Morgunblaðið - 05.11.1995, Side 1

Morgunblaðið - 05.11.1995, Side 1
104 SÍÐUR B/C/D 253. TBL. 83. ÁRG. SUNNUDAGUR 5. NÓVEMBER 1995 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS Morgunblaöið/KAA DYTTAÐ AÐ RAFMAGNSLINUM A SELTJARNARNESI •• Onnur um- ferð líkleg í Póllandi Varsjá. Reuter. ALLAR líkur eru taldar á að kjósa verði öðru sinni milli þeirra tveggja frambjóð- enda sem flest atkvæði hljóta í forseta- kosningum, sem fram fara í Póllandi í dag. Skoðanakannanir benda til að Lech Walesa forseti og Áleksander Kwasni- ewski, leiðtogi Lýðræðislega vinstri- bandalagsins, arftaka gamla kommún- istaflokksins, hljóti talsvert meira fylgi en hinir frambjóðendurnir 11. Hljóti enginn frambjóðandi 50% at- kvæða verður að kjósa milli tveggja efstu að hálfum mánuði liðnum, eða 19. nóvem- ber, og ræður einfaldur meirihluti þá hvor situr fímm ár í forsetahöllinni. Barátta Walesa og Kwasniewskis hefur einkennst af mikilli hörku. Forsetinn hef- ur sakað keppinaut sinn um að vera merkisberi kommúnismans og valið stæði því um áframhaldandi urhbætur eða aft- urhvarf til stjórnarhátta sem viðhafðir voru á valdatíma kommúnista. ■ Pólska þjóðhetjan um/6 Sir Cliff út- hýst á BBC-2 TÓNLIST ARSTJ ÓRI BBC-2 útvarps- stöðvarinnar hefur lagt bann við því að stöðin spili titillag nýjustu plötu breska tónlistarmanns- ins Sir Cliffs Ric- hards. Virðist hvorki duga Sir Cliff að hafa verið aðlaður á dögun- um né að vera eini breski lista- maðurinn sem átt hefur iag á toppi breska vinsælda- listans á hveijum einasta áratug af þeim fimm síð- ustu. BBC-2 leik- ur fyrst og fremst létta dægurtónlist og þótti gítarsóló í lok nýja lagsins, Misskil- inn maður, vera alltof tryllt til þess að geta fallið undir þá skilgreiningu. Þetta er í fyrsta sinn sem einhver af útvarps- stöðvum BBC leggur bann við því að Sir Cliff sé spilaður í þau 37 ár sem hann hefur notið sívinsælda. Til marks um þá hávegu sem BBC hefur haft hann í er að á undanförnum 10 árum hefur t.a.m. hvert einasta lag sem hann hefur sungið inn á plötu verið leikið einu sinni eða oftar í breska ríkisútvarpinu. 3 Neitar að Jeltsín hafi afsalað sér völdum Moskvu. Reuter. SERGEJ Medvedev, talsmaður Borís Jelts- íns Rússlandsforseta, staðhæfði við Inter- fax-fréttastofuna í gær, að forsetinn hefði ekki falið nokkrum manni neitt af völdum sínum. Víktor Tsjernomyrdín forsætisráðherra skýrði frá því á föstudag, að Jeltsín hefði falið sér að hluta yfirstjórn valdamestu ráðuneytanna, þ.e. varnar-, öiyggis-, utanríkis- og innanríkisráðuneytanna. „Það verður að leysa forsetann að hluta undan þessum verkefnum svo hann eigi betra með að ná heilsu á ný,“ sagði Tsjernomýrdín á blaðamannafundi eftir fund með Jeltsín á sjúkrahúsinu. Sagðist hann hafa séð það á augnaráði forsetans að sér bæri að axla meiri starfsbyrði. „Hins vegar munum við auðvitað ráðfæra Gratsjev kveðst taka við fyrirmælum fráJeltsín okkur við forsetann um veigamestu mál,“ bætti hann við. „Forsetinn hefur ekki afsalað sér nein- um völdum og ekkert slíkt bar á góma á fundi þeirra Tsjernomyrdíns á föstudag," sagði Medvedev. Fullyrti hann að það væri misskilningur fjölmiðla að draga þá ályktun af ummælum Tsjernomyrdíns að forsetinn hefði fært honum aukin völd. Jeltsín hefur dvalist á sjúkrahúsi í 11 daga vegna hjartaáfalls. Embættismenn í varnarmálaráðuneyt- inu sögðu Itar-TASS-fréttastofunni í gær, að liklega færi Pavel Gratsjev varnarmála- ráðherra til fundar við Jeltsín í dag, sunnu- dag. Gratsjev til fundar við Jeltsín Gratsjev sagði í fyrradag, að Jeltsín væri áfram yfirmaður alls rússneska heraflans. „Forsetinn hefur sinnt starfi sínu sem æðsti yfirmaður herjanna í veik- indum sínum. Það er frá honum sem ég hef þegið fyrirmæli," sagði Gratsjev. „Sem næsti undirmaður forsetans svara ég beint til hans, ýmist með dulmálsskeytum eða í gegnum síma. Ég svara forsætisráð- herranum varðandi hagræn varnarmál- efni,“ sagði hann. Ámyrku «a hlió mánans INNRÁSIN 20 A BAHAMAEYJAR VDÐSKIPn fflVINNULÍF ASUNNUDEGI NÁTTÚRU- BARNIÐ í BÚRINU í FÓTSPOR FORFEÐRANNA

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.