mun fá aðstöðu á skrifstofu
Verslunarráðs og verður fljótlega
ráðinn sérstakur framkvæmdastjóri
í hálft starf.
Herbert Guðmundsson, félags-
málastjóri Verslunarráðs, sagði í
samtali við Morgunblaðið að hinu
nýja ráði væri ætlað að miðla upp-
lýsingum, aðstoða félagana eftir
þörfum og vinna að ýmiskonar mál-
um sem gætu aukið viðskipti land-
anna. Hann sagði að búist væri við
fjárhagslegum stuðningi frá þýska
verslunarráðinu sem myndi væntan-
lega gera kleift að ráða fram-
kvæmdastjóra í fullt starf í náinni
framtíð. „Það eru gríðarlega miklir
möguleikar á auknum viðskiptum
landanna. Tengingin við þýska
verslunarráðið tengir okkur einnig
við önnur sambærileg verslunarráð
um allan heim sem eru á sjöunda
tug talsins. Menn einblína mjög á
ýmis tækifæri Sem skapast með
þessu.“
KOSTIR íslands hvað varðar stað-
setningu álvers Columbia Alumi-
nium Corp. eru íjölmargir, að sögn
James F. Hensels, yfirmanns nýrra
verkefna hjá fyrirtækinu. Hann
segir hins vegar að endanleg
ákvörðun muni ekki liggja fyrir
fyrr en í lok þessa árs. Meðal
þeirra kosta sem hann nefnir er
aðild íslands að evrópska efna-
hagssvæðnu.
Aðildað EES
kostur
„Helstu kostimir við ísland sem
valkost í stöðunni eru að landið
getur framleitt mjög mikið magn
raforku. Starfsfólkið er vel mennt-
að og landið er aðili að evrópska
efnahagssvæðinu," segir Hensel.
Hann segir síðastnefnda kostinn
skipta talsvert miklu máli þar sem
tollar á áli inn á Evrópumarkað
,séu nú u.þ.b. 6% og áætlanir fyrir-
tækisins geri ráð fyrir því að fram-
leiðslan muni að stórum hluta fara
á Evrópumarkað.
Viðræður við hérlenda aðila að
undanförnu hafa gengið vel að
Fundurinn samþykkti að mæla
með því að Max Adenauer, konsúll
íslands í Köln, yrði valinn sérstakur
heiðursformaður ráðsins. í stjórn
voru kjörnir Páll Kr. Pálsson, fram-
sögn Hensels. „Við höfum staðið
í viðræðum við Markaðsskrifstofu
iðnaðarráðuneytisins og Lands-
virkjunar og munum halda þeim
viðræðum áfram samhliða því sem
við erum að skoða aðra mögu-
leika. Við erum að reyna að hraða
þessum málum eins og unnt er,
enda viljum við geta hafið fram-
kvæmdir við byggingu álversins
sem fyrst. Það eru hins vegar
margar hindranir í vegi okkar enn
en ég vonast til þess að við getum
komist að niðurstöðu fyrir árslok.“
Venesúela með lægsta
raforkuverðið
Hensel segir íslendinga vera
samkeppnishæfa í raforkuverði,
miðað við hin löndin þijú, en þeir
séu þó ekki lægstir. „í Oman
myndum við nota gas til að fram-
leiða rafmagn fyrir álframleiðsl-
una og það yrði því dýrari kostur
en á Islandi. Hins vegar er ríkis-
stjórnin þar tilbúin til þess að út-
vega fjármagn. í Venezuela er
raforkuverð lægra en á íslandi,
en í Kanada er það mjög svipað."
kvæmdastjóri Sólar, Kristján
Hjaltason, forstöðumaður skrifstofu
Eimskips í Hamborg, Sigurður
Helgason, forstjóri Flugleiða, og dr.
Christian Roth, forstjóri ísal. Alls
Eins og fram hefur komið í
fréttum hefur Columbia Alumi-
nium óskað eftir því að umhverfis-
mat verði unnið vegna mögulegrar
staðsetningar álvers með 60 þús-
und tonna framleiðslugetu í ná-
grenni Járnblendiverksmiðjunnar
að Grundartanga. Hensel segir að
heildarkostnaður við byggingu
þessarar verksmiðju sé áætlaður
160 milljónir dollara eða liðlega
10 milljarðar króna og muni hún
skapa um 200 manns atvinnu þeg-
ar hún kemst í gagnið. Columbia
Aluminium rekur nú þegar eitt
álver í Washington og er fram-
leiðslugeta þess um 165 þúsund
tonn á ári.
Velta fýrirtækisins á síðasta ári
var, að sögn Hensels, u.þ.b. 450
milljónir dollara, eða sem nemur
ríflega 29 milljörðum króna. I dag
starfa um 1.400 manns hjá fyrir-
tækinu.
Hensel segist vera spenntur fyr-
ir Islandi sem valkosti og er
ánægður með þær viðræður sem
fram hafa farið. Hann ítrekar þó
að engin ákvörðun liggi fyrir enn.
hafa 86 aðilar skráð sig sem stofnfé-
laga ráðsins. Síðari stofnfundurinn |
verður haldinn í Hamborg þann 27.
október nk. og er búist við því að ’
30 manns fari héðan á þann fund. I
Þýskt-íslenskt verslunarráð sett á stofn
Stóraukin markaðstækifæri
FRÁ stofnfundi Þýsk-íslenska verslunarráðsins, f.v. Páll Kr. Pálsson, framkvæmdastjóri Sólar hf.,
Dr. Alexander Albrich, viðskiptafulltrúi þýska sendiráðsins, Hellmut Schatzschneider, sendiherra
Þýskalands, Halldór Ásgrímsson, utanríkisráðherra, Einar Sveinsson, formaður Verslunarráðs, og
Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdasljóri Verslunarráðs.
LAUGAV E G1 B
SlMI SSI 44SS
Jean Paul Eaullier, Yahji Yamamoto, Dolce & Eabbana,
Iceberg, Saki, Benetlon, Filtenborg og Ileiri
Sýningí
Portúgal
kynnt >
IÐNTÆKNISTOFNUN efnir til j
kynningar á Grand Hótel í dag 13. '
október kl. 12-13.00. Þar verða veitt-
ar upplýsingar um sýninguna, Euro-
partenariat, sem fram fer í Portúgal
24.-25. nóvember. Á sýningunni
kynna 400 portúgölsk fyrirtæki vör-
ur sínar og samstarfsmöguleika.
Europartenar er ekki hefðbundin
vörusýning heldur eru skipulagðir
fundir með fulltrúum portúgölsku j
fyrirtækjanna fyrirfram. Þátttakend- t
um gefst kostur á að kynnast fyrir-
tækjunum í tölvubánka eða riti sem I
gefið verður út.