Morgunblaðið - 31.10.1995, Qupperneq 10
10 ÞRIÐJUDAGUR 31. OKTÓBER 1995
MORGUNBLAÐIÐ
555-1500
Garðabær
Langamýri
Nýlegt timbureinbhús, Steni-
klætt að utan, ca 140 fm ásamt
35 fm bílsk. Áhv. byggsjlán ca
3,5 millj.
Hafnarfjörður
Hjallabraut
2ja herb. þjónustuíb. fyrir 60
ára og eldri. Áhv. ca 3,5 millj.
byggsj.
Flókagata
Góð 5-6 herb. íb. ca 125 fm
ásamt bílsk.
Vörðustígur
Einb., kj., hæð og ris. Þarfnast
lagfæringa. Góð staðsetning.
Útsýni. Ekkert áhv.
Flókagata
Einb. á fjórum pöllum, ca 190
fm, ásamt nýjum bílsk. og öðr-
um eldri. Mikið endurn. Útsýni.
Áhv. ca 2,5 millj. eldra byggsj-
lán. Ath. skipti á minni eign.
Álfaskeið
Einb. á tveimur hæðum með
hálfum kj., samtals 204 fm.
Mikið endurn. Lítið áhv. Ath.
skipti á lítilli íb.
Langeyrarvegur
Lítið einb. á tveimur hæðum ca
70 fm. 3 svefnherb. Áhv. ca 1 m.
Iðnaðarhúsnæði
Drangahraun
120 fm iðnaðarhúsn. pússað og
málað. Innr. skrifst. og snyrting.
Stórar dyr. Meðal lofthæð 3,50
m. Bílalyfta getur fylgt.
FASTEIGNASALA,
Æm Strandgötu 25, Hfj.,
Árni Grétar Finnsson hrl.,
II Stefán Bj. Gunnlaugsson hdl.
FRÉTTIR
Fannst grafinn eftir 58 tíma
HUNDURINN Gormur fannst í
húsarústum á snjóflóðasvæðinu
á Flateyri síðdegis á laugardag-
inn eftir að hafa verið þar graf-
inn frá því snjóflóðið féll þar
aðfaranótt fimmtudagsins, eða
í um 58 klukkustundir. Gormur
leitaði ákaft húsbónda síns eftir
að honum var bjargað, en hann
fórst í snjóflóðinu.
Á myndinni er Anton Magn-
ússon sem fann Gorm að koma
með hann í stjórnstöð björgun-
arsveitarmanna, en við hlið
hans er Jón Páll Ásgeirsson,
stýrimaður hjá Landhelgisgæsl-
unni. Fleiri heimilisdýr lifðu
snjóflóðið af, því auk Gorms
fannst í húsarústunum annar
hundur, köttur, páfagaukur og
gullfiskur í skál.
Morgunblaðið/Ami Sæberg
Snjóflódið
á Flateyri
Minning-
arathöfn
á ísafirði
MINNINGARÞJÓNUSTA
um fórnarlömb snjóflóðsins á
Flateyri verður haldin í
íþróttahúsinu á Torfnesi á
ísafirði kl. 14 í dag. Minning-
arguðþjónustan verður með
líku sniði og 21. janúar síðast-
liðinn þegar fórnarlamba
snjóflóðanna í Súðavík var
minnst á sama stað.
For'seti íslands, Vigdís
Finnbogadóttir, vérður við
athöfnina sem og Davíð
Oddsson forsætisráðherra og
séra Sigurður Sigurðarson,
vígslubiskup í Skálholti.
Minningarguðþjónustunni
verður útvarpað á Rás 1.
Vestfirskir prestar
sjá um athöfnina
Prestar af Vestfjörðum
þjóna við athöfnina. Séra
Gunnar Björnsson, sóknar-
prestur í Holti, predikar og
séra Kristinn Jens Sigurþórs-
son sér um alla bænagjörð,
en hann hefur þjónað Flat-
eyri meðan Gunnar hefur ver-
ið í námsleyfi.
19711 LÁRUS Þ. VALDIMARSSON, framkvæmdastjóri
UuL lluU'uuL |U/U KRISTJÁN KRISTJÁNSSON, löggilturfasteignasali
Til sýnis og sölu meðal annarra eigna:
Glæsilegt einb. - fráb. staður
Steinh. ein hæð 153 fm með 6-7 herb. íb. Góður bílskúr rúmir 40 fm.
Stór ræktuð lóð á útsýnisstað í norðurbænum í Hafnarfirði.
í gamla góða austurbænum
Nýlega endurgerð ágæt 3ja herb. kjíb. Allt sér. Góðir skápar, gott
bað. Vinsæll staður. Fráb. verð. Tilboð óskast.
í gama bænum óskast
Traustir kaupendur óska eftir íbúðum, sérhæðum og einbýlish. í gamla
bænum - nágrenni. Mega þarfnast endurb.
Sérstaklega óskast 6 herb. sérh. með bílsk. í Þingholtum - nágrenni.
Miklar og góðar greiðslur fyrir rétta eign.
í borginni - nágrenni
óskast raðh. á einni hæð.
Margskonar eignaskipti.
Teikningar á skrifstofunni.
ALMENIMA
FASTEIGNASALAN
LflUSflVEG118 S. 552 1150 552 1370
KÁIHiJÖf • ItÓKIIAUI • ShM TMtSTOI) • K II /' <><■ SMA lA KIKT I.KJ I
=FIN FYRIRTÆKI
0 Heildverslun. Höfum í einkasölu heildverslun. Um er að
ræða fyrirtæki í rúmgóðu húsnæði, vel tækjum búið með
bekkt umboð. Uppl. á skrifst.
0 Þjónustufyrirtæki. I einkasölu sérhæft þjónustufyrirtæki
á sviði hreingerninga. Fyrirtækið er búið fullkomnum
tækjum og hefur KÓð viðskiptasambönd.
0 Krá/Kaffihús. Um er að ræða góðan rekstur
með fasta viðskiptavini.
0 Sölutum. í einkasölu Sölutuminn Laugarásvegi 2
Reykjavík. Bíllúga. Mjög hagstætt verð.
0 Söluturn og skyndibitastaður. Staðsetning Múlahverfi.
Staðurinn er miög vinsæll fyrir góðar samlokur og annan
brauðmat. Staðurinn er opinn virka daga ffá 9.00-18.00.
0 Sérverslun. Um er að ræða traust fyrirtæki með
eiafavörur o. fl.. Enginn innflutningur.
0 Blómaverslun. Lftil blóma- og gjafavöruverslun í
miðbæ Reykjavíkur. Fallegar innréttingar. Gott verð.
VIÐSKIPTAÞJÓNUSTAN
FFu(jtnen/ttifiu ífi/rtrrúnu'
Kristinn B. Ragnarsson, vVbskiptafrœbingur
Síi)nniíilu ;H • I Oil livylíjuvíli • Sínii30íl *)299 • iax /9751
Jón Gauti Jónsson, ráðgjafi hreppsnefndar Flateyrar
Komast þarf hjá
öllum krókaleiðum
JÓN Gauti Jónsson,
fyrrverandi sveitarstjóri
í Súðavík, hefur af fé-
lagsmálaráðherra verið
skipaður sérstakur ráð-
gjafi hreppsnefndar
Flateyrar við uppbygg-
ingu þar í kjölfar snjó-
flóðsins. Hann sagði í
samtali við Morgunblað-
ið að fyrst og fremst
yrði reynt að komast hjá
öllum þeim krókaleiðum
sem fara þurfti vegna
uppbyggingarinnar í
Súðavík.
„Þá var engin reynsla
til um það hvérnig ætti
að standa að því að
koma skipulagsvinnunni í gang og
framtíðaráætlunum. Við þurftum að
þreifa okkur svolítið áfram. Þetta
voru að vísu svolítið
öðruvísi aðstæður í
Súðavík af því að við
þurftum að byggja upp
alveg nýtt þorp á nýjum
stað, en hér eru ýmsir
möguleikar sem
hreppsnefndin er að
skoða. Ég bendi þeim
svo á þær leiðir sem við
lærðum að voru greið-
astar og bestar í hveiju
máli, hvort sem það var
í skipulagsmálum, um
bráðabirgðahúsnæði
eða annað,“ sagði Jón
Gauti.
Hann sagðist telja
það mjög áríðandi að
koma upp bráðabirgðahúsnæði á
neðri hluta Flateyrar sem allra fyrst,
og það væri greinilega vilji hrepps-
Jón Gauti
Jónsson
nefndarinnar að koma mannlífinu
sem fyrst í gang eins og hægt er.
Aðspurður um hvort eitthvað í
atburðarásinni í kjölfar snjóflóðsins
í Súðavík væri þess eðlis að hann
legði áherslu á að reynt yrði að forð-
ast það nú sagði Jón Gauti: „Strax
um morguninn þegar ég frétti af
flóðinu hringdi ég í dómsmálaráðu-
neytið og bað þá í guðanna bænum
að setja lögspekinga snarlega í það
að setja reglur um það hvernig ætti
að umgangast rústirnar. Það er ekki
á neinn mann leggjandi að hafa á
bakinu ásakanir um að hafa misfar-
ið með viðkvæma hluti. Þegar menn
hafa engar leikreglur verða menn
að búa þær til og mér finnst ósann-
gjarnt vegna þess að við . höfum
þessa reynslu að láta það dynja yfir
aðra hér aftur, bæði sem þolendur
og gerendur."
Unnið að aðalskipulagi Mosvallahrepps
Hugmyndir um þéttbýli í Holti
Á VEGUM Mosvallahrepps í Önund-
arfirði stendur yfir vinna við aðal-
skipulag fyrir allan hreppinn. Við
þá vinnu hafa komið upp hugmyndir
um þéttbýliskjarna, og hefur mikið
verið litið til prestssetursins í Holti
í því sambandi.
I Mosvallahreppi eru liðlega 70
íbúar. Mörkin milli Flateyrarhrepps
og Mosvallahrepps liggja um
Breiðadal en þar er gangamunninn.
Árni G. Brynjólfsson, bóndi á Vöðl-
um og varaoddviti Mosvallahrepps,
segir að vegna mikillar ásóknar í
sumarbústaðaland í hreppnum
vegna jarðgangnanna hafi verið
ákveðið að láta gera aðalskipulag
fyrir allt sveitarfélagið. Gestur 01-
afsson arkitekt hefur unnið að því.
Segir Árni að þetta sé ákveðin braut-
ryðjendavinna því í ljós hafí komið
að fáir sveitahreppar hafi lagt í slíka
vinnu og því fátt við að styðjast hjá
öðrum sveitarfélögum.
Við skipulagsvinnuna hafa komið
upp ýmsar hugmyndir um hvar ætti
að gera ráð fyrir þéttbýlismyndun.
Sérstaklega hafa verið nefndir þrír
staðir en Árni segir að vissulega lít-
ist mönnum vel á svæðið norðan eða
norðaustan við prestssetrið í Holti,
það telji menn gæfulegt til bygg-
inga. Hann tekur hins vegar fram
að þetta sé enn á hugmyndastiginu
og ekki einu sinni búið að ræða það
við eiganda jarðarinnar, sem er
Prestssetrasjóður.
Hugsað um framtíð barnanna
Árni segir að ekki hafi verið litið
sérstaklega til snjóflóðahættu á
Flateyri þegar hugmyndir um skipu-
lagningu þéttbýliskjarna komu upp.
í sveitarfélaginu væri mikið af ungu
fólki með börn og hefðu menn fyrst
og fremst verið að hugsa um fram-
tíð þeirra. Ekki væri allt leyst fyrir
Flatéyringa þótt þeir byggðu í Holti
því þeir þyrftu að komast tii vinnu
á Flateyri og þar væri Hvilftar-
ströndin áfram mikill farartálmi.
„Mér finnst eðlilegar þær hugmynd-
ir sem nú eru uppi á Flateyri að
reyna að byggja upp þar sem mest
í upphafi,“ segir Árni.
Mosvallahreppur er með í umræð-
um um sameiningu sveitarfélaga á
norðanverðum Vestfjörðum og telur
Árni að sameiningin og sérstaklega
jarðgöngin hafí mjög góð áhrif á
sveitina og styrki byggð í Önundar-
firði. Bendir hann á að ungt fólk sé
á flestum bæjum og mjólkurfram-
leiðsla ríkjandi og muni göngin auð-
velda mjög flutninga á mjólk í sam-
lagið á ísafirði.