Morgunblaðið - 05.11.1995, Blaðsíða 24
24 SUNNUDAGUR 5. NÓVEMBER 1995
MORGUNBLAÐIÐ
KVIKMYNDIR/Laugarásbíó og Sambíóin sýna bandarísku spennumyndina Hættuleg
tegund, eða Species eins og hún heitir á frummálinu. Með aðalhlutverk í myndinni fara
Óskarsveðlaunahafinn Ben Kingsley, Michael Madsen, Alfred Molina og Forest Whitaker.
Hættuleg
sending
Fjölhæfur skap
gerðarleikari
ÓSKARSVERÐLAUNAHAF-
INN Ben Kingsley, sem fer
með hlutverk Xavier Fitch í
kvikmyndinni Species, er al-
mennt viðurkenndur sem einn
fjölhæfasti skapgerðarleikari
samtímans, en hlutverkin sem
hann hefur brugðið sér í eru
ákaflega fjölbreytt. Frammi-
staða hans í hlutverki gyðings-
ins Itzhak Stern í kvikmynd
Stevens Spielbergs, Lista
Schindlers (1993), bar hróður
hans víða og fyrir hlutverkið
hlaut hann verðlaun Bresku
kvikmyndastofnunarinnar
sem besti leikari. Þá hlaut
hann nýlega mikið lof fyrir
hlutverk sitt í Dauðinn og
stúlkan (1994), sem nýlega
var sýnd í Laugarásbíói, en
þar lék hann á móti Sigourney
Weaver.
Kingsley vakti fyrst alþjóðlega
athygli með snilldarleik sínum í
aðalhlutverki í kvikmyndinni
Ghandi (1982), en hann hlaut
Óskarsverðlaunin fyrir hlutverk-
ið. Fyrir hlutverk sitt í myndinni
varð þessi smávaxni leikari að
létta sig um rúmlega 10 kfló og
hafði hann betur í samkeppni við
þá Paul Newman og Dustin
Hpffman um Óskarsverðlaunin.
Ghandi var önnur kvikmyndin
sem Kingsley lék í. Fyrsta mynd-
in var Fear Is the Key, sem gerð
var 1972, en tíu ár liðu þar til
hann sást aftur á hvíta tjaldinu
í Ghandi. Aftur hlaut hann svo
tilnefningu til Óskarsverðlauna
árið 1992, en í það skiptið var
hann tilnefndur sem besti leikari
í aukahlutverki í kvikmyndinni
Bugsy. Kingsley hefur leikið
samtals í 31 kvikmynd fyrir
breiðtjald og sjónvarp frá árinu
1972. Þekktar myndir sem hann
hefur leikið í eru t.d. Dave
(1993), Searching for Bobby
Fischer (1993), Sneakers (1992),
Without a Clue (1988), Pascali’s
Island (1988), Maurice (1987),
Turtle Diary (1985) og Betrayal
(1983).
Ben Kingsley heitir réttu nafni
Krishna Bhanji. Hann er fæddur
31. desember 1943 í bænum
Snaiton í Yorkshire í Englandi,
sonur indversks læknis og
breskrar leikkonu. Eftir fram-
haldsskólanám fetaði hann í fót-
spor móður sinnar og lék á sviði
með ýmsum landsbyggðarleik-
húsum, en fyrsta hlutverkið á
leiksviði í London fékk hann í
leikritinu A Smashing Day og
árið 1967 hóf hann svo að starfa
með Royal Shakespeare Comp-
any. Þaðan lá svo leiðin í kvik-
myndimar.
ÍSINDAMENN í Bandaríkj-
unum fá svar utan úr
geimnum ásamt sýni af erfða-
efni úr geimveru og upplýsingar
um hvemig sameina megi sýnið
erfðaefni úr mönnum. Vísinda-
mennirnir undir stjórn Xavier
Fitch (Ben Kingsley) hefjast
handa við tilraunirnar og skapa
stúlkubarnið Sil, sem við fyrstu
sýn og kynni virðist vera full-
komlega eðlileg mannvera. En
falin myndavél í rannsóknastofu
vísindamannanna leiðir fljótlega
í ljós sannleikann um þessa
óvenjulegu lífveru. Þegar eðli
hennar verður mönnum ljóst er
ákveðið að aflífa hana, en stúlk-
an nær hins vegar að sleppa úr
höndum skapara sinna áður en
tekst að hrinda ákvörðuninúi í
framkvæmd.
Þegar menn uppgötva hvarf
stúlkunnar er í skyndingu sett
saman sérsveit til að finna hana,
en sérsveitin er undir stjórn
Press Lennox (Michael Madsen),
fyrrum foringja í landgönguliði
hersins. Á meðan heldur Sil til
Los Angeles og hefur hún ekki
í hyggju að snúa aftur til rann-
sóknarstofunnar. Hún er orðin
að 21 árs gamalli glæsikonu og
helsta ósk hennar er að eignast
mann og bam og lifa eðlilegu
h'fi. Ef sú ætlun hennar tekst
mun mannkyhið hins vegar ekki
bíða þess bætur, því Sil getur
frjóvgað allt að eitt þúsund egg
í einu, og takist henni það blas-
ir útrýming mannkynsins við af
völdum hinnar hættulegu teg-
undar.
Leikstjóri Species er Roger
Donaldson, en hann á meðal
annars að baki pólitíska spenn-
utryllinn No Way Out og ævin-
týramyndina The Bounty, en
einnig hefur hann gert gaman-
myndina Cadillac Man. Með
Species sýnir hann svo á sér enn
eina hliðina, en myndin er frum-
raun hans í gerð vísindasögu.
