Morgunblaðið - 31.10.1995, Qupperneq 7
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 31. OKTÓBER 1995 7
ÉSTUTT
600 innbrot
í bifreiðar
LÖGREGLUNNI í Reykjavík
hafa borist um 600 tilkynning-
ar um innbrot í bíla það sem
af er árinu. Um helgina bárust
t.d. tilkynningar um slík inn-
brot frá íbúum í Kvíslum, Ás-
um, Seljum, Görðum og Mos-
fellsbæ.
I öllum tilvikum var stolið
geislaspilurum, hljómtækjum,
radarvörum, geisladiskum og
öðru lauslegu.
Oftast er brotist inn í bif-
reiðar að næturlagi, en þó eru
dæmi um að farið sé inn í þær
á öðrum tímum, til dæmis þeg-
ar þær standa á bílastæðum
idð sundstaði.
Lögreglan hvetur enn á ný
fólk til að skilja ekki lausleg
verðmæti eftir í bílum. Þá eru
þeir, sem verða grunsamlegra
mannaferða varir, vita af sölu
þýfis eða hafa vitneskju um
hveijir geta verið að verki,
hvattir til að tilkynna það til
lögreglu.
Helmingur
kann ekki á
stefnuljós
HELMINGUR ökumanna
notar ekki stefnuljós eins og
reglur segja til um.
Þetta kom fram í sameigin-
legu umferðarverkefni lög-
reglunnar á Suðvesturlandi í
síðustu viku. Lögreglan beindi
sérstaklega athyglinni að því
hvernig ökumenn bera sig að
áður en þeir beygja við gatna-
mót, notkun stefnuljósa og
búnaði ökuljósa. Tæplega 500
ökumenn voru stöðvaðir og
helmingur þeirra vegna þess
að þeir notuðu stefnuljós ekki
rétt.
Gerðar voru athugasemdir
við ljósabúnað tæplega 70
ökutækja og rúmlega 140
virtust ekki kunna að nota
akreinar eða akbrautir áður
en þeir beygðu við gatnamót.
Állir þessir ökumenn voru
ýmist áminntir eða sektaðir,
en lögreglan vonast til að
ökumenn láti af þessari
óábyrgu hegðan, svo draga
megi úr líkum á óhöppum og
slysum.
Fimm
teknir með
fíkniefni
FIMM menn voru handteknir
á föstudagskvöld, eftir húsleit
fíkniefnalögreglunnar.
Mennirnir, sem eru á
aldrinum 23-41 árs, voru
grunaðir um sölu á fíkniefn-
um. Við húsleit fundust 140
grömm af hassi, 15 grömm
af marijúana, 16 grömm af
amfetamíni og 145 töflur af
ýmsum lyfjumn, s.s. moga-
don.
Björn Halldórsson, lög-
reglufulltrúi, segir að menn-
irnir hafi verið í haldi lög-
reglu yfír nótt, en þá sleppt
og málið talið upplýst. Björn
segir að grunur hafi leikið á
að mennirnir hafi selt fíkni-
efni og mest af 'efninu, sem
fannst við húsleit, verið í neyt-
endapakkningum. Mennirnir
hafi hins vegar þverneitað
aðild að sölu.
FRÉTTIR
Morgunblaðið/Kristján
Selur í flotkví
ÞEIM var ekki fyllilega ljóst, starfsmönn-
um Slippstöðvarinnar-Odda, í hvaða er-
indagerðum hann væri, selurinn sem
synti inn í flotkvína, en hafa í góð-
mennsku sinni sennilega boðið honum
upp á eðlilegt viðhald og endurbætur.
Hann var hinn gæfasti enda nokkuð das-
aður og hvarflaði ekki að honum að
hreyfa sig úr kvínni. Skipti engu þó
menn kæmu að honum til að spjalla eins
og þessir starfsmenn Akureyrarhafnar,
Hermann Jónsson og Lúðvík Jónsson
gerðu. Frá því flotkvíin var tekin í notk-
un í haust hafa fjölmörg skip verið tekin
upp, en selir hafa ekki áður gert sig þar
heimakomna.
Þér standa allar dyr
Beintenging við Búnaðarbankann
ankanum!
Viöskiptavinum Búnaöarbankans stendur til boöa margþætt
fjármálaþjónusta og ýmiskonar fræðsla sem lýtur aö fjár-
málum heimilanna. Nú bætist beintenging Heimilisbankans
viö þá þjónustuþætti sem fyrir eru í Búnaöarbankanum.
Fleiri aögeröir og fallegra um-
hverfi meö Heimilisbankanum
og Hómer!
Þeir sem vilja nýta sér Heimilis-
banka Búnaðarbankans geta
sinnt öllum almennum bankavið-
skiptum hvenær sólarhringsins
sem er frá sinni eigin tölvu.
Viðskiptavinir Heimilisbankans fá aö auki fjármálahugbúnað-
inn Hómer. Hómer er einfaldur og
þægilegur Windows hugbúnaður sér-
staklega ætlaður fyrir heimilisbók-
haldið.
Búnaðarbankinn er^éíni bankinn
sem býður slíkan fjármálahug-
búnað en hann er nauðsynlegur
við að fullnýta þá möguleika
sem bjóðast meö beintenging-
unnj.
Þaö borgar sig aö vera tengdur við traustan banka því þar
er hugsaö fyrir óllu.
BÚNAÐARBANKINN
- traustur banki