Morgunblaðið - 05.11.1995, Page 29
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 5. NÓVEMBER 1995
nemenda í framhaldsskólum, þá
held ég að ein ástæðan sé einmitt
sú að nemendur sjá ekki verknámið
sem eina heild. Botninn dettur úr
náminu þegar þeir eru búnir með
grunndeildina vegna þess að
eðlilega tengingu vantar yfir í
verklega hlutann. Þar af leiðandi
fær iðnaðurinn ekki þann menntaða
starfskraft sem hann þarfnast. Með
starfsgreinaráðum og aukinni
ábyrgð og þátttöku atvinnulífsins í
mótun námsins gefst færi á að brúa
bilið milli skóla og atvinnulífs.
Vinnuveitendur þurfa líka að leggja
meiri áherslu á menntun
starfsmanna sinna, gera kröfur um
sveinspróf við ráðningu, umbuna
þeim sem hafa réttindi, ýta á um
að menn sæki endurmenntun-
arnámskeið. Vinnuveitendur þurfa
að verða metnaðarfyllri og vandlát-
ari. Fjárfesting í menntun og hug-
viti er ekki síður arðbær en fjárfest-
ing í nýjustu tækni. Menntamál iðn-
aðarmanna hafa verið í deiglunni
alla þessa öld. Framan af sáu sam-
tök iðnaðarmanna alfarið um
menntunina og kröfðust þess að
ríkið axlaði einhveija ábyrgð í mál-
inu. Eftir 1955 snerist dæmið við,
hið opinbera tók að sér menntun-
ina, en iðnaðurinn skipti sér æ
minna af þessum málum. Nú er rík-
ið að fara þess á leit við atvinnulíf-
ið að það komi aftur inn I málið.
Á að leggja
sveinsprófíð niður?
í áliti verk- og tæknimenntunar-
nefndar frá 1971 var lagt til að
meistarakerfið yrði lagt niður og
öll iðnmenntun flutt inn í skólana
og felld inn í samræmt kerfi fram-
haldsskóla. Trúlega er fjölbrauta-
skólinn rökrétt framhald af þessari
hugsun. í framhaldinu fóru síðan æ
fleiri að velta því fyrir sér hvort
ekki mætti afnema löggildingu iðn-
greina, þ.e.a.s. fella niður sveins-
prófið og láta framhaldsskólana
algjörlega um að mennta iðnaðar-
menn. Gegn þessu mæla tvenn rök:
Verkalýðsfélögin vilja halda í lög-
gildinguna þar sem talið er æskilegt
að meðlimimir búi sannanlega yfir
ákveðinni gráðu af fagþekkingu og
fæmi. Þeir hafí í sveinsprófí sannað
kunnáttu sína. Félag járniðnaðar-
manna tekur aðeins réttindamenn
í raðir sínar, þar eð álitið er að ef
félagið fylltist af ófaglærðum ein-
staklingum hröpuðu laun jámiðnað-
armanna. Ómenntað vinnuafl er
einfaldlega ódýrara en menntað.
Sveinsprófíð er samfélagsleg skil-
greining á ákveðinni verkþekkingu
sem stéttin býr yfír: Þeir sem ekki
ná því falla í raun niður í hóp ófag-
lærðra. Sveinsprófið veitir mönnum
vegsemd og virðingu. í annan stað
þurfa menn að vinna alliengi í iðn-
inni til þess að tileinka sér hinar
ýmsu aðferðir sem tíðkast í grein-
inni, læra að vinna með ýmis efni,
læra að nota verkfæri og læra að
klára verkefni sín fumlaust. Allt
tekur þetta tíma og getur einungis.
lærst úti í atvinnulífínu. Það er vita-
vonlaust mál að flytja heila verk-
menningu inn í einn framhaldsskóla
og ætla sér að miðla henni þar á
nokkmm mánuðum. Slíkt tekur
mun lengri tíma en nemendum er
ætlað að sitja á skólabekk. Sveins-
prófíð kemur þá sem rökréttur loka-
hnykkur á námsferli sem staðið
hefur í nokkur ár og sýnir að nem-
inn hefur tíleinkað sér ákveðna
grundvallarfærni til þess að geta
leyst algengustu verkefni án þess
að verða stéttinni til skammar.
Ég tel þá að sveinsprófið eigi
fullan rétt á sér og geti verið gagn-
legt verkfæri til þess að hjálpa
mönnum að skipuleggja verknám
upp á nýtt. Sveinsprófíð færir þeim
sem það tekur aukið sjálfstraust
og virðingu, eigin og annarra. En
til þess að það komi að fullu gagni
þurfa menntamálayfírvöld að átta
sig á mikilvægi þess og stöðu í
námsferli iðnaðarfólks. Það þarf að
gera ráð fyrir því þegar stefna er
mörkuð fyrir framhaldsskólann á
íslandi.
Höfundur er íslensku- og málm-
iðnakennari við Fjölbrautaskóla
Suðumesja.
MINNINGAR
HELGI
JAKOBSSON
+ Helgi Jakobsson
fæddist í Vatns-
krók á Patreksfirði
2. janúar 1908.
Hann lést í Borgar-
spítalanum 23.
október síðastliðinn
og fór útförin fram
31. október.
HELGI K. Jakobsson
byijaði til sjós 14 ára
gamall á árabátum,
síðar á vélbátum og
togurum. Lengst af
starfaði hann á togur-
um Vatneyrarbræðra allt til ársins
1960. Síðustu tíu árin starfaði hann
sem matsveinn.
Eftir að hann kom í land starf-
aði hann við fiskverkun allt til árs-
ins 1990 en þá var hann 82 ára.
Starfsaevi hans var því löng og far-
sæl. Áttræður hætti hann þó að
vinna yfirvinnu. Starfsorka Helga
var mikil alla tíð.
Með Helga er fallin frá ein af
hversdagshetjum eldri kynslóðar-
innar sem ólust upp við mikla vinnu
og athafnasemi. Kröpp kjör hindr-
uðu ekki viljann tii að sjá sér og
sínum farborða.
Helgi var einstaklega heilsu-
hraustur alla ævi og fór í fyrsta
sinn á spítala 86 ára gamall. Lífs-
gleði og gamansemi
einkenndi Helga og
hann kvartaði aldrei
yfír einu eða neinu.
Hann var fastur fyrir
ef á móti blés og var
óhræddur við að segja
skoðanir sínar og láta
þær í ljósi. Þannig var
hans lífsstíll sem hann
hafði tamið sér.
Helgi og Lára tóku
mig í fóstur þegar á
fyrsta ári og reyndust
mér traustir og góðir
foreldrar og létu mig
aldrei fínna annað en
ég væri einn af þeirra bömum. Líf-
sviðhorf þeirra urðu mér haldgott
veganesti og hefur það reynst mér
vel alla ævi.
Með þessum örfáu kveðjuorðum
vil ég þakka fósturföður mínum
umhyggju hans og alúð í uppvextin-
um. Eg leit upp til hans með mik-
illi virðingu eins og til eigin föður.
Síðustu árin dvaldi Helgi á
Hrafnistu í Hafnarfírði og naut þar
alúðar sem ber að þakka.
Á kveðjustund ber að þakka og
votta þeim virðingu sem sáu sér
fært að ala önn fyrir hvítvoðungi
sem þurfti á umhyggju að halda í
bemsku.
Guðbjartur Einarsson.
BENJAMÍN GUNNAR
ODDSSON
+ Benjamín Gunnar Oddsson
fæddist á Flateyri við Ön-
undarfjörð 23. júní 1936. Hann
Iést af slysförum 26. október
síðastliðinn og fór útför hans
fram frá Flateyrarkirkju 3.
nóvember.
Kallið er komið,
komin er nú stundin,
vinaskilnaðar viðkvæm stund.
Vinirnir kveðja
vininn sinn látna,
er sefur hér hinn síðsta blund.
Margs er að minnast,
margt er hér að þakka.
Guði sé iof fyrir liðna tíð.
Margs er að minnast,
margs er að sakna.
Guð þerri tregatárin stríð.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
Gekkst þú með Guði,
Guð þér nú fylgi,
hans dýrðarhnoss þú hljðta skalt
(V. Briem.)
Með þessum línum kveðjum við
Benna, góðan samstarfsfélaga og
vin. Elsku Guðrún og ijölskylda,
megi algóður Guð gefa ykkur styrk
á sorgarstund.
Starfsfólk Mjólkursamlags
ísfirðinga.
Handrit afmælis- og minningargreina skulu vera vel frá gengin, vélrituð eða tölvu-
sett. Sé handrit tölvusett er æskilegt, að disklingur fylgi útprentuninni. Auðveld-
ust er móttaka svokallaðra ASCII-skráa, öðru nafni DOS-textaskrár. Ritvinnslu-
kerfin Word og Wordperfect eru einnig auðveld f úrvinnslu. Senda má greinar til
blaðsins á netfang þess Mbl@centrum.is en nánari upplýsingar þar um má lesa á
heimasfðum. Það eru vinsamleg tilmæli að lengd greina fari ckki yfir eina og hálfa
örk A-4 miðað við meðallínubil og hæfilega Ifnulengd — eða 3600-4000 slög.
Höfundar eru beðnir að hafa skfrnarnöfn sfn en ekki stuttnefni undir greinunum.
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir og afi,
EINAR S. ERLENDSSON
bifreiðastjóri,
sem lést á Hrafnistu í Hafnarfirði
26. október sl., verður jarðsunginn frá
Víðistaðakirkju í Hafnarfirði þriðjudag-
inn 7. nóvember kl. 13.30.
Ingibjörg Þorsteinsdóttir,
Hinrik Einarsson, Helga H. Magnúsdóttir,
Grétar Einarsson, Guðný Stefánsdóttir,
Eygló Einarsdóttir, Haukur Reynisson,
Bára Einarsdóttir, Gunnar Bjarnason,
Erlendur S. Einarsson,
Haraldur Einarsson, Gerður Kristjánsdóttir,
Jóhanna Einarsdóttir, Ársæll Ársælsson
og barnabörn.
t
Þökkum samúð og hlýhug vegna fráfalls frænda okkar,
SIGURÐAR KRISTJÁNSSONAR
frá Bugðustöðum.
Systkinabörnin.
Aðalsteinn Jónsson,
Grétar Páll Aðalsteinsson,
Hörður Vilhjálmsson
og barnabörn.
Ástkær sonur okkar, tengdasonur, dóttir, tengdadóttir, mágur,
mágkona, systkini, frændsystkini og barnabörn,
HARALDUR EGGERTSSON,
SVANHILDUR HLÖÐVERSDÓTTIR,
HARALDUR JÓN HARALDSSON,
ÁSTRÓS BIRNA HARALDSDÓTTIR
°g
REBEKKA RUT HARALDSDÓTTIR,
Hjallavegi 10,
Flateyri,
sem létust af slysförum þann 26. október sl., verða jarðsungin
frá Hallgrímskirkju þriðjudaginn 7. nóvember kl. 15.00.
Þeim, sem vildu minnast hinna látnu, er bent á björgunarsveitina
Sæbjörgu á Flateyri.
Eggert Jón Jónssson, Hlöðver Oddsson,
Laufey Guðbjartsdóttir, Birna Júliusdóttir,
Kristín Ágústsdóttir, Kristján Hlöðversson,
Brad Egan, Þórdfs ívarsdóttir,
Magnús Gunnar Eggertsson, Guðríður Hlöðversdóttir,
Kristbjörg Sunna Reynisdóttir, Arnar S. Helgason,
Guðrún Sigurbjört Eggertsdóttir,
Ómar Ingi Eggertsson,
íris Edda Thompson,
Helga Ósk Eggertsdóttir
og önnur f rændsystkini.
t
Elskuleg eiginkona mín, móðir og
amma,
SVANHILDUR ÞÓRODDSDÓTTIR,
Norðurbrún 1,
sem andaðist á Droplaugastöðum
26. október verður jarðsungin frá Foss-
vogskirkju þriðjudaginn 7. nóvember
kl. 15.00.
t
Ástkær eiginmaður minn, faöir okkar,
tengdafaðir og afi,
GUÐNI VILMUNDARSON
frá Löndum,
Grindavík,
Búðagerði 7,
verður jarðsunginn frá Bústaðakirkju
mánudaginn 6. nóvember kl. 15.00.
Nína Oddsdóttir,
Rósmundur M. Guðnason, Helga Sigurðardóttir,
Vilmundur G. Guðnason, Guðrún Nielsen,
Oddur Th. Guðnason, Dýrfinna H. Sigurðardóttir,
Gunnar Gfsli Guðnason, Guðlaug Magnúsdóttir,
og barnabörn.
Ástkær eiginmaður minn, faöir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
JÓN HÚNFJÖRÐ JÓNASSON
frá Hvammstanga,
Fannafold 22,
Reykjavfk,
andaðist í Landspítalanum að morgni
3. nóvember.
Jarðarförin auglýst síðar.
Helga Ágústsdóttir,
dætur, tengdasynir, afa- og langafabörn.