Donaldson fæddist í Ástralíu
en flutti 19 ára gamall til Nýja-
Sjálands. í fyrstu starfaði hann
þar sem Ijósmyndari áður en
hann hóf að gera sjónvarpsaug-
lýsingar, heimildamyndir og
sjónvarpsþætti. Meðal fyrstu
verka hans fyrir sjónvarp var
sjö þátta röð sem kallaðist
Winners and Losers. Fyrstu
kvikmyndinni leikstýrði Donald-
son árið 1977, en það var Sleep-
ing Dogs, sem var fyrsta kvik-
myndin í fullri lengd sem gerð
hafði verið í Nýja-Sjálandi á 15
ára tímabili. Næsta mynd hans,
Smash Palace, færði honum svo
alþjóðlega viðurkenningu sem
kvikmyndaleikstjóri.
Kvikmyndaframleiðandinn
Dino De Laurentiis réð Donald-
son í kjölfarið til að leikstýra
The Bounty, en í þeirri útgáfu
sögunnar um uppreisnina á
Bounty fóru þeir Mel Gibson og
Anthony Hopkins með aðalhlut-
verkin. Næsta mynd Donaldsons
var sú fyrsta sem hann gerði í
Bandaríkjunum, en það var
dramað Marie með Sissy Spacek
í aðalhlutverki. Svo kom hinn
vinsæli spennutryllir No Way
Out með Kevin Costner, Sean
Young og Gene Hackman í aðal-
hlutverkum. Aðrar myndir sem
Donaldson hefur leikstýrt eru
Cocktail með Tom Cruise, Ca-
dillac Man með Robin Williams,
White Sands með Willem Dafoe
og síðast endurgerð The
Getaway með þeim Kim Basing-
er og Alec Baldwin, en Michael
Madsen, sem leikur í Species,
fór einnig með hlutverk í henni.
Sá sem heiðurinn á af sjónb-
rellunum í Species heitir Richard
Edlund, en hann er talinn með
frumkvöðlum brellumeistara af
þessu tagi og þykir hann stöð-
ugt fara fram úr sjálfum sér í
fræðunum og setja nýja staðla.
Edlund hefur hlotið fem Óskars-
verðlaun, en þau fékk hann fyr-
ir vinnu sína við gerð myndanna
Star Wars, Raiders of the Lost
Ark, The Empire Strikes Back
og The Réturn of the Jedi. Að
auki hefur hann hlotið sex til-
nefningar til Óskarsverðlauna.
Það var fyrir Ghostbusters,
2010, Poltergeist, Die Hard,
Poltergeist II og Álien3.
Edlund lærði kvikmyndagerð
við kvikmyndaskóla University
of Southem California,. og að
því loknu starfaði hann við gerð
Star Trek þáttanna og sjón-
varpsauglýsinga. Seinna gekk
hann svo til liðs við George
Lucas, leikstjóra Star Wars
myndanna, í hinu fræga brellu-
fyrirtæki hans, Industrial Light
& Magic. Árið 1983 stofnaði
hann svo sitt eigið fyrirtæki sem
SIL lætur ekkert aftra sér við það ætlunarverk að auka kyn sitt hér á jörðu.
ROGER Donaldson,
leikstjóri Species.
MICHAEL Madsen leikur Press Lennox,
sem er ákveðinn í að bana geimverunni.
heitir Boss Film Studios, en það
hefur átt þátt í gerð sjónbrellna
í myndunum Waterworld,
Outbreak, True Lies, The Spec-
ialist, Drop Zone, Cliffhanger
og Last Action Hero, svo aðeins
est Whitaker. Michael Madsen
sást síðast á hvíta tjaldinu í
Wyatt Earp, en þar lék hann á
móti Kevin Costner. Hann gat
sér frægð og góða dóma gagn-
rýnenda fyrir hlutverk sitt sem
Mr. Blonde í mynd Quentins
Tarantinos, Reservoir Dogs, en
áður hafði hann m.a. leikið í
myndunum Thelma and Louise,
The Doors og Kill Me Again.
Madsen er fæddur í Chicago þar
sem hann lærði leiklist, en hann
fluttist til Los Angeles þegar
honum áskotnaðist hlutverk í
myndinni War Games.
Alfred Molina lék síðast á
móti Marisu Tomei og Anjelicu
Huston í The Perez Family, en
þar áður lék hann á móti Mel
Gibson og Jodie Foster í Mav-
erick. Þá gat hann sér gott orð
fyrir frammistöðuna í bresku
myndunum Prick up your Ears,
þar sem hann lék á móti Gary
Oldman, og Enchanted April,
þar sem hann lék á móti Mir-
öndu Richardson. Molina er
fæddur í Englandi og hóf feril
sinn á leiksviði í London.
Forest Whitaker hefur ítrek-
að sýnt fram á hæfni sína sem
leikari í myndum á borð við The
Crying Game, Platoon og Bird,
en fyrir túlkun sína á jassistan-
um Charlie Parker í Bird sem
Clint Eastwood leikstýrði hlaut
hann verðlaun sem besti leikari
á kvikmyndahátíðinni í Cannes
árið 1988. Meðal fjölmargra
annarra mynda sem hann hefur
leikið í eru Good Morning, Viet-
nam; Consenting Ádults,
Stakeout, The Color of Money
og Blown Away.
fáeinar myndir séu nefndar.
Sem fyrr segir fer Ben Kings-
ley með aðalhlutverkið í Speci-
es, en með önnur veigamikil
hlutverk fara þeir Michael
Madsen, Alfred Molina og For-