Morgunblaðið - 31.10.1995, Side 48

Morgunblaðið - 31.10.1995, Side 48
48 ÞRIÐJUDAGUR 31. OKTÓBER 1995 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ t Ástkær móöir mín, tengdamóðir og amma, GUÐRÚN G. GÍSLADÓTTIR, Austurbergi 10, lést í Hátúni 10B sunnudaginn 29. október. Sigríður Sigurbjörnsdóttir, Sævar Sæmundsson, Sigrún Sævarsdóttir. Látinn er t BRAGI SIGURJÓNSSON fyrrverandi alþingismaður, Bjarkarstfg 7, Akureyri. Helga Jónsdóttir og börn hins látna. t Innilegar þakkir til allra, sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför móður okkar, tengdamóður og ömmu, KATRÍNAR MAGNÚSDÓTTUR, Lambastöðum, síðasttil heimilis á Skólabraut 3, Seltjarnarnesi. Börn, tengdabörn og barnabörn. t Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við fráfall elskulegs sambýlis- manns míns og föður okkar, BENEDIKTS GUNNARSSONAR fyrrv. framkvæmdastjóra, Vallarási 5. Hólmfríður Valdemarsdóttir, Einar Benediktsson, Sveinn Benediktsson og fjölskyldur. t Þökkum innilega samúð og vinarhug við fráfall konunnar minnar, móður okkar og tengdamóður, JÓHÖNNU BJARNADÓTTUR, Gljúfraseli 5. Fyrir hönd annarra vandamanna, Jón S. Guðlaugsson, Bjarni Þór Lúðvíksson, Selma Rut Gunnarsdóttir, Guðlaugur Jónsson, Guðrún Helga Jónsdóttir, Pétur Jónsson. t Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför ástkærs eiginmanns míns, föður okkar, tengda- föður, afa og langafa, PÁLS ÖGMUNDSSONAR bifreiðastjóra frá Sauðárkróki, tilheimilis á Skúlagötu 80. Halla Sigurðardóttir, Hreinn Pálsson, Stella Kristjánsdóttir, Elsa Pálsdóttir, Edvard Lövdahl, Guðmundur Guðbrandsson, Sigrún Grímsdóttir, Magnús Pálsson, Ingunn Vilhjálmsdóttir, Þorbjörg Guðbrandsdóttir, Theódór Magnússon, Kristín Pálsdóttir, Guðjón Guðlaugsson, Guðný Pálsdóttir, Sigurður I. Svavarsson, Páll Pálsson, Agnes Hrafnsdóttir, Kolbrún Pálsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. GUÐSTEINN ÓMAR G UNNARSSON Guðsteinn Ómar Gunnars- son fæddist í Reykjavík 30. mars 1970. Hann lést í Danmörku 21. októ- ber síðastliðinn og fór útför hans fram frá Seljakirkju 30. október. ÓMAR er dáinn, það er eitthvað sem ég get ekki sætt mig við. Hann sem var að koma heim og ætlaði að vera hjá okkur um jólin og ég var farin að hlakka til að heyra þegar við myndum hittast: „Hæ frænka." Ósjálfrátt reikar hugurinn aftur um nokkur ár þegar ég var að passa þau systkini Ólöfu, Óskar og Ómar. Það var nú aldrei nein lognmolla í kringum þau, allra síst ef Ömar var á staðnum og hann var nú alltaf tiltækur í prakkaraskapinn og lét sitt ekki eftir liggja í því. Síðan leit hann upp og sagði: „Ekki ég.“ En grænu augun þau sögðu sitt: „Ég gerði það víst.“ Hann hélt mikið upp á syni syst- ur sinnar og ekki voru þau fá skipt- in sem ég sat hjá þeim kvöld og kvöld, átti að koma þeim niður, en það var bara miklu skemmtilegra að leika við þá bræður en að hafa þá sofandi. Elsku Sidda, Gunn- ar Ólöf og Óskar, við biðjum góðan guð að styrkja ykkur í ykkar miklu sorg. „Þó að ég sé látinn, harmið mig ekki með tárum. Hugsið ekki um dauðann með harmi og ótta. Ég er svo nærri að hvert eitt ykkar tár snertir mig og kvelur. En þegar þið hlæið og syngið með glöðum hug, Iyftist sál mín upp í mót til ljóssins. Verið glöð og þakklát fyrir allt sem lífið gefur, og ég, þótt látinn sé, tek þátt í gleði ykkar yfir lífinu. (Óþ. höf.) Þórunn og Stefán. Sárt er að hugsa um að Ómar vinur okkar sé horfínn og erfítt í raun að gera sér almennilega grein fyrir því. En þó að missir hans sé sár, þá munum við samt alltaf eiga hann í minningum okkar sem eru bæði ljúfar og margar. Og þó hver og einn eigi sínar sérstöku minning- ar um Ómar, þá er sameiginleg t Innilegar þakkir fyrir hlýhug við andlát og útför systur okkar, HULDU GUÐJÓNSDÓTJUR, Eiríksbakka, Biskupstungum. Sérstakar þakkirtil starfsfólksins á Blesastöðum, Sjúkrahúsi Suð- urlands og Kumbaravogi. Ágústa Guðjónsdóttir, Ingvar Guðjónsson. t Hugheilar þakkir þeim mörgu, er auð- sýndu samúð og vináttu við andlát og útför eiginmanns míns, JÓNSJÓHANNESSONAR mynd- og handmenntakennara, Tómasarhaga 23. Selma Kristiansen. t Innilegar þakkir sendum við öllum, sem sýndu okkur samúð og hlýhug við and- lát og útför SIGURÐAR SVEINSSONAR bónda, Ytra-Hrauni, Landbroti. Þórdís Ágústsdóttir og börn. t Þökkum innilega auðsýnda samúð og vinarhug við fráfall ástkærs eiginmanns míns, föður, tengdaföður og afa, REIMARS SIGURÐSSONAR, Úthlíð 33, Hafnarfirði. Gíslína Jónsdóttir, Jón Ingvi Reimarsson, Jóhann Þ. Jóhannsson, Guðný Pálsdóttir og barnabörn. minning okkar góður drengur sem ávallt var hress og glaður í viðmóti við vini sína enda vinamargur. Það er því með þungum söknuði og trega að við kveðjum okkar góða vin, Guðstein Ómar Gunnarson. Kallið er komið, komin er nú stundin, vinaskilnaðar viðkvæm stund. Vinimir kveðja vininn sinn látna, er sefur hér hinn síðsta blund. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna, Guð þerri tregatárin strið. (V. Briem.) Við vottum Sigurdísi, Gunnari, Ólöfu, Óskari og íjölskyldu þeirra okkar dýpstu og innilegustu samúð. Guð veiti ykkur styrk á þessari erf- iðu stundu. Hákon, Sævar, Svanur, Katrín, Jón, Hafsteinn, Kristín, Sveiney, Már, Jens og Þórhildur. Það voru heldur dapurlegar frétt- ir sem mér bárust hingað til Luxem- borgar að kvöldi þriðjudags síðast- liðinn. Ómar vinur er dáinn. Hann er dáinn og aldrei fær maður að sjá hann aftur, allavega ekki héma megin. En minningin um hann lifir skær i huga manns. Ómar, alltaf hress og kátur, þær voru margar skemmtilegar samverustundimar hjá okkur, eins og þegar við vomm að svindla hvor á öðmm í „Scrabble", búandi til orð sem aldr- ei áður höfðu heyrst. Mér er minnisstætt hversu Ómar var hrifínn af bömum og augastein- arnir hans vom strákarnir þeirra Ólafar og Baldurs. Hann var tal- andi um þá daginn út og inn enda ávallt boðinn og búinn að passa þá. Einnig hversu Omar var alltaf stolt- ur af móður sinni, þegar hann var að koma til manns í nýju skyrtunni eða jakkanum sem mamma hans hafði saumað svo lystilega. Ómar var góður vinur og hann var virkilegur vinur, við gátum allt- af rætt opið um okkar mál og vandamál og treyst hvor öðmm fyrir okkar málum. Hann vildi alltaf allt fyrir alla gera og ekki stóð á hjálpinni frá honum er maður þarfn- aðist einhvers. Ómar minn, ég vona að þér líði vel þar sem þú ert nú, ég hugsa mikið til þín og sakna þín. Guð veri með þér. Gunnar, Sigurdís, Ólöf, Óskar og aðstandendur, ég votta ykkur mína dýpstu samúð og verð með ykkur í huga í útförinni, en því miður sé ég mér ekki fært að koma til íslands. Ingi Ingason, Lúxemborg. Við voram að vinna seint á þriðjudagskvöldi, þrír vinir í Lúx- emborg, þegar við fengum þessa hræðilegu frétt. Okkur setti hljóð og hvert um sig fór að hugsa um Ómar. Við fórum heim, og í myrkr- inu á hraðbrautinni braust sorgin fram og við grétum saman systkin- in. Hann Ómar var dáinn. Þegar ég og Ingi bróðir leigðum saman um tíma, þá kynntist ég Ómari vel. Hann var einn besti vin- ur Inga og kom því oft til okkar. Mér þótti strax vænt um þennan stóra og stæðilega strák og þar sem Ingi talaði alltaf um „Löllu systur" þá kallaði Ómar mig líka „Löllu systur“. Eitt sinn sem oftar kom hann heim glaður og ánægður og sýndi mér skyrtu sem mamma hans hafði saumað á hann. Hann var svo stoltur af þessari skyrtu að ég gleymi henni aldrei. Elsku Ómar. Aldrei skal ég gleyma þér, það er sárt að hitta þig ekki aftur. Minningin um glað- værð þína og trúnað lifír með mér að eilífu. Ættingjum og vinum Ómars sendi ég mína innilegustu samúðar- kveðju. Lára Ingadóttir, Lúxemborg.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.