Morgunblaðið - 13.10.1995, Síða 45

Morgunblaðið - 13.10.1995, Síða 45
MORGUNBLAÐIÐ * DANSHÚSIÐ * o STAÐUR HINNA DANSGLOÐU o 1 GlÆSIBÆ^S@sr"S: 568 6220 NORÐAN 3 + ÁSDIS c HUÓMSVEIT FRÁ SAUÐÁRKRÓKI - í ALÞJÓÐLEGRI SVEIFLU! Kynnum 0ansklúbbinn sem stofnabur er í tilefni 25 ára afmælis Danshússins. R Aðgangseyrir kr. 500 - Snyrtilegur klæðnaður. Opið 22-03 Listajnennirnir halda uppi FÓLK í FRÉTTUM FÖSTUDAGUR 13. OKTÓBER 1995 45 Söngkonan Whigfield Vinsælust í Englandi DANSKA söngkonan Whigfield er meðal vinsælustu söngkvenna Evr- ópu. Hún hefur gefíð út eina plötu, „Whigfield“. Á henni er lagið „Sat- urday Night“ sem fór á toppinn í fjór- um löndum. I samtali við Morgunblað- ið sagðist Whigfíeld, eða Sannie Charlotte Carlson réttu nafni, vera á tónleikaferðalagi um Bretland. í næstu viku héldi hún til Brasilíu í tónleikafór. „Ég er að fylgja plötunni eftir þessa dagana. Nýjasta smáskíf- an er með laginu „Think of You“, sem hefur gengið mjög vel,“ segir hún. Whigfíeld segist njóta mestra vin- sælda í Englandi og Þýskalandi, enda voru það enskir ferðamenn sem heyrðu „Saturday Night“ á Spáni og komu með vinsældir lagsins heim. Whigfield var fyrirsæta áður en hún sló í gegn. Hún tók upp „Saturday Night“ fyrir þremur árum, en enginn hafði áhuga á að gefa lagið út. Hún segir að Danir, samlandar hennar, hafi ekki kunnað að meta hana fyrr en hún var orðin alþjóðastjama. „Þetta er svipað og með Björk," seg- ir hún. Whigfield segir það hræsni hjá tónlistarmönnum að halda því fram að þeir spili tónlist fyrir fólkið og hafí ekki áhuga á að græða pen- ing. „Tónlistarheimurinn er orðinn að stórfyrirtæki og tónlistarmennimir vinna sér inn milljónir dollara," bætir hún við. „Það má ekki segja: „Ég ætla að verða ríkur á plötusölu," held- ur er í tísku að halda því fram að maður sé fátækur listamaður," segir Whigfíeld að lokum. Laddi sjálfur ÞÓRHALLUR Sigurðsson, Laddi, er löngu orðinn hluti íslensku þjóðarsálarinnar. Hann hefur fylgt þjóðinni I áratugi með giensi sínu og gamni. Um þessar mundir er hann að hefja dagskrá í austursal Hótel íslands, Ás- byrgi. Ætlunin er að hún verði á föstudögum í vetur og hefjist í kvöld. — Hvernig dagskrá er þetta? „Ég er einn í sviðsljósinu allan timann. Það er ekkert hlé og ég er á sífelldum þön- um um saiinn allan tímann,“ segir Laddi. Aðspurður seg- ist hann ekki spinna dag- skrána upp á staðnum. Hins vegar komi það oft fyrir, þegar hiti sé kominn í leik- inn, að hann sprelli aðeins með áhorfendum og búi þá til eitthvað á staðnum. — Hefurþað komiðfyrir að þeir taki það óstinnt upp? „Nei, aldrei. Það er líka ekkert að óttast, þetta er mjög saklaust grín. Ég geri meira grín að sjálfum mér en áhorfendum.“ — Verður erfiðara með árunum að galdra fram fyndnina? Þórhallur Sigurðsson „Nei, það held ég ekki. Þetta er mikið til spuming um æfingu og reynslu. Ég er orðinn það sjóaður í þessu að mér reynist frekar auð- velt að semja efni og leika það,“ segir Laddi. í sýning- unni reynir mest á Ladda sjálfan, en þó koma fram nokkrir gamlir kunningjar, svo sem söngvarinn góð- kunni, KK, sem hér sést í eeernum Ladda. Gömlu- og nýju dansarnlr í AKÓGES-salnum, Sóltúni 3 (áður í kvöld kl. 22.00-02.00. Hljómsveitin Tíglar leikur (Siffi á nikkunni) Gestasöngvari: Hjördís Gestsdóttir. ■erðkr.ó00' I YDDA F69.22 / SlA

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.