Morgunblaðið - 31.10.1995, Side 26
26 ÞRIÐJUDAGUIi 31. OKTÓBER 1995
MORGUNBLAÐIÐ
Kosninga-
klúður í
Tanzaníu
YFIRKJÖRSTJÓRN í Tanzaníu
ógilti í gær kosningar, sem
fram fóru í höfuðborginni á
sunnudag en þær einkenndust
af upplausn og óreiðu. Verða
þær endurteknar í næstu viku.
I átta kjördæmum á lands-
byggðinni fór einnig margt úr-
skeiðis en þar átti að kjósa
áfram í gær eða í dag. Voru
kjörstaðir alls 40.000 en víða
vantaði bæði fulltrúa kjör-
stjórnar og kjörgögn. Þetta
voru fyrstu fjölflokkakosning-
amar í landinu í 30 ár.
Vopnasölu-
brot í Bosníu
NORSKA blaðið Aftenposten
sagði í gær, að flogið hefði
verið tvisvar sinnum með vopn
til bosníska stjórnarhérsins við
Tuzla í febrúar sl. Hefðu
Bandaríkjamenn, flugmenn á
eftirlitsflugvél, vitað af þessu
broti á vopnasölubanninu en
ekki þóst átta sig á því vegna
„fjarskiptaerfiðleika". Sagði
blaðið, að sænskir og danskir
SÞ-hermenn hefðu farið á vett-
vang til að kanna málið og snú-
ið við þegar skotið var á þá.
Breska sjónvarpsstöðin Chann-
el Four sagði sl. föstudag, að
vitað væri um margar vopna-
sendingar til Tuzla.
Banna Æðsta
sannleika
DÓMARI í
Tókýó hefur
úrskurðað, að
söfnuðurinn
Æðsti sann-
leikur undir
forystu Shoko
Asahara hafi
lagt á ráðin um
morð með framleiðslu sinni á
taugagasinu sarin. í framhaldi
af þvi skipaði hann, að söfnuð-
urinn skyldi leystur upp. Safn-
aðarfólkið, sem er um 10.000,
getur stundað sinn átrúnað en
aðeins sem einstaklingar.
Óöldí
S-Súdan
SKÆRULIÐAR í Súdan neit-
uðu í gær, að stjórnarhermenn
frá Úganda hefðu aðstoðað þá
í nýrri'sókn gegn stjórnarhern-
um. í yfirlýsingu frá sendiráði
Súdans í Nairobi í Kenía sagði,
að úgandískir stjórnarhermenn,
búnir skriðdrekum og stórskot-
aliði, hefðu ráðist inn í Súdan
sl. miðvikudag og ráðist gegn
súdönsku herliði á tveimur stöð-
um. Var sagt, að miklir bardag-
ar geisuðu og hefði forseti
Úganda, Yoweri Museveni,
skipað hernum að búast til frek-
ari innrásar.
Chirac ekki
ákærður
DÓMSTÓLL í Frakklandi hafn-
aði í gær beiðni frá lögfræðingi
um að Jacques Chirac forseti
yrði ákærður vegna deilu um
íbúð sem hann hefur leigt frá
því hann var borgarstjóri París-
ar. Lögfræðingurinn hélt því
fram að fyrirtæki, sem er að
hluta í eigu borgarinnar, hefði
keypt íbúðina fyrir jafnvirði 130
milljónir króna til að koma í veg
fyrir að Chirac missti hana eða
þyrfti að greiða hærri leigu.
ERLEIMT
Reuter
STUÐNINGSMENN palestínsku hreyfingarinnar íslamska jihad saka ísraela um að hafa myrt leið-
toga sinn, Fathi Shqaqi, á Möltu á fimmtudag og hóta sjálfmorðsárásum á ísraela. Hér sjást nokkr-
ir þeirra fyrir neðan borða með mynd af ísraelskri áætlunarbifreið, sem verið er að sprengja í loft upp.
Helsti leiðtogi Jihad
myrtur á Möltu
Gaza, Jerusalem, Valletta. Reuter, The Da-
ily Telegraph.
ÍSRAELAR gripu til sérstakra ör-
yggisráðstafana á Vesturbakkanum
og Gaza-svæðinu í gær vegna ótta
við að palestínska hreyfingin ísl-
amska jihad (heilagt stríð) hefndi
fyrir það að leiðtogi hennar, Fathi
Shqaqi, var myrtur á eynni Möltu á
fímmtudag. Stuðningsmenn Jihad
halda því fram að Mossad, ísraelska
leyniþjónustan, beri ábyrgð á tilræð-
inu.
ísraelar ákváðu að hækka aldur
palestínskra verkamanna, sem
hleypt yrði til ísraels frá Gaza, úr
30 árum í 35 og hleypa ekki stúdent-
um eða bifreiðum frá Gaza til ísra-
els. Enn fremur var ákveðið að eng-
inn Palestínumaður fengi að fara frá
Jerúsalem og Vesturbakkanum til
Gaza.
Þessar ráðstafanir sigldu í kjölfar-
ið á hótunum Jihad um að gera
„hvern síonista, hvar sem er á jörð-
inni, að skotmarki" sjálfsmorðsárása
hreyfingarinnar.
Yitzhak Rabin, forsætisráðherra
ísraels, sagði að slíkar hótanir væru
ekkert nýtt. Kvaðst hann ekki sýta
það að Shqaqi væri allur. ísraelar
hafa hins vegar engu svarað spurn-
ingum um það hvort þeir hafí staðið
að baki morðinu á Shqaqi.
Tveir menn á vélhjóli skutu Shqaqi
til bana með fimm skotum í höfuðið
ísraelar grípa
til öryggisráð-
stafana í kjölfar
hótana
fyrir utan hótel hans í Valletta á
Möltu á fímmtudag og þykir ljóst
að atvinnumenn hafi verið á ferð. í
upphafi var talið að þar hefði verið
Líbýumaður á ferð, Ibrahim
Shawesh að nafni, en á sunnudag
staðfestu yfirvöld á Möltu að
Shawesh hefði verið dulnefni og
Shqaqi væri hinn látni. Shqaqi var
á leið til Damaskus í Sýrlandi frá
Líbýu, þar sem hann átti viðræður
við_ Muammar Gaddafí.
íslamska jihad hefur barist gegn
friðarsamkomulagi ísraela og Pal-
estínumanna ásamt hreyfingunni
Hamas, en þykir herskárri. Fleiri
sjálfsmorðsárásir hafa verið gerðar
á vegum Hamas, en sú hreyfíng
hefur þó sest að samningaborðinu
við Frelsissamtök Palestínu (PLO)
um að hætta vopnuðum árásum og
taka þátt í kosningum í upphafi
næsta árs. Jihad útilokar allt slíkt
og hefur myrt að minnsta kosti þijá-
tíu ísraela frá þvi að ísraelar og PLO
skrifuðu undir bráðabirgðasamning-
inn um sjálfstjórn Palestínumanna
árið 1993.
Andvígur tilvist ísraels
„Ég vil raunverulegan frið,“
sagði Shqaqi í samtali við ísraelska
sjónvarpið í maí 1994._„Raunveru
legur friður þýðir að ísrael verði
ekki Iengur til.“
Shqaqi fæddist í Rafah-flótta-
mannabúðunum í Gaza árið 1952
og varð síðar kennari í Jerúsalem.
Hann lærði læknisfræði í Egypta-
iandi og starfaði við lækningar í
þijú ár í Jerúsalem áður en hann
var handtekinn árið 1983. Þegar
hann var látinn laus tók hann til
við lækningar í Gaza á ný þar til.
hann var rekinn úr landi til Líban-
on árið 1988. Hann var leiðtogi
og einn stofnenda Jihad fyrir um
það bil 15 árum.
Kona hans, Fathieh Shqaqi,
kvaðst hafa átt von á því að gert
yrði tilræði við mann sinn, en ít-
rekaði að hann hefði ekki komið
nálægt hernaðararmi Jihad.
Ramadan Abdullah, sem var
einn stofnenda Jihad, hefur tekið
við forystu hreyfingarinnar af
Shqaqi. Hermt var að hreyfingin
hefði vitað að Shqaqi væri allur á
fimmtudag, en haldið því leyndu
í tvo daga meðan eftirmanns hans
var Ieitað.
Rannsaka
æxlun í
þyngdar-
leysi
London. The Daily Telegraph.
TIL stendur að gera tilraunir
úti í geimnum til að kanna
hvort menn og plöntur fjölga
sér fremur í þyngdarleysi en
ella. Hafa bandarískir vís-
indamenn fengið sem svarar
9 milljónum ísl. kr. til verk-
efnisins frá NASA, banda-
rísku geimvísindastofnun-
inni.
„Á löngum geimferðum
kynni það að skipta höfuð-
máli að geta tryggt þungun
hjá konum og það að plöntur
myndi frjó,“ segir Joseph
Tash, prófessor við Lækna-
deild Kansasháskóla.
Fjörugar
sæðisfrumur
Þýskir vísindamenn gerðu
einnig tilraun með frjóvgun
í geimnum fyrir nokkrum
árum er þeir mynduðu sæði
úr nautgripum sem skotið
var út í geim. Svo virtist sem
sæðisfrumurnar sveifluðu
„hala“ sínum hraðar og köst-
uðu „hausnum" meira til en
undir venjulegum kringum-
stæðum og væru því frjórri
en venjulega þar sem hreyf-
ingin eykur líkurnar á því
að sæðisfrumunum takist að
fijóvga egg.
I fyrirhugaðri tilraun, sem
hefst á næsta ári, munu
geimfarar rannsaka hreyf-
ingu sæðisfruma úr ígulker-
um en þeim svipar að mörgu
leyti til sæðisfruma manna.
„Þegar par elskast á jörðu
niðri eru líkurnar á þungun
um 20%. Fyrri rannsóknir á
sæðisfrumum ígulkera, sem
við hyggjumst endurtaka,
benda til þess að í þyngdar-
leysi aukist möguleikarnir á
þungun verulega.
Plöntur framleiði
súrefni
í ferðum geimfara til ann-
arra pláneta þar sem þeir
hygðust nema land, myndu
þeir vilja að það væri tryggt
að þeir gætu eignast börn,“
segir Tash. Þá leggur hann
einnig áherslu á mikilvægi
þess að hægt sé að rækta
plöntur í löngum geimferðum
til að framleiða súrefni og
draga úr koltvísýringi.
Valdabaráttan fyrir kosningarnar í Rússlandi og veikindi forsetans
Ráðgjafar Jeltsíns
óttast um sinn hag
Moskvu. The Daily Telegraph, Reuter.
HÁTTSETTUR ráðgjafi Borís Jelts-
íns Rússlandsforseta, Sergej
Medvedev, sagði í gær að heilsa
forsetans, sem liggur á sjúkrahúsi
vegna hjartaáfalls, hefði ekki versn-
að en hann myndi ekki taka á móti
gestum, að sögn fréttastofunnar
Interfax. Margir velta því fyrir sér
hvort nánustu ráðgjafar Jeltsins
hyggist beita örþrifaráðum, jafnvel
beita valdi, til að fresta forsetakjöri
á næsta ári. Erfitt er þó að ímynda
sér ð þeir geti treyst á stuðning
hersins sem er í fjársvelti og fullur
heiftar í garð ráðamanna.
Eiginkona Jeltsíns, Naína, er við
sjúkrabeð forsetans. Fyrirhuguðum
opinberum heimsóknum hans til
annarra landa hefur verið frestað
en embættismenn Jeltsíns segja
hann samt fullfæran um að stjóma
og ekki hafi verið rætt hvort Viktor
Tsjernomýrdín forsætisráðherra
tæki við þar til Jeltsín næði sér.
Ljóst þykir að veikindi Jeltsíns,
sem er 64 ára gamall, valda nú
miklum taugatitringi í Kreml. For-
setakosningar eiga að fara foam á
næsta ári. Talið hefur verið að Jelts-
íns væri staðráðinn að bjóða sig
fram til endurkjörs þótt kannanir
hafi sýnt að hanni standi höllum
fæti og vitað sé að eiginkona hans
vilji að hann dragi sig í hlé og það
jafnvel strax.
Breyttir tímar
Flestir stjórnmálaleiðtogar segja
að Jeltsín muni ekki geta boðið sig
fram til endurkjörs og óvissan er
því mikil nú í Rússlandi. „Megnið
af hinu nýja stjórnkerfi landsins var
búið til af Jeltsín og, hvort sem það
var ætlun hans eða ekki, fyrir Jelts-
ín. Hverfi hann á braut gæti kerfið
hrunið," sagði dagblaðið Kommers-
ant.
Á Sovétskeiðinu voru leiðtogarnir
oft svo veikir og hrumir síðustu
árin að þeir vissu hvorki í þennan
heim né annan en þessu var leynt
eftir föngum. Frægt er að Leoníd
Brezhnev var eiliær og gat undir
Iokin ekki gengið óstuddur, hann
var því aðeins „sýndur" stöku sinn-
um.
Nú eru aðstæður breyttar í Rúss-
landi, Jeltsín verður að geta háð
kosningabaráttu og þá eru engin
grið gefin, jafnvel þótt ráðameann
í Kreml misnoti áhrif sín til að
múlbinda marga fjölmiðla.
Nánustu ráðgjafar Jeltsíns eru
Alexander Korzhakov, er annast
öryggismál embættisins, og Viktor
Iljúshín, aðalráðgjafi forsetans.
Fari svo að kommúnisti eða þjóð-
ernissinni verði forseti óttast þessir
menn og fleiri háttsettir embættis-
menn að verða gerðir ábyrgir fyrir
ýmsum meintum „afbrotum“ Jelts-
íns, þ. á m. upplausn Sovétríkj-
anná, árásinni á þingið 1993 og
stríðinu í Tsjetsjníju.
Þeir vita að þeir eiga allt sitt
undir því að forsetinn verði áfram
við völd og hafa reynt að sporna
við því að Tsjemomýrdín verði gerð-
ur að arftaka.
Ráðgjafarnir hafa beinlínis reynt
að grafa undan Tsjernomýrdín síð-
ustu vikur og mánuði og fengu
Jeltsín til að hrósa opinberlega
manni sem gæti orðið skæður
keppinautur Tsjernomýrdíns, Júrí
Skokov. Hann á helst stuðning
meðal áhrifamanna í her og her-
gagnaiðnaði